Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Blaðsíða 24
Sandkorn Á kæra sérstaks saksóknara gegn Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, fjár- festi og fyrrverandi hluthafa í Glitni, í Aurum-málinu er sú fyrsta sinnar tegundar í uppgjör- inu við bankahrunið þar sem stór hlut- hafi í fjármálafyrirtæki er ákærður fyrir „skuggastjórnun“. Jón Ásgeir gegndi ekki formlegri stöðu innan Glitnis, þrátt fyr- ir að vera ráðandi hluthafi í bankanum í gegnum FL Group; hann var ekki for- stjóri, aðstoðarforstjóri, stjórnarformað- ur eða stjórnarmaður í Glitni. Samt er hann ákærður. Málið snýst um sex milljarða lán- veitingu frá Glitni til skúffufélagsins FS38 ehf., í júlí 2008, sem svo notaði lánið til að kaupa bresku Aurum-skartgripakeðj- una af Fons, eignarhaldsfélagi Pálma Haraldssonar. Kaupverðið á Aurum var nærri því þrefalt hærra en það hefði átt að vera og hefur slitastjórn Glitnis einnig höfðað skaðabótamál gegn Jóni Ásgeiri, og háttsettum stjórnendum Glitnis, út af lánveitingunni. Byggir málarekstur- inn á því að viðskiptin hafi ekki verið gerð með hagsmuni Glitnis að leiðarljósi heldur þeirra sem talið er að hafi notið góðs af henni, Pálma Haraldssyni og Jóni Ásgeiri. Talsverðar umræður hafa verið í fjölmiðlum um merkingu hugtaksins „skuggastjórnun“ frá bankahruninu 2008 og hefur nafn Jóns Ásgeirs oft bor- ið á góma í tengslum við hana. Ástæðan er sú að til er tölvupóstur frá Jóni Ásgeir til Lárusar Welding, forstjóra Glitnis, þar sem hann beinlínis skipar honum fyrir verkum. Jón Ásgeir lagði meðal annars línurnar í Aurum-málinu þar sem hann sagði Lárusi fyrir verkum: „Þetta eru málin nenni ekki að bögga ykkur á hverj- um degi með þessu enda ætlast ég til að CEO þessara félaga vinni sín mál ef við komum þessum málum frá er borðið mitt hreint. Annars er kannski best að ég verði starfandi stjórnarformaður GLB (Glitnis).“ Sjálfur kvartaði Lárus yfir því í tölvupósti til Jóns Ásgeirs að hann kæmi fram við sig eins „útibússtjóra“ en ekki „forstjóra“. Með öðrum orðum: Heim- ildir eru fyrir því að Jón Ásgeir hafi stýrt Glitni í gegnum Lárus í einhverjum til- fellum. Haft hefur verið eftir Stefáni Má Stefánssyni, fyrrverandi lagaprófessor í Háskóla Íslands, á Vísi að engin heimild sé til í íslenskum lögum fyrir því að hlut- hafi sem ekki vinnur hjá eða situr í stjórn hlutafélags sé dreginn fyrir dóm vegna ákvarðana stjórnenda fyrirtækis sem bera lagalega ábyrgð á því. Á þetta hafa ýmsir þeirra aðila, sem vændir hafa ver- ið um skuggastjórnun innan íslenskra fjármálafyrirtækja fyrir hrun, bent, með- al annars Björgólfur Thor Björgólfsson, fyrrverandi aðaleigandi Landsbankans. Hann sendi þáverandi fréttastjóra Stöðv- ar 2, Óskari Hrafni Þorvaldssyni, bréf árið 2010 vegna umfjöllunar fjölmiðils- ins um skuggastjórnun. Í bréfinu kvart- aði Björgólfur undan því að í frétt hefði komið fram að engin ákvæði væru til íslenskum lögum um „skuggastjórnun“ og var fundið að þeirri ályktun sem þar kom fram að ráðandi hluthafar íslensku bankanna myndu líklega „sleppa“ við að sæta ábyrgð vegna afskipta sinna af rekstri bankanna. „„Sleppa?“ Undan refsiákvæðum sem ekki eru til vegna meintra brota sem ekki eru nefnd einu orði í íslenskri löggjöf?