Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Síða 54
54 Fólk 14.–16. desember 2012 Helgarblað
„Öll dýrin í skóginum
eiga að vera vinir“
n Gunnlaugur spyr hvort lögreglumenn séu sáttir við sitt hlutverk
L
ögreglan á höfuðborgarsvæð-
inu heldur úti Facebook-síðu
þar sem oftar en ekki eru birtar
þarfar ábendingar með hnyttnu
ívafi. Á miðvikdaginn síðastliðinn,
þann merka dag 12.12.12, minntist
lögreglan hundrað ára fæðingaraf-
mælis rithöfundarins Thorbjörns
Egner sem meðal annars skrifaði
leikritið um Dýrin í Hálsaskógi. „Frá
honum komu margar perlur og það
myndi létta störf okkar umtalsvert
ef allir fylgdu lögum Bastíans bæj-
arfógeta sem söng í þýðingu Krist-
jáns frá Djúpalæk: „Engum sæmir
aðra að svíkja / allan sóma stunda
ber / annars geta menn bara lifað
og leikið sér.“ Þá er ekki síður mikil-
vægt að minna á lögin sem öll dýrin í
Hálsaskógi samþykktu en fyrsta grein
þeirra hljóðar svo: „Öll dýrin í skóg-
inum eiga að vera vinir“,“ skrifaði lög-
reglan á Facebook-síðu sína.
Margir skrifa athugasemdir við
þessa færslu lögreglunnar og þakka
henni fyrir skemmtileg skrif. Ein
athugasemdin sker sig þó úr. Það er
athugasemd Gunnlaugs Jónssonar,
höfundar bókarinnar Ábyrgðarkver
og sonar Jóns Steinars Gunnlaugs-
sonar, fyrrverandi hæstaréttardóm-
ara, en í henni segir:
„Hvað ætli Marteini skógarmús
hefði fundist hefði Mikki refur ráðist
inn, með 39 öðrum refum, í fylgsni
Lilla klifurmúsar og rænt honum fyr-
ir að stunda friðsama spilamennsku?
Ætli sú árás lögreglunnar á friðsamt
fólk sé það sem Bastían hafði í huga,
þegar hann söng lag sitt? Er það sóm-
inn? Hvernig útskýra lögreglumenn
fyrir börnunum sínum hvað þeir gera
í vinnunni? Blekkja menn sig með því
að þeir séu andstæða þess sem þeir
eru í raun og veru? Hljóta heiðvirð-
ir lögreglumenn ekki að mótmæla
svona illum lögum, sem banna fólki
að stunda friðsama starfsemi? Eða
eru menn sáttir við þetta hlutverk sitt
í lífinu?“ Er Gunnlaugur þarna vænt-
anlega að vísa til aðgerða lögreglu í
vikunni þar sem ráðist var inn í ólög-
legt spilavíti í Skeifunni í Reykjavík.
„Er það sóminn?“ Spyr Gunnlaugur.
Hann spyr jafnframt hvort árás
lögregl unnar á friðsamt fólk hafi verið það
sem Bastían hafði í huga.
Steinunn Camilla úr hljómsveitinni The Charlies ætlar að taka sér hlé frá bransan-um í Los Angeles um jólin og skella sér til
Íslands. Hún ætlar að aðstoða foreldra sína,
sem reka skartgripaverslunina Gull og silfur
á Laugavegi, í jólaösinni. Hún greindi frá
þessu á Instagram.
Stúlkurnar í The Charlies sendu frá
sér nýtt lag í haust, Hello Luv, en þær
hafa fórnað miklu fyrir frama vestanhafs
og viðurkenndu það í viðtali í DV í sumar.
„Eiginlega öllu! Við gengum í burtu frá
samböndum, íbúðum og bílum, frá ferl-
inum okkar heima og erum þúsundir
kílómetra frá fjölskyldu og vinum,“
sagði Steinunn Camilla aðspurð
hverju þær hefðu fórnað.
n Camilla vinnur hjá foreldrum sínum
Heima um jólin
Þáttastýran geðþekka úr Íslandi í dag, Sigríður Elva Vilhjálms-dóttir, tilkynnti á Facebook-
síðu sinni á miðvikudag að hún eigi
von á lítilli stúlku í heiminn ásamt
manni sínum, Teiti Þorkelssyni.
