Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Síða 2
2 Fréttir 14.–16. desember 2012 Helgarblað
Dómsmorðið
á Sigurþóri
3 Hæstiréttur hefur leiðrétt
dóm yfir Sigurþóri
Arnarssyni sem
sat í fangelsi í eitt
og hálft ár fyrir
morð sem framið
var á skemmti-
staðnum Vegas
árið 1997. DV fjallaði um málið á
mánudag en Sigurþór var sýknað-
ur í Héraðsdómi Reykjavíkur á sín-
um tíma en sakfelldur í Hæstarétti
árið 1998 án þess þó að vitni væru
leidd fram eða skýrsla tekin af hon-
um. Sigurþór fór með málið fyrir
Mannréttindadómstól Evrópu sem
komst að þeirri niðurstöðu árið 2003
að reglur um réttláta málsmeðferð
hefðu verið brotnar.
Slapp með stórfé
2 Heildartap Ís-lenskrar erfða-
greiningar frá ár-
inu 1997 til ársloka
2011 nemur rúm-
lega 60 milljörðum
króna. Fyrirtækið
var selt í vikunni
til bandaríska líf-
tækni- og lyfjaframleiðslufyrir-
tækisins Amgen fyrir 415 milljónir
Bandaríkjadala, eða um 52 millj-
arða íslenskra króna. Tap félagsins
síðastliðin fimmtán ár er því hærra
en kaupverðið sem Amgen reiðir
fram en Íslensk erfðagreining hefur
á tímabilinu skipt nokkrum sinn-
um um eigendur í endurfjármögn-
un. Ástæðan fyrir þessu mikla tapi
Íslenskrar erfðagreiningar er sú að
tekjur félagsins eru af afar skornum
skammti.
Feitar konur
missa vinnuna
1 Feitar konur voru líklegri en
konur í kjörþyngd
til að missa vinnuna
í kjölfar kreppunn-
ar. Sami munur kom
ekki fram hjá körl-
um. Þetta kom fram
í meistaraprófsrit-
gerð Hörpu Hrundar Berndsen í
heilsuhagfræði við Háskóla Íslands.
DV fjallaði um niðurstöðurnar á
mánudag. Í umfjöllun blaðsins kom
fram að niðurstöður rannsókna á
áhrifum offitu á vinnumarkað hafa
gefið til kynna marktækan mun á
atvinnustigi kvenna eftir líkams-
þyngdarstuðli. Munurinn birtist í því
að konur sem glíma við offitu væru
líklegri en hinar til að vera án vinnu.
Fréttir vikunnar Þessar fréttir bar hæst í DV í vikunni
Söfnuðu báðir
undirskriftum
Árni Páll Árnason þingmaður
og Guðbjartur Hannesson vel-
ferðarráðherra unnu saman að
því að safna 150 undirskriftum
til að knýja fram allsherjarkosn-
ingu á landsfundi Samfylkingar-
innar á næsta ári. Kosið verður
á milli þeirra félaga, og hugs-
anlega einhvers annars fram-
bjóðanda, í kosningu meðal
allra flokksmanna um hver mun
taka við af Jóhönnu Sigurðar-
dóttur forsætisráðherra sem
formaður flokksins. Þetta kom
fram á Beinni línu á DV.is þar
sem Guðbjartur svaraði lesend-
um. „Kosningin verður síðari
hluta janúar og niðurstaðan
kynnt á landsfundi 2. febrúar,“
sagði hann.
Stórfelld ræktun
Héraðsdómur Reykjaness hefur
dæmt karlmann í 18 mánaða
fangelsi fyrir stórfellda kannabis-
ræktun. Maðurinn var ákærður
fyrir að hafa þann 12. ágúst í
fyrra, í skemmu í Sandgerði, haft
í vörslu sinni 841 kannabisplöntu
og að auki rúmt kíló af kanna-
bislaufum. Maðurinn játaði
brot sitt fyrir dómi en verjandi
hans vildi að dómari tæki tillit
til þess að hann væri með væga
greindarskerðingu. Hann ætti
erfitt með að tjá sig og skilja eftir
að hafa lent í umferðarslysi árið
2005. Dómari tók hins vegar ekki
tillit til þess og sakfelldi manninn
fyrir brotin. Dómurinn er óskil-
orðsbundinn en manninum var
einnig gert að greiða allan sakar-
kostnað málsins, tæpar 200 þús-
und krónur.
