Fréttatíminn


Fréttatíminn - 27.11.2015, Síða 80

Fréttatíminn - 27.11.2015, Síða 80
 Í takt við tÍmann telma Fanney magnúsdóttir Menntaður förðunar­ fræðingur og með vinnuvélaréttindi Staðalbúnaður Mér líður langbest í íþróttafötum og er í þeim flesta daga, það er ekkert flóknara. En þegar ég hef mig til fer ég yfirleitt í leðurbuxurnar mínar úr Gallerí 17. Það er einmitt uppáhalds búðin mín á Íslandi ásamt Zöru, þar finn ég mig. Svo var ég að eignast tvær ótrúlega kósí peysur eftir ömmu mína sem ég missti fyrir tveimur árum. Þær eru dýrmætustu flíkurnar mínar enda skírði ég sjálfa mig eftir ömmu minni þegar ég fermdist. Áður hét ég bara Telma Magnúsdóttir en ég bætti Fanneyjar-nafn- inu við og fannst það bara koma nokkuð vel út. Hugbúnaður Eiginlega allur frítími minn fer í ræktina. Ég æfi í World Class og lyfti þrisvar í viku eftir prógrammi frá Aðalheiði Ýri sem var þjálfar- inn okkar í Ungfrú Ísland, ég fer tvisvar í viku í Fit Pilates og inni á milli fer ég í Buttlift hjá Olgu Helenu. Heilbrigður lífsstíll er aðaláhugamálið mitt þessa dagana og hefur verið síðasta árið, en engar öfgar samt. Þess á milli hitti ég vini og fjölskyldu. Þegar ég hitti stelpurnar förum við stundum í bíó, kíkjum í ræktina og svo kemur fyrir að maður lyftir sér upp. Þá verður b5 yfirleitt fyrir valinu Vélbúnaður Ég er tækniheft að vissu leyti en á samt góðar græjur. Ég á Macbook Pro og iPhone 6. Ég nota símann til að heyra í vinum og vandamönnum og fyrir Snapchat, Instagram og Facebo- ok. Ég notaði tölvuna mikið þegar ég var í skólanum en nú horfi ég bara einstaka sinnum á þætti í henni. Aukabúnaður Ég er rosalegur matgæðingur og finnst flestallur matur góður. Það sem stendur upp úr eru rjúpurnar á jólunum, kjötbollur ömmu og soðinn fiskur með kartöflum og smjör. Það er eitt það besta sem ég fæ. Það sem ég elda sjálf er nú ekki upp á marga fiska, kjúklingabringur og eitthvað hollt og gott. Þegar ég leyfi mér eitt- hvað óhollt er það Don’s Donut niðri í bæ. Eftir Ungfrú Ísland keppnina fór ég beint og fékk mér einn svoleiðis – með karamellusósu. Þessir kleinu- hringir eru alveg betri en bland í poka. Ég keyri um á litlum bláum Yaris sem ég fékk þegar ég flutti í bæinn sautján ára gömul. Hann hefur reynst mér vel og er sem sniðinn fyrir mig. Ég er bæði menntaður förðunar- fræðingur og með vinnuvélaréttindi eftir að ég var að vinna í álverinu á Grundartanga í fyrrasumar. Það var mjög lærdómsríkt. Uppáhaldsstaður- inn minn er sveitin heima, í Búðardal. Þangað er alltaf gott að koma. Sindri Már Sigfússon, eða Sin Fang. Telma Fanney Magnúsdóttir er 23 ára úr Búðardal og tók þátt í Ungfrú Ísland síðasta haust. Hún hefur lokið tveimur árum í lögfræði við HÍ en tók sér hlé frá námi og vinnur nú á leikskóla og kynnir snyrtivörur samhliða því. Telma stefnir á að fara aftur í skóla á næst- unni. Hún æfir í World Class upp á hvern dag en leyfir sér kleinuhring á Don’s Donut inni á milli. Ljósmynd/Hari  Harpa ný tónleikaröð Sin Fang í Blikktrommunni Sin Fang mun koma fram ásamt gesta hljóðfæraleikurum og flytja eldra efni í bland við nýja tónlist af væntanlegri breiðskífu á tónleikaröð Blikktrommunar í Hörpu á miðvikudaginn næsta, 2. desember. Sindri Már Sigfússon hefur komið fram undir ýmsum nöfnum en starfar nú aðallega undir nafn- inu Sin Fang. Hann hefur verið í hljómsveitum á borð við Lovers without lovers, Seabear, Pojke og Gangly. Síðasta breiðskífa Sin Fang, Flowers, hlaut frábærar við- tökur og var meðal annars valin plata ársins 2013 hjá Grapevine auk þess sem lagið Young Boys var valið besta lag ársins af tíma- ritinu. Nýjasta breiðskífa Sin Fang kemur út 2016 og eru meðal gesta á henni Jófríður úr Samaris og Pascal Pinon, Jónsi úr Sigur Rós og Sóley Stefánsdóttir. Blikktromman er ný tónleikaröð í Hörpu sem leggur áherslu á að bjóða upp á tónleika með nokkr- um fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar í gæðaumhverfi tón- listarhússins okkar við höfnina. Blikktromman verður slegin fyrsta miðvikdagskvöld hvers mánaðar, veturinn 2015-2016. Boðið verður upp á fjölbreytta flóru sitjandi tónleika í Kaldalónssal Hörpu, þar sem tónleikagestir geta hlýtt á framúrskarandi listamenn í návígi þessa skemmtilega salar. Eftir tónleikana gefst gestum kostur á að setjast niður með drykk með útsýni yfir smábáta- höfnina. -hf Í LETTLANDI 29. APRÍL – 2. MAÍ RIGA WWW.TRANSATLANTIC.IS SÍMI: 588 8900 Riga er meira en 800 ára gömul borg eða frá árinu 1201. Þar blandast saman miðaldarmiðbær og nútímaborg. Gamli borgarhlutinn með sinn sjarma og hefðbundin nútimaborg í hraðri þróun. Hvort sem það er menningin – söfn eða fallegar byggingar, listviðburðir og verslanir með allt það nýjasta á góðu verði – þá finnur þú það í Riga. Í Riga má finna eitt mesta samansafn af Art Nouveau eða Jugend byggingarlist. Þá er næturlíf Riga orðið þekkt fyrir að vera fjörugt og dregur til sín fjölda fólks víða að. Innifalið Flug frá Keflavík og Akureyri, fjögurra stjörnu hótel á besta stað með morgunmat, rúta frá flugvelli og íslenskur fararstjóri VERÐ FRÁ 94.800.- 80 dægurmál Helgin 27.-29. nóvember 2015
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.