Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Blaðsíða 28
28 Viðtal 14.–16. desember 2012 Helgarblað J ólaljósin loga í miðbænum og jólasveinum er varpað á veggi, hér og hvar gægjast þeir fram og minna á að nú eru að koma jól. Í Ráðhúsinu er meira að segja búið að setja upp jólatré og þar staldra börn við, uppnumin af dýrðinni og treg til að halda för­ inni áfram þótt foreldrarnir reyni að lokka þau inn á kaffihúsið með lof­ orðum um kökur og kakó. Síminn titrar og lætur vita að mín bíði skilaboð: „Hittumst bara á skrif­ stofunni minni – Tjarnargötu 12.“ Það er erfitt að ná í Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í síma, en í gegnum SMS tekst okkur að koma okkur saman um stað og stund. Úti næðir kuldinn inn að beini en ég kem tímanlega, á undan viðmæl­ andanum sem er staddur úti í Ráð­ húsi og segist vera á leiðinni yfir. Ég leita skjóls í anddyrinu og fylgist með álftunum vappa um ísilagða Tjörn­ ina. Póstburðarmanneskja kemur og fer. Svo kemur hún hlaupandi, há­ vaxin og ljóshærð, klædd í gallabux­ ur, svarta kápu og mokkaskinnsvesti yfir. Undir er hún í léttum svörtum jakka og hvítri skyrtu. Aðventan er hennar tími. „Ég verð alltaf eins og lítið barn í kring­ um jólin. Mér finnst þetta æðislegur tími,“ segir hún á leið okkar upp stig­ ann. Þegar við komum inn á skrif­ stofuna byrjar hún á því að stilla birt­ una af með ljósum og lömpum, hún hefur dregið fyrir gluggana svo birt­ an að utan trufli ekki svo útsýnið yfir Tjörnina og Þingholtin hverfur á bak­ við rimlana. Fyrir utan fjölskyldu­ mynd á gluggakistunni ber skrifstof­ an þess merki að vera lítið notuð. Alla jafnan er Hanna Birna annað hvort úti í Ráðhúsi eða á þvælingi um bæinn. Hér stendur líka til að rífa niður veggi og breyta hæðinni í opið rými þar sem borgarfulltrúar munu sitja saman, hver ofan í öðrum. En nóg um það og aftur að aðventunni. Dýrmæt augnablik Hanna Birna er gift Vilhjálmi Jens Árnasyni og saman eiga þau tvær dætur, þær Aðalheiði sem er 14 ára og Theodóru sem er 8 ára. „Við njótum þess að fara saman niður í bæ og vera saman í þessum ys sem einkennir borgarlífið á þessum tíma. Mér finnst svo margt skemmtilegt í umhverf­ inu og skreytingunum fyrir jólin. Við göngum saman niður Laugaveginn, fáum okkur kakó og hlustum á borg­ arhljóðin sem ég elska. Stelpurnar eru mun fastheldnari á hefðirnar en við hjónin. Við megum til dæmis ekki kaupa jólatréð fyrr en nokkrum dögum fyrir jól, helst ekki setja það upp fyrr en á Þorláksmessu og alls ekki skreyta það fyrr en þá. Nú um miðjan desember er eldri dóttir mín alveg miður sín yfir því að við séum ekki búin að kaupa þurrkaða hangikjötið sem hún segir að sé alltaf keypt þá. Svo eru það öll þessu litlu augna­ blik, þegar við erum að setja upp ser­ íurnar, skreyta saman, dýfa pipar­ kökum ofan í kakóið heima og spjalla. Stelpurnar voru byrjaðar að telja niður þegar það voru 103 dagar til jóla. Það er þetta andrúmsloft sem mér finnst svo fallegt. Ég er enn að þroskast í þessu til­ liti og það rifjast alltaf upp fyrir mér minningar sem eru mér jafn verð­ mætar nú og þegar ég var krakki. Þannig að við reynum að halda vel utan um þessar jólastundir. Svo reynum við að fara með stelpurnar í kirkju og passa vel upp á fólkið okkar.