Dagblaðið Vísir - DV - 14.12.2012, Qupperneq 56
Ólafur veit
hvað hann
syngur!
Retro Stefson
hangir á Hlemmi
n Hljómsveitin Retro Stefson
mun leika fyrir dansi á Hlemmi
á laugardag. Sveitin stígur á svið
um klukkan 15 og frítt er á tón-
leikana. Retro Stefson hefur gert
það gott undanfarið, jafnt inn-
an lands sem utan, og hefur
sveitin hlotið sex tilnefningar til
íslensku tónlistarverðlaunanna
í ár. Uppákoman er hluti af tón-
leikaröðinni „Hangið á Hlemmi“,
sem er hluti verkefnis borgarinn-
ar, „Jólaborgin Reykjavík“. Hefur
Hlemmur nú verið settur í jóla-
búning og hann verið skreyttur í
anda kvikmyndarinnar Christmas
Vacation, þar sem lögð er áhersla
á magn jólaskrauts fremur en
gæði.
Nakin grýla
óviðeigandi
n Hugleikur Dagsson var ritskoð-
aður á Facebook í vikunni. Þar
birti hann mynd af þjóðsagna-
persónunni Grýlu þar sem hún
stóð allsnakin. Myndin fór fyrir
brjóstið á einhverjum sem til-
kynnti myndina til stjórnenda
Facebook. Hugleik-
ur dó ekki ráða-
laus og teiknaði
myndina upp
á nýtt, skellti
Grýlu í bikiní-
vax og klæddi
hana í bikiní.
„Núna mun
nektin henn-
ar ekki trufla
neinn. Takk
ritskoðun!“
sagði hann
á Face-
book-síðu
sinni um
málið.
Önnur framtíð
n Framkvæmdastjóri Bjartr-
ar framtíðar, Atli Fannar Bjarka-
son, átti alls ekki von á því fyrir
nokkrum árum að hann myndi
einhvern tímann eyða heil-
um morgni í að svara fjölmiðl-
um um fyrirætlanir borgarstjór-
ans í Reykjavík. „Þegar ég stóð
sveittur og síðhærður á sviðinu á
Grand rokki árið 2005 datt hvorki
mér né nokkrum öðrum í hug
að árið 2012 myndi ég eyða heil-
um morgni í að svara símtölum
frá fjölmiðlamönnum um hvort
og hvar Jón Gnarr, borgarstjóri í
Reykjavík, yrði á lista stjórnmála-
flokksins sem ég ynni hjá,“ skrifar
Atli Fannar á Face-
book-síðu sína.
Fjölmiðlar voru
spenntir yfir röð-
un flokksins á
lista fyrir næstu
þingkosningar en á
miðvikudag
var fyrst
greint frá
því að Jón
íhugaði
framboð
til Al-
þingis.
Ó
lafur Ragnar Grímsson forseti
hefur í huga stofnun sérstaks
olíusjóðs, finnist olía á Dreka-
svæðinu. Þetta sagði hann í við-
tali við Bloomberg.
„Þar sem við lítum á þessa auðlind
sem þjóðareign, þá myndum við stofna
sérstakan auðlindarsjóð í þjóðareigu“
sagði forsetinn..
Davíð Þorláksson, formaður SUS,
hefur tjáð sig mikið um hugtakið
þjóðareign. Megininntak í málflutn-
ingi Davíðs hefur verið að hugtakið sé
í raun markleysa, þar sem þjóðir geti
ekki verið lögaðilar. Með hugtakinu sé
í raun og veru átt við ríkiseign.
Davíð bendir á í samtali við DV að
samkvæmt lögum sé ríkið eigandi að
öllum olíuauðlindum í íslenskri lög-
sögu. „Olíuauðlindir eru ekki nýtt-
ar í dag þannig að þær eru ekki í eigu
einstaklinga, ólíkt til dæmis sjávarút-
vegi og jarðnæði á Íslandi,“ segir hann
og bætir við að fráleitt sé að tala um
þjóðareign í því samhengi:
„Það er lýðskrum.“
Davíð er þó ekki sammála
því að stofna skuli olíusjóð.
„Við treystum ekki stjórn-
málamönnum til þess að sjá
um rekstur auðlinda,“ segir
hann. SUS telur bestu
aðferðina vera
að selja nýt-
ingarréttinn
sem fyrst til
einkaaðila. Davíð telur norsku
leiðina – stofnun olíufyrir-
tækis og olíusjóðs í eigu rík-
isins –ekki heppilega fyrir Ís-
lendinga. „Íslendingar eru ekki
jafn ráðdeildarsamir og Norð-
menn,“ segir Davíð. simon@dv.is
Ólafur Ragnar vill olíusjóð
n SUS ósammála: „Íslendingar eru ekki jafn ráðdeildarsamir og Norðmenn.“
Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HELGARBLAÐ 14.–16. DeSemBeR 2012 145. tbl. 102. árg. leiðb. verð 659 kr.
Svartur sjóður Ólafur segir
að íslenska ríkið muni stofna
olíusjóð, finnist olía á
Drekasvæðinu.