Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.11.2015, Blaðsíða 6

Fréttatíminn - 27.11.2015, Blaðsíða 6
Reykjavík Bíldshöfði 20 Akureyri Dalsbraut 1 Ísafjörður Skeiði 1 BLACK FRIDAY 25% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM* BARA Í DAG REYKJAVÍK – AKUREYRI – ÍSAFJÖRÐUR ALLAR VERSLANIR OKKAR OPNAR TIL KL. 2200 * Gildir ekki ofan á önnur tilboð, t.d. ef vara er fyrir á jólaverði eða -tilboði og ekki af Skovby Flug WOW air til Bristol hefst í maí næstkomandi. Ljósmynd/ WOW air Rannsaka á áhrif nýtingar á lífríki Breiðafjarðar.  Samgöngur Enn fjölgar áfangaStöðum á BrEtlandSEyjum WOW air flýgur til Bristol næsta vor WOW air hefur hafið sölu á flugi til Bristol en flug þangað hefst 13. maí á næsta ári. Flogið verður þrisvar sinnum í viku; á mánudögum, mið- vikudögum og föstudögum, allan ársins hring. Bristol er annar áfangastaður WOW air í Bretlandi en flugfélagið hefur frá upphafi boðið upp á flug til London allan ársins hring. Bristol er næststærsta borg Suður-Englands á eftir London en þar býr u.þ.b. hálf milljón íbúa. Borgin er mikil mennta- og menningarborg með mikla sögu sem nær allt til járnaldar. „Við erum afskaplega ánægð með að WOW air hafi valið Bristol flugvöll sem sinn annan flugvöll á Bretlandi. Við erum einnig afar spennt að taka á móti Íslendingum til suðvesturhluta Bretlands. Flugvöllurinn okkar þjónar ekki eingöngu borginni Bri- stol heldur einnig þekktum áfangastöðum í næsta ná- grenni. Borgin Bath, sem er á heimsminjaskrá, er mjög skammt frá og má einnig nefna Cotswolds-dalinn, Devon og hið fræga Stone- henge,“ segir Robert Sinclair, forstjóri Bristol flugvallar. Flugvöllurinn þjónar suð- vestur Bretlandi en meira en 7 milljónir manna búa í innan við tveggja tíma akstursfjar- lægð frá flugvellinum.  ÞörungavinnSla afrakSturSgEta mæld Samkomulag um rann­ sóknir á lífríki Breiðafjarðar Samkomulag hefur verið gert milli fyrirtækja sem nýta þang og þara í Breiðafirði um rannsóknir á magni og afrakstursgetu þeirra í firðinum. Þá verða áhrif nýtingar á lífríki fjarðarins rannsökuð. f yrirtæki sem nytja þang og þara í Breiðafirði eða hafa slíkt í hyggju, meðal þeirra Þörungaverksmiðjan á Reykhólum, hafa ákveðið að vinna saman að rannsóknum á magni og afraksturs- getu þessara náttúrugæða í firðinum. Jafnframt er ætlunin að rannsaka áhrif nýtingar á lífríki fjarðarins. Hafrann- sóknastofnun mun stjórna verkefninu en fyrirtækin leggja til fjármuni, mannafla og báta. Úthlutun leyfa og annað sem auð- lindina varðar er síðan í höndum sjávar- útvegsráðuneytisins, að því er fram kemur á vefnum Snæfellingar.is. Þar segir að líf- ríki Breiðafjarðar hafi verið í umræðunni af og til og meira en venjulega að undan- förnu vegna fyrirætlana um nýtingu þara og þangs úr firðinum. „Fundað hefur verið með Stykkis- hólmsbæ, Hafrannsóknarstofnun, Delta- gen, Félagsbúinu á Miðhrauni, Þörunga- verksmiðjunni á Reykhólum, Náttúrustofu Vesturlands og Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Snæfellsnesi. Fundurinn var upplýsandi, að sögn bæjarstjóra [Stykk- ishólmsbæjar] og leiddi það af sér að gert var samkomulag milli aðila um þátttöku í rannsóknarverkefni í þeim tilgangi að meta magn og afrakstursgetu þara og þangs í Breiðafirði. Jafnframt er stefnt að rannsóknum á áhrifum nýtingar á lífríki Breiðafjarðar. Fram kom í Fréttatímanum nýverið að menn óttast ofnýtingu þörunga í Breiðafirði í kjölfar þess að tvö fyrirtæki til viðbótar við Þörungaverksmiðjuna á Reykhólum hafa byrjað eða fyrirhuga að hefja umtalsverða vinnslu þörunga úr Breiðafirði, en engar rannsóknir hafa ver- ið gerðar á því hvað sjávarnytjar af þessu tagi þola. Þar var meðal annars vitnað til umfjöllunar í Fiskifréttum en þar sagði frá því að stjórnendur Þörungaverksmiðj- unnar á Reykhólum óttuðust að verksmiðj- an missti lífræna vottun sína, sem m.a. byggir á því að þang og þari í firðinum séu nýtt með sjálfbærum hætti. Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is Hafrann- sóknastofn- un mun stjórna verkefninu en fyrirtæk- in leggja til fjármuni, mannafla og báta. 6 fréttir Helgin 27.-29. nóvember 2015
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.