Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.11.2015, Page 74

Fréttatíminn - 27.11.2015, Page 74
Þ etta er leikrit sem ég skrifaði þegar ég var í leiklistar-námi í London,“ segir Agnes Wild, höfundur og leik-stjóri Kate. „Það er búið að sýna þessa sýningu í Englandi og Skot- landi, og hún vann til verðlauna á Edinborgarhátíðinni þar í landi. Ég gerði þessa sýningu með leikhópi sem ég stofnaði ásamt félögum mínum í náminu úti. Sýningin hér heima er svo gerð í samstarfi við leikhópinn Miðnætti, sem ég rek á Íslandi,“ segir hún. „Samstarfsverkefni íslenskra og breskra leikara. Ég fékk svo að hoppa inn í eitt hlutverk þar sem ein leikkonan komst ekki með til landsins,“ segir hún. „Verkið gerist í Reykjavík á stríðsárunum og út frá sjón- arhorni einnar fjölskyldu. Sögusviðið er fyrstu ár stríðsins, þegar Bretarnir voru hér og Kaninn var ekki kominn. Það var meiri glamúr yfir Ameríkönunum á meðan Bretarnir voru bara einhverjir guttar. Verkið er mest megnis leikið á ensku, en við syngjum þó á íslensku. Þetta er þó alls ekki söngleikur,“ segir Agnes. „Það er tónlist frá þessum tíma í sýningunni. Nöfnin eru öll íslensk og svo eru nokkur orð sem eru á íslensku líka. Eins og bless, sjáumst og góða nótt. Leikararnir blóta síðan allir í sýningunni á íslensku. Bretunum finnst mjög spennandi að koma hingað. Tvær af leikkonunum hafa komið nokkrum sinnum en strákarnir eru að koma í fyrsta sinn,“ segir hún. „Þau komu á sunnudaginn í ömurlegu veðri. Rigningu og roki og þeim fannst það nú ekkert töfrandi, eins og var búið að lýsa landinu, en þetta  LeikList ÍsLenska Leikritið kate frumsýnt Í tjarnarbÍói Breskir leikarar að blóta á íslensku Kate er íslenskt leikverk eftir Agnesi Wild sem frumsýnt var í Tjarnarbíói í gærkvöld. Sögusviðið er Ísland árið 1940 og fjallar um ástandið þegar 25.000 breskir hermenn lenda í Reykjavík og hertaka landið. Í verkinu er fylgst með íslenskri fjöl- skyldu í seinni heimsstyrjöldinni, Selmu, uppreisn- argjarnri dóttur þeirra, og Kötu, indælli sveitastelpu í vist hjá þeim. Leikgerðin er ensk og var samin af Agnesi þegar hún var í námi í Englandi. Leikararnir eru flestir enskir og þeir eru mest stressaðir fyrir því að segja nokkur íslensk orð í sýningunni. Leikhópurinn sem stendur að sýningunni Kate í Tjarnarbíói. Agnes Wild, höfundur og leikstjóri, segir að breskum leikurum finnist spennandi að koma hingað til lands. Ljósmynd/Hari hefur skánað í vikunni. Þau gista bara öll í gestaherberginu hjá mér á flatsængum,“ segir hún. „Þau eru stressuð að fara með þessa íslensku frasa fyrir íslenska áhorfendur. Þau hafa aldrei sýnt þessa sýningu fyrir Íslendinga. Ég held að það sé bara gaman að fylgjast með þeim reyna sig í þessu,“ segir hún. „Þetta verða sex sýningar í það heila. Frumsýningin í gær og önnur sýning í kvöld, föstudagskvöld. Svo sýnum við fjórar sýningar í næstu viku,“ segir Agnes Wild. Hannes Friðbjarnarson hannes@frettatiminn.is 74 menning Helgin 27.-29. nóvember 2015

x

Fréttatíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.