Fréttatíminn - 27.11.2015, Blaðsíða 64
Hvernig er hefðbundinn morgun-
matur hjá þér?
Ég reyni að byrja alla daga á
því að borða morgunmat með
börnunum mínum áður en við
höldum inn í daginn og yfirleitt
verður hafragrautur fyrir
valinu. Ef það næst ekki gríp
ég mér einn góðan „boozt“
stútfullan af hollustu um leið
og ég mæti til vinnu í Sport-
húsið.
Hvers konar hreyfingu
stundar þú?
Um þessar mundir stunda
ég mjúka hreyfingu, Hot
yoga, yoga, foam flex,
sund og teygjur. Ég er
að temja mér að hlusta
á líkamann og þarfir
hans.
Hvað gerir þú til að
slaka á?
Ég hugleiði, hlusta
á góða tónlist, fer
í sund, elda mat í
rólegheitum, anda að mér sveitalofti og ýmis-
legt fleira.
Lumar þú á einu heilsuráði sem hefur
gagnast þér vel í gegnum tíðina?
Jafnvægi og góð rútína af góðum venjum er
skotheld leið til að halda sér við á allan hátt.
Öfgar heyra sögunni til enda skila þeir yfir-
leitt engu nema nýjum vandamálum. Svefn,
hreyfing, hreint mataræði, vatnsdrykkja,
hugarleikfimi, innihaldsrík samskipti og gleði-
stundir halda mér í góðu formi á allan hátt.
Hvað er það síðasta sem þú gerir áður en
þú ferð að sofa?
Ég kyssi börnin mín og dáist að þeim þar sem
þau liggja í systkinaástarklessu.
Hvert er furðulegasta heilsuráð sem þú
hefur heyrt?
Það væri hægt að gefa út brandarabók yfir
alla þá skrýtnu kúra sem að maður hefur
heyrt um í gegnum árin. Melónukúrinn frægi
er eitt gott dæmi, en konur borðuðu melónur
þar til að það leið yfir þær. Sem betur fer er
upplýsingaflæðið orðið mjög öflugt í dag og
skynsemin almennt að aukast hjá fólki þegar
kemur að því að hugsa um heilsuna.
Minn heilsutíMi Kolbrún Pálína helgadóttir
Melónukúrinn er
efni í brandarabók
Kolbrún Pálína Helgadóttir eyðir megninu af vikunni á líkamsræktar-
stöð. Hún er þó ekki að hamast á hlaupabrettinu tímunum saman,
heldur gegnir hún starfi markaðsstjóra Sporthússins. Fegurðar-
drottningin stundar það sem hún nefnir mjúka hreyfingu, en í henni
felst að hlusta á líkamann og þarfir hans. Hot yoga, sund og teygjur
verða því helst fyrir valinu og hér segir Kolbrún Pálína frá því
hvernig hún ver restinni af sínum heilsutíma.
Óteljandi
kostir
tedrykkju
Kolbrúnu Pálínu Helgadóttur líður best
þegar hún hlustar á líkamann og þarfir
hans. Nú kallar líkaminn eftir mjúkri
hreyfingu og er Kolbrún því iðin við að
stunda hot yoga, foam flex, sund og
teygjur. Mynd/Jónatan Grétarsson
Svart te:
n Orkugefandi.
n Heldur blóðsykrinum í jafnvægi.
n Stuðlar að heilbrigðu ónæmiskerfi.
n Hefur jákvæð áhrif á meltinguna.
Grænt te:
n Ríkt af andoxunarefnum þar sem
telaufin eru lítið unnin.
n Dregur úr styrk kólestróls í blóði.
n Stuðlar að vexti frumna í líkamanum.
n Hefur róandi áhrif þrátt fyrir að innihalda
koffein.
Engiferte:
n Inniheldur náttúrulegt
ofnæmislyf (andhis-
tamín).
n Hefur bólgueyðandi
áhrif.
n Getur slegið á óþæg-
indi í maga, svo sem
vegna bíl- eða sjóveiki.
t e er sá drykkur sem er næstmest drukkinn í heiminum, á eftir vatni. Tedrykkja er tilvalin leið til
að hjálpa líkamanum að hreinsa sig. Ólíkt
kaffinu er teið gætt þeim eiginleikum að
það getur bæði gefið okkur orku og hjálpað
okkur að slaka á, allt eftir því hvers kon-
ar te verður fyrir valinu. Allar tegundir
tes, svart, grænt, hvítt, og oolong, eru
búnar til úr sömu plöntunni, Camellia
sinensis. Aðferðin við þurrkun lauf-
blaðanna er hins vegar breytileg.
Mismunandi jurtum er svo bætt við
til bragð- og heilsubótar. En hvaða
kosti hefur hver tegund?
Oolong te:
n Hefur sömu kosti að geyma og grænt og svart te, en
inniheldur auk þess gómsætt ávaxtabragð.
n Afar orkugefandi, því er ekki ráðlegt að drekka oolong
te fyrir háttinn.
n Hefur jákvæð áhrif á húðina. Piparmyntute:
n Piparmyntan hefur bólgueyðandi áhrif.
n Gott til að slá á sætindaþörf.
n Getur haft róandi áhrif á magann.
www.icegolftravel.is
Vorferðir
Páskaferð
Kvennaferð
Draumaferðin þín
Sofðu rótt
í alla nótt
með Anti
leg cramps
Fæst í
apótek
um
Dreifingaraðili: Ýmis ehf
Þú kaupir margskipt gler
og færð önnur í sama
styrk í kaupbæti!
MARGSKIPT
GLER
2FYRIR1
Gæðagler frá
Frakklandi!
KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
| SPÖNGINNI, GRAFARVOGI | SMÁRALIND, 1 HÆÐ.
KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI
| SPÖNGINNI, GRAFARVOGI | SMÁRALIND, 1 HÆÐ.
Nú getur þú skipt um framhlið umgjarðarinnar
og breytt þannig um útlit - allt eftir þínu skapi!
Helgin 27.-29. nóvember 201564