Fréttatíminn - 27.11.2015, Blaðsíða 40
Málsvari byggingamanna
það er mikilvægt að ráða iðnmeistara
sem er með trausta fagmenn í vinnu.
Fagmenn með iðnréttindi bera félagsskírteini.
ER ÞINN
„IÐNAÐARMAÐUR“
ÖRUGGLEGA
FAGMAÐUR?
Vertu viss um að ráða fagmann með
iðnréttindi þegar það kemur að viðhaldi
og viðgerðum á heimilinu.
segir hann. „Maður vill fá alla upp og alla
til að syngja með. Best er að blanda þessu
saman.“
Fer aftur í leikhúsið
Helgi er menntaður leikari og reglulega
kemur hann fram í kvikmyndum og sjón-
varpsmyndum. Hann sagði skilið við
leikhúsið á sínum tíma eingöngu vegna
þess að það komst ekki fyrir í tímaramma
poppstjörnunnar. „Ég hef alltaf verið að
leika með jöfnu millibili,“ segir hann.
„Þessar greinar spiluðu samt ekkert sér-
staklega vel saman á sínum tíma. Snemma
á tíunda áratugnum var rosaleg keyrsla á
SSSól og við vorum að spila hverja einustu
helgi,“ segir hann. „Þá var ég að leika líka
og keyra beint eftir sýningar og alltaf í
tímaþröng og þetta var allt of mikið. Svo
vorum við komnir í allskonar heimsfrægð-
ardrauma eins og voru á þessum tíma, og
þá tók ég meðvitaða ákvörðun um að hvíla
mig á leikhúsinu. Ekkert vegna þess að ég
hafði meiri áhuga á tónlistinni en leikhús-
inu,“ segir hann. „Heldur horfði ég meira
á þetta af þeirri skynsemi að líklega væri
auðveldara að taka upp leiklistina síðar,
frekar en poppstjörnudrauminn. Maður
stoppar ekki þá lest þegar maður er ungur
og ferskur.
Ég hef varla tekið upp á því að leika
á sviði nema með einstaka undantekn-
ingum. Það hefur ekki hentað mér alveg
tímalega. Hinsvegar hefur það alltaf kitlað
og eftir áramót ætla ég að taka upp á því að
nýju,“ segir Helgi sem mun fara með eitt
aðalhlutverkanna í söngleiknum Mamma
Mia sem verður frumsýnt í Borgarleikhús-
inu. „Ég fer með sama hlutverk og Pierce
Brosnan gerði í myndinni, en ég vil vera al-
veg hreinskilinn með það að ég er töluvert
betri söngvari en hann,“ segir Helgi og
hlær. „Ég hlakka mikið til. Það er frábært
að fara bara í hör-fötin og láta „tana“ sig að-
eins og syngja ABBA lög í febrúar. Það er
margt verra en það. Ég ákvað í þetta sinn
að gefa mér ár í þetta,“ segir hann. „Hvíla
mig þá frekar á bransanum á meðan. Sem
er ákveðin hvíld um leið. Hann getur verið
slítandi þessi tónlistarbransi svo það er
gott að breyta til.“
Margir efnilegir í Voice
Undanfarnar vikur hefur Helgi verið áber-
andi á sjónvarpsskjánum sem einn leið-
beinendanna í sjónvarpsþáttunum Voice
á Skjá einum. Hann segir verkefnið hafa
verið mun skemmtilegra en hann þorði að
vona í upphafi. „Ég bjóst ekki við öðru en
að þetta yrði skemmtilegt, en þetta er mun
skemmtilegra og meira gefandi en ég þorði
að vona,“ segir hann. „Það felst mikið til
í því að maður er að vinna svo mikið með
þessum krökkum og þessu fólki. Bæði
sem leikstjóri og söngþjálfari. Það eru svo
margir vinklar í þessu og þetta er mjög
skapandi vinna, miklu meira en að sitja
bara og horfa.
Auðvitað er ákveðin keppni í þessu líka
sem gerir þáttinn svo skemmtilegan. Það
eru svo mörg spennustig í hverjum þætti,
sem er svo flott,“ segir hann. „Mér finnst
margir af þessum krökkum mjög efnilegir
og ég sé marga þarna fyrir mér gera mjög
góða hluti eftir þessa þætti,“ segir Helgi.
„Auðvitað þarf margt að vinna með þeim
og í rauninni byrjar vinnan hjá þeim af al-
vöru eftir að þættirnir eru búnir. Þá kemur
í ljós úr hverju þau eru gerð. Þau eru auðvi-
tað smá vernduð í þættinum,“ segir hann.
Mundirðu treysta þeim í hljómsveitar-
rútu í kringum landið?
„Já, já, flestum svona,“ segir hann og
glottir.
„Þau eru auðvitað mis hörðnuð og ekk-
ert öll kannski tilbúin í svoleiðis slag.“
Plata Helga, Veröldin er ný, er komin út
og ætlar hann að halda eina tónleika af því
tilefni. „Ég ætla að vera með útgáfutón-
leika í Reykjavík þann 3. desember og það
ríkir smá leynd yfir því hvar þeir verða,
ennþá. En þeir verða í miðbænum,“ segir
Helgi Björnsson.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
„Auðvitað þarf
margt að vinna
með þeim og í
rauninni byrjar
vinnan hjá þeim
af alvöru eftir
að þættirnir eru
búnir. Þá kemur
í ljós úr hverju
þau eru gerð. Þau
eru auðvitað smá
vernduð í þætt-
inum,“ Ljósmynd/Hari
40 viðtal Helgin 27.-29. nóvember 2015