Fréttatíminn - 16.10.2015, Page 76
76 bækur Helgin 16.-18. október 2015
RitdómuR HundadagaR EinaRs KáRasonaR
Þarmar með sjarma á
toppnum
Lítið fer fyrir íslenskum
skáldverkum á metsölulista
Eymundsson þessa vikuna,
eina íslenska skáldsagan á list-
anum er Hundadagar Einars
Más Guðmundssonar sem situr
í 4. sæti listans.
Í fyrsta sæti trónir bókin Þarmar með sjarma
eftir Giulia Enders, í öðru sæti er Hrellirinn
eftir Lars Kepler og í því þriðja situr litabókin
Íslensk litadýrð eftir Elsu Nielsen.
Endurminningar Sölva Sveinssonar, Dagar
handan við dægrin, er í fimmta sæti, Stúlkan
í trénu eftir Jussi Adler Olsen í því sjötta,
Atvinnumaðurinn Gylfi Sigurðs í sjöunda.
mEtsölulisti Eymundsson
BæKuR FyRsta ljóðaBóK KRistjáns ÞóRðaR síðan 1997 Komin út
t veir Elvis Presley aðdáendur og fleiri sonn-ettur er fyrsta ljóðabók Kristjáns Þórðar síðan árið 1997, hvað olli þessari löngu með-
göngu? „Það bara tekur mig mjög langan tíma að
yrkja,“ segir Kristján, „Hið háttbundna ljóðform er
mjög kröfuhart. En svo hafa skáldsagna- og leikrita-
skrif líka átt hug minn á þessu tímabili. Ég þarf að
liggja yfir ljóðunum lengi áður en mér finnst ég geta
sent þau frá mér. Sumir höfundar geta unnið hratt
með góðum árangri en ég þarf mikinn tíma. Í öllum
þessum ljóðum er saga sem mig langar að segja, ein-
hverjar mannlegar aðstæður eða mannleg reynsla
sem mig langar að taka fyrir og ég velti því lengi
fyrir mér hvernig mig langar að gera hverju yrkisefni
skil. Ég skrifa niður punkta og vangaveltur og það
má kannski segja að ég vinni hvert ljóð svolítið eins
og smásagnahöfundur áður en ég fer að yrkja. Hvert
ljóð er sjálfstæður heimur, sjálfstæð saga, þannig að í
rauninni er þetta smásagnasafn í ljóðum.“
Órökrétt og blind öfl
Megin yrkisefnið í bókinni er samskipti fólks og
Kristján segir það efni alltaf hafa heillað sig. „Ég held
það sé mjög sterk vitund í bókinni um hina harm-
rænni þætti tilverunnar, hinn mannlega ófullkom-
leika ef svo má segja, en ég held líka að bókin miðli
sterkri tilfinningu fyrir trú á möguleika mannsins til
að upplifa gleði og hamingju. Þetta eru svona mann-
lífsstúdíur frekar en bein tilfinningaleg tjáning. Mörg
ljóðin eru tragíkómísk, hið harmræna og kómíska
blandast saman í bókinni eins og vitaskuld í mannlíf-
inu. Þannig að það er húmor í bókinni líka.“
Erfið samskipti fólks hafa lengi verið Kristjáni hug-
leikin, bæði í ljóðum hans, leikritum og skáldsögum,
finnst honum svona flókið að umgangast annað fólk?
„Ég held að mannleg samskipti séu yfirleitt flókin og
skrýtin, eins og þau geta verið auðgandi og gefandi,
einfaldlega vegna þess að það er svo mikið af órök-
réttum og blindum öflum í manneskjunni. Vitundar-
líf manneskjunnar er yfirleitt miklu margþættara
en daglegt líf hennar, við erum uppfull af draumum,
löngunum, þrám og áætlunum, en líka persónu-
legum áhyggjum og sársauka. Skáldskapurinn er
leið til þess að öðlast sýn á þennan innri heim okkar.
