Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.11.2015, Side 50

Fréttatíminn - 27.11.2015, Side 50
50 bílar Helgin 27.-29. nóvember 2015  ReynsluakstuR Volkswagen Caddy tRendline F jölskyldubíll er ekki það fyrsta sem maður hugsar við að berja Volkswagen Caddy augum. Karlar í bláum samfestingi með hamar við hönd koma frekar upp í hugann en vísitölufjölskylda enda hefur Caddy-inn hefur verið einn vinsælasti litli sendiferðabíll meginlandsins frá því hann kom fyrst á markað árið 1978. Nú hefur Volkswagen bætt við hann stórum gluggum á rennihurð- arnar og rúmgóðum aftursætum og útkoman er einn skemmtilegasti fjölskyldubíllinn á markaðinum. Ætti að heita Daddy Þetta er algjör snilldar fjölskyldubíll og í rauninni skil ég ekki af hverju Volkswagen nefndi hann ekki alveg upp á nýtt Daddy í stað Caddy „Trend and fun“. Ég skil reyndar „Trend and fun“ pælinguna, því þetta er útfærslan sem býður upp á fjölbreyttara og ævintýralegra líf, en þetta er líka algjör Daddy. Bíll sem býður feðrum upp á að gera allt í einu; sækja börnin, kaupa í matinn og skella sér í ræktina, allt saman beint eftir vinnu með nóg pláss fyrir tuttugu töskur og innkaupapoka í skottinu, með þrjú börn í aftursæt- inu, eða fimm vilji svo til að faðirinn sé á Maxi Daddy sem rúmar 7 farþega. Það eina sem mín börn settu út á bílinn var að hann lítur út eins og sendiferðabíll og því er ekki að neita. En það er ekkert til að skammast sín fyrir. Daddy-inn kemur til dyranna eins og hann er klæddur; fjölhæfur fjölskyldubíll sem getur á einu augabragði breyst í sendiferðabíl. Sem sagt bíll fyrir fjölhæfa. Daddy-inn er reyndar hálfgert rúgbrauð í dulargervi því það er hægur leikur að kippa aftursætunum úr bílnum og skella þar tvíbreiðu rúmi, tjaldi, skíðum eða hjóli. Þetta er nefnilega ævintýrabíll, sem eyðir töluvert minna en stór jeppi, og það hafa frændur okkar Finnar uppgötvað þar sem Daddy- inn er í öðru sæti yfir vinsælasta fjölskyldufólksbílinn. Sparneytinn og á viðráðanlegu verði Fullt af litlum geymsluhólfum fyrir alla farþega, auðveldar iso- fix barnastóla festingar, þægilegar rennihurðir og flennistórir gluggar sem koma í veg fyrir bílveiki barna, virkilega rúmgott farangursrými á bæði 5 manna og 7 manna bílnum og usb-hleðsla á milli sætanna, gera ekkert nema auka ánægjuna með þennan bíl sem auk þess er spar- neytinn og á viðráðanlegu verði. Það eina sem ég saknaði í þessum annars dæmalaust góða bíl var hiti í sætunum. En viti menn, comfort valkosturinn býður upp á svoleiðis eiginlega nauðsynleg þægindi hér á hjara veraldar og þar að auki kælingu í hanskahólfinu, sem ætti að koma sér sérdeilis vel sumarfríinu. Halla Harðardóttir halla@frettatiminn.is Opel Astra hlýtur Gullna stýrið 2015 Nýr Opel Astra hreppti á dögunum eftirsóknarverð- ustu viðurkenningu bílaiðn- aðarins í millistærðarflokki, Gullna stýrið eða „Golden Steering Wheel“. Nýjasta útgáfan af Opel Astra kom á almennan markað í október síðastliðnum. Þýsku miðl- arnir Auto Bild og Bild am Sonntag standa saman að „Golden Steering Wheel“ viðurkenningunni og er dómnefndin skipuð les- endum, sérfræðingum og atvinnumönnum í aksturs- íþróttum. Dr. Karl-Thomas Neumann, forstjóri Opel í Þýskalandi og Tina Müller veittu verðlaununum við- töku. Þar kom fram að Opel Group hefði þegar tekið við rúmlega 40 þúsund pönt- unum á bílnum. Björn Ragnarsson, fram- kvæmdastjóri bílasviðs hjá Bílabúð Benna, umboðs- aðila Opel, segir að Opel Astra verði örugglega vel tekið af Íslendingum. „Við erum þegar farin að fá margar fyrirspurnir og bíðum nú eftir að fá hann til landsins.“ Dr. Karl-Thomas Neumann tekur við Gullna stýrinu fyrir Opel Astra. Hinn sívinsæli og knái sendiferðabíll Volkswagen Caddy fæst nú í nýrri útfærslu, með gluggum á rennihurðunum og sætum fyrir fimm til sjö manns. Hann er með rýmsta skottið á markaðinum og er fáanlegur með dísil-, bensín- og metanvél. Ef þú vilt rúmgóðan og sparneytinn fjölskyldubíl sem býður upp á að breytast skyndilega í sendiferða- eða ævintýrabíl, þá er Volkswagen Caddy Trendline, eða Daddy, algjörlega þinn bíll. Ævintýralega fjölhæfur Caddy Verð; 3.770.000 kr. Trend and fun pakki 190.000 aukalega (samlitur, multimedia tæki, usb tengi og leðurstýri) Caddy Beach version: 800.000 aukalega ( fortjald, rúm, hillur og hólf, innbyggð borð og stólar ) Eiginleikar:  Eyðsla: 4,5/100  Farangursrými: 750 l í 5 manna og 530 l í 7 manna.  Cruise control  City emergency break  Blue motion technology: vél drepur á sér í kyrrstöðu Volkswagen Caddy er snilldar fjölskyldubíll. Ljósmyndir/Hari Fullt verð: 14.900,- TILBOÐSVERÐ Á UMGJÖRÐ: 1 kr. við kaup á glerjum Fullt verð: 19.900,- TILBOÐSVERÐ Á UMGJÖRÐ: 1 kr. við kaup á glerjum ÞAÐ ERU KRÓNUDAGAR Í KRINGLUNNI 2. HÆÐ | HAGKAUPSHÚSINU, SKEIFUNNI | SPÖNGINNI, GRAFARVOGI | SMÁRALIND, 1 HÆÐ. 1 kr. Opin Kerfi // Höfðabakka 9 // 110 Reykjavík // 570 1000 // ok.is Láttu okkur prentreksturinn. sjá um 40% minni prentarar Hagkvæmari prentun Öruggari prentun Auðkenning 40% hraðvirkari prentarar Fáanlegt í nær öllum apótekum landsins, Heilsuhúsið, Hagkaup, Fjarðarkaup, Orkusetrið, Lifandi Markaður, Sportlíf, Heilsuver, Heilsuhornið Blómaval, Heilsulausn.is og Heimkaup Gullkryddið Liðir - bólgur CURCUMIN Allt að 50 sinnum áhrifameira en hefðbundið Túrmerik! CURCUMIN (gullkryddið) er virka innihaldsefnið í Túrmerik rótinni og hefur verið notað til lækninga 2000 ár í Asíu. Hátt í 3.000 rannsóknir hafa verið gerðar á þessari undrarót undafarna áratugi. • Liðamót • Bólgur • Gigt • Hjarta- og æðakerfi Sími: 5 700 900 - prooptik.is Skráðu þig í netklúbbinn okkar á prooptik.is og þú færð 25% afslátt af linsum í öllum verslunum Prooptik 25% afsláttur af linsum í netklúbbnum okkar!

x

Fréttatíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.