Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Blaðsíða 42
Varð mamma í menntó 42 Viðtal 14.–16. desember 2012 Helgarblað É g íhugaði að verða prestur og held að ég hefði orðið ágætis prestur. En svo varð kennara­ námið fyrir valinu með trúar­ bragðafræði sem aðalgrein. Ég fór þá leiðina,“ segir prestsdóttirin Svanhildur Þórsteinsdóttir sem hlust­ endur Bylgjunnar þekkja sem útvarps­ konuna Svansí. Átti ekki fyrir klósettpappír Svanhildur ólst upp á prestssetrinu Miklabæ í Skagafirði og er komin af mikilli prestaætt. Hún er þakklát fyrir uppeldið í sveitinni en fjölskyldan flutti í borgina þegar hún var 15 ára. „Ég hef ekki komið norður síðan við fluttum, nema þá sem ferðamaður. Mér fannst æðislegt að komast í borgina enda hafði ég alltaf fylgst vel með tísku og menningarlegum straumum og stefn­ um,“ segir Svanhildur sem útskrifaðist úr Menntaskólanum við Sund árið 1990, þá nýbökuð móðir. Hún viðurkennir að það hafi verið erfitt að vera ófrísk svo ung og sér í lagi þar sem hún var ein á báti. „En ég fékk góðan stuðning frá foreldrum mínum og systrum. Þau stóðu þétt við bak­ ið á mér á meðan ég kláraði skólann. Tímarnir voru samt oft erfiðir. Maður átti til dæmis ekki alltaf fyrir klósett­ pappír. Þá fór maður til mömmu og fékk lánaða rúllu og skar bita af ostin­ um í leiðinni. Þetta var oft hundleiðin­ legt en líka lærdómsríkt.“ Fékk stuðning frá foreldrum Þrátt fyrir að hafa verið aðeins 18 ára segir hún aldrei neitt annað hafa kom­ ið til greina en að eiga barnið. „Mér fannst ég voðalega fullorðin, var sjálf elst og hafði passað systur mínar og hjálpað til heima. Ég vissi hversu mikil vægt hlutverk biði mín. En þetta var mikil vinna. Einu sinni barn, alltaf barn. Þú ert alltaf að hugsa um þennan einstakling, líka þegar hann er fluttur að heiman. Ég mæli samt alls ekki með því að stelpur eignist barn snemma. Í fyrsta lagi um 28 ára, segi ég.“ Hún seg­ ir foreldrana sína hafa brugðið þegar hún tilkynnti þeim að hún ætti von á barni. „En þau létu mig aldrei finna fyrir reiði, sögðust styðja mig og voru til staðar,“ segir hún og bætir aðspurð við að hún hafi lítið pælt í því hvað aðrir í kring hefðu um málið að segja. „Ég fann samt fyrir því á fæðingar­ deildinni að það var komið fram við eldri konurnar öðruvísi en mig. Það var litið á mig sem hálfgerða stelpu­ skjátu.“ Tíu árum síðar eignaðist hún sitt annað barn en hún og eiginmaður hennar eiga saman tvö börn, níu og 15 ára. „Þá var ég miklu þroskaðri og með mann við hliðina á mér. Auðvit­ að er alltaf sama tilfinningin að eignast barn en þarna hafði ég reynsluna og vissi hvað beið mín. Ég var líka búin að koma mér betur fyrir. Við áttum okkar íbúð. Það er allt erfiðara þegar maður er einn. Þá er baslið meira.“ Hún segir sambandið milli sín og elsta sonarins afar sérstakt. „Við erum mjög góðir vin­ ir og hann segir mér yfir leitt allt. Það er mjög sterkur strengur á milli okkar, hann er voðalega mikill mömmukarl.“ Tóku fimm ára pásu Eiginmaður Svansíar heitir Gestur Hreinsson og er smiður. Hjón­ in kynntust í stúdentsveislu á stúd­ entsdaginn hennar og fóru fljótlega að rugla saman reitum. „Mér fannst hann sætur og skemmtilegur, op­ inn og fyndinn og ég fann strax góða strauma frá honum. Hann vill meina að ég hafi verið að eltast við hann en við skulum orða það þannig að hann þurfti að hafa fyrir mér. Eftir nokkur stefnumót hættum við saman en hittu­ mst svo aftur fimm árum seinna og höfum verið saman síðan. Ég er ofsa­ lega þakklát fyrir þennan tíma sem við tókum í sundur því þarna fékk ég að rasa út og finna mig. Hann ferðað­ ist mikið á þessum tíma en ég vann og skemmti mér. Ég þurfti alveg á þessum tíma að halda. Svo hittumst við aftur fyrir tilviljun og vorum þá bæði tilbú­ in. Ég hafði verið að skemmta mér og var á leiðinni heim rétt um eitt leytið þegar ég rakst á hann. Hann hafði ver­ ið að hjálpa vini sínum að flytja og ég og vinkona mín ákváðum að fara með honum heim að hlusta á tónlist. Ég hef ekkert farið frá honum síðan.