Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Qupperneq 4
Jafnrétti hrakar á alþingi Íslendinga 4 Fréttir Blaðberi fær ekki frí n Sagt að hætta eftir tveggja ára starf Þ essi svör gerðu svo innilega lítið úr okkar vinnuframlagi fram að þessu – þetta var svo lítilsvirðandi hreint út sagt,“ segir Ásta Dís Guðjónsdóttir, for- maður Sjálfsbjargar – Landssam- bands fatlaðra og móðir Ásthild- ar Silvu Eggertsdóttur, sem í tvö ár hefur borið út Fréttablaðið. Nú í sumar bauðst mæðgun- um að dveljast utan Reykjavíkur í tvo og hálfan mánuð. Þær mæðgur báðu um lausn undan blaðburðin- um meðan þær færu í frí. Þeim var sagt að þær þyrftu sjálfar að finna einhvern í afleysingar en þegar það tókst ekki var þeim sagt að þær þyrftu að hætta blaðburðinum. Ástu Dís, sem glímir við fötlun en hefur hjálpað dóttur sinni við verk- ið eftir getu, blöskrar framkoman. „Það er alltaf verið að ræða hvern- ig við getum innrætt unga fólkinu okkar skyldurækni og vinnusið- ferði, það er að minnsta kosti ekki gert með því að koma fram við það eins og framlag þess skipti engu máli. Ég ætlaði nú ekkert að vera að kvarta yfir þessu við einn eða neinn en mér fannst þetta samt svo lítilmannleg framkoma við stúlku sem byrjaði að vinna hjá þeim þá nýorðin þrettán ára,“ segir Ásta Dís í samtali við DV. Þær mæðgur eru hættar að bera út. n Þ ví hefur oft verið haldið fram að í kjölfar efnahagslegra áfalla verði bakslag í jafnréttis- málum, segir Gyða Margrét Pétursdóttir, aðjúnkt við Há- skóla Íslands. Það má til sanns vegar færa að það sé að gerast á Íslandi. Kon- um í ríkisstjórn hefur fækkað, í stað þess að hlutfall karla og kvenna væri það sama og á síðasta kjörtímabili eru konur nú þriðjungur ráðherra. Í einstökum nefndum Alþingis er kynjahlutfall ójafnt, má til að mynda nefna velferðarnefnd sem er skipuð átta konum og einum karli. Hlutföllin snúast við í utanríkismálanefnd, þar situr ein kona en átta karlar og í efna- hags- og viðskiptanefnd Alþingis er engin kona. „Þegar maður skoðar orðræðuna í kringum jafnrétti þá er því oft haldið fram að jafnrétti þýði stöðuga fram- þróun. Jafnrétti komi með næstu kyn- slóð. Það sé bara ein leið og hún sé upp á við. Þetta er hins vegar ekki svo, það verða bakslög í baráttunni. Það má líta á ráðherraskipanina sem bakslag þar sem horfið er frá stefnu fyrri rík- isstjórnar að jafnt hlutfall karla og kvenna skuli sitja í ríkisstjórn,“ segir Gyða Margrét. Horfið til gamalla gilda Hún segir áhugavert að skoða hvern- ig flokkarnir skipa í fastanefndir á Al- þingi, sérstaklega í efnahags- og við- skiptanefnd og í velferðarnefnd. „Það er oft talað um að í kjölfar efnahagslegra áfalla verði bakslag í jafnréttismálum, þá hverfi menn aftur til gamalla gilda. Konur fengu kosn- ingarétt 1915. Tveimur árum síðar stofnuðu konur félag sem hafði það að markmiði að byggja Landspítala. Með því vildu þær þakka fyrir kosn- ingaréttinn. Þær vildu sýna fram á að þær ættu erindi inn á vettvang stjórn- málanna af því að þær væru frá nátt- úrunnar hendi færari um að sinna velferðarmálum en karlar. Þetta hef- ur verið kallað eðlishyggja en það er fyrir löngu búið að hafna henni. Vel- ferðarmál skipta jafn miklu máli fyrir karla og konur. Í nefndaskipan Alþingis nú, birt- ist hins vegar þessi sögulegi arfur að velferðarmál séu kvennamál en efnahagsmálin karlamál. Kona varð í fyrsta skipti fjármálaráðherra á síð- asta kjörtímabili. Nú er karl tekinn við því embætti. Í kjölfar hrunsins voru þær skoðan- ir háværar að það væri komið að kon- um að sinna viðskiptalífinu þar sem körlum hefði farist það illa úr hendi. Þær raddir eru ekki háværar í dag,“ segir Gyða Margrét. Ekki brot á jafnréttislögum Kristín Ástgeirsdóttir framkvæmda- stýra Jafnréttisstofu hefur sagt að það samræmist ekki 15. grein jafnréttislaga að annað kynið sé í miklum meirihluta í ákveðnum nefndum þingsins. „Al- mennt á Alþingi að gæta þess að það sé jafnvægi í nefndum og ganga á und- an með góðu fordæmi,“ segir Kristín. Einar K. Guðfinnsson forseti Al- þingis segir að það sé ekki verið að brjóta jafnréttislög þó það halli á ann- að kynið í nefndum þingsins. „Það er kosið í nefndir til fjögurra ára. Það er hins vegar hægt að breyta nefndaskip- an ef flokkarnir kjósa það.