Fréttatíminn - 27.11.2015, Blaðsíða 18
Þó að sagan
eigi sér ekki
ákveðna
fyrirmynd
er ég samt á
vissan hátt
að fjalla um
samfélagið
okkar, smá
„dass“ af ís-
lenska efna-
hagsundrinu
og afleið-
ingar þess,
og líka það
að ekki er
allt falt fyrir
peninga.
Óður til
íslensku
jarðýtunnar
Tónlistarmaðurinn Pálmi Gunnarsson gefur um þessar mundir
út skáldsögu sem ber nafnið Hark. Pálmi gaf út bókina Gengið
með fiskum fyrir tveimur árum sem var skrifuð út frá minn-
ingum í kringum aðaláhugamál hans, stangveiði, en Hark er
hans fyrsta skáldsaga. Pálmi hefur í gegnum tíðina haft gaman
af að skrifa en fór ekki að sinna því af alvöru fyrr en nú á
síðustu árum.
G engið með fiskum var nú meira sjálfsævisögulegar hugleiðingar mínar um upp-
eldi í samfélagi þar sem allt snerist
um veiðar,“ segir Pálmi Gunnars-
son, söngvari og nú rithöfundur.
„Ég hef lengi skrifað mér til gamans
en í kringum 1995 fór þetta að taka
á sig mynd þegar ég fór og lærði
handritaskrif í Kvikmyndaskóla Ís-
lands, sem þá var rétt að slíta barns-
skónum,“ segir hann.
„Ég hef frá blautu barnsbeini
haft mikinn áhuga á kvikmyndum
og því lá beint við að kíkja betur á
þann áhugaverða miðil. Síðan hef
ég á milli mála verið að leika mér
með handritaskrif, ekki hvað síst
til að þjálfa mig í því formi. Ég hef
mjög gaman af þessum skrifum og
vonast auðvitað til þess að hitta á
endanum á handritið sem meikar
það. En grínlaust þá er það kannski
álíka vitlaust að fara í þetta eins og í
tónlistina, eiginlega alveg galið. Þú
skrifar og skrifar og sendir frá þér
hugmyndir og bíður svo eftir hring-
ingunni. Auðvitað væri gaman að
koma einni sögu á hvíta tjaldið en
þegar upp er staðið er ég mest að
þessu vegna ánægjunnar. En skrif-
in eru líka ákveðin áskorun og holl
sem slík.“
Íslenska jarðýtan
„Ég hef alltaf verið söguþenkjandi,“
segir Pálmi. „Þegar ég var lítill
strákur á Vopnafirði var ég stöðugt
að búa til ævintýri og koma þeim á
blað. Það datt svo upp fyrir þegar
volundarhus.is · Sími 864-2400
Vel valið fyrir húsið þitt
RÝMINGARSALA
ÚTSALA
Á GARÐHÚSUM
VH
/1
5-
01
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
Allt á að seljast · Fyrstur kemur fyrstur fær
Tilboðin gilda til 15. desember
Sjá eiri
GESTAHÚS og
GARÐHÚS á tilboði
á heimasíðunni
volundarhus.is
34 mm bjálki / Einföld nótun
GARÐHÚS 9,7 m²
Verð nú kr. 239.900
Verð áður kr. 299.900
www.volundarhus.is
28 mm bjálki / Einföld nótun
Verð nú kr. 215.900
Verð áður kr. 269.900
GARÐHÚS 9,7 m²
VERÐTILBOÐ
GESTAHÚS og
GARÐHÚS
sérhönnuð fyrir
íslenskar aðstæður
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
34 mm bjálki / Tvöföld nótun
Verð nú kr. 234.900 - áður kr. 299.900
VERÐTILBOÐ - GARÐHÚS 9,9 m² án gólfs
Verð nú kr. 135.900 - áður kr. 169.900
VERÐTILBOÐ - GARÐHÚS 4,4 m²
Verð nú kr. 149.900 - áður kr. 189.900
VERÐTILBOÐ - GARÐHÚS 4,7 m²
Allt að 20%afslátturaf öðrumgarðhúsum semtil eru á lager
tónlistin tók yfir. Svo vaknaði áhuginn aftur með
þessu námskeiði sem ég tók í Kvikmyndaskólan-
um,“ segir hann.