“ Finnur samkennd í trúnni Hanna Birna á sína barnatrú og hún skiptir hana miklu máli. „Fyrir mér er einhver kyrrð í trúnni, einhver fasti. Það er ákveðin fegurð í því að trúa á það góða og það er það sem trúin gerir fyrir mig, hjálpar mér til að trúa á það góða í fólki.“ Þótt Hanna Birna sé ekkert sér­ staklega kirkjurækin þá biður hún oftast bænirnar sínar og kennir börnunum að gera slíkt hið sama. „Mér finnst gott að biðja bænir. Í bæninni felst falleg hugsun og falleg ósk til annarra, einhver samkennd sem ég held að sé mikils virði. Við getum kallað það trú á Jesú Krist eða trú á eitthvað sem maður skilur ekki og veit ekki hvað er en trú á eitthvað æðra í þessum heimi.“ Samkenndin er henni hugleikin, sérstaklega þessa daga fyrir jól, þegar eymd þeirra sem þjást verður svo greinileg. Því leggur Hanna Birna ríka áherslu á að dæturnar taki þátt í hjálparstarfi fyrir jólin. „Þannig læra þær lexíuna um að það hafa það ekki allir eins gott og þær. Það er holl lexía sem mun vonandi auka umburðar­ lyndi, samkennd og skilning á að­ stæðum fólks. Um leið geta þær stutt við bakið á öðrum sem þurfa á því að halda, hvort sem það er hér á landi eða erlendis.“ Erfið átök við samherja Eftir smástund stendur Hanna Birna upp og segist ætla að sækja drykkjar­ föng, spyr hvort ég vilji vatn, kaffi eða te. Hún fyllir könnu af vatni, skenkir í glösin og sest aftur í leðurstólinn á móti mér með krosslagða fætur. Þrátt fyrir að jólin séu tíminn þá verður að viðurkennast að nú eins og alltaf eiga stjórnmálin hug hennar allan. Fyrir henni eru stjórnmál ekki aðeins starf heldur eru þau einnig helsta áhugamálið hennar og ástríða. Það er henni bæði ljúft og skylt að taka þátt í þeim. „Í mínum huga eru stjórnmálin svo mikilvæg að ef ég tel mig geta breytt einhverju þá ber mér skylda til þess að gera það. Fólk talar oft um að pólitíkin laði fram það versta í fólki, sem hún gerir eflaust í einhverjum tilvikum, en hún laðar einnig fram það besta í fólki. Það er ótrúlega gefandi að taka þátt í stjórn­ málum og kynnast fjölda fólks sem vinnur óeigingjarnt starf, oft án þess að fá nokkuð fyrir vikið, bara af því að það vill láta gott af sér leiða. Stjórn­ málin hafa fært mér mikla gleði.“ Innt eftir því hvað stjórnmálin hafi fært henni annað en gleði nefnir hún átök. „Átök um hugmyndir eru aldrei erfið, því það er ánægjulegt að takast á um hugsjónir. En átök við samherja eru alltaf erfið fyrir alla sem eru ekki svo brynjaðir að slíkt snerti þá ekki. Ég er samt ágæt í því að taka gagn­ rýni á mig ekki of persónulega. Ég veit að það er verið að gagnrýna mig fyrir hugmyndir mínar og hugsjónir en ekki mig sem manneskju. Fólk­ ið mitt sér það hins vegar ekki alltaf þannig og sárnar að það sé verið að ráðast á mig sem manneskju. Það á við um maka minn, börnin mín og foreldra. Þetta er erfiðara fyrir þau. Prófkjör geta til dæmis verið snúin en í þeim felst lýðræðið, al­ menningur raðar á lista og ákveður hvaða einstaklingum hann treystir best til verka. Við sem störfum í stjórnmálum verðum að una því en við værum að segja ósatt ef við héld­ um því fram að það væri auðvelt. Það er ekki auðvelt.