Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Qupperneq 52
52 Fólk 14.–16. desember 2012 Helgarblað
Hvað er að
gerast?
14.–16. desember
Föstudagur14
des
Laugardagur15
des
Sunnudagur16
des
Moses Hightower og
Ásgeir Trausti
Blásið verður til tónlistarveislu í Háskóla
bíói þann 14. desember en um er að ræða
einstakt tækifæri fyrir þá sem vilja njóta
þessara tveggja af vinsælustu hljóm
sveitum landsins í notalegu umhverfi og
fyrirtaks hljómi. Aldurstakmark er ekkert
og því er tilvalið fyrir fjölskyldur að gera sér
glaðan dag. Afsláttur fyrir nema er í boði
gegn framvísun skólaskírteina í versluninni
Brimi í Kringlunni og á Laugavegi.
Háskólabíó 20.00
Jónas Sig og Ómar Guðjóns
Þeir félagar fóru hringferð um landið
í nóvember og héldu 14 tónleika á 14
dögum. Núna er komið að því að slá upp
tónleikum í Reykjavík og ætla þeir að
spila á tvennum tónleikum á KEX Hostel.
Þeir munu spila efni af plötum sínum, Þar
sem himin ber við haf og Útí geim.
Kex Hostel 21.30
Ólöf Arnalds og
Skúli Sverrisson
Ólöf Arnalds og Skúli
Sverrisson halda
tónleika á Kex Hostel
laugardagskvöldið 15.
desember klukkan 21.00
(salur opnaður 20.30). Auk eldri laga munu
Ólöf og Skúli leika lög af væntanlegri plötu
Ólafar, Sudden Elevation, sem kemur út
snemma á næsta ári.
Þau munu einnig leika nokkur ný lög sem
Skúli hefur samið fyrir nýja útgáfu spænska
tímaritsins Matador. Tónleikarnir eru hluti af
Kexmas 2012, jóladagskrá Kex Hostel.
Kex Hostel 20.30
Retro Stefson á Hlemmi
Næsta laugardag mun dansinn duna á
Hlemmi en það er engin önnur en hljóm
sveitin Retro Stefson sem mun rífa skreytt
þakið af Hlemmi.
Alla laugardaga til jóla býður Reykja
víkurborg upp á tónleikaröðina „Hangið á
Hlemmi“. Tónleikarnir hefjast óstundvíslega
kl. 15.00 og hanga eitthvað fram eftir,
eða þannig. Í anda ofgnóttar og fortíðar
þráhyggju er frítt á tónleikana og aðeins
vinsælar og skemmtilegar hljómsveitir spila.
Hlemmur 15.00
Jólatónleikar
Sinfóníunnar
Jólatónleikar Sin
fóníunnar eru fastur
liður í jólahaldi margra
fjölskyldna á Íslandi. Í
ár, sem endranær, verður
hátíðleikinn í fyrirrúmi með þjóðlegu
ívafi. Nýr jólaforleikur í hátíðarútsetningu
Sigurðar Ingva Snorrasonar lítur dagsins
ljós þar sem sígild íslensk jólalög eru í for
grunni. Jólasveinasvíta Guðna Franzsonar,
með Halldóru Geirharðsdóttur sögumanni,
leggur út frá Jólasveinavísum Jóhannesar
úr Kötlum og má vera að bæði Grýla og
jólakötturinn gægist inn í Eldborgarsal
Hörpu. Úr því þjóðlega er farið yfir í ástsælt
erlent jólalag, Litla trommuleikarann,
sem verður flutt af ungum slagverksnem
endum. Trommuslátturinn kemur öllum í
réttan takt fyrir glæsileg tilþrif nemenda
Listdansskóla Íslands sem túlka sívinsælt
tónverk Howards Blake um snjókarlinn.
Eldborg 14.00 – 16.00
Jólatónleikar Borgardætra
Borgardæturnar, Andrea Gylfadóttir,
Ellen Kristjánsdóttir og Berglind Björk
Jónasdóttir, flytja Kópavogsbúum
og nærsveitamönnum sína frábæru
jóladagskrá. Með dætrunum leikur tríóið
Þorpsbúar; Eyþór Gunnarsson á píanó,
Birgir Bragason á kontrabassa og Matthí
as Hemstock á trommur.
