Fréttatíminn


Fréttatíminn - 16.10.2015, Síða 88

Fréttatíminn - 16.10.2015, Síða 88
 Í takt við tÍmann SylvÍa Erla mElStEd Er með bráðaofnæmi fyrir glúteni og má ekki borða pítsu Sylvía Erla Melsted er 19 ára nemi í Versló sem vakti athygli þegar hún söng í undankeppni Eurovision fyrir rúmum tveimur árum. Hún var að senda frá sér sitt fyrsta lag á dögunum, Getaway, og mun troða upp á Iceland Airwaves tónlistarhátíðinni í næsta mánuði. Staðalbúnaður Það er erfitt fyrir mig að lýsa lúkkinu mínu því það fer alveg eftir því í hvernig skapi ég er þegar ég vakna í hvað ég fer. Stundum vil ég vera hip hop pía, stund- um fín og kvenleg og stundum í strákafötum. Ég er líka dugleg að breyta fötunum mínum – mála á þau eða sauma á þau smile emoticons. Og ég er eiginlega alltaf með derhúfu eða hatta. Ég pæli ekki mikið í því hvaða búðum ég versla í en ætli ég versli ekki mest í Asos, það er mjög fjölbreytt úrval þar. Hugbúnaður Ég djamma ekki og hef aldrei far- ið niður í bæ að skemmta mér. Ég er mjög skrítinn 19 ára unglingur að því leyti. Ég bara drekk ekki og langar ekki til þess en ég kann vel að skemmta mér án áfengis. Ég er opin og get vel gert mig að fífli án þess að vera full. Ég er mjög upptek- in við stöðugar æfingar í tónlistinni og að semja lög auk þess að læra fyrir skólann. En þegar ég á lausan tíma fer ég í ræktina, hitti vini mína og er með kærastanum mínum. Vélbúnaður Ég er virk á Instagram en ég verð að fara að bæta mig aðeins á Facebook, ég er alls ekki nógu virk þar. Og ég er ekki einu sinni á Twitter. Eina appið sem ég nota fyrir utan Instag- ram er Quizlet sem er mjög þægi- legt að nota þegar maður er að læra. Aukabúnaður Það er mjög leiðinlegt að segja það en uppáhaldsmaturinn minn er pítsa og ég má ekki borða pítsu. Ég er með bráðaofnæmi fyrir glú- teni og þarf að passa hvað ég borða því það er glúten í nánast öllu! Ég fæ útbrot og verð fárveik ef ég borða eitthvað með glúteni í. Ég hitti lækna á Spáni í sumar út af þessu og þeir fóru yfir mataræðið með mér og gáfu mér uppskriftir. Núna finnst mér ótrúlega gott að grilla bara grænmeti en ég má líka borða fisk, kjúlla og fleira. Ég fer nú ekki oft út að borða en þegar ég geri það eru Sushisamba og Fisk- markaðurinn í uppáhaldi. Það er líka ótrúlega góður fiskur á Snaps. Auk þess að fara til Spánar í sumar fór ég til New York með vinkonu minni að hitta aðra vinkonu mína. Uppáhalds staðirnir mínir eru Ít- alía og Los Angeles, ég hreinlega elska LA – það er staður fyrir mig. Ég komst líka að því þegar ég fór í myndatöku úti á landi um daginn að ég hef verið að vanmeta Ísland. Þá áttaði ég mig betur á því hvað við erum ótrúlega heppin með nátt- úruna okkar og hvað hér er þægi- leg orka. Lj ós m yn d/ H ar i Högni með tvenna tónleika Högni Egilsson hefur komið víða við á fjölbreyttum tónlistarferli sínum og leggur nú leið sína í Petersen svítuna í Gamla Bíói og í Hljómahöllina í Reykjanesbæ um helgina. Tónleikarnir eru hluti af tón- leikaferðalagi hans um landið í október og mun hann leika efni úr ýmsum áttum enda af nógu að taka. Högni hefur samið tón- list með hljómsveitum sínum Hjaltalín og GusGus auk sóló- verkefnisins HE. Þá hefur hann samið fjöldamörg tónverk fyrir leikhús, sjónvarp og kvikmyndir. Öll verkefnin eru undir og mega tónleikagestir því búast við ein- stakri tónlistarveislu. Tónleikar Högna á þessu ferðalagi munu fara fram á minni tónleikastöðum um land allt í því augnamiði að skapa nánd og eft- irminnilega stemningu meðal tónleikagesta. Tónleikar Högna í Petersen svítunni hefjast klukkan 22 á laugardagskvöld, en klukkan 21 á sunnudag í Hljómahöllinni. -hf 88 dægurmál Helgin 16.-18. október 2015
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.