Sigríður Elva og Teitur bjuggust
víst við að það væri drengur í
bumbunni en að sögn Sigríðar
þurfa þau skötuhjúin „að fara lesa
hinn helminginn í mannanafna-
bókinni.“
Sigríður og Teitur eru þekkt
fyrir að vera miklar ævintýra-
manneskjur en ásamt því að vera
einn af þáttastjórnendum Íslands
í dag er Sigríður flugmaður og úti-
vistarmanneskja mikil.
Á von á stelpu
n Leikkonan og grínistinn Helga Braga Jónsdóttir gesta-
stjórnandi í FM95BLÖ n „Alltaf voðalega skemmtilegt“
É
g kem í staðinn fyrir hann
Hjörvar Hafliðason, hann
var eitthvað vant við látinn
og því var haft samband við
mig, segir leikkonan og grínistinn
Helga Braga Jónsdóttir en hún var
gestastjórnandi í útvarpsþættin-
um FM95BLÖ á miðvikudag sem
er í stjórn Auðuns Blöndal. Þetta er
ekki í fyrsta skipti sem Helga Braga
sest við hlið Auðuns í hljóðverinu
en hún hefur tvisvar áður tekið að
sér gestastjórn í þættinum. „Þetta
er alltaf voðalega skemmtilegt, “
segir Helga. „Það er alltaf ákveðið
form á þessu hjá honum, þannig
að ég geng bara inn í það.“
Oftar en ekki eru gestastjórn-
endur þáttarins karlmenn sem
Helga segir að sé miður, en bendir
á að leikkonan og grínistinn Anna
Svava Knútsdóttir hafi einnig tek-
ið að sér gestastjórnun í þættin-
um. „Þannig að hann reynir að fá
einhverjar gríngellur með sér. Og
hann hefur nú oft hringt í mig áður
en ég hef bara ekki alltaf komist en
nú bara gat ég ekki lengur sagt nei
við hann.“
Aðspurð hvort þetta sé jafn-
vel upphafið að nýjum ferli bend-
ir Helga blaðamanni á að hún hafi
meðal annars verið með útvarps-
þátt á Bylgjunni með Eddu Björg-
vinsdóttur leikkonu. „Ég er nú
ekki alveg ný, ég hef verið í útvarpi
áður. Ég og Edda vorum með þátt á
Bylgjunni á laugardögum í heilan
vetur og svo vorum við Steinn Ár-
mann með útvarp Hol sem voru
grínþættir á Rás 2, og svo vorum
við Steinn Ármann einnig með
Virka morgna um tíma og leyst-
um af Gunnu Dís og Andra Frey,
þannig að þetta er alls ekki nýr
vettvangur. En mér finnst æðislega
gaman í útvarpi og væri alveg til í
að gera meira af því.“
Annars er alltaf nóg að gera hjá
Helgu en tökum á þriðju þátta-
seríunni af Hæ Gosa lýkur í haust
en þættirnir verða frumsýndir
Skjá Einum í lok janúar næstkom-
andi. „Og svo er ég náttúrulega í
Stundinni okkar með Trjáálfana,
en það eru karakterar sem ég og
Steinn Ármann höfum verið með
í þættinum í sex vetur og svo er
ég auðvitað alltaf að skemmta og
halda fyrirlestra,“ segir Helga hress
að lokum.
hanna@dv.is
skemmtilegt að
vinna í útvarpi
Söngkonan Anna Hlín Sekulic-Lewis eignaðist sitt annað barn á dögunum. Margir muna eftir
Önnu Hlín frá því í Idol-keppninni
árið 2009 en síðan hefur hún unnið
við tónlist bæði hér heima og í Nor-
egi. Anna Hlín og eiginmaður henn-
ar, Anthony Lewis, áttu fyrir soninn
Imhotep Stefán sem fæddist árið
2010. Fjölskyldan er nú orðin enn
stærri en foreldrarnir fengu annan
dreng í fangið í byrjun mánaðarins.
Tveggja
barna móðir