Salurinn 20.00
Byrjaði að hlusta
á óperur tíu ára
Þ
etta er ágæt leið til að friða
samviskuna þessi jólin,
segir hinn tvítugi Kristján
Jóhannesson, starfsmað-
ur Samskipa og söngvari
með meiru. Samskip tekur þátt í
átakinu Geðveikum jólum á veg-
um Geðhjálpar og hefur í dag safn-
að tæpum 300 þúsund krónum fyrir
samtökin og er í efsta sæti.
Söfnunarátakið Geðveik jól fer
nú fram í annað sinn en í því skor-
ar Geðhjálp á fyrirtæki að útbúa
tónlistarmyndbönd þar sem starfs-
fólkið flytur eitt jólalag. Starfsfólkið
hefur frjálsar hendur með lagaval
og í mörgum tilfellum eru vinsæl
popplög sett í jólabúning. Þegar
komið var að máli við Kristján og
hann beðinn um að taka að sér að
flytja framlag Samskipa tók hann
ekki í mál að syngja eitthvað popp-
lag. „Ég sagði að það kæmi ekki til
greina. Ég gerði þetta ekki nema að
þetta væri mér öllum viðkomandi
til sóma.“ Eftir smá þref varð úr að
Kristján söng lagið Frá ljósanna
hásal.
Erfiðasti vinnudagurinn
Ráðist var í verkefnið í flýti vegna
tímaskorts, en Kristján var á leið
til útlanda. „Það var stokkið í þetta
með þvílíku offorsi. Við fórum í
stúdíó og tókum þetta upp. Feng-
um fólk úr Samskipum sem sungið
hefur í kór og krakka sem ég þekki,
og settum saman í Englakór Sam-
skipa. Svo tókum við þetta upp
í einum rykk. Þetta var heilmik-
il vinna og fór mikill tími þetta, en
þetta reddaðist allt saman.“
Það var þó ekki nóg að fara í
stúdíó og taka upp lagið því það
þurfti einnig að búa til mynd-
band. „Sonur konu sem vinnur í
mannauðsdeildinni er menntaður
kvikmyndagerðarmaður og hann
og félagi hans komu og fengu að
taka upp inni á lagernum. Þetta
var án efa einn erfiðasti vinnudag-
ur sem ég hef upplifað, að standa
uppi í lyftu og syngja,“ segir Kristján
hlæjandi. En í myndbandinu er
honum lyft hátt upp í loft með vöru-
lyftu á meðan Englakórinn syngur á
jörðu niðri. „Svo vildu þeir ekki að
ég „mæmaði“ því það var ekki nógu
raunverulegt. Ég þurfti að standa
á „blastinu“ eins og enginn væri
morgundagurinn. Svo var útkoman
svona og þetta var bara hörkustuð.“
Asnaðist í söngtíma
fyrir tilviljun
Kristján hefur verið í söngnámi
frá fimmtán ára aldri og lærir nú
klassískan söng undir handleiðslu
Diddúar í Söngskóla Sigurðar Dem-
etz. Hann mun ljúka námi næsta
vor og ætlar þá í frekara nám er-
lendis. „Þetta er náttúrulega harður
heimur en ef guð lofar á maður þá
ekki að gera það sem hjartað segir
manni?“ spyr Kristján sem hyggst
leggja sönginn fyrir sig.
Aðspurður hvort hann hafi lengi
dreymt um að verða söngvari svar-
ar hann neitandi, segist í raun
aldrei hafa dottið það í hug fyrr
en hann fór að stálpast. Hann fór
þó snemma að hlusta á óperur og
klassíska tónlist. „Ætli ég hafi ekki
verið tíu ára þegar ég fór að hlusta
á óperur. Pabbi var alltaf að hlusta
á þetta heima og áreitið var mikið.
