Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Page 53
S
ælkerinn Albert Eiríksson,
sem heldur úti matarblogginu
alberteldar.com, var gestur
Brynju Þorgeirsdóttur í Kast-
ljósi í vikunni. Þar sýndi hann bæði
henni og áhorfendum heima í
stofu hvernig baka ætti Sörur og út-
búa annað góðgæti í hollari kantin-
um fyrir jólin. Albert er eiginmaður
Bergþórs Pálssonar söngvara sem að
sjálfsögðu fylgdist með sínum manni
í sjónvarpinu. Eitt af góðgætinu
sem Albert kynnti fyrir áhorfend-
um var svokallað súkkulaðisalami.
Eins og nafnið gefur til kynna lítur
það út eins og einhvers konar pylsa.
Brynja hafði einmitt á orði að þetta
liti ansi einkennilega út. Bergþór
hafði aðra hugmynd um hverju um-
rætt súkkulaðisalami líktist og skrif-
aði um fagmannlega framkomu eig-
inmannsins á Facebook-síðu sína.
„Albert segir það hafa verið fyrir
hreina tilviljun, alveg óvart, hvern-
ig hann hélt á súkkulaðigöndlinum.“
Svo vísaði hann á ákveðna mínútu í
upptökunni af þættinum. „Sem sagt
ekki ákveðið fyrirfram. Hann er nú
svo hreinlyndur að ég trúi honum al-
veg.“
solrun@dv.is
Leið eins og
góðum geðLækni
Fólk 53Helgarblað 14.–16. desember 2012
L
eikskáldið og rithöfundur-
inn Jón Atli Jónasson verður
fertugur um helgina, nánar
tiltekið á laugardaginn.
Jón Atli fæddist árið 1972 í
Reykjavík og er eitt af efnileg-
ustu leikskáldum landsins. Hann
skrifaði meðal annars leikritin
Krádplíser, Brim, 100 ára hús,
Draugalest, Rambó 7, Þú ert hér,
Djúpið og Mindcamp.
Jón Atli er einn af stofnendum
Mindgroup sem eru evrópsk sam-
tök leikhúsfólks sem vinna að til-
raunakenndri leiklist. Árið 2001
kom út smásagnasafnið Brotinn
taktur og skáldsagan Í frostinu
kom út árið 2005. Jón Atli vann
Grímuverðlaun fyrir Brim árið
2004 en mörg leikverka hans hafa
verið sviðsett um víða veröld.
Kærasta Jóns Atla er tónlistar-
konan Urður Hákonardóttir,
stundum kölluð Earth, úr lista-
hópnum GusGus.
É
g verð heima með fjöl-
skyldunni,“ segir Ólafur Þór
Gunnarsson um hvernig hann
hyggst fagna afmælinu en
hann verður þrítugur laugardaginn
15. desember. Ólafur segist hafa
verið mikið afmælisbarn á yngri
árum en taki afmælisdeginum með
meiri ró eftir því sem hann eldist.
„Ég var afmælisbarn þegar ég var
lítill en ekki svo mikið lengur. Þetta
er búið að eldast af manni,“ segir
hann.
Ólafur tekur hækkandi aldri
með æðruleysi og segist ekki líta á
þrítugsafmælið sem einhver sér-
stök tímamót. „Mér var sagt að
eftir 35 ára aldurinn færi allt niður
í móti þannig að ég á góð fimm ár
eftir,“ segir Ólafur Þór kíminn.
Jón Atli fertugur
„Ég á góð
fimm ár eftir“
Eitt efnilegasta leikskáld landsins fagnar um helgina
Ólafur Þór verður þrítugur á laugardag
Vel sjóaður Sölvi segist ekki
taka málin inn á sig enda ýmsu
vanur eftir að hafa tekið yfir
þúsund viðtöl fyrir sjónvarp.
Þ
að hafa komið nokkrir dagar
þar sem mér hefur liðið eins
og góðum geðlækni og rúm-
lega það,“ segir fjölmiðla-
maðurinn Sölvi Tryggvason,
umsjónarmaður þáttanna Málið sem
sýndir hafa verið á Skjá Einum. Hann
vinnur nú að nýrri þáttaröð sem hef-
ur göngu sína í janúar þar sem hann
tekur fyrir viðkvæm umfjöllunarefni,
líkt og barnaníð, einelti, aðbúnað úti-
gangsfólks og fleira.
Sölvi segir aðstandendur þáttanna
hafa reynt að marka sér þá stefnu að
taka mannlega vinkla á þung og erf-
ið mál. Hann viðurkennir að það geti
stundum tekið á.
