Fréttatíminn - 27.11.2015, Blaðsíða 6
Reykjavík
Bíldshöfði 20
Akureyri
Dalsbraut 1
Ísafjörður
Skeiði 1
BLACK
FRIDAY
25%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM VÖRUM*
BARA Í DAG
REYKJAVÍK – AKUREYRI – ÍSAFJÖRÐUR
ALLAR VERSLANIR
OKKAR OPNAR TIL
KL. 2200
* Gildir ekki ofan á önnur tilboð,
t.d. ef vara er fyrir á jólaverði
eða -tilboði og ekki af Skovby
Flug WOW air til Bristol hefst
í maí næstkomandi. Ljósmynd/
WOW air
Rannsaka á áhrif nýtingar á lífríki Breiðafjarðar.
Samgöngur Enn fjölgar áfangaStöðum á BrEtlandSEyjum
WOW air flýgur til Bristol næsta vor
WOW air hefur hafið sölu á
flugi til Bristol en flug þangað
hefst 13. maí á næsta ári.
Flogið verður þrisvar sinnum
í viku; á mánudögum, mið-
vikudögum og föstudögum,
allan ársins hring. Bristol er
annar áfangastaður WOW
air í Bretlandi en flugfélagið
hefur frá upphafi boðið upp
á flug til London allan ársins
hring. Bristol er næststærsta
borg Suður-Englands á eftir
London en þar býr u.þ.b. hálf
milljón íbúa. Borgin er mikil
mennta- og menningarborg
með mikla sögu sem nær allt
til járnaldar.
„Við erum afskaplega
ánægð með að WOW air hafi
valið Bristol flugvöll sem sinn
annan flugvöll á Bretlandi.
Við erum einnig afar spennt
að taka á móti Íslendingum
til suðvesturhluta Bretlands.
Flugvöllurinn okkar þjónar
ekki eingöngu borginni Bri-
stol heldur einnig þekktum
áfangastöðum í næsta ná-
grenni. Borgin Bath, sem er
á heimsminjaskrá, er mjög
skammt frá og má einnig
nefna Cotswolds-dalinn,
Devon og hið fræga Stone-
henge,“ segir Robert Sinclair,
forstjóri Bristol flugvallar.
Flugvöllurinn þjónar suð-
vestur Bretlandi en meira en
7 milljónir manna búa í innan
við tveggja tíma akstursfjar-
lægð frá flugvellinum.
ÞörungavinnSla afrakSturSgEta mæld
Samkomulag um rann
sóknir á lífríki Breiðafjarðar
Samkomulag hefur verið gert milli fyrirtækja sem nýta þang og þara í Breiðafirði um rannsóknir
á magni og afrakstursgetu þeirra í firðinum. Þá verða áhrif nýtingar á lífríki fjarðarins rannsökuð.
f yrirtæki sem nytja þang og þara í Breiðafirði eða hafa slíkt í hyggju, meðal þeirra Þörungaverksmiðjan á
Reykhólum, hafa ákveðið að vinna saman
að rannsóknum á magni og afraksturs-
getu þessara náttúrugæða í firðinum.
Jafnframt er ætlunin að rannsaka áhrif
nýtingar á lífríki fjarðarins. Hafrann-
sóknastofnun mun stjórna verkefninu en
fyrirtækin leggja til fjármuni, mannafla
og báta. Úthlutun leyfa og annað sem auð-
lindina varðar er síðan í höndum sjávar-
útvegsráðuneytisins, að því er fram kemur
á vefnum Snæfellingar.is. Þar segir að líf-
ríki Breiðafjarðar hafi verið í umræðunni
af og til og meira en venjulega að undan-
förnu vegna fyrirætlana um nýtingu þara
og þangs úr firðinum.
„Fundað hefur verið með Stykkis-
hólmsbæ, Hafrannsóknarstofnun, Delta-
gen, Félagsbúinu á Miðhrauni, Þörunga-
verksmiðjunni á Reykhólum, Náttúrustofu
Vesturlands og Rannsóknarsetri Háskóla
Íslands á Snæfellsnesi. Fundurinn var
upplýsandi, að sögn bæjarstjóra [Stykk-
ishólmsbæjar] og leiddi það af sér að gert
var samkomulag milli aðila um þátttöku
í rannsóknarverkefni í þeim tilgangi að
meta magn og afrakstursgetu þara og
þangs í Breiðafirði. Jafnframt er stefnt að
rannsóknum á áhrifum nýtingar á lífríki
Breiðafjarðar.
Fram kom í Fréttatímanum nýverið
að menn óttast ofnýtingu þörunga í
Breiðafirði í kjölfar þess að tvö fyrirtæki
til viðbótar við Þörungaverksmiðjuna á
Reykhólum hafa byrjað eða fyrirhuga
að hefja umtalsverða vinnslu þörunga úr
Breiðafirði, en engar rannsóknir hafa ver-
ið gerðar á því hvað sjávarnytjar af þessu
tagi þola. Þar var meðal annars vitnað til
umfjöllunar í Fiskifréttum en þar sagði
frá því að stjórnendur Þörungaverksmiðj-
unnar á Reykhólum óttuðust að verksmiðj-
an missti lífræna vottun sína, sem m.a.
byggir á því að þang og þari í firðinum séu
nýtt með sjálfbærum hætti.
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
Hafrann-
sóknastofn-
un mun
stjórna
verkefninu
en fyrirtæk-
in leggja til
fjármuni,
mannafla
og báta.
6 fréttir Helgin 27.-29. nóvember 2015