Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Page 26
Finnbogi Vikar Sæll Guðbjartur, þú varst í stjórn aflandsfélagsins Landsbanki
Capital International Ltd. á fallegri eyju.
Hvaða félag var þetta og telur þú
ásættanlegt eftir efnahagshrun íslensku
bankanna að alþingismenn eða
ráðherrar hafi verið í stjórnum slíkra
félaga.
Guðbjartur Hannesson Ég var í
stjórn Landsbankans fyrir hrun, kom
inn 1998 og sat um tíma í stjórn eins
aflandsfélags sem var með ávöxtun
fjár. Lögum hefur verið breytt. Ég
var ekki þingmaður þá Finnbogi og
hættur í bæjarstjórn, en ég tel að
stjórnmálamenn eigi ekki að sitja í
stjórnum fjármálafyrirtækja.
Fríða Gunnarsdóttir Hvernig
sérðu fyrir þér starfsemi LSH nú
þegar 254 hjúkrunarfræðingar
láta af störfum þann 1. mars?
Guðbjartur Hannesson LSH verður
ekki rekinn án þessara hjúkrunar
fræðinga, svo einfalt er það.
Inga Jóna Hvaða fólk á að fá til
að vinna á nýja hátæknisjúkra
húsinu. Finnst ráðamönnum
þjóðarinnar ekki vera ástæða til að
tryggja lágmarksþjónustu lækna á
landsbyggðinni. Í Snæfellsbæ eiga að
vera 2 læknar en við erum heppin ef við
höfum einn. Hér er engin læknisþjónusta
aðra hvora helgi. Hvaðan á fólkið að
koma til að vinna á nýja sjúkrahúsinu?
Guðbjartur Hannesson Það er
ekkert sem bendir til fjölgunar starfs
fólks með tilkomu Nýja land spít al
ans. Þannig verður sú bygging ekki
til þess að fækka heilbrigðisstarfs
mönnum úti á landi. Ég deili áhyggj
um þínum ef ekki tekst að manna
læknastöður á landsbyggðinni.
Ástasigrún Magnúsdóttir
Telur þú að „launahækkunar
málið“ hafi skaðað þig sem
stjórnmálamann? T.d. varðandi
trúverðugleika?
Guðbjartur Hannesson Ég gerði
mistök, hef viðurkennt þau og beðist
afsökunar. Ég verð að lifa með
þessum mistökum.
Teitur Guðmundsson Sæll,
takk fyrir að gefa þér tíma.
Hversu langt er þess að bíða að
við sjáum samræmda miðlæga
sjúkraskrá ?
Guðbjartur Hannesson Ég vildi
geta sagt hvenær. Því miður eru ekki
settar háar upphæðir í þetta á næsta
ári, en við verðum að nýta tíma og
skilgreina vel hvaða kerfi við viljum.
Þetta er eitt af brýnni verkefnunum
í heilbrigðismálum. Þetta er eitt af
forgangsmálunum í tillögum mikillar
vinnu fjölmargra aðila um heilbrigð
ismálin og framtíðarsýn, en vinnunni
var skilað til mín í gær.
Salvar Sigurðarson Hver eru
stærstu mistökin á ferlinum og
hvað lærðirðu af þeim?
Guðbjartur Hannesson Nýjustu
mistökin eru stór, og ég lærði að
menn vilja ekki sérlausnir heldur
jafnræði. Það herðir mig í baráttunni
fyrir auknum jöfnuði og réttlæti, sem
eru grundvallargildi Samfylkingar
innar.
Guðrún Konný Pálmadóttir
Sæll Guðbjartur. Nú er því haldið
fram að eftir Hrunið hafi
mistekist með öllu að verja hag þeirra
sem minnst mega sín í samfélaginu.
Hvernig viltu svara þessu?
Guðbjartur Hannesson Ef við
skoðum málin hlutlægt, þá er þetta
alrangt. Við höfum vakið heims
athygli fyrir að verja betur en aðrar
þjóðir hag þeirra lægst launuðu.
Allir töpuðu á hruninu, kaupmáttur
rýrnaði mjög mikið, en minna hjá
hinum lægst launuðu. Eftir sem áður
er verk að vinna við það að tryggja að
enginn búi við fátækt á Íslandi.
Theodor Marrow Er ríkis stjórnin
með skipu lagða útrým ingu á eldri
borgurum, eða telur hún að 145
þúsund á mánuði eftir skatta, dugi fyrir
nauðþurftum ein stakl ings?
