Fréttatíminn - 27.11.2015, Blaðsíða 30
Þorgrímur Þráinsson upplýsti í vikunni að hann muni að líkindum bjóða sig fram til embættis
forseta Íslands á næsta ári. Yfirlýsing Þorgríms vakti mikla athygli enda er hann sá fyrsti sem
staðfestir að framboð sé í undirbúningi.
Þ orgrímur Þráinsson hristi sannarlega upp í landanum þegar hann staðfesti að hann
væri alvarlega að íhuga framboð
til embættis forseta Íslands. Í vik-
unni var sett í loftið stuðningssíða
við framboð hans á Facebook og
þegar Þorgrímur var spurður um
málið staðfesti hann áhuga sinn á
embættinu, þó hann hafi reyndar
ekkert haft með umrædda stuðn-
ingssíðu að ræða. Þorgrímur kvaðst
hafa ætlað að tilkynna um framboð
sitt í febrúar.
Margir hafa verið nefndir sem
mögulegir kandídatar í forseta-
embættið en Þorgrímur hefur ekki
fyrr verið í þeirra hópi. Enn er beðið
eftir því hvort Ólafur Ragnar Gríms-
son býður sig fram í sjötta sinn.
Óhætt er að segja að framboð Þor-
gríms hafi vakið mikið umtal, enda
er hann umtalaður og jafnvel um-
deildur maður. Þorgrímur er fyrr-
um landsliðsmaður í knattspyrnu og
afkastamikill barnabókahöfundur.
Það er fyrst og fremst tvennt sem
veldur því að hann er umdeildur.
Annars vegar áralöng barátta hans
gegn reykingum landsmanna og
hins vegar afar umtöluð bók sem
hann gaf út árið 2007, Hvernig ger-
irðu konuna þína hamingjusama. Í
henni fjallaði Þorgrímur um sam-
skipti kynjanna. Undirtitillinn var
einmitt Skemmtilegra kynlíf, fal-
legri samskipti og meira sjálfsör-
yggi. Í viðtali af þessu tilefni talaði
Þorgrímur um sitt eigið hjónaband,
sem bókin var að mestu byggð á:
„Galdurinn er að þora að segja
alla hluti. Fyrir fimmtán árum töl-
uðum við ekki mjög opinskátt um
kynlíf. Konan mín er miklu opnari
en ég og hún er búin að slípa mig
miklu meira til en ég hana. Ég hefði
aldrei skrifað þessa bók nema af því
að ég á svona konu. Mér finnst við
lifa miklu skemmtilegra kynlífi
núna heldur en þegar við vorum að
kynnast. Við þorum að vera alger-
lega ófeimin í sms-um, faðmlögum
og kossum. Svo erum við bæði mikl-
ir daðrarar.“
Sama ár og Þorgrímur gaf út
áðurnefnda bók birtist viðtal við
hann þar sem hann upplýsti að
hann gerði 400 magaæfingar á dag.
„Það er hluti af mínum lífsstíl að æfa
daglega. Ég á fastan tíma milli hálf
tólf og eitt á hverjum degi, nema
kannski sunnudögum,“ sagði Þor-
grímur en í áðurnefndu viðtali var
líkami hans kallaður musteri, svo
fagurlega skapaður þótti hann.
Sjálfur var hann hæfilega hógvær:
„Ég er bara grannur og spengileg-
ur. Vil bara halda uppi góðum stand-
ard og vera góð fyrirmynd ‘59 kyn-
slóðarinnar.“
Þorgrímur horfir
til Bessastaða
www.odalsostar.is
Þessi margverðlaunaði ostur hefur verið framleiddur
frá árinu 1965 og rekur ættir sínar til danska bæjarins
Maribo á Lálandi. Það sem gefur Maribo-ostinum sinn
einkennandi appelsínugula lit er annatto-fræið sem
mikið er notað í suðurameríska matargerð. Áferðin
er þétt en bragðið milt með vott af valhnetubragði.
Frábær ostur til að bera fram með fordrykk, í
kartöflugratín eða á hádegisverðarhlaðborðið.
MARIBO
HLÝLEGUR
Perspi
Guard
Bakteríusápa
og svitastoppari
Dreifing: Ýmus ehf
Fæst í apótekum
Til meðhöndlunar á
lyktarvandamálum
vegna ofsvitnunar.
Fullt verð: 14.900,-
TILBOÐSVERÐ Á UMGJÖRÐ:
1 kr. við kaup á glerjum
Fullt verð: 19.900,-
TILBOÐSVERÐ Á UMGJÖRÐ:
1 kr. við kaup á glerjum
ÞAÐ ERU
KRÓNUDAGAR
Í
KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
| SPÖNGINNI, GRAFARVOGI | SMÁRALIND, 1 HÆÐ.
1
kr.
RISA
ÍÞRÓTTA- OG LEIKFANGAMARKAÐUR
Í Laugardagshöll dagana 27-29. nóvember.
Erum aftur búnir að fylla höllina af
íþróttavörum og leikföngum.
30-70% afsláttur aðeins í 3 daga
Opnunartími
Föstud. frá kl. 12:00 – 21:00
Laugard. og sunnud. frá kl. 12:00 – 18:00
Komdu og gerðu frábær kaup fyrir
alla fjölskylduna
30 úttekt Helgin 27.-29. nóvember 2015