“ Miðað við ákæruna gegn Jóni Ásgeiri „sleppa“ „skuggastjórnendurnir“ hins vegar ekki við ákæru í öllum tilvikum. Sérstakur saksóknari hefur nú hins vegar komist að þeirri niðurstöðu að hægt sé að ákæra stóra hluthafa íslensku bankanna fyrir afskipti sín af einstaka ákvörðunum innan bankanna. Í áður- nefndu viðtali við Vísi sagði Stefán Már að til þess að íslenskir dómstólar geti fallist á að „skuggastjórnendur“ geti borið refsiábyrgð í tilteknum málum þá þurfi að liggja fyrir að þessir aðilar hafi stýrt þeim fyrirtækjum sem um ræðir: „Ef að íslenskir dómstólar tækju slíka kröfu til greina þá yrði hún sennilega byggð á því að þarna hafi farið fram svokölluð raunveruleg stjórnun. Þannig að viðkomandi aðili hafi í raun stjórnað félaginu …“ sagði Stefán Már. Hugsanlegt er að sérstakur sak- sóknari telji, út frá þeim gögnum sem liggja fyrir um aðkomu Jóns Ásgeirs að stjórnun Glitnis, og handstýringu hans á forstjóra bankans, að slík „raunveruleg stjórnun“ hafi verið fyrir hendi af hans hálfu í tilfelli Glitnis. Heilbrigð skynsemi – ekki lagatækni – eftir lestur á heimild- um um starfsemi Glitnis bendir til að þetta mat sé rétt – ákæran sjálf hefur ekki verið gerð opinber ennþá. Ákæran gegn Jóni Ásgeiri hefur því fordæmisgildi í sambærilegum mál- um um „skuggastjórnun“ sem eru til rannsóknar hjá sérstökum saksóknara. Hugsanlegt er því að fleiri stórir hlut- hafar í fjármálafyrirtækjum kunni að verða ákærðir fyrir „skuggastjórnun“ – skilið á þann veg að hún sé óformleg stýring hluthafa, án beinnar lagaábyrgð- ar viðkomandi, á einstaka starfsmönn- um banka í tilteknum málum. Þó verð- ur að benda á að ekki liggja fyrir eins sterkar og upplýsandi heimildir um neinn „skuggastjórnanda“ og Jón Ásgeir í Glitni. Fordæmið um „ skuggastjórnun“ gæti því orðið eitt, og aðeins eitt, í saka- málum sérstaks saksóknara vegna hrunsins. Geir sniðgenginn n Á útvarpsstöðinni Bylgj- unni er fyrirbæri sem kallast hlustendaráð. Eftir því sem næst verður komist sam- anstendur það aðal- lega af Rúnari Róbertssyni útvarps- manni sem samkvæmt því hefur völd til að útiloka tónlistarmenn. Fullyrt er að Geir Ólafsson stórsöngvari hafi ekki hlotið náð fyrir augum ráðstjórnar Bylgjunnar og ný plata hans sem gerð er með liðsinni toppmanna á heimsvísu fáist ekki spiluð. Hermt er að Geir hafi fengið ónot frá Bylgjumönnum. Ræða eða listaverk n Framsóknarmenn í Skagafirði hafa jafnan feng- ið góða heiðursgesti til sín á árlegt héraðsmót. Í bókinni Skagfirskar skemmtisögur 2 segir frá því að formaðurinn, Steingrímur Hermannsson, mætti. Eftir héraðsmótið kom Guttormur Óskarsson, gjaldkeri Kaupfélagsins, í bókabúðina til Brynjars Páls- sonar og bóksalinn spurði um samkomuna. „Stór- kostleg,“ sagði Guttormur. „Og flutti Steingrímur góða ræðu?“ spurði bóksalinn þá. „Þetta var ekki ræða, Brynjar, þetta var listaverk!“ Blóðugur Gísli n Gísli Einarsson sjónvarps- maður bjó um tíma í Skagafirði þar sem hann komst ungur í þær álnir að verða deildarstjóri Kaupfélags Skagfirðinga á Hofsósi. Ferð hans á fyrsta deildarstjórafundinn er lýst í Skag firskum skemmtisögum. Gísli klæddist í sitt fínasta púss og ók greitt. Allt gekk vel þar til í Hegranesinu að hann ók á gæs sem var hálfdauð eftir. Tók hann sig til við að snúa gæsina úr hálsliðnum. Gekk það brösuglega. Deildar- stjórinn var útataður í blóði og gæsaskít. Og þannig mætti hann á fundinn. Með