“ Vill ekki samlagast valdi Hún er þó hvorki tapsár né langræk­ in og nær yfirleitt að henda ósigrum aftur fyrir sig og halda ótrauð áfram. „Ég er yfirleitt svona viku að hrista þetta af mér,“ segir hún og bætir því hlæjandi við að þá leyfi hún sér að blóta smá heima. Á öllu alvarlegri nótum segist hún ná því með því að setja hlutina í samhengi. „Ég horfi á dætur mínar og manninn minn, fer í göngutúr og horfi á fjöllin, himininn og heiminn, og finn að í stóra sam­ henginu skiptir þetta ekki máli. Satt best að segja þá finnst mér ég vera ótrúlega lánsöm manneskja því ég hef fengið tækifæri til að gera margt sem skiptir mig máli. Um leið og ég stilli mig þannig af er ég ekki lengi að hrista af mér einhverja höfnunartilf­ inningu vegna pólitískra ósigra eða eitthvað sem menn telja persónu­ legar vegtyllur.“ Eftir augnabliks þögn segir hún hugsi: „Ég veit ekki hvort það er eitt­ hvað að mér því þessar vegtyllur hafa aldrei gert neitt sérstaklega mikið fyrir mig. Reyndar elskaði ég að vera borgarstjóri en það var vegna þess að starfið er svo nálægt almenningi og það er svo auðvelt að gera vel og láta muna eftir sér með því að fylgja hug­ sjónum sínum eftir. En á sama tíma bað ég starfsfólkið í Ráðhúsinu að láta af þeirri hefð að kalla mig borg­ arstjóra. Ég var feimin við það. Ég vildi ekki verða embættið. Ég er alltaf hrædd um að anda valdi þannig að mér að það gefi mér of mikið. Þannig að ég er mjög dug­ leg að minna mig á að þannig vil ég ekki verða. Þegar ég halla mér aftur í valdastól og líður þannig að það eitt skipti máli þá vil ég ekki vera í þess­ um bransa lengur. Ég vil ekki verða þannig manneskja.“ Varaformannsframboð Hún er þó óhrædd við að taka for­ ystuna og bauð sig fram sem formaður Sjálfstæðisflokksins á landsfundinum í fyrra þar sem hún tapaði naumlega fyrir Bjarna Bene­ diktssyni. Eftir að hún vann stórsig­ ur í prófkjörinu nú í vetur hefur því verið velt upp hvort hún ætli aftur í formannsslag, þar sem staða henn­ ar er svo sterk út á við. Hún þvertek­ ur fyrir það. „Ég hef aldrei sagt að ég ætli aldrei að bjóða mig aftur fram til formanns en ég sagði það strax eft­ ir formannskjörið fyrir ári síðan að ég liti á þá kosningu sem val um það hver skyldi leiða Sjálfstæðisflokkinn í gegnum næstu Alþingiskosningar. Það sagði ég fyrir þær kosningar, eftir þær kosningar, í aðdraganda próf­ kjörsins í Reykjavík og hef ítrekað sagt þetta eftir það. Það er heldur ekkert sem hef­ ur breyst varðandi það hvernig ákvörðunin um formann var tekin. Þeir sem sátu landsfund í fyrra munu flestir sitja hann aftur í febrúar. Þannig að það er ekkert sem gerir það að verkum að mér finnist að ég eigi að skipta um skoðun. Kannski er ég of stíf á því en ég sagði þetta mjög skýrt á sínum tíma. Ég sagði líka að það væri sama hvernig prófkjörið í Reykjavík færi, ég ætlaði ekki aftur í framboð gegn Bjarna Benediktssyni.“ Nú vill hún fyrst og fremst nota alla sína krafta í að koma þessari ríkisstjórn frá völdum og bæta lífskjör fólksins í landinu eins og hún orðar það. „Verkefnin eiga hug minn allan og ég vil frekar nýta orku mína og tíma í að vinna að góðri út­ komu Sjálfstæðisflokksins í næstu Alþingis kosningum en að undir­ búa kosningar á næsta landsfundi. Samhentur, sterkur og sannfærandi flokkur skiptir máli fyrir framtíð þessa lands og baráttan fyrir því er mín barátta nú. Ég útiloka ekki að gefa kost á mér til varaformanns á næsta landsfundi en umfram allt er ég upptekin af þessu verkefni sem býður okkar í vor. Mig langar til þess að breyta stjórnmálunum og ég trúi því að ég geti gert það án þess að hafa ákveðinn valdastól í flokknum. Kannski hef ég of mikla trú á mér en ég trúi því að ég geti gert það úr stólnum sem ég sit í hér og nú.