Fréttatíminn - 27.11.2015, Blaðsíða 4
Líttu við hjá okkur
á nýjum stað
Skólavörðustíg 18
íslensk hönnun í gulli og silfri
G U L L S M I Ð U R - S K A R TG R I PA H Ö N N U Ð U R
FRIDASKART.IS
veður Föstudagur laugardagur sunnudagur
Kólnandi veður og
víða einhver él.
höfuðborgarsvæðið: Él eða snjókoma
framan af, en lÉttir síðan til.
n-streKKingur. snjóKoma eða él norðan-
norðaustantil, en bjart syðra.
höfuðborgarsvæðið: kalt og
norðan næðingur.
enn Köld n-átt og hríð norðanlands og á
vestfjörðum.
höfuðborgarsvæðið: kalt og
lÉttskýjað.
Kuldi fram yfir helgi
Veðrið stefnir í eina átt. Það kólnar og með
eindreginni vetrarveðráttu fram í næstu
viku. snjóar talsvert um norðanvert landið
og sunnantil gerir líka föl til að byrja með.
ekki verður kannski samfellt hríðarveður
fyrir norðan, en það er sérstaklega á laugar-
dag sem snjóar og blæs á n- og
na-landi. Á sunnudag síðan
frekar vestantil á norðurlandi
og Vestfjörðum. ekki rétt að
tala um kuldakast í þeirri
merkingu, en hæglega gæti
teygst úr þessum frosta- og
snjóakafla.
-1
-3 -2
-3
-2
-5
-4 -5
-6
-9
-7
-5 -7
-7
-10
Einar Sveinbjörnsson
vedurvaktin@vedurvaktin.is
vikan sem var
45.052
viðskiptavinir hafa leigt sér
mynd í laugarásvídeói sam-
kvæmt tölvukerfinu þar á bæ. Laug-
arásvídeó verður lokað um áramótin en
myndbandaleigan var opnuð árið 1986.
6,25milljónir farþega munu
fara um Keflavíkurflugvöll á næsta ári.
Það er 28,4% fleiri en í ár. Þrjú ný flug-
vélastæði verða opnuð og flugstöðvar-
byggingin verður 16% stærri en hún
var í byrjun þessa árs. Þá þarf að fjölga
starfsmönnum um 1.500 og verður hluti
þeirra sóttur erlendis frá.
Kalman verðlaunaður í Frakk-
landi
Bók jóns kalm ans stef áns son ar, fisk-
arn ir hafa enga fæt ur, var
í vikunni valin besta
er lenda skáld sag an
sem komið hef ur út
í frakklandi á ár inu.
Það var bókmennta-
tímaritið lire sem veitti
verðlaunin.
12manns hafa verið settir í keppnis-
bann af alþjóðasam bandi
lík ams rækt ar manna á íslandi
fyrir sterasölu.
Leikur á móti Charlize Theron
jóhannes Haukur jóhannesson hefur fengið hlutverk í kaldastríðstryllinum the
Coldest City. Hann leikur á móti þekktum leikurum í myndinni, þeim Charlize
theron, james mcavoy og john
goodman. tökur á myndinni
fara fram í Búdapest en
sagan gerist í Berlín árið 1989.
myndin byggir á
samnefndri
bók eftir
anthony
johnston.
Þ etta er farið að snúast um eitt-hvað allt annað en launamál,“ segir Gylfi Ingvarsson, talsmað-
ur samninganefndar starfsmanna hjá
ÍSAL, í kjaradeilu þeirra við Álverið í
Straumsvík. „Það hefur enginn fundur
verið boðaður og á síðasta fundi þurft-
um við að bíða eftir fulltrúum fyrir-
tækisins í samninganefnd í tvo klukku-
tíma fram yfir boðaðan fundartíma.
Þegar þau loksins mættu var komin ný
greining á því hvað þeir legðu áherslu á
og ekki nóg með það heldur sögðu þau
okkur líka hvað við ættum að leggja
áherslu á. Framsetning þeirra var með
þeim hætti að það var enginn grund-
völlur fyrir viðræðum svo sá fundur
varð mjög stuttur.“
Starfsmenn ÍSAL hafa boðað verk-
fall frá 2. desember og látið hefur
verið í það skína að ef af því verði þá
sé óvíst hvort álverið verði nokkurn
tíma opnað aftur. „Við leggjum enga
áherslu á verkfall,“ segir Gylfi. „Það
eina sem við erum að fara fram á er að
fá launahækkanir til jafns við aðra aðila
vinnumarkaðarins. Það er það eina sem
við erum að biðja um.“
Gylfi segir augljóst að málið sé farið
að snúast um eitthvað allt annað en um-
ræddar launahækkanir lægst launuðu
starfsmannanna. „Ég verð nú bara að
segja það hreint út að ég hef ekki græn-
an grun um á hvaða vegferð Rio Tinto
er,“ segir hann. „Afstaða þeirra getur
ekki snúist um þessar deilur okkar.
Það hlýtur eitthvað annað að liggja að
baki. Þetta er gengið svo langt að það
hefur verið hringt í mig frá London til
að spyrja um þann orðróm sem gengur
innan málmbransans að það sé allt ann-
að sem vakir fyrir Rio Tinto en það sem
snertir þessa launadeilu. Það er búið
að semja við æðstu stjórnendur ÍSAL,
alla millistjórnendur fyrirtækisins og
það er meira að segja búið að gera árs-
samning við verktaka sem þeir vilja að
fari í almenn útboð sem þeir hafa ekki
heimild fyrir í dag. Það þarf enginn að
segja manni það að afkoma fyrirtækis-
ins byggist á því að hækka ekki laun
lægst launuðu starfsmannanna. Það sér
hver maður.“
Kjaradeilan er í svo hörðum hnút að
komin er áætlun um að byrjað verði að
slökkva á kerjunum eftir rúma viku,
jafnvel til frambúðar. Uggur er í Hafn-
firðingum vegna hugsanlegrar lokunar
álversins þar sem það myndi hafa áhrif
á afkomu hátt í 1000 manns í bænum.
Raforkusala upp á mörg hundruð millj-
arða króna næstu tuttugu ár er einnig
í húfi því árið 2010 gerðu Rio Tinto og
Landsvirkjun með sér raforkusamn-
ing sem gildir til ársins 2036. Óvíst er
hvort hugsanleg lokun vegna verkfalls
losi Rio Tinto undan þeim samningi.
Ekki náðist í forsvarsmenn álversins
við vinnslu fréttarinnar.
Friðrika Benónýsdóttir
fridrika@frettatiminn.is
Það þarf eng-
inn að segja
manni það
að afkoma
fyrirtækisins
byggist á því
að hækka
ekki laun
lægst launuðu
starfsmann-
anna. Það sér
hver maður.
kjaramál allt steFnir í verkFall í álverinu
Farið að snúast um allt
annað en launamál
enginn fundur hefur verið boðaður í kjaradeilu starfsmanna ísal og álversins í straumsvík og
stefnir allt í að verkfall hefjist í næstu viku. Þá verður byrjað að slökkva á kerjum álversins,
jafnvel til frambúðar. Augljóst að afstaða Rio Tinto snýst ekki um kjaramálin, að sögn talsmanns
samninganefndar starfsmanna.
allt bendir til þess að byrjað verði að slökkva á kerum í álverinu strax í næstu viku.
4 fréttir Helgin 27.-29. nóvember 2015