samvisku n Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður VG í Norðvestur- kjördæmi, er væntanlega einn sam- viskusam- asti þing- maðurinn. Henni renn- ur til rifja sleifarlagið í þinginu þar sem fjölda mála er ólokið. Og hún er með lausnina. „Ég er með tillögu um að um þessi jól haldi þing- menn jólin hátíðleg á hinu háa Alþingi veri hér og klári þau brýnu mál sem liggja fyrir þinginu, geti tekið í spil af og til og litið í góða jóla- bók þess á milli,“ bloggar hún og segir að þingmenn gætu fengið fjölskyldu sína í heimsókn og gengið í kring- um jólatré. Ég er reið og sár Þetta er alveg hrikalegt ástand María Birta um framkomu eigenda verslunarmiðstöðvarinnar Kringlunnar. – DV.is Ólafur Ólafsson sem vill opna áfangaheimili fyrir fíkla. – DV „Skuggastjórnandi“ ákærður A lþingi hefur haldið vel á stjórn- arskrármálinu, sýnist mér, þegar allt er skoðað. Alþingis- menn komust ekki hjá að heyra kröfur fólksins, sem barði potta sína og pönnur á Austurvelli og víðar eftir hrun og bað m.a. um nýja stjórnar- skrá. Alþingi hafði lofað endurskoðun stjórnarskrárinnar allar götur frá 1944, en hafði ekki getað lokið því verki vegna misklíðar. Rannsóknarnefnd Al- þingis (RNA-skýrslan, 2010, 8. bindi, bls. 184) setti hrunið í samhengi við stjórnskipunina og tók undir kröfu fólksins í landinu um endurskoðun stjórnarskrárinnar eftir hrun. Þjóðarfrumvarp Alþingi brást vel við þessum áskor- unum og samþykkti einum rómi 28. september 2010 sögulega ályktun þess efnis, að hafa bæri gagnrýni RNA að leiðarljósi. Í ályktuninni segir meðal annars: „Alþingi ályktar að taka verði gagnrýni á íslenska stjórnmálamenn- ingu alvarlega og leggur áherslu á að af henni verði dreginn lærdómur. Alþingi ályktar að skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis sé áfellisdómur yfir stjórn- völdum, stjórnmálamönnum og stjórnsýslu, verklagi og skorti á form- festu.“ Í þingsályktuninni birtist lang- ur loforðalisti, sem hefst á loforði um endurskoðun stjórnarskrárinnar frá 1944. Alþingi setti stjórnarskrármálið í lýðræðislegan farveg, sem hefur vak- ið heimsathygli. Hryggjarstykkið í ferlinu var þjóðfundurinn í nóvem- ber 2010, þar sem 950 manns valin af handahófi úr þjóðskrá lögðu grunninn að nýrri stjórnarskrá. Allir Íslendingar 18 ára og eldri áttu jafna möguleika á að veljast til setu á þjóð- fundinum. Hlutverk stjórnlagaráðs, sem var kjörið af þjóðinni og skipað af Alþingi, var í reyndinni ekki annað en að færa niðurstöður þjóðfundar- ins í frumvarpsbúning. Ráðið studdist við starf stjórnarskrárnefnda Al- þingis undanfarna áratugi og einnig skýrslur og úttektir fræðimanna og stjórnlaganefndar og stefnuskrár allra stjórnmálaflokka. Höfuðeinkenni frumvarpsins er, að það fylgir niður- stöðum þjóðfundarins og fyllir einnig ýmsar eyður. Þjóðfundurinn kallaði eftir jöfnu vægi atkvæða, auðlindum í þjóðareigu og þannig áfram. Þannig bergmálaði þjóðfundurinn þjóðarvilj- ann. Þjóðin staðfesti síðan vilja sinn í atkvæðagreiðslunni 20. október, þar sem 67% lýstu stuðningi við frum- varpið í heild og einnig við jafnt vægi atkvæða og 83% studdu auðlindir í þjóðareigu. Orðalag og efni Alþingi hefur ekki setið auðum hönd- um. Það varði mörgum mánuðum í að skoða frumvarpið og beindi síðan athugasemdum og spurning- um til stjórnlagaráðs og fékk