“ Einar segir að 15. grein jafn- réttislaganna eigi ekki við þegar um er að ræða kosningu í nefndir og ráð á vegum þingsins. Kosning í nefndir þingsins ráðist af þingstyrk flokkanna og hlutfalli karla og kvenna á hverjum lista. „Hvorki forseti þingsins eða ein- hver annar getur skorist í leikinn. Þetta er niðurstaða sem er lögleg og gildir þangað til annað er ákveðið. Flokkarn- ir bera ábyrgð á því hverja þeir kjósa í nefndir. Hver flokkur tilnefnir í nefnd- ir og á Alþingi er ekki til neitt sam- hæfingarvald sem getur náð yfir það hvernig skipast í hverja nefnd.“ Rætt um að endurraða „Ég held að það sé heilmikið til í því sem sagt hefur verið að nefndaskipun- in endurspegli ákveðin kynjaviðhorf. Hins vegar er málið flóknara en það því það eru flokkarnir sem tilnefnda. Þeir hafa enga heildaryfirsýn yfir hvað hinir flokkarnir eru að gera. Heildar- fjöldi karla og kvenna í öllum nefndum endurspeglar hlutföll karla og kvenna,“ segir Einar K. Guðfinnsson. Framsóknarmaðurinn Frosti Sig- urjónsson sem stýrir efnahags- og viðskiptanefnd segir að nefndaskip- unin hafi verið mikið rædd. Það hafi ekki verið ætlunin að kynjahlut- föllin yrðu með þessum hætti. Það komi í ljós á næstunni hvað gerist, hvort það það verði skipt um fulltrúa í nefndunum og reynt verði að jafna hlutfall karla og kvenna í þeim nefnd- um þar sem annað kynið er í miklum meirihluta. n n Bakslag í kjölfar efnahagslegra áfalla n Nefndarskipun endurspeglar kynjaviðhorf Jóhanna Margrét Einarsdóttir blaðamaður skrifar johanna@dv.is Sögulegur arfur „Í nefndaskipan Alþingis nú birtist hins vegar þessi sögulegi arfur að velferðarmál séu kvenna- mál en efnahagsmálin karlamál,“ segir aðjúnkt við Háskóla Íslands. Endurspegla kynjaviðhorf „Ég held að það sé heilmikið til í því sem sagt hefur verið að nefndaskipunin endurspegli ákveðin kynjaviðhorf,“ segir Einar K. Guðfinnsson forseti Alþingis. Gömul gildi „Það er oft talað um að í kjölfar efnahagslegra áfalla verði bakslag í jafnréttismálum, þá hverfi menn aftur til gamalla gilda,“ segir Gyða Margrét Péturs- dóttir, doktor í kynjafræði. 14.–18. júní 2013 Helgarblað Kaffilaust 17. júní Frjálsíþróttadeild Ungmennafélags Selfoss hefur séð um 17. júní kaffið á Selfossi eins lengi og elstu menn muna. Kaffið hefur verið hluti af dagskránni hjá fjölmörgum fjöl- skyldum og verið ein af aðalfjár- öflunarleiðum deildarinnar. Í ár verður hins vegar ekkert kaffi í boði hjá deildinni. Þetta kemur fram á vef DFS.is Þetta mun vera vegna viðhalds og breytinga í Fjölbrautarskóla Suðurlands en kaffið hefur verið selt þar undanfarin ár. Selfyssingar og gestir þeirra á 17. júní 2013 verða því að sjá sjálfir um sitt hátíðarkaffi eða fara eitthvert annað í kaffi. Nasa verði friðað Árni Þór Sigurðsson, þingmað- ur VG, vakti máls á fimmtudag á fyrirhuguðum mótmælum á Austurvelli vegna skipulagsmála á svonefndum Landsímareit. Í máli Árna kom fram að mikil- vægt væri að Alþingi léti málið til sín taka. Miklu skipti að standa vörð um timburhúsabyggðina við Austurvöll og Ingólfstorg, að tón- listarsalurinn Nasa yrði friðaður vegna sögu sinnar og innréttinga, að koma í veg fyrir byggingu risahótels sem teygir sig yfir í Landsímahúsið með tilheyrandi viðbyggingum við Kirkjustræti og Fógetagarð. Lagði Árni Þór áherslu á að skipulagið á svæðinu yrði þróað í þágu almannahags- muna og hvatti bæði ríkisstjórn- ina, sem hefur sett húsverndar- mál á oddinn, og Alþingi, sem á ríkra hagsmuna að gæta, að beita sér sérstaklega í málinu. Mynd af bEinvERnd.iS Mæðgurnar „Blað- burðurinn var stór punktur í daglegu lífi okkar beggja“.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.