Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Side 37

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Side 37
og erfiður og í stríði við skólakerfið. Ég skildi aldrei af hverju það var ver­ ið að troða í mig þekkingu sem ég hafði ekki áhuga á og þröngva að mér einhverju sem mér var ekki eðlis­ lægt. Svo ég barðist á móti því og fyrir því að vera ég sjálfur. Af hverju sitja börn allan daginn í skólum? Það er bara algjörlega galið. Enn þann dag í dag skil ég ekki í þeim páfagaukalærdómi. Ég hef reyndar alltaf haft meiri skoðanir en greind,“ segir hann og hlær. Flóki leggur sitt til málsins og seg­ ir frá því að hann sé í skóla þar sem hann þurfi ekki endilega að sitja við borð. „Maður má vera uppi á borði eða á niðri í gólfi. En einu sinni var ég í skóla í Frakklandi og þá fannst mér lífið bara vera búið,“ segir hann og rang­ hvolfir augunum. „Já, þá vorum við í Montreuil í Frakklandi,“ útskýrir Þor­ leifur. Hann kom heim einn daginn úr skólanum og tilkynnti okkur Önnu þetta. Hvernig fólk dettur í hug að hafa skóla þannig gerða að börnum líði illa í þeim? „Já, eins og þrælabúðir,“ segir Flóki. „Það þarf að skapa börnum líf­ vænlegt umhverfi án þess að draga úr kröfum, það finnst mér ganga fyllilega upp í skólanum hans Flóka sem er rekinn eftir Hjallastefnunni. Skólagangan er skemmtilegri og auð­ veldari, bæði fyrir börn og kennara því þeir þurfa ekki að vera að þrýsta á þau að fara gegn eðli sínu. Sumir kennarar voru ágætur en svo lenti ég á öðrum sem voru erfið­ ir. Svo endaði þetta stríð á því að mér var vísað úr skóla 10 ára. Þá kýldi ég skólastjórann. Hann kom að okkur í slagsmálum og ég sneri mér við og kýldi hann beint í andlitið.“ Amma rosalega Flóki rekur samstundis upp stór augu. Þetta er í fyrsta sinn sem hann heyrir þessa mögnuðu sögu. Þorleif­ ur horfir glettnislega til hans, veit að Flóki á ekki eftir að lenda í samskon­ ar vandræðum. „Ég var óalandi og óferjandi, og var alltaf í slagsmálum. Ég hefði ör­ ugglega verið skilgreindur með eitt­ hvað í dag og væri líklegast enn að bryðja lyf ef nútíminn hefði verið þá. Þetta var sambland af einhverri óværu og sársauka innra með mér sem hitti svo á vont umhverfi. Mér er sumsé vikið úr skóla við þetta atvik og ég klára þann vetur hjá yndislegri kennslukonu sem var komin á eftir­ laun og tók mig að sér. Mamma hafi komið því þannig fyrir. Þegar hún ætlar sér eitthvað, já þá gerir hún það og hún studdi mig í þessu stríði mínu og það var gott að finna það. Flóki kinkar kolli. „Amma er rosa­ leg,“ segir hann. „Já, hún er stór mann­ eskja. Ef mamma er með þér í liði eru allir með þér í liði. Hún skildi svo vel óréttlætið. Hún fann þessa konu og ég fékk að taka próf og tók bestu próf sem ég hafði tekið í grunnskóla. Ég fékk bara kleinu og kakó og frið og þá gekk allt vel.“ Verndarengill í Álftamýrarskóla Það var ekki hægt að klára grunn­ skólann yfir kakó og kleinu. Því mið­ ur. Því fór Þórhildur, móðir Þorleifs á stúfana og kom honum og systkin­ um hans í Álftamýrarskóla. Þorleif­ ur var mölbrotinn og sjálfsvirðingin í rúst en varð heppinn. Umsjónar­ kennari hans, Linda Rós Mikaelsdótt­ ir, tók hann undir sinn verndarvæng og horfði fram hjá brotunum og inn í hæfileikana. „Linda Rós kenndi mér alveg of­ boðslega margt. Hvað það getur þýtt fyrir manneskju sem er brotin inni í sér að einhver horfi fram hjá því og horfi