svör við þeim að loknum aukafundi ráðsins í marz. Eðlilegt getur talizt, að Alþingi áskilji sér rétt til að gera smávægi- legar breytingar á frumvarpinu í sam- ræmi við bréfaskipti þingsins og ráðs- fulltrúa í marz. Alþingi hefur einnig áskilið sér rétt til að breyta orðalagi, svo framarlega sem í þeim breyting- um felist engar efnisbreytingar. Hér þykknar þráðurinn, þar eð nefnd lög- fræðinga, sem Alþingi fól að fara yfir frumvarpið og greinargerð stjórn- lagaráðs með frumvarpinu, leggur til bæði orðalags- og efnisbreytingar á frumvarpinu og greinargerðinni og seilist því út fyrir verksvið sitt. Kjósend- ur hljóta að gera kröfu um, að Alþingi standi við upphaflega ætlan sína og geri engar efnisbreytingar á frumvarp- inu. Hollt er að rifja upp, að Bandaríkja- þing gerði af velsæmisástæðum engar breytingar á frumvarpi stjórnlagaþings- ins í Fíladelfíu 1787, hvorki orðalags- né efnisbreytingar, taldi það ekki vera í sínum verkahring, heldur sendi þingið frumvarpið óbreytt til kjósenda í fylkj- unum, sem þá voru þrettán talsins, til samþykktar eða synjunar. Bandaríska stjórnarskráin, lang- lífasta stjórnarskrá heimsins, var sam- þykkt með naumum meiri hluta at- kvæða 1787–1788 gegn harðri andstöðu. Andstæðingar frumvarpsins óttuðust, að alríkisstjórnin myndi í krafti stjórnar- skrárinnar geta skert um of svigrúm einstakra fylkja til að fara sínu fram. Svo naumur var meiri hlutinn, að hefðu 20 kjósendur sagt nei við frumvarpinu frekar en já, hefði það strandað. Hörð andstaða er eðlileg Góð stjórnarskrárfrumvörp mæta ævin- lega andstöðu þeirra, sem ætlunin er að setja stólinn fyrir dyrnar. Þrett- ándi viðaukinn við bandarísku stjórn- arskrána bannaði þrælahald 1864 og mætti að sjálfsögðu harðri andstöðu þrælahaldara í suðurríkjunum, svo harðri, að Lincoln forseti var skotinn til ólífis árið eftir, 1865. Tvisvar hafa breytingar á stjórnar- skrá Íslands vakið harðar deilur á Al- þingi. Í fyrra skiptið, 1942, var stjórnar- skránni breytt til að jafna vægi atkvæða gegn harðri andstöðu stærsta þing- flokksins, sem þá var Framsóknarflokk- urinn. Hann einangraðist eftir þetta utan ríkisstjórnar í fimm ár. Sagan endurtók sig 1959, þegar stjórnar- skránni var aftur breytt til að jafna vægi atkvæða gegn harðri andstöðu Fram- sóknarflokksins. Hann sat eftir það utan ríkisstjórnar í tólf ár. Staðhæf- ingar um, að stjórnarbætur fari jafnan fram í fullri sátt, eru rangar og stang- ast á við bæði rök og reynslu innan lands og utan. Alþingi ber að virða vilja þjóðarinnar með því að samþykkja nýja stjórnarskrá fyrir þinglok og aftur, þegar þing kemur saman á ný í vor. Vor í lofti og varla komin jól Kjallari Þorvaldur Gylfason Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjóri: Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri og vefstjóri DV.is: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: www.dv.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 24 14.–16. desember 2012 Helgarblað „Alþingi setti stjórn- arskrármálið í lýð- ræðislegan farveg, sem hefur vakið heimsathygli. Leiðari Ingi Freyr Vilhjálmsson ingi@dv.is „Ef að íslenskir dóm- stólar tækju slíka kröfu til greina þá yrði hún sennilega byggð á því að þarna hafi farið fram svokölluð raunveruleg stjórnun.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.