Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Page 22
22 Erlent 14.–16. desember 2012 Helgarblað
„Eins og dýr
í dýragarði“
n Hrottaleg meðferð á uppljóstrara n Verjandi Mannings snýr vörn í sókn
R
éttarhöldin yfir Bradley Mann-
ing, bandaríska hermann-
inum sem lak leyniskjölum
bandaríska utanríkisráðuneyt-
isins til Wikileaks, standa nú
yfir í Fort Meade-herstöðinni í Mar-
yland. Þung orð hafa fallið í dómsaln-
um og þykir mörgum sem lögmanni
Mannings hafi tekist að snúa vörn í
sókn. Réttarhöldin eru í æ ríkari mæli
tekin að snúast um fangelsisvist hins
ákærða og ómannúðlega meðferð á
honum, meðal annars að Manning
hafi, þvert á öll læknisráð, verið beittur
úrræðum sem aðeins eru ætluð föng-
um í sjálfsmorðshættu. Því hefur verið
haldið fram að þetta hafi fyrst og fremst
verið gert til að brjóta hann niður og
auka á vonleysistilfinningu hans í fang-
elsinu. Þannig hafi bandarísk yfirvöld
reynt að þvinga Manning til að bera
vitni gegn Julian Assange, stofnanda
Wikileaks sem heldur nú til í sendiráði
Ekvador í London.
„Eins og dýr í dýragarði“
Bradley Manning hefur verið haldið
í einangrun í um það bil tvö og hálft
ár og hann verið beittur miklu harð-
ræði. Til að mynda hefur honum ver-
ið meinað að sofa á næturnar, samkyn-
hneigð hans verið höfð í flimtingum
og hann látinn hírast nakinn dögum
saman. Mannréttindasamtök á borð
við Amnesty International hafa gagn-
rýnt meðferðina á honum harðlega
auk þess sem óháð rannsóknarteymi
á vegum Sameinuðu þjóðanna kall-
aði aðbúnað hans „grimmilegan og
ómannúðlegan.“
Í ljósi þessa hefur komið nokk-
uð á óvart hversu heill og eðlilegur
Manning virðist vera í vitnaleiðsl-
unum. Hann þykir mælskur, gam-
ansamur en um leið yfirvegaður að
því er fram kemur í New York Times.
Í síðustu viku lýsti Manning fang-
elsisvist sinni á hryllilegan hátt. „Ég
hafði nánast gefist upp og hélt að
ég myndi einfaldlega deyja í þessu
dýrabúri,“ sagði hann. Lögmaður
Mannings, David Coombs, hefur tek-
ið embættismenn og fangelsismála-
fulltrúa í vitnaleiðslur og krafist skýr-
inga á því hvað réttlætti meðferðina á
skjólstæðingi sínum. Hann hefur af-
hjúpað ákveðið missætti sem virðist
hafa ríkt á milli hernaðaryfirvalda og
sálfræðinga sem vöruðu sérstaklega
við þeim úrræðum sem gripið var til
í fangelsinu. Coombs lauk varnar-
ræðu sinni á þeim nótum að það
stórkostlegasta í málinu öllu væri að
Manning hefði þrátt fyrir allt tekist að
halda geðheilsu sinni. „Þegar maður
er meðhöndlaður eins og dýr í dýra-
garði í allan þennan tíma þá hlýtur
það að hafa hræðileg áhrif á sálarlíf-
ið,“ sagði Coombs.
Ákærður fyrir landráð
Bandarísk yfirvöld fara fram á að
Bradley Manning verði dæmdur í
lífstíðarfangelsi fyrir að hafa lekið
trúnaðargögnum og framið landráð
með því að aðstoða óvin Bandaríkj-
anna. Við síðari sakargiftinni getur
legið dauðarefsing en yfirvöld fara
þó fram á lífstíðarfangelsi. Manning
hefur viðurkennt að hafa lekið gögn-
unum en hann neitar að samþykkja
að þannig hafi hann svikið þjóð
sína. Mannréttindalögfræðingurinn
Glenn Greenwald fjallar um málið í
Guardian: „Hvað svo sem mönnum
þykir um það sem Manning er sak-
aður um, þá virðist hann í fyrstu vera
hefðbundinn uppljóstrari. Hann
hefði getað grætt fúlgur fjár með því
að selja upplýsingarnar hryðjuverka-
samtökum eða ríkisstjórnum en í
staðinn ákvað hann að stofna frelsi
sínu í hættu til þess eins að heims-
byggðin fengi að vita sannleikann.“
Á meðal þeirra gagna sem komu
fram í dagsljósið, þökk sé Bradley
Manning, voru myndbandsupptök-
ur af bandarískum hermönnum að
skjóta fjölmiðlafólk til bana, skýrslur
úr stríðunum í Afganistan og Írak og
upplýsingar um Guantanamo-fang-
elsið í Kúbu. Þá er talið að gögnin
hafi að einhverju leyti kynt undir ar-
abíska vorinu.
