Fréttatíminn - 27.11.2015, Blaðsíða 20
É
g hitti Ásu Marin á
kaffihúsi á kaldasta
degi vetrarins og
eftir að hafa náð sér
í te dregur hún bók-
ina hróðug upp úr plastpoka og
sýnir mér. Á baksíðu kápunnar
kemur fram að sagan fjallar um
konu að nafni Elísa sem stendur
frammi fyrir erfiðri ákvörðun
og ákveður að fresta henni með
því að ganga Jakobsveginn
fræga. Hvernig kom þessi saga
til Ásu Marinar?
„Ég hef alltaf verið eitt-
hvað að skrifa, en svo gekk ég
Jakobsveginn fyrir ári síðan og
þá kom þessi löngun að tengja
þessi tvö áhugamál saman. Ég
vildi samt ekki skrifa um mína
reynslu af ferðalaginu heldur
ákvað ég að stíga aðeins til
hliðar og skrifaði þessa skáld-
sögu um hana Elísu. Ég nátt-
úrulega lána henni heilmikið af
mínu upplifelsi í þessari ferð, en
karakterinn er alls ekki ég.“
Kemur ekki sama mann-
eskja til baka
Það er meira en að segja það
að ganga Jakobsveginn, flestar
ferðahandbækur mæla með
að fólk taki þetta í 34 dagleið-
um, og Ása Marin tók þetta
í tveimur atrennum. „Fyrir
tveimur árum gekk ég fyrstu
fimm dagleiðirnar í sex manna
hópi, svona til að máta mig við
stíginn og athuga hvort þetta
væri eitthvað sem maður væri
tilbúinn að eyða fjórum, fimm
vikum í. Mér líkaði þetta mjög
vel og var eiginlega viðþolslaus
í heilt ár að geta haldið áfram.
Þannig að ég fór aftur í fyrra-
haust og byrjaði þá á þeim stað
sem við höfðum hætt árið áður
og gekk í rúmar fjórar vikur.“
Spurð hvort hún hafi orðið
fyrir andlegri uppljómun á
göngunni segir Ása Marin að
það fari varla nokkur þennan
stíg án þess að verða fyrir ein-
hverri uppljómun. „Þú hefur
svo rosalega mikinn tíma til
að hugsa. Ég tók þá ákvörðun
að hafa enga afþreyingu með
mér, lokaði öllum flóttaleiðum
frá hugsunum mínum og það er
ótrúlegt hvað það breytir miklu.
Það kemur enginn sama mann-
eskja til baka, en það fer svo
sem enginn í gegnum eitthvert
rosalegt þroskaferli á leiðinni,
þetta er ekki nógu langur tími
til þess. Ég til dæmis ákvað
á göngunni að standa við það
að skrifa skáldsögu þegar ég
kæmi heim eins og mig hafði
dreymt um lengi og ég gerði
það.“
Með annan fótinn á Spáni
Ása Marin er uppalin í Hafnar-
firði og hefur búið þar alla tíð
fyrir utan tímann sem hún hef-
ur eytt á Spáni, fyrst í spænsk-
unámi og síðan sem farar-
stjóri víða um landið. Hún fór
í Kennaraháskólann eftir nám
í Verzlunarskólanum en fór þó
ekki beint í kennsluna því strax
eftir útskrift úr Kennarahá-
skólanum fór hún að vinna sem
fararstjóri. Hún segist vera „á
milli sambanda“, frí og frjáls
og barnlaus, en hún eigi tvo
guðsyni sem búi í sama húsi
og hún og hún sinni mikið. Um
ástæðu þess að hún hefur verið
svona mikið á Spáni segir hún:
Á vind-
sæng til
Svíþjóðar
Ása Marin Hafsteinsdóttir var að senda frá sér sína fyrstu
skáldsögu, Vegur vindsins – buen camino, en hún hefur áður
sent frá sér ljóð og smásögur. Ása hefur verið með annan fótinn
á Spáni síðustu 15 árin, gekk Jakobsveginn í fyrra og notar þá
reynslu í sögunni. Hún er borinn og barnfæddur Hafnfirðingur
sem elskar fótbolta og heldur, þrátt fyrir hafnfirskuna, með KR.
„Ég tók þá ákvörðun
að hafa enga afþrey-
ingu með mér, lokaði
öllum flóttaleiðum frá
hugsunum mínum og
það er ótrúlegt hvað
það breytir miklu.“
Ljósmynd/Hari
20 viðtal Helgin 27.-29. nóvember 2015