Guðbjartur Hannesson Þetta er
það sem ríkið greiðir eða tryggir sem
lágmarksframfærslu, svo það er
rétt að þetta er lítið ef engar aðrar
tekjur koma til. Þetta er 30–40 þús.
hærra en ef aðeins hefðu komið til
venjulegar hækkanir skv. eldra kerfi
og ef ekki hefði komið til sérstök
framfærsluuppbót. Við erum að
koma fram með nýtt frumvarp um
Almannatryggingar til að bæta
kjörin á næstu árum.
Sverrir Hjaltason Hvernig á að
efna kosningaloforð um að draga
úr vægi verðtryggingar og
hvers vegna hefur það ekki verið gert ennþá?
Guðbjartur Hannesson Það hefur
verið dregið úr vægi verðtryggingar
með framboði á óverðtryggðum
lánum, en engin leið hefur fundist til
að afnema verðtrygginguna aftur í
tímann. Enn er unnið að leiðum til að
afnema verðtrygginguna, en um leið
þarf að tryggja framboð lána.
Sigrún Tryggvadóttir Sæll
Guðbjartur. Mér þykir
vel ferðar kerfið á Íslandi vera
letjandi og beinlínis búa til bótaþega.
Þegar ég var að fara aftur í nám eftir að
hafa verið á endurhæfingarlífeyri var mér
neitað um aðstoð hjá Reykjavík vegna
þess að ég kaus það að fara í nám og
hefði því frekar fengið styrk hefði ég
setið heima og gert ekkert. TR ráðlagði
mér svo að sækja bara um örorku.
Hvernig getur svona lagað viðgengist, að
fólk sé beinlínis hvatt til að vera
ævarandi bótaþegar í stað þess að
styrkja fólk í að bæta hag sinn?
Guðbjartur Hannesson Sæl Sigrún.
Ég er sammála þér að meginmark
miðið á að vera að hjálpa fólki til að
bjarga sér. Þannig vorum við t.d. í
dag að setja af stað stórt verkefni
varðandi atvinnuleitendur, ný störf,
þar sem grundvallarhugmyndin er
einmitt að hjálpa fólki og hindra
að það verði öryrkjar. Enginn er að
sækjast eftir að verða öryrki.
Gísli Páll Guðjónsson Ertu
hlynntur frjálsum handfæraveið
um, þá á ég ekki við strand veiði
kerfið því það eru ekki frjálsar veiðar?
Guðbjartur Hannesson Ég tel að
strandveiðikerfið með lagfæringum
þjóni þessari ósk.
Soffía Grímsdóttir Á ekkert að
gera til að hjálpa fólki sem er í
þeirri stöðu að geta ekki eignast
barn eða fleiri börn nema með hjálp Art
Medica. Ég og minn maður eigum eitt
barn saman og getum ekki eignast fleiri
nema með hjálp og fáum enga
niðurgreiðslu því við eigum barn saman
og okkur finnst þetta ansi súrt að fólki sé
bara hent útí horn af því við vöðum ekki í
peningum. Eiga þessi meðferðarúrræði
bara vera fyrir ríka fólkið?
Guðbjartur Hannesson Sæl Soffía.
Við hertum þessar reglur eftir hrun
og erum ekki búin að gefa þar til
baka nema að litlu leyti. Ég tel að við
eigum að hverfa aftur í eldri reglur,
en það er þó ekki í fjárlögum næsta
árs, því miður.
Steinunn Þorvaldsdóttir Á
ekki að afnema verðtryggingu?
Ef Ísland gengur í ESB verður þá
ekki að afnema verðtryggingu? Af hverju
er svo erfitt að afnema verðtryggingu?
Guðbjartur Hannesson Húsnæðislán,
sem verðtryggingin snýst mest um, snýst
um að fá lán á góðum kjörum og að það
sé framboð á lánum. Hvernig tryggjum
við hvort tveggja? Verðtrygging sem
tryggir aðeins hag lánveitenda gengur
ekki, það þarf að jafna stöðuna milli
lántakenda og lánveitenda. Fyrsti áfangi
er að gefa fólki val, það val er þegar
komið með óverðtryggðum lánum. Ef
við hefðum sterkari gjaldmiðil þá væri
ekki verðtrygging eins og þekkjum hana,
ESB aðild er þar ein besta leiðin.
Steinunn Sigurðardóttir Gætir
þú lifað á grunnlaunum
ný út skrif aðs hjúkrunarfræð ings?
Guðbjartur Hannesson Ég treysti
mér ekki til að svara þeirri spurningu.
Ertu að tala um mig einan? Eða par
sem lifir af einum tekjum? Eða hjón/
sambýlisfólk með börn? Neyslan er
mjög mismikil og hver og einn verður
að meta hvað hann telur sér fært.