„Eiginlega ást
við fyrstu sýn“
V
ið erum í skýjunum. Við
ætluðum að setja upp
hringana á aðfangadags-
kvöld en kvöldið áður
var okkur bent á þessa
dagsetningu og ákváðum bara að
láta verða af því, segir Árdís Fjóla
Jónmundsdóttir sem trúlofaðist
unnustu sinni, Ingu Birnu Krist-
jánsdóttur, miðvikudaginn 12.12.
2012 klukkan 12.12 á Café Mílanó
í Faxafeni.
„Við ákváðum að setja upp
hringana þar vegna þess að þar
fórum við á okkar svona fyrsta
opin berlega stefnumót,“ segir Ár-
dís. Turtildúfurnar hafa verið
saman síðan í júní á þessu ári en
hafa þekkst í rúmlega ár. Inga
Birna var karlmaður þar til á síð-
asta ári en þá fór hún í kynleið-
réttingaraðgerð.
Börnin taka sambandinu vel
„Við erum búnar að vera vinkonur
í rúmt ár og byrjuðum saman 8.
júní. Það var eiginlega ást við fyrstu
sýn þó að við áttuðum okkur ekki á
því fyrr en í sumar. Við erum bún-
ar að búa saman frá fyrsta degi. Ég
var í heimsókn hjá henni þegar
við byrjuðum saman og ég hef
bara ekkert farið síðan,“ segir Ár-
dís hlæjandi. Þær Inga Birna búa
saman á Dalvík en voru staddar í
bænum þegar DV talaði við Árdísi.
„Við erum í bænum vegna þess að
sonur Ingu er að halda upp á 10
ára afmælið sitt,“ segir hún en Inga
á tvö börn úr fyrra sambandi. Árdís
segir börnin taka sambandinu vel
líkt og reyndar langflestir í kring-
um þær.
Mjög heppnar
„Við höfum eiginlega ekki mætt
neinum fordómum. Börnin taka
þessu mjög vel. Við erum búnar
að vera mjög heppnar. Það er ein
systir mín með smá fordóma en
við erum ekkert að láta það angra
okkur, hún verður bara að eiga það
við sig. Við erum ekkert að spá í
það hvað hún er að hugsa því við
fáum svo jákvæð viðbrögð alls
staðar annars staðar. Það má líka
alveg koma fram að móttökurnar á
Dalvík þar sem við búum eru bún-
ar að vera stórkostlegar. Við fórum
í viðtal við blaðið Norðurslóð sem
er gefið út á staðnum og Inga sagði
alveg sína sögu þannig að það er
allt uppi á yfirborðinu. Við höfum
engum fordómum mætt þarna
fyrir norðan. Við erum búnar að
fá mikið hrós fyrir að hafa komið
svona beint fram með allt um leið.
Okkur fannst langbest og hrein-
legast að gera það svoleiðis,“ segir
Árdís.
Brúðkaupið á ársafmælinu
Þær Árdís og Inga hafa ekki
ákveðið hvort brúðkaupið verði
stórt í sniðum en þær eru ákveðnar
að gifta sig á Dalvík. Þær eru hins
vegar ekki byrjaðar að skipuleggja
brúðkaupið enda nýtrúlofaðar.
„Við erum ekki alveg búnar að
ákveða það, þetta er enn svona á
frumstigi. En það verður 8.
júní, ári eftir að við byrjuð-
um saman.“ Hjónakornin
tilvonandi ætla að vera á
Skagaströnd yfir jólahátíð-
ina í faðmi fjölskyldu Ingu.
„Móðir hennar Ingu er þar
og tveir bræður. Hennar
fjölskylda verður í raun og
veru öll þar um áramótin
og við ætlum að eyða há-
tíðinni saman,“ segir hin
nýtrúlofaða og hamingju-
sama Árdís að lokum. n
n Árdís Fjóla og Inga Birna trúlofuðu sig 12.12. 2012 klukkan 12.12.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Hamingjusamar
Þær Árdís Fjóla og Inga
Birna eru í skýjunum með
trúlofunina. Þær hafa
verið saman síðan í júní og
búið saman frá fyrsta degi
sambandsins.
„Ég var í heimsókn hjá henni
þegar við byrjuðum saman
og ég hef bara ekkert farið síðan