inn í hæfileikana. Það er ofboðslega auðvelt að sjá vandræðagemling þar sem kannski liggja einhverjir hæfileikar. Hún hélt uppi aga en maður upplifði það þannig að það væri manni fyr­ ir bestu. Á sama tíma fékk maður að skynja að hún mat mann sem mann­ eskju. Ég efast um að ég hefði komist í gegnum gaggó ef hennar hefði ekki notið við. Ef manni er vikið úr skóla þá ligg­ ur auðvitað eitthvað að baki. Mamma og pabbi stóðu mér að baki eins og klettar. Ég skil þetta betur þegar ég á börn sjálfur. Það fá allir eitthvað að kljást við. Það eina sem foreldrar geta gert er að skapa þeim umhverfi þar sem þau búa við tilfinningalegt öryggi og seinna þurfa þau alltaf að glíma við djöfla sína sjálf. Ég tók við þessum þegar hann var fjögurra ára, segir Þorleifur og tekur utan um axlir Flóka. „Það var góð reynsla og eftir að bróð­ ir hans fæddist hefur virðing mín fyrir foreldrum aukist. Með hverri andvökunóttinni. Ég held að það sé hverjum manni hollt að eignast Viðtal 37Helgarblað 14.–18. júní 2013 Í fjölskyldunni eru oft sagðar sögur af Þorleifi sem var alltaf að týnast. Þegar hann var þriggja ára gam­ all steig hann upp í strætisvagn og fór í ferðalag upp í Breiðholt og sneri klukkustundum seinna til baka. Eitt sinn gleymdist hann í Keflavík en fannst í flugturninum þar sem hann sat og drakk súkkulaði og í annað sinn sat hann með kokkinum í eld­ húsinu á ferjunni Baldri meðan fjöl­ skyldan leitaði hans og farið var að ýja að því að það þyrfti að slægja höfn ina. Hann var duglegur að týnast. Þetta Keflavíkurævintýri var þannig að systir Þórhildar var að flytja heim frá Noregi með manni og börn. Það var farið á mörgum bílum að sækja fjölskylduna og svo brunað heim á Grenimelinn til afa og ömmu í kjöt­ súpu. Fólk skipaði sér í bílana og ég er í fyrsta bílnum og verð stóreygðari og stóreygðari þegar Þorleifur kem­ ur ekki úr neinum bíl og enginn kannast við að hafa tekið hann með. Hann varð eftir í Keflavík. Ég held ég hafi aldrei verið fljótari til Keflavíkur. Ég fékk lánaðan Chevrolet Malibu bílinn hans afa og ég var svona tutt­ ugu mínútur suður eftir. Þá var hann náttúrulega bara í besta yfirlæti uppi í flugturni að drekka súkkulaði og maula eitthvað og skemmta þeim. Hann var þannig til dæmis að ef maður fór með hann í sundlaugarn­ ar þá var hann á eftir kominn með fangið fullt af ávöxtum og sælgæti. Hann var alltaf að ræða við gamla fólkið í heitu pottunum og var svo elskulegur að honum voru færðar gjafir. Það eru margar sögur til af hon­ um. Á sautjánda júní erum við með hann í bænum og erum að spjalla við fólk í Lækjargötu. Við lítum við og þá er enginn Þorleifur. Þá er hann bara kominn upp í strætó og strætó farinn upp í Breiðholt. Við erum í skelfingu dágóða stund að leita að honum þegar hann er skyndilega kominn til baka. Sallarólegur. Hann var pínulítill, þriggja eða fjögurra ára gamall og spurði okkur hvaða æsingur þetta væri. Hann þekkti vel leiðina til baka. Þótt hann hafi alltaf verið að týn ast þá var áttavitinn nefnilega í lagi. Hann rataði mjög auðveldlega. Hann getur farið í neðanjarðarlestir úti og alltaf vitað hvert hann var að fara. Þetta er bara innbyggt. n n Arnar Jónsson um son sinn „Ég hélt áfram og áfram í neyslu og keyrslan var rosaleg. Ég var á sturluðum flótta frá sjálfum mér. Þriggja ára einn í strætó

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.