Sum ljóðin í þessari bók eru í raun lofgjörð til bók-
menntanna því ég hef alltaf haft mikla ást á bók-
menntum og held að lestur á þeim sé einhver sú
dásamlegasta andlega iðkun sem fyrirfinnst.“
Hörðustu orrusturnar í eigin sálarlífi
Hér stoppa ég Kristján af og bendi honum á að spurn-
ingin hafi verið hvort honum persónulega fyndust
samskipti erfið og flókin. „Allir sem hafa öðlast ein-
hverja lífsreynslu hljóta einhvern tímann að hafa
upplifað flókin og erfið samskipti. Það að vera skáld
snýst að miklu leyti um að setja sig inn í tilfinninga-
líf annarra og það er það sem gerist innra með fólki
sem alltaf hefur höfðað mest til mín. Það er oft í eigin
sálarlífi sem einstaklingurinn háir sínar hörðustu
orrustur.“
Pólitísk bók undir niðri
Skáldsagan Hinir sterku sem kom út 2005 var mjög
pólitískt verk fjallaði á gagnrýninn hátt um nýfrjáls-
hyggjuna, einstaklingshyggjuna og tómhyggjuna í
samfélaginu, var nokkurs konar fyrir hruns bók, en
það fer ekki mikið fyrir pólitík í nýju bókinni, er það?.
„Ekki beint, nei, en ég er nú samt að fjalla um ýmsa
þætti sem hafa áhrif á samfélagið, eins og græðgi,
óbilgirni, mannlega samkennd og leit fólks að til-
gangi og merkingu í lífinu. Þannig að þótt pólitíkin
sé kannski ekki á yfirborðinu þá er þarna tekist á
við öfl sem leika stórt hlutverk í lífi fólks og þar með
í samfélaginu.“ Átján ár eru ansi langur tími milli
ljóðabóka, er ljóðskáldið komið til baka eða hefur það
vikið fyrir leikskáldinu og skáldsagnahöfundinum?
„Ljóðskáldið er komið til baka, en ég er líka með í
smíðum á ólíkum vinnslustigum leikrit og skáld-
sögu.“
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
Smásagnasafn í ljóðum
Sex bókaforlög kynna nú íslensku barnabókina Stína
stórasæng eftir Lani Yamamoto á stærstu bóka-
kaupstefnu heims í Frankfurt am Main í Þýskalandi.
Útgáfufyrirtæki á Spáni og Ítalíu sem og í Danmörku,
Bretlandi og Bandaríkjunum gefa út Stínu stórusæng
á fimm tungumálum á markaðssvæðum í Evrópu, Ástr-
alíu, Suður- og Norður-Ameríku.
Bókin kom út á Íslandi haustið 2013 hjá bókaút-
gáfunni Crymogeu. Eitt af því sem vakti athygli á
henni var að fatafyrirtækið Vík Prjónsdóttir hannaði
sérstaka ullarvettlingakápu utan um hana og birtust
umfjallanir um bókina og ullarkápuna í hönnunar-
miðlum um víða veröld.
Fyrir bókina hlaut Lani Yamamoto Fjöruverðlaunin
2013, fyrir bestu barnabók ársins 2013, og Íslensku
myndskreytiverðlaunin 2013, Dimmalimm. Bókin var tilnefnd af Íslands hálfu til Barna-
bókaverðlauna Norðurlandaráðs þegar fyrst var tilnefnt til þeirra verðlauna.
Íslensk barnabók kemur út í fjórum heimsálfum
Ragnar Helgi Ólafsson hlaut í vikunni
Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar
árið 2015 fyrir ljóðahandritið Til hughreysting-
ar þeim sem finna sig ekki í sam tíma sínum.
Ragnar Helgi las heimspeki við Háskóla
Íslands og lagði síðar stund á nám í myndlist
í Frakklandi. Hann hefur síðastliðin ár unnið
að myndlist og sýnt verk sín víða um heim,
meðfram því að sinna grafískri hönnun og
kennslu auk þess að spila tónlist með ýmsum
hljómsveitum. Hann er annar forsvarsmanna
Tunglsins forlags og situr auk þess í ritstjórn
tímaritraðarinnar 1005 og veftímaritsins Skíðblaðnis. „Til hughreystingar þeim sem
finna sig ekki í sam tíma sínum“ er þriðja bók hans, en áður hef ur hann sent frá sér
skáldsöguna „Bréf frá Bútan“ og smásagnasafnið „Fund ur útvarpsráðs þann 14.
mars 1984 og áhrif hans á kyn verund drengsins og fleiri sögur“.
