Fréttatíminn - 16.10.2015, Page 70
70 matur & vín Helgin 16.-18. október 2015
Bjór Gestir á Mikkeller-BarnuM í daG
Omnipollo í heimsókn
Það verður veisla fyrir bjóráhuga-
fólk á Mikkeller & Friends-barnum
við Hverfisgötu í dag, föstudag. Þá
verða í boði átta bjórar frá sænska
brugghúsinu Omnipollo sem hefur
verið á mikilli uppleið í heimi hand-
verksbjóra að undanförnu.
Strákarnir að baki Omnipollo eru
svokallaðir sígauna-bruggarar, rétt
eins og hinn kunni Mikkel Borg
Bjergsø sem á og rekur Mikkeller
og er einn eigenda Mikkeller-bars-
ins hér. Sígauna-bruggarar eiga
ekki sjálfir brugghús en brugga
þess í stað bjóra sína í hinum ýmsu
brugghúsum, allt eftir því hvaða
bjór þeir framleiða hverju sinni.
Þannig ná þeir að nýta sér styrk-
leika og sérhæfni ýmissa kollega
sinna í stéttinni.
Omnipollo var stofnað 2011 af He-
nok Fentie og Karl Grandin. Fen-
tie var efnilegur heimabruggari
en Grandin er hönnuður og meðal
annars frægur fyrir að vera annar
af stofnendum Cheap Monday fata-
merkisins. Grandin hannar vita-
skuld allar bjórflöskur Omnopollo.
Nokkrir af bestu bjórum Omni-
pollo verða í boði á Mikkeller-
barnum í dag og svo lengi sem
birgðir endast. Má þar nefna Noa
Pecan Mud Cake Stout sem er al-
gjör bragðsprengja, Fatamorgana
Double IPA, Lemonade Pale Ale, Ice
Cream Pale Ale og Bianca Mango
Lassi Gose. -hdm
Karl Grandin er annar tveggja stofn-
enda brugghússins Omnipollo. Áður
setti hann hið kunna fatamerki Cheap
Monday á stofn.
mt.
(mynd: 21821 Freyr)
mt.
(mynd: 23414)
Skúli kominn á Skúla
„Viðtökurnar hafa verið góðar
og hann hefur selst vel. Það hafa
hrúgast inn dómar og það verður
gaman að fara yfir það hvað fólki
finnst,“ segir Freyr Rúnarsson, bjór-
stjóri á Skúla Craft Bar.
Byrjað var að selja bjórinn Skúla
á Skúla Craft Bar um síðustu helgi
en bjórinn er samvinnuverkefni
forsvarsmanna staðarins og Borgar
brugghúss.
„Ég var með ákveðna sýn í huga,
bjórinn átti að vera American Red
Ale, dálítið humlaður en ekki of, létt
sætur og í kringum fimm prósent.
Ég bar þetta undir strákana í Borg
og þeim leist vel á. Þeir smíðuðu svo
uppskriftina og nú er fyrsta lögun
komin,“ segir Freyr.
Hann segir bjórinn Skúli sé og eigi
að vera bjór í þróun. Þannig gefst
gestum á barnum færi á að segja
skoðun sína á bjórnum á þar til
gerðum eyðublöðum. Þegar næsta
lögun af bjórnum verður brugguð
verður tekið tillit til þeirra athuga-
semda.
„Ég er mikill fullkomnunarsinni sem
háir mér í leik og starfi,“ segir Freyr í
léttum dúr. „Fyrsta lögun er nokkuð
vel lukkuð en ekki alveg eins og ég sá
þetta fyrir mér. Nú viljum við heyra
hvað öðru fólki finnst og munum
styðjast við það þegar við höldum
áfram með þróunina.“ -hdm
Skúli er rauðöl og fallegur í glasi.
Bjór BorG BruGGhús á Bjórhátíð í london
Íslenskir bruggarar í góðum félagsskap
Strákarnir í Borg brugghúsi
tóku þátt í bjórhátíð í London
á dögunum. Þar voru þeir í
félagsskap flottra erlendra
brugghúsa og má búast við
því að erlendir kollegar komi
hingað til lands til að brugga
með þeim á næstunni.
B org brugghúsi var á dögun-um boðið að taka þátt í mik-illi bjórhátíð í London. Há-
tíðin var haldin á nokkrum börum
þar í borg á vegum The Craft Beer
Co. og fóru Borgar-menn með tólf
tegundir af bjór sínum sem kynntir
voru á hátíðinni og eru nú til sölu á
þessum börum.
Fréttatíminn fylgdist með há-
tíðinni eins og kom fram í blaðinu
í síðustu viku. Íslensku bjórararn-
ir vöktu mikla lukku og búast má
við því að hátíðin skili frekari út-
breiðslu Borgar-bjóra á næstunni.
En London-ferðin var ekki bara
til þess að semja um dreifingu
á Borgar-bjórunum heldur voru
bruggararnir líka að stofna til við-
skiptasambanda við erlenda kollega
sína, rétt eins og kom fram í máli
Árna Long, bruggmeistara Borg-
ar, í blaðinu í síðustu viku.
Og ekki vantaði áhugaverð
brugghús sem Borg deildi
sviðinu með. Á sama bar og
íslensku bjórararnir voru
kynntir voru önnur skandi-
navísk brugghús að kynna
sína bjóra. Af þeim má nefna
sænska brugghúsið Dugges
sem kynnti flotta súrbjóra
– rabarbara-, kirsuberja- og ástar-
aldins-súrbjór. Eins var 7 Fjell frá
Bergen í Noregi afar athyglisvert.
Á öðrum stað voru nokkur banda-
rísk brugghús, til að mynda Funky
Buddha, Cigar City og Other Half.
„Þetta voru allt mjög frambæri-
leg brugghús,“ segir Árni um koll-
ega sína. Forsvarsmenn Borgar
hafa staðfest að von sé á er-
lendum bruggurum hingað
til lands á næstunni til að
brugga með Árna og Val-
geiri í Borg en ekki hefur
fengið staðfest um hvaða
brugghús er að ræða. Freyr
Rúnarsson, bjórstjóri á
Skúla, staðfestir hins vegar
að tvö brugghús komi hing-
að á næstunni, en Freyr sótti hátíð-
ina í London.
„Þeir í 7 Fjell ætla að koma í des-
ember og við gerum eitthvað jóla-
legt með þeim. Svo eftir áramót á
ég von á því að Other Half komi
hingað. Það var fimmta besta nýja
brugghús í heimi árið 2014, sam-
kvæmt Ratebeer. Þeir hafa sýnt því
mikinn áhuga að koma hingað.“
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@frettatiminn.is
Freyr Rúnarsson.
Frá vinstri Valgeir í Borg, Gahr Smith-Gahrsen hjá 7 fjell, Mikael Dugge Engström hjá Dugges, Martin Haynes hjá The Craft Beer
Co., Jens Eikeset hjá 7 fjell og Árni Theodór Long í Borg. Ljósmynd/Teitur