“ Hún segir þau Gest ákaflega sam­ taka. „Við gerum hlutina saman en pössum samt að gefa hvoru öðru visst frjálsræði til að sinna eigin áhugamál­ um. Ég hef voðalega gaman af að vera innan um mikið af fólki og er í mjög mörgum klúbbum og elska að fara út að borða með vinkonunum. Það er aldrei neitt mál enda ríkir mikið traust á milli okkar hjóna. Öðruvísi myndi þetta aldrei ganga. Að mínu mati skipt­ ir heiðarleiki mestu máli, sama hvort sem það er í vinnu eða einkalífi,“ seg­ ir hún og bætir við að það ríki einnig jafnvægi í hjónabandinu. „Ég er ekki að halda því fram að samband okkar sé gallalaust. Auðvitað höfum við far­ ið í gegnum hæðir og lægðir en slíkt þroskar mann og sambandið. Maður lærir og reynir að gera betur næst. Við rífumst samt mjög sjaldan en samt held ég að ég sé ekkert sú auðveldasta í sambúð,“ segir hún brosandi. Sjónvarpið heillar Hún segir þau hjónin hafa gaman af því að ferðast saman. „Við erum líka bara mikið heima saman eða förum upp í bústað og höfum það kósí. Svo er bara alltaf nóg að gera; vinnan, heima­ lærdómur krakkanna, maturinn og öll þessi rútína eins og allir þekkja. Auð­ vitað væri sniðugt að taka sér dag til að gleyma ekki hjónabandinu í dags­ ins önn og við þyrftum alveg jafn mikið á því að halda og allir aðrir.“ Svansí starfar á auglýsingadeild 365 miðla auk þess sem hún hefur síðustu sumur verið með útvarpsþátt með Hemma Gunn. Hún er yfir sig hrifin af fjölmiðlum og væri til í að stjórna eigin þætti.„Ég kann voðalega vel við mig fyrir framan hljóðnemann en eins væri ég opin fyrir sjónvarpi. Ég er opin fyrir öllu,“ segir hún hlæjandi en stutt er síðan Ísland í dag heimsótti Svansí í dagskráliðnum Heimsókn. Mætti vera ákveðnari „Mér leið mjög vel fyrir framan myndavélina, fannst það ekkert þving­ andi og alls ekkert mál. Hins vegar ef það kemur ljósmyndari þá á ég virki­ lega erfitt. Ég gæti aldrei orðið mód­ el,“ segir hún og skellir upp úr. „Sjón­ varp kæmi vel til greina. Það gæti verið spennandi. Ég hef svo lengi unnið í kringum þetta þekkta sjónvarps­ og útvarpsfólk og finnst þessar „stjörnur“ ekkert merkilegri en hver annar. Það er kannski þess vegna sem mér finnst ekkert óþægilegt að vera í sjónvarpi. Þetta er bara eins og hver önnur vinna, það skiptir mestu máli að vera maður sjálfur. Um leið og maður er farinn að setja sig í stellingar og reyna of mikið verður það gervilegt.“ Hún segist aldrei hafa leitað eftir því að komast að í fjölmiðlum. „Ég er lítið í því að ota sjálfri mér fram. Auðvitað á maður að sækja það sem manni langar í en hingað til hafa þessi störf mín í út­ varpi komið til mín. Ég hef aldrei beðið um að fá að hafa þátt. En kannski mað­ ur þurfi að fara gera það; sækja það sem maður vill. Ég mætti kannski al­ veg vera ákveðnari þegar kemur að slíkum málum.“ Ekki lengur stelpa Hún segir vissulega rétt að minna fari fyrir konum í íslenskum fjölmiðlum en karlmönnum og þá sér í lagi í útvarp­ inu. „Er þetta ekki bara eins og í sam­ félaginu öllu? Kannski þolir fólk betur karlraddir í útvarpi, ég veit það ekki? Ef þú ert með góða rödd sem er hljómþýð og ert kona þá finnst mér að þú eigir að fá sömu tækifæri og hljómþýður karl. Kannski eru karlmenn bara frakkari að sækja sitt. Við konur verðum að hafa meira sjálfstraust, bæði í sambandi við laun og störf. Við verðum að bíta á jaxl­ inn og stappa í okkur stálinu. Við kon­ ur erum alveg jafn góðar og karlmenn.“ Svansí er 43 ára og er alsátt með að vera komin á fimmtugsaldurinn. „Það var smá sjokk að verða fertug. Mér fannst svo stutt síðan mamma og pabbi voru fertug. Ég hugsaði með mér að núna væri ég að verða kona, væri ekki lengur stelpa. En svo hélt ég bara risastóra veislu, skálaði og hélt áfram veginn. Það þýðir ekkert að vera að velta sér upp úr þessu. Mér líður samt bara eins og ég sé svona 35 ára þótt auðvitað finni maður að margt hefur breyst. Ég hef til dæmis ekki lengur úthald til að vaka lengi,“ seg­ ir hún hlæjandi og bætir við að hún geti verið afar löt við að hreyfa sig. „Það vantar í mig íþróttagenið. Mér finnst ekkert jafn leiðinlegt og að fara á líkamsræktar stöð. Það eru einna helst göngutúrar sem henta mér og ég finn mig í. Kannski væri ég með meiri orku ef ég væri duglegri að hamast inni á lík­ amsræktarstöð. En ég er bara þakklát fyrir hvern dag sem ég fæ og vona að ég fái að verða gömul með öllu mínu fólki.“ n Svansí Svansí hefur verið með Hemma Gunn í útvarp- inu síðustu sumur. Hún væri til í frekari störf í útvarpi og jafnvel sjónvarpi. Indíana Ása Hreinsdóttir indiana@dv.is Viðtal „Auðvitað höfum við farið í gegnum hæð- ir og lægðir en slíkt þroskar mann og sambandið Margir kannast við Svanhildi Þórsteinsdóttur sem útvarpskonuna Svansí. Hér ræðir Svansí um sjón- varpsdraumana, móðurhlutverkið og ástina en hún og eiginmaðurinn tóku á sínum tíma fimm ára pásu. Falleg hjón Svansí hitti manninn sinn fyrst á stúdentsdaginn. Eftir nokkur stefnumót tóku þau fimm ára pásu og hafa verið saman síðan.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.