Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Síða 40
40 Smákökur 14.–16. desember 2012 Helgarblað
Amerískar smákökur bestar
n Rúmlega 50 tegundir bárust í keppnina n Mikið lagt í kökurnar
A
merískar smákökur voru
valdar Smákökur ársins
en alls bárust 51 tegund í
keppnina. Það var fimm
manna dómnefnd sem
valdi kökurnar en það er Ingibjörg
Sunna Þrastardóttir sem bakaði og
sendi inn. Í verðlaun hlýtur hún
Kitchen-Aid hrærivél.
Súkkulaði- og pekanhnetu
smákökur með karamellu sem
Thelma Þorbergsdóttir sendi inn
lentu í öðru sæti. Í þriðja sæti voru
Sætir kókostoppar Svövu Gunnars-
dóttur og smákökur sem nefnast
Spesíurnar hans Ottós afa sem Elín
Hróðný Ottósdóttir sendi í keppn-
ina.
Amman þekkt fyrir kökur sínar
Sunna varð að vonum glöð þegar
hún frétti að smákökurnar sem hún
sendi inn hafi unnið. Hún segir að
uppskriftin komi frá ömmu manns-
ins síns. „Tengdamóðir mín lét
mig hafa þessa uppskrift sem kom
frá móður hennar. Hún hét Sigur-
laug Jóhannsdóttir frá Dalvík og
mér skilst að hún hafi verið einn
myndarlegasti bakari sem sögur
fara af. Fólk er enn að tala um hvað
hún gerði flottar og góðar kökur.
Sigurlaug lést árið 1975 og hún
skildi eftir sig handskrifaða mat-
reiðslubók. Þar er meðal annars
þessi uppskrift,“ segir Sunna.
Hún segist sjálf ekki vera sér-
staklega myndarleg en að hana hafi
lengi langað í Kitchen-Aid hrærivél-
ina. „Ég hef lengi sagt við manninn
minn að ef ég ætti svona hrærivél
þá væri ég örugglega góður bak-
ari. Ég held að mig hafi bara vantað
réttu græjurnar,“ segir hún og hlær.
Aðspurð hvort hún muni þá fara á
fullt í baksturinn segir hún að dóttir
þeirra, Ingibjörg Andra, bindi alla
vega miklar vonir við það.
Dómnefndin
Dómnefndina skipuðu Erla Vigdís
Óskarsdóttir, sölufulltrúi hjá Einari
Farestveit, Margrét Sigfúsdóttir,
skólameistari Hússtjórnarskólans,
Haukur Leifs, konditormeistari,
Rúnar Gíslason, matreiðslumaður
hjá Kokkunum og Jón Bjarki Magn-
ússon, blaðamaður á DV. Þeim var
falið að smakka smákökurnar og
skera úr um hver væri best.
Mikil vinna að baki
Í keppnina bárust kökur af
ýmsum gerðum og stærðum og
dómnefndinni fannst kökurnar
almennt góðar. „Þær eru rosalega
misjafnar, margar gerðir og týpur,“
sagði Rúnar og Margrét bætti við
að það væri gaman að sjá hvað það
væri mikið lagt í sumar. „Það er
heilmikil vinna í þessu,“ sagði hún.
Dómnefndin var sammála dóm-
nefndinni í fyrra um að kökurnar
væru of stórar, margar hverjar.
„Þetta ætti ekki að vera stærra en
munnbiti,“ sagði Haukur. Þeim
fannst að þannig væru kökurnar
fallegri á diski.
Framkvæmd keppninnar
Keppnin fór þannig fram að dóm-
nefndin smakkaði allar kökurn-
ar en hver og einn valdi að lokum
þrjár kökur til að komast í úrslit. Það
voru 12 kökur í úrslitum sem voru
smakkaðar aftur og dæmdar. Að
endingu voru það smákökur Sunnu
sem stóðu uppi sem sigurvegari.
Í úrslitin komust þrjár tegundir
sem dómnefndinni fannst þó vera á
mörkum þess að geta talist smákök-
ur. Það voru pekanbitar með kara-
mellu sem Guðrún Jónsdóttir sendi
inn, pekanhnetukökur Sigríðar
Maríu Sigmarsdóttur og Jólatoppar
Margrétar Th. Jónsdóttur. Þrátt fyr-
ir að þessar þrjár tegundir hafi vak-
ið mikla lukku hjá dómnefndinni
var tekin sú ákvörðun að þær gætu
ekki unnið keppnina þar sem þær
væru í raun ekki smákökur. „Þær
eru eiginlega á mörkunum að vera
eftirmatur eða konfekt,“ sagði Rúnar
og þess má geta að dómefndinni var
umhugað um að það kæmi fram að
þau væru öll afar hrifin af þessum
kökum.
Gunnhildur Steinarsdóttir
blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is
„Ég hef lengi
sagt við mann-
inn minn að ef ég ætti
svona hrærivél þá væri ég
örugglega góður bakari.
Ég held að mig hafi bara
vantað réttu græjurnar.
Dómnefndin Fimm manna dómnefnd fékk það verkefni að smakka og dæma smákökurnar. MynD Sigtryggur Ari
Vinningshafinn
Ingibjörg Sunna
Þrastardóttir,
ásamt dóttur sinni
Ingibjörgu Andreu
Jónsdóttur,
bökunarstjóra
heimilisins.
MynD Eyþór ÁrnASon