Birgir Olgeirsson Hvernig lýst
þér á tillögu um að það komi til
skoðunar að heildrænar
meðferðir verði niðurgreiddar?
Guðbjartur Hannesson Ég mun
ekki setja þetta mál í forgang, við
eigum margt ógert í okkar ágæta
heilbrigðiskerfi sem kemur fyrst.
Guðmundur Þorsteinsson
Hver er munurinn á áherslum/
skoðunum ykkar Árna Páls?
Hvað myndir þú gera öðruvísi en Árni Páll
sem formaður?
Guðbjartur Hannesson Nú get ég
aðeins talað fyrir mig, rétt að Árni
Páll tali fyrir sig. Ég fer í framboð til
að berjast fyrir grunngildum Sam
fylkingarinnar, jöfnuði og réttlæti,
og vil nýta mér áratugareynslu
mína sem stjórnanda, þekkingu á
menntamálum og velferðarmálum,
sveitarstjórnarmálum og þingreynsl
una til að byggja hér upp réttlátara
samfélag með auknum jöfnuði.
Það verður ekki gert nema öflugt
atvinnulíf og velferð haldist í hendur.
Guðbjörg Vilhjálmsdóttir Sæll
Guðbjartur. Maður skynjar
tölu verða reiði í samfélaginu í
garð stjórnvalda, þó svo að margt bendi
til að þessari ríkisstjórn hafi tekist hið
ómögulega sem var að reisa þetta
þjóðfélag á fætur. Hverjir eru að hagnast
á þessari reiði að þínu mati? Hverjir tapa
á þessari reiði?
Guðbjartur Hannesson Reiði
er oftast neikvæð tilfinning sem
hjálpar viðkomandi ekki til að bæta
sinn hag, en ef reiðinni er breytt í
kraft til að breyta hlutum þá er hægt
að nýta hana jákvætt. Ég hugsa til
þess með hryllingi ef íslensk þjóð
fer að leiða til valda að nýju þá sem
hér höfðu stjórnað nær samfellt í 18
ár og refsa þeim sem tóku til, hafa
verið í rústabjörgun s.l. 4 ár. Ég vil
að Samfylkingin fái tækifæri til að
stjórna eftir kosningar og uppskera
eftir erfiðan tíma. Það skiptir máli
hver stjórnar.
Arnar Jónsson Sæll Guðbjartur.
Það er gott að sjá ráðherra sem
viðurkennir mistök og telur sig
hafa lært af þeim sbr. launahækkunar
málið. Fólk (stjórnmálamenn tilheyra
þeim hópi) á að fá tækifæri til að læra af
reynslu sinni og mistökum. Ég er með
tvær spurningar: Hvernig vonastu til að
efnahagsástand og andleg líðan íslensku
þjóðarinnar verði eftir 10 ár? Verður
annað hrun? Og hvað verður í matinn hjá
fjölskyldunni á aðfangadagskvöld? :)
Guðbjartur Hannesson Takk.
Varðandi líðan þjóðarinnar, þá er
ég sannfærður um að Íslendingum
muni líða vel á Íslandi. Landið,
fólkið, verðmætar auðlindir, mikill
mannauður í menntuðu fólki og öfl
ugt velferðarkerfi á að tryggja okkur
gott andlegt ástand. Við þurfum
að læra að líta á björtu hliðarnar,
glíma öll við að tryggja ÖLLUM góða
framfærslu, sem við gerum með
því að skipta jafnar þeim gæðum
sem við höfum. Við búum í frábæru
samfélagi, en erum særð og reið eftir
ósanngirni liðinna ára, en við verðum
að komast yfir það, gera það upp og
horfa til framtíðar. Ég hef borðað
kalkún síðast liðin jól. :)
26 Umræða 14.–16. desember 2012 Helgarblað
„Ég verð að lifa með þessum mistökum“
M
y
n
d
Ir
SIG
Tr
y
G
G
u
r
A
r
I
Guðbjartur Hannesson segir það hafa verið mistök að hækka laun forstjóra Landspítalans
nafn: Guðbjartur
Hannesson.
Aldur: 62 ára.
Starf: Velferðarráðherra frá
2009, þingmaður Samfylk
ingar frá 2007.
Menntun: Kennarapróf KÍ.
Tómstundakennara próf frá
Seminariet for Fritidspæda
goger, Vanløse, Danmörku.
Framhaldsnám í skólastjórn
KHÍ 1992–1995. Meistara
próf frá kennaraskóla
Lundúnaháskóla.