Fréttatíminn - 27.11.2015, Blaðsíða 16
S
Sérkennileg staða er uppi varðandi rekstur
Hrafnistuheimilanna, miðað við orð Guð-
mundar Hallvarðssonar, formanns Sjó-
mannadagsráðs, rekstraraðila þeirra. Í
fréttum Ríkisútvarpsins nýverið sagði
Guðmundur að lengi hefði verið beðið eftir
því að gerður yrði samningur um rekstur
heimilanna, en 20 milljarðar króna rynnu
úr ríkissjóði til reksturs hjúkrunarheimila
á landinu öllu, en einungis væru til samn-
ingar við tvö til fjögur heim-
ili. Þeir sem rækju heimilin
vissu ekki hvaða þjónustu
þeir ættu að veita og þeir sem
þar dveldu vissu ekki hvaða
þjónustu þeir ættu að fá.
Guðmundur sagði að upp-
safnaður rekstrarhalli undan-
farinna fjögurra ára næmi um
500 milljónum króna í Reykja-
vík og um 200 milljónum í
Hafnarf irði, en Sjómanna-
dagsráð rekur einnig heimili
í Kópavogi og tvö í Reykjanesbæ. Því yrði
að grípa til ráðstafana. Til væru pappírar,
einhliða samdir af ríkinu, um hvaða þjón-
ustu ætti að veita, til að mynda frá embætti
landlæknis, auk þess sem til væri kröfulýs-
ing upp á 120 liði um hvaða þjónustu ætti
að veita. Þeir sem reka hjúkrunarheimilin
hefðu hins vegar hvergi komið nálægt þeim
pappírum.
„Það þurfa allir lög og reglur í kringum
sinn rekstur. Það er ekki hægt að ýta þess-
um þætti í þjónustu við aldraða alltaf aftur
fyrir sig og segja „flýtur meðan ekki sekk-
ur“. Staðreyndin er sú að hjúkrunarrýmum
á höfuðborgarsvæðinu hefur fækkað um 10%
á meðan öldruðum hefur fjölgað um 10%,“
sagði Guðmundur og vísaði til þess að árið
2008 hafi verið samþykkt lög um Sjúkra-
tryggingar Íslands en meðal verkefna þeirra
hefði verið að gera samninga við hjúkrunar-
heimilin en því ákvæði hefði verið frestað
fjórum sinnum. Guðmundur bætti því við
að viðræður við Sjúkratryggingar hefðu haf-
ist á þessu ári um samning sem menn hafi
bundið vonir við en sér sýndist að gera ætti
samning um óbreytt ástand. Því vildi Sjó-
mannadagsráð ekki una og tæki ekki þátt
í því.
Viðunandi samningur fyrir báða aðila
hlýtur að vera forsenda fyrir rekstri svo
mikilvægra stofnana sem hjúkrunarheim-
ila. Rekstur fyrrgreindra Hrafnistuheimila
er viðamikill þáttur í þeim rekstri á höfuð-
borgarsvæðinu og Suðurnesjum. Fyrir verð-
ur að liggja samkomulag um hvaða þjónustu
heimilin eiga að veita og hvaða þjónustu
heimilismenn eiga rétt á.
Landsmenn eru að eldast svo þörfin fyrir
hjúkrunarheimili mun aðeins aukast, þótt
áhersla sé lögð á að aldraðir geti dvalist sem
lengst heima, með heimahjúkrun og annarri
þjónustu ef þarf. Fram kom í nýrri mann-
fjöldaspá Hagstofu Íslands á dögunum að
hlutfall 65 ára og eldri mun fara yfir 20% af
heildarmannfjölda eftir aðeins 20 ár, það
er að segja árið 2035 og þessi hópur lands-
manna verður meira en fjórðungur lands-
manna árið 2062, gangi spáin eftir. Frá ár-
inu 2050 mun fólk á vinnualdri, þ.e. 20-65
ára, þurfa að styðja við hlutfallslega fleira
eldra fólk en yngra. Þróunin er í eina átt,
meðalævi karla og kvenna við fæðingu mun
halda áfram að lengjast. Nú geta nýfæddar
stúlkur vænst þess að verða 83,5 ára gamlar
en nýfæddir drengir 79,5 ára. Stúlkur sem
fæðast eftir hálfa öld, þ.e. 2065, geta hins
vegar vænst þess að verða 88,5 ára en dreng-
ir 84,3 ára.
Rætt hefur verið um sprengingu í fjölgun
aldraðra og við því þarf að bregðast. Fram
kom í máli Guðlaugs Þórs Þórðarsonar,
alþingismanns og fyrrum heilbrigðisráð-
herra, í fyrra að miðað við hvernig þjóðin
væri að eldast þyrfti að byggja um það bil
eitt og hálft hjúkrunarheimili á ári næstu
fjörutíu árin.
Fyrir liggur óhjákvæmilega mikill kostn-
aðarauki hins opinbera, ríkis og sveitarfé-
laga, vegna þessa. Að slíku samkomulagi
hlýtur hið opinbera að vinna í samstarfi við
þá sem þjónustuna veita, með réttmætum
kröfum að sjálfsögðu um eins hagkvæmt
rekstrarform og auðið er, þar sem fylgt er
viðurkenndum stöðlum um hjúkrun aldr-
aðra.
Rammi um hjúkrunarheimili
Viðunandi samningar forsenda rekstrar
Jónas Haraldsson
jonas@frettatiminn.is
LóABORATORíUM LóA hjáLMTýSdóTTiR
Skeifunni 17, 108 Reykjavík. Sími: 531 3300. ritstjórn@frettatiminn.is Ritstjóri: Jónas Haraldsson jonas@frettatiminn.is
Fréttastjóri: Höskuldur Daði Magnússon hdm@frettatiminn.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson valdimar@frettatiminn.is. Fréttatíminn er gefinn
út af Morgundegi ehf. og er prentaður í 82.000 eintökum í Landsprenti.
Rosendahl
40%
afsláttur
Kenneth Cole
30%
afsláttur
Michael Kors
30%
afsláttur
Jacques
Lemans
50%
afsláttur
Jorg Gray
50%
afsláttur
í Kringlunni
Stórafsláttur í dag,
bara í dag, af öllum
úrum frá þessum vörumerkjum
Laugavegi 15 og Kringlunni - sími 511 1900 - www.michelsen.is
FRIDAY
BLACK
Föstudagur til fjár!
Tilboðin gilda í verslunum okkar
á Laugaveginum, í Kringlunni og
í vefversluninni á michelsen.is.
Á michelsen.is sérðu vörulínurnar í heild.
16 viðhorf Helgin 27.-29. nóvember 2015