Orðinn ýmsu vanur
„Við höfum verið að vinna svo
marga þætti í einu og fólk er að
treysta mér fyrir hlutunum. Fólk
er kannski ekki bara að segja frá
erfiðri lífsreynslu í fyrsta skipti
heldur er það að setja hana í sjón-
varp. Það eru því ansi margir sem
ég er með á línunni og bíða eftir að
sjá hvernig sinn hlutur kemur út,“
útskýrir hann.
Í þættinum þar sem fjallað er um
barnamisnotkun ræðir Sölvi bæði við
fórnarlömb og gerendur. Í myndbroti
úr þáttunum sem hægt er að nálg-
ast á heimasíðu Skjás Eins sést til að
mynda hvar hann ræðir við barna-
níðing um barnagirnd. „Í þessu tilviki
þá hélt viðkomandi að hann væri að
fara að hitta 12 ára stelpu,“ segir Sölvi
sem vill þó ekki gefa upp of mikið.
Aðspurður hvort eitthvað mál
hafi verið erfiðara að vinna en ann-
að og hvort hann hafi tekið þau inn á
sig svarar hann neitandi. Hann segist
vera orðinn nokkuð vel sjóaður eftir
að hafa tekið yfir þúsund viðtöl í sjón-
varpi. „Maður er orðinn ýmsu van-
ur og ég get ekki sagt að ég sé að taka
þetta mikið inn á mig en þættirnir um
misnotkun á börnum og útigangsfólk
innihalda vissulega átakanlega sögur.
Og eins líka eineltisþátturinn.“
Horfðist í augu við barnaníðinga
Hann viðurkennir að það hafi verið
skrýtið að horfast í augu við menn
með barnagirnd. „Það er auðveldara
að segja það en að gera það. Ég fann
það þegar ég kom heim það kvöld
og líka bara þegar ég var kominn í
þessar aðstæður. Þetta er töluvert
meira en að segja það.“ Sölvi segir að
í svona aðstæðum reyni á blaða- og
fjölmiðlamenn að láta tilfinningar
ekki taka völdin. Þeirra hlutverk sé
einungis að sækja upplýsingar og
vinna úr þeim. „Þegar þú ert að ræða
við menn sem eru með svona kennd-
ir, það er mjög erfitt að setja sig inn
í þennan hugarheim en maður verð-
ur að reyna að taka viðtal án þess að
það sé of gildishlaðið.“
Sölvi segir metnaðarfulla vinnu
liggja að baki þáttunum og að bæði
framleiðendur og kvikmyndatöku-
menn hafi lagt mikið á sig til að til að
ná fram góðu efni. „Ég bind vonir við
að þetta verði mjög flott,“ segir Sölvi
að lokum. Um er að ræða sex þætti
en sýningar á þeim hefjast þann 7.
janúar næstkomandi. n
solrun@dv.is
n Sölvi Tryggva-
son vinnur nýja
þáttaröð af Málinu
Hrein tilviljun „hvernig hann
hélt á súkkulaðigöndlinum“
n Bergþór tjáir sig um frammistöðu Alberts í Kastljósinu
Fylgdist með Alberti Bergþór fylgdist
með sínum manni í sjónvarpinu og skrifaði
um frammistöðuna á Facebook.
Góðgæti Albert sýnir áhorfendum Kast-
ljóss súkkulaðisalami.
Jón Atli Jónasson Jón Atli er í sambandi
með Urði Hákonardóttur söngkonu úr GusGus.
Æðrulaus Ólafur Þór ætlar að eyða
afmælisdeginum með fjölskyldunni.
É
g verð með tónleika á laugar-
daginn ásamt manninum
mínum og vinafólki í Hafnar-
fjarðarkirkju,“ segir Jóhanna
Ósk Valsdóttir söngkona úr
Hafnarfirði en hún verður fertug
laugardaginn 15. desember. Á
tónleikunum verða sungin jólalög
en Jóhanna segir að eitthvað verði
sprellað á milli atriða. Afmælið
ætlar hún síðan að halda upp á
sameiginlega með eiginmanni
sínum Bjarti Loga Guðnasyni
milli jóla og áramóta en Bjartur
Logi varð fertugur fyrir stuttu.
Jóhanna segist vera mikið af-
mælisbarn. „Já, ég er það. Þar
sem maður á afmæli svona rétt
fyrir jól þá er alltaf svolítil hætta á
að afmælið renni saman við jólin,
en ég er svo heppin að ég á afa
sem er nú að verða 89 ára í næstu
viku svo hann þekkir þetta. Hann
lagði alltaf mikla áherslu á það við
mömmu að það yrði alltaf haldið
upp á afmælið mitt. En ég hef
alltaf verið spennt fyrir afmælinu
og það er ekki verra að það komi
jólasveinn og svona í afmælið hjá
manni.“
Alltaf verið spennt
fyrir afmælinu
Jóhanna Ósk verður fertug á laugardag
Afmælisbarn Jóhanna Ósk ætlar að
halda tónleika á afmælinu sínu.