“ Erfiðasti ósigurinn Formannslagurinn við Bjarna Bene­ diktsson var þó langt í frá það erfið­ asta sem Hanna Birna hefur gengið í gegnum á sínum stjórnmálaferli. Þau voru og eru enn vinir og sam­ herjar og að kosningum loknum tók­ ust þau í hendur og héldu áfram að vinna saman. Hins vegar var mun erfiðara að tapa völdum í borginni fyrir Besta flokknum. „Það var langerfiðast því mér fannst okkur raunverulega vera að takast að breyta stjórnmálunum. Við vorum að takast á við verkefni með algjörlega nýjum hætti og mig langaði ofboðslega mikið til þess að fá tækifæri til þess að sýna bæði borgarbúum og þjóðinni allri hvern­ ig stjórnmál geta verið. Það voru mér mikil vonbrigði að fá ekki umboð til þess að sinna því áfram og sjá hvern­ ig það færi. Þrátt fyrir að niðurstaða þeirra kosninga hafi verið góð fyrir Sjálfstæðisflokkinn miðað við að­ stæður í samfélaginu þá var það samt ein sárasta upplifun mín í stjórn­ málum að sjá hvernig menn settu borgina aftur á nákvæmlega sama stað og hún hafði verið á áður.“ Hún segist hafa bundið vonir við að þar sem nýtt fólk kæmi inn með Besta flokknum væri það kannski tilbúið að hefja þessa vegferð með þeim. „Það er ekki hægt að fella dóm yfir því en það sem gerist svo oft í stjórnmálum er að nýtt fólk kemur inn í heim sem er ríkur af hefðum og finnst auðveldast að fylgja þeim. Besti flokkurinn breytti ekki stjórn­ málunum, stjórnmálin breyttu þeim. Það er enginn sérstakur munur á Besta flokknum og öðrum stjórn­ málaöflum. Fólkið þar er óhefð­ bundnara en áherslurnar og vinnu­ brögðin eru þau sömu.“ Í stjórnmálum á eigin forsendum Í hennar huga hefur aldrei neitt ann­ að en Sjálfstæðisflokkurinn komið til greina. Það er svolítið sætt að segja frá því að hún skráði sig í flokkinn fyrir eiginmanninn, sem var þá strák­ ur sem hún var skotin í. „Hann var að fara í gegnum kosningar á vett­ vangi Heimdallar og bað mig um að kjósa sig. Og hvað gerir maður ekki?“ spyr hún kímin. „Stuttu seinna urð­ um við par. En ég var löngu búin að gera upp minn pólitíska hug og hafði kosið með þessum hætti. Það tók mig ekki langan tíma að finna hvar hjartað sló þegar ég byrjaði að lesa stjórnmálafræði. En ég var aðeins hugsi varðandi það hvort ég ætti að skrá mig í stjórnmálaflokk þannig Hanna Birna Kristjánsdóttir gekk í Sjálfstæðisflokkinn fyrir strák sem hún var skotin í. Nokkrum árum síðar gengu þau í hjónaband og hún segist hafa unnið í happdrætti lífsins þegar hún fann þennan mann, sem er hennar besti vinur og samherji. Án hans hefði hún eflaust ekki gert stjórnmál að ævistarfi, en engan hefði grunað að þessi feimna stelpa ætti eftir að láta til sín taka á vettvangi stjórnmálanna, enda þóttist hún ætla að verða skáld. Nú er hún ein sterkasta konan á hægri væng stjórnmálanna og ítrekað orðuð við formanns- framboð. Hún fer yfir allt þetta og ýmislegt fleira í einlægu viðtali. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir ingibjorg@dv.is Viðtal Gekk í fl kinn fyrir ástina „Það er ekki versta afsökun í heimi að skrá sig í stjórnmálaflokk fyrir strák sem maður er skotin í.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.