Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.11.2015, Qupperneq 46

Fréttatíminn - 27.11.2015, Qupperneq 46
Ertu búinn að öllu? A Aðventan hefst um helgina. Ég hef tekið eftir því að undanförnu að fólk er byrjað að stressa sig upp fyrir jólin. Ein mann- eskja spurði vini sína á Fésbókinni „Hvað er eðlilegt að baka margar sortir?“ Hvað hefði hún gert ef maður hefði sagt. „Það er mjög eðlilegt að baka 23 sortir, aldrei minna en 20.“ Hefði hún byrjað að finna 23 uppskriftir af smákökum og eytt að- ventunni í það að gráta kvíðatárum í lyfti- duftið? Ég veit það ekki. Ég held samt að þetta sé bara spurning um að gera það sem mann langar og nennir. Ef maður nennir að baka óeðlilega margar sortir, þá bara gerir maður það. Ekki láta utanaðkomandi pressu segja manni hvað maður á að gera. Jólaundirbúningur er aldrei neitt sem er löngu skipulagt á mínu heimili. Þetta ger- ist bara allt saman. Maður setur upp eitt- hvað skraut um mánaðamótin og svo fer nú aðventan bara í það að njóta með vinum og kunningjum. Ég hætti fyrir löngu síðan að pæla í því hvort allt sé fínt og hreint og klárt fyrir jól. Það er margt skemmtilegra að gera í desember en að þrífa. Margir fara á jólatónleika. Ég hef aldrei vanið mig á það. Kannski er það vegna þess að ég bý með söngkonu og er tónlistarmað- ur sjálfur. Desember fer oft í það að koma fram á jólatónleikum. Oft langar mig þó á tónleika og þá helst bara einhverja kórtón- leika. Bara nógu klassískt. Sem betur fer er smekkurinn misjafn. Það væri eitthvað svo glatað ef allir fíluðu það sama. Einu sinni fór ég á Frostrósatónleika. Ég hafði ekki gaman af því, en það var fullt af fólki sem hafði það. Ég hugsaði að mikið væri nú gott að það er fólk sem hefur gaman af þessu. Þarna voru fullt af listamönnum að leggja mikið á sig. Ég hef síðan þá farið á nokkra jólatónleika og haft gaman af, en ég hef aldrei haft þann sið að gera þetta ár- lega. Ég set frekar Requiem eftir Brahms á fóninn, Dean Martin eða Kim Larsen. Í ár sýnist mér að 15% þjóðarinnar séu á leið- inni á jólatónleika, sem er alveg magnað. Gott fyrir tónleikahaldara. Siðir og venjur eru eitthvað sem ég hef mjög gaman af í jólaundirbúningi. Hvort sem um er að ræða tónleika eða önnur áhugamál. Jólamatur er eitthvað sem ég er mjög vanafastur með. Ég er alinn upp við það að borða rjúpur á aðfangadag og jólin koma ekki fyrr en lyktin af þessari dásamlegu villibráð er komin um allt hús. Ég hef alltaf lagt ýmislegt á mig til að fá þennan forboðna fugl. Stundum hefur það verið tæpt, en alltaf hefur það reddast. Er á meðan er. Skatan er líka viss partur af þessu öllu saman. Ég er ekki alinn upp við skötuát en faðir minn fór alltaf reglulega í skötu á Þorláksmessu. Þau ár sem ég hef búið með konunni minni höfum við alltaf haldið skötuveislu fyrir jól og það verður engin breyting á því í ár. Sjálfum finnst mér skatan ekkert lostæti, þó ég borði hana alveg. Konan mín er aftur á móti eins og einhver fíkniefnaneytandi þegar þetta er borið á borð, þeim mun kæstari því betri. Eitt árið var skatan svo kæst að mín ást- kæra frú brenndi sig á innanverðri kinn- inni af sýrunni. Það er of mikið finnst mér, en siðurinn er góður. Það er nauðsynlegt að hitta sem flesta í jólamánuðinum. Rifja upp það sem vel var gert á árinu og það sem betur mátti fara. Njóta samveru og góðra veitinga. Þrátt fyr- ir myrkrið þá er mikið ljós. Talandi um ljós þá var það góð ákvörðun í mörgum bæjar- félögum að halda jólaljósum á húsum fram í febrúar. Þessir mánuðir eftir áramótin geta verið svo drungalegir og langir og þá er gott að hafa smá tíru í kringum sig. Svo birtir alltaf aftur. Hér á landi var alltaf sá undarlegi siður að gera allsherjar jólahreingerningu. Sem var einhverskonar ýkt útgáfa af þessari venjulegu tiltekt sem flestir gera reglulega heima fyrir. Húsmæður landsins voru með brunasár á hnjánum eftir að hafa farið um öll hús á fjórum fótum með litla bursta og kústa í öll horn. Horn sem enginn hafði séð eða tekið eftir áður. Allir skápar þrifnir hátt og lágt og ofnarnir skrúbbaðir innan og utan. Húsmæðurnar voru svo búnar á því á aðfangadag, klukkan 18.15, þegar búið var að bera hamborgarhrygginn á borðið með öllu tilheyrandi. Þessi árátta er vonandi að hverfa. Ég held að mín kyn- slóð nenni ekki að skrúbba jafn mikið og ömmur okkar, og jafnvel mömmur, gerðu hér áður fyrr. Auðvitað hefur það eitthvað að gera með sérhlífni minnar kynslóðar líka. Okkur finnst betra að slaka bara á og njóta aðvent- unnar. Spurningin „Ertu búinn að öllu?“ vekur alltaf hjá mér svo óþægilega tilfinn- ingu. Búinn að hverju? Er verið að tala um að hreinsa ofnana? þrífa skápana? Hvað þýðir þetta? Jólin koma þó það sé ekki búið að skrúbba allt pleisið. Þau fara líka og það kemur nýtt ár. Þá getum við farið að bæta allt og laga. Nýtt ár. Nýjar væntingar. Nýj- ar vonir. Þá mega jólin koma. Njótum að- ventunnar og jólanna með þeim sem okkur þykir vænst um. Gefum af okkur og von- umst eftir betri heim. Áður en við vitum þá er kominn janúar og við þurfum að taka niður skrautið. Er ekki bara skynsamleg- ast að þrífa þá? Te ik ni ng /H ar i Hannes Friðbjarnarson hannes@ frettatiminn.is HELGARPISTILL SÍÐAN 1964 LAGER SALA 30-70% AF ÖLLUM VÖRUM MÁN-LAU 13-18 OG SUN 13-17 ASKALIND 2 KÓPAVOGI 46 viðhorf Helgin 27.-29. nóvember 2015
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84

x

Fréttatíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.