Síðan hef ég eiginlega ekki hlustað
á neitt annað.“
Kristján segir það hafa verið til-
viljun að hann asnaðist í söngtíma,
eins og hann orðar það. Þar var hon-
um var tjáð að hann hefði hæfileika
til að ná frama á þessu sviði. „Eftir
það kom ekkert annað til greina.“
Í myndbandinu við jólalagið
leikur Kristján lagerstarfsmann
sem virðist þreyttur eftir vinnu-
daginn og hugur hans leitar í
sönginn. Í framhaldinu birtist
Englakórinn og söngurinn nær há-
marki. Í lok myndbandsins birtist
Kristján svo aftur sem lagerstarfs-
maður. Aðspurður hvort hann sé
að leika sjálfan sig, vill hann ekki
alveg ganga svo langt. Hann viður-
kennir þó hugur hans leiti oft í
sönginn í vinnunni. „Maður hefur
nægan tíma til að hugsa á meðan
maður situr á lyftaranum og þá er
þetta iðulega það sem maður hugs-
ar um,“ segir Kristján að lokum. n
solrun@dv.is
n Kristján slær í gegn í myndbandi Samskipa fyrir átakið Geðveik jól
Þ
etta er gert til að vekja athygli
á málstaðnum á jákvæðan
hátt og gera þetta skemmti-
legt,“ segir Eva Bjarnadóttir,
framkvæmdastjóri Geðhjálpar.
Hún segir nafnið Geðveik jól hafa
stuðað suma en tilgangurinn sé að
normalisera geðveiki og vekja fólk
til umhugsunar. „Á sama tíma er
þetta gert til að lyfta andanum á
vinnustöðunum og bæta geð fólks.“
Í fyrra söfnuðust rúmar þrjár
milljónir króna í átakinu og rann
upphæðin óskipt í að halda úti
grunnstarfsemi félagsins; ráðgjöf
við sjúklinga og aðstandendur sem
og rekstur frístundaheimilis. „Það
munaði rosalega mikið um það og
kom okkur alveg í gegnum þetta ár,“
segir Eva.
Í ár er safnað fyrir örlítið hnit-
miðaðra verkefni. „Við viljum fara út
í vitundarvakningu á vinnustöðum
og aðstoða starfsfólk og stjórnend-
ur í að taka á geðheilbrigði á vinnu-
stöðunum. Við vonum að þetta geri
að verkum að fólk verði meðvitaðra
um geðheilbrigði og geðsjúkdóma
og geti þannig auðveldað starfsfólki
að ræða opinskátt um sín veikindi.
Þannig er líklegra að það fái þá að-
stoð sem þörf er á.“ Eva segir þetta
skipta miklu máli. Líka þegar fólk
snýr aftur til vinnu eftir veikindi
að það fái skilning og stuðning hjá
vinnufélögunum. „Þetta er svo sjálf-
sagt þegar fólk fær krabbamein eða
fótbrotnar. Það er auðveldara að
segja frá því og koma aftur til baka.
Það leikur enginn vafi á því hvort
fólk sé hæft til að taka við starf-
inu sínu aftur. Það er oft erfiðara að
upplýsa að maður sé andlega veik-
ur.“ Eva bendir á að þetta geti líka
verið erfitt fyrir vinnufélagana þar
sem þeir viti ekki hvernig þeir eigi
að haga sér. Má til dæmis spyrja:
„Hvernig ertu af þunglyndinu?“ Og
svo framvegis.
„Okkur langar að opna fyrir
þessa umræðu og erum að safna til
að geta farið í það verkefni að efla
þessa meðvitund hjá stjórnendum
og starfsfólki á vinnumarkaðnum.“
Það fyrirtæki sem nær að safna
mestu hlýtur að launum farand-
verðlaunagrip eftir listakonuna Ingu
Höskuldsdóttur. Þá velur dómnefnd
skipuð fjölda listamanna besta
flutninginn og besta myndbandið
og fá fyrirtækin viðurkenningu að
launum. Úrslitin verða kynnt þann
18. desember næstkomandi
solrun@dv.is
n Fara út í vitundarvakningu á vinnustöðum
Vilja normalisera geðveiki
Stórsöngvari Kristján
hefur lært klassískan söng í
fimm ár og hyggur á frekara
nám erlendis næsta haust.
Framkvæmdastjóri Eva Bjarnadótt
ir er framkvæmdastjóri Geðhjálpar.