Ragnar Helgi hlaut Tómasarverðlaunin
Það eru engir smákarlar sem Einar Már Guðmundsson teflir
fram í nýjustu skáldsögu sinni Hundadögum. Hér eru þeir
ljóslifandi í aðalhlutverkum, hvor á sinni tíð, þeir Jón Stein-
grímsson eldklerkur og Jörgen Jörgensen, Jörundur hunda-
dagakonungur. Lengi framan af er reyndar óljóst hvað sögur
þeirra hafa hvor með aðra að gera, en eins og við á að éta í
góðri sögu skýrist það nú á endanum og sagan smellur saman
sem ein heild. Ansi hreint hressandi, krassandi og skemmti-
leg heild, meira að segja.
Einar Már er hér í essinu sínu. Hann er að segja sögur eins
og sögur hafa alltaf verið sagðar á Íslandi, með endalausum
útúrdúrum, krókaleiðum og blindgötum og það
er greinilegt að hann hefur sjálfur skemmt sér
í drep við að skrifa þetta. Hér ægir öllu saman,
aldarfarslýsingum, matseðlum, ástaraunum,
byltingum, Napóleonsstríðunum, Ástralíu, Eng-
landi, Danmörku, Tasmaníu, Tahítí og Íslandi og
það er stokkið fram og aftur í tíma eins og hendi
sé veifað. Skyndilega er lesandinn staddur í miðri
búsáhaldabyltingu ársins 2009 þegar hann heldur
að hann sé á kafi í „byltingu“ Jörundar árið 1809.
Svo er kannski allt í einu farið að ræða meintan
dauða Elvis Presley, eða vitna í Stein Steinarr eða
Ófeig Sigurðsson og mann hreinlega svimar af því
að reyna að ná utan um hamaganginn. Allt meikar
þetta þó fullkominn sens innan ramma sögunnar,
breikkar hana og víkkar og tengir beint inn í sam-
tímann.
Um þá báða, Jón eldklerk og Jörund hundadaga-
konung, hafa verið skrifaðar fjölmargar bækur, fyr-
ir nú utan það að báðir festu þeir eigin sögu á blöð, en hér er
eins og maður sé að mæta þeim í fyrsta sinn svo sprelllifandi
og þrívíðir eru þeir. Saga Finns Magnússonar, sem einnig
verður hluti af sögu þeirra beggja, er ekki eins sannfærandi
og það er eiginlega ekki fyrr en á síðustu síðunum sem maður
skilur hvað hann er að vilja upp á dekk. En þá skilur maður
líka, auðvitað, að án hans sögu hefði tengingin milli Jóns og
Jörundar farið fyrir lítið. Mest hrífa mann þó sögur þriggja
ástkvenna Jörundar, Guðrúnar Johnson, Mariu Fraser og
Noru Corbett og það eru þær sem maður saknar að fá ekki að
kynnast betur á þessum síðum. Hvernig væri að einhver tæki
sér fyrir hendur að skrá þeirra lífshlaup í skáldsögu?
Ég byrjaði á því að segja að hér væri engum smákörlum
teflt fram, enda stórkarlar báðir þeir Jón og Jörundur hvernig
sem á þá er litið, og í samræmi við söguefnið er stíllinn
stórkarlalegur og næstum hortugur á köflum sem enn eykur
skemmtigildi sögunnar. Ég held svei mér þá að Einar Már
hafi ekki skrifað betri bók en þessa síðan hann setti síðasta
punktinn í Engla alheimsins. -fb
Hundskemmtileg þeysireið
Hundadagar
Einar Már Guðmundsson
Mál og menning 2015
Kristján Þórður segir ljóðskáldið komið til baka en leikskáldið og skáldsagnahöfundurinn séu þó ekki langt undan.
Tveir Elvis Presley aðdáendur og fleiri sonnettur nefnist ný ljóðabók Kristjáns Þórðar Hrafns-
sonar, sem segist gagntekinn af bæði því kómíska og tragíska í samskiptum fólks.
Lj
ós
m
yn
d/
H
ar
i
Ragnar Helgi Ólafsson.
Lani Yamamoto.
FORSALA
Smáratorgi 3 · Kópavogi · 550 2700
Þýska húsið
eftir Arnald Indriðason
heimkaup.is
Þú færð bókina heim að dyrum
strax á sunnudagsmorguninn
1. nóvember sem er útgáfudagur.
Kaffi og kleinur frá Ömmubakstri
fylgja og heimsendingin er að
sjálfsögðu frí!
Nú versla Íslendingar á netinu...
á Heimkaup.is!