„Að einhverju leyti er þessi litla saga óður til ís-
lensku jarðýtunnar, eins og ég kalla hana. Jarðýtan
er þessi týpa sem lætur ekkert stöðva sig. Í bók-
inni minni heitir hún Guðjón Steingrímsson,“ segir
Pálmi. „Stutta lýsingin á Guðjóni er þessi: Hann er
stórútgerðarmaður sem elskar óperusöng og á sér
þann draum stærstan að slá í gegn á því sviði. Það
gengur ekki alveg upp hjá honum,“ segir Pálmi.
„Þannig má segja að Hark fjalli öðrum þræði um
hégómann. Í tónlistarbransanum, sem ég hef ver-
ið viðloðandi í fjörutíu ár, ræður þessi dásamlegi
mannlegi brestur oft ferðinni,“ segir Pálmi. „Ég
hef kynnst mörgum Guðjónum í gegnum tíðina
og sjálfur þekki ég ágætlega hvernig hann getur
þvælst fyrir manni.“
Hark gerist í sjávarþorpi á Íslandi og segir Pálmi
enga sérstaka fyrirmynd að sögunni. Útgerðar-
maðurinn sem ræður öllu í þorpinu, ásamt föður
sínum, er þekkt stærð í íslensku þjóðlífi. „Þetta
er pínulítið sagan um kónginn í ríki sínu,“ segir
hann. „Þó að sagan eigi sér ekki ákveðna fyrir-
mynd er ég samt á vissan hátt að fjalla um samfé-
lagið okkar, smá „dass“ af íslenska efnahagsundr-
inu og afleiðingar þess, og líka það að ekki er allt
falt fyrir peninga.“
Vil hafa gaman af þessu
Pálmi hefur verið í 40 ár í tónlistarbransanum og
er þekkt stærð í íslensku tónlistarlífi. Hann segist
ekki hræðast móttökurnar á þessum nýja vett-
vangi. „Það er dálítið langt síðan ég komst á þann
stað að horfa á dóma gagnrýnenda sem álit eins
manns,“ segir hann. „Ég nenni allavega ekki að
pirra mig lengi á því ef einhver plötudómur er mér
ekki hliðhollur. Ég hef bara annað betra við tím-
ann að gera en ergja mig á því,“ segir Pálmi. „Auð-
vitað er gott að fá klapp á bakið en ef það gerist
ekki og gagnrýnin er uppbyggileg þá tekur maður
mark á henni og einsetur sér að gera betur næst.
Varðandi framhaldið þá stefni ég að því að skrifa
meira og ná ennþá betra valdi á því sem ég er að
gera. Ég er með nóg af hugmyndum í skúffunni og
er reyndar kominn vel áleiðis með næstu sögu, en
aðalatriðið er þó að hafa gaman af því sem maður
tekur sér fyrir hendur og njóta hvers augnabliks
því á endanum slokknar á kertinu, og þá er aðeins
of seint að iðrast, eins og segir í texta eftir vin
minn, Magnús Eiríksson,“ segir Pálmi Gunnars-
son, tónlistarmaður og rithöfundur.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
„Þannig má segja
að Hark fjalli öðrum
þræði um hégómann.
Í tónlistarbransanum
sem ég hef verið við-
loðandi í fjörutíu ár
ræður þessi dásam-
legi mannlegi brestur
oft ferðinni,“ segir
Pálmi Gunnarsson.
Ljósmynd/Hari
18 viðtal Helgin 27.-29. nóvember 2015