Stríðsglæpamönnum hlíft
Barack Obama, forseti Bandaríkj-
anna, hefur sætt gagnrýni vegna
máls Bradleys Manning, en forsetinn
hefur lýst því yfir í sjónvarpsviðtali að
Manning hafi brotið lög og að með-
ferðin á honum „tengist aðeins því
sem er honum sjálfum fyrir bestu.“
Þetta hefur vakið hörð viðbrögð
eins og skrif Greenwalds bera með
sér: „Berum ákæruna gegn Mann-
ing saman við þrotlausa viðleitni
Obama-stjórnarinnar til að bjarga
stríðsglæpamönnum og Wall Street-
svindlurum Bush-áranna fyrir horn,
skjóta þeim undan hvers kyns laga-
legri ábyrgð,“ skrifar hann og bæt-
ir við: „Enginn þeirra sem frömdu
þessa raunverulegu glæpi hefur ver-
ið dreginn fyrir dómstóla í stjórnar-
tíð Obama. Þessi samanburður sýnir
hve gildismatið og forgangsröðunin
í bandarísku réttarkerfi er á miklum
villigötum.“
Lögmaður Mannings krefst þess
að málinu verði vísað frá vegna órétt-
látrar meðferðar á hinum ákærða.
Ólíklegt þykir að hann fái sínu fram-
gengt en ef til vill tekst að milda refs-
inguna á þessum grundvelli. Vitna-
leiðslur halda áfram í næstu viku
og búast má við því að dómur verði
kveðinn upp yfir Bradley Manning í
febrúar. n
Breskur vísindamaður hefur
áhyggjur af sóuninni:
Vill banna
helíumblöðrur
Það er tilgangslaus sóun að fylla
blöðrur af helíumgasi og þessi sóun
gæti haft alvarleg áhrif á heilsu fólks
til lengri tíma litið. Þetta er mat Pet-
er Wothers, bresks vísindamanns
við Cambridge-háskólann í Bret-
landi, sem vill að notkun helíum-
blaðra verði bönnuð.
„Skortur á helíum er alvarlegt
vandamál,“ segir Wothers í samtali
við breska blaðið Daily Telegraph.
„Ég sé fyrir mér að eftir kannski 50
ár muni börnin okkar ekki trúa því
að efnið hafi verið notað til að fylla
blöðrur í gamansömum tilgangi.
Ef við höldum áfram að sóa efninu
með því að fylla blöðrur gætum við
staðið frammi fyrir miklum vanda-
málum eftir 30 til 50 ár,“ segir hann.
Beittur harðræði
Bradley Manning hefur
verið meinað að sofa
á næturnar, samkyn-
hneigð hans verið höfð
í flimtingum og hann
látinn hírast nakinn
dögum saman.
Kokhraustur verjandi David Coombs,
verjandi Mannings, þykir hafa staðið sig með
sóma og sýnt fram á að Manning hafi fengið
óréttláta meðferð.
Styðja Manning Fjöldi fólks um allan heim hefur fylgst með máli Bradleys Manning og
mótmælt ákærunni gegn honum.
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannp@dv.is
„Ákvað að stofna
frelsi sínu í hættu
til þess að heimsbyggðin
fengi að vita sannleikann.
Skildi eftir þrjú
sjálfsmorðsbréf
Hjúkrunarfræðingurinn, Jacintha
Saldanha, sem féll fyrir frægum
símahrekk ástralskrar útvarpsstöðv-
ar sem snérist um líðan Kate Midd-
leton, eiginkonu Vilhjálms Bretapr-
ins, skildi eftir þrjú sjálfsmorðsbréf.
Þetta hefur AP-fréttastofan eftir
bresku lögreglunni. Lögreglan upp-
lýsti einnig að samstarfsmenn og
öryggisverðir hafi komið að líki
Saldanha. Rannsókn hefur leitt í ljós
að konan lést af völdum hengingar.
Lögreglan telur að enginn annar
hafi átt þátt í dauða hennar en hún
var með áverka á úlnliðum. Rann-
sókn á dauða hennar stendur enn
yfir þó að dánarorsökin sé ljós. Lög-
reglan kannar nú hvaða þættir í lífi
hennar kunni að hafa leitt til þess
að hún svipti sig lífi.
Jamie Oliver
stefnt fyrir dóm
Fyrrverandi starfsmaður banda-
rískrar kjötvinnslu hefur höfðað mál
gegn Jamie Oliver, fréttamönnum
ABC News og bloggara fyrir að tala
um afurð vinnslunnar sem „pink
slime“, sem á íslensku gæti útlagst
bleikt slím. Umræða um afurðina
hefur áður vakið athygli en hún var
meðal annars notuð í hamborgara
hjá McDonald‘s í Bandaríkjun-
um. Starfsmaðurinn sem lagt hefur
stefnuna fram segir að umfjöllunin
hafi verið til þess fallin að þrýsta á
fyrirtæki um að hætta kaupa vöruna
og það sé ástæðan fyrir því að hann
missti vinnuna hjá kjötvinnslunni.