Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Blaðsíða 36
36 Viðtal 14.–18. júní 2013 Helgarblað Þ orleifur Örn Arnarsson leik­ stjóri og Flóki stjúpson­ ur hans ganga við gömlu bryggjuna í miðbænum. Flóki er með hjólabrettið sitt undir hendinni í grárri hettupeysu og í appelsínugulum strigaskóm. Stór augun skima blíðlega undir grárri hettunni. Þorleifur er kank­ vís á svip og þeir félagar eru báðir léttir í spori. Sá stutti er líklega glað­ ur með það að sólin sé að glenna sig. Loksins er hægt að renna sér á brettinu. Sá hærri gæti verið létt­ stígur af ýmsum ástæðum. Ein gæti verið sú að leikstjórnarverk hans, Englar alheimsins hlaut 9 tilnefn­ ingar til Grímunnar. Hann veit það ekki einmitt þarna þar sem hann kemur á fund blaðamanns, en hann rakar til sín þremur verðlaunum á uppskeruhátíð sviðslistanna seinna um kvöldið. Meðal annars fyrir leik­ rit ársins. Meiri eftirspurn en framboð eftir snillingum Flóki fær heitt kakó með rjóma á meðan Þorleifur ræðir við blaða­ mann. Flóki er átta ára sonur kær­ ustu Þorleifs, myndlistarkonunnar Önnu Rúnar Tryggvadóttur. Kakóið finnst Flóka of heitt svo hann bregður sér bara út með boll­ ann og stendur dágóða stund fyrir utan gluggann og fær sér smá sopa við og við. „Hann fór út að kæla kakóið,“ seg­ ir Þorleifur og hlær dátt. Hann kippir sér lítið upp við til­ nefningarnar. „Ég met það sjálfur hvað ég geri vel og hvað ég geri ekki vel. Ég vissi það áður en það komu tilnefningar að þetta væri sterk og falleg sýning. Það er hinn endan­ legi mælikvarði, hvað maður sjálfur sér. Ég veit um verk sem ég hef ekki gert vel. Á Íslandi er miklu meiri eft­ irspurn en framboð af snillingum. Á Íslandi er fólki oft gert hærra undir höfði en tilefni er til. Það er ofsalega auðvelt að falla í þá gryfju að tilnefningar og viður­ kenningar séu einhver mælikvarði.“ Fær sterk viðbrögð Þorleifur hefur á skömmum tíma náð árangri og athygli sem leikstjóri er­ lendis og þá sérstaklega í Þýskalandi. Hann nam við hinn virta leikhús­ skóla Ernst Busch í Berlín og útskrif­ aðist þaðan 2008 og síðan þá hefur hann sett upp sýningar í þýskumæl­ andi löndum með góðum árangri. Uppfærsla hans á Pétri Gaut í Luzern í Sviss hlaut feikigóðar viðtökur og það gerði líka síðasta uppfærsla hans á Guðdómlega gleðileiknum í Berlín. Þrátt fyrir velgengnina er hann ekki vanur þvílíkri athygli og hann hefur fengið hér heima. „Ég geri eina sýningu og hún er hafin upp til skýjanna. Hún á það alveg skilið. Ég hef fengið símtöl frá fólki alls staðar að úr geðheilbrigðis­ geiranum. Þeim sem þjást af geð­ röskunum jafnt og aðstandendum sem lýsa sterkum og miklum hug­ hrifum. Ég held það sé helst vegna þess að við höfum ekki farið í að fegra veikindin. Stundum eru þau æðisleg og stundum eru þau hræðileg. Oftar en ekki er það þannig að þeim mun æðislegri sem þau eru fyrir þann veika því erfiðari eru veikindin fyr­ ir aðstandendur. Sem gerir þetta svo ofboðslega erfitt allt saman.“ Í fangi pabba Flóki bregður sér inn fyrir. Kakósop­ inn búinn að ná mátulegu hitastigi. Hann sest í sófann og hallar sér upp að Þorleifi sem rifjar upp minningar úr æsku. Foreldrar Þorleifs eru þjóð­ þekkt athafnafólk úr leikhúsinu. Þór­ hildur Þorleifsdóttir leikstjóri og Arnar Jónsson leikari og hann fékk snemma að taka þátt í umræðum hinna fullorðnu. „Ég er alinn upp við það að ég mátti vaka lengur og vera með í um­ ræðum. Ég mátti ekki vaka lengur og fíflast. En ef ég vildi taka þátt þá mátti ég vera. Pabbi var alltaf í ullarpeysu með leðurbótum á olnbogunum. Þá reykti hann pípu. Ég átti það til að fela mig á bak við stól og skríða svo upp í fangið á honum. Ég man enn eftir lyktinni, blöndu af tóbaki og ull og gestum á heimilinu sem voru oft mikið andans fólk. Ég man helst eft­ ir Böðvari Guðmundssyni skáldi og Þórarni barnalækni að ræða málin til hins ýtrasta. Þess vegna á ég oft erfitt með nú­ tíma fjölmiðlakúltúr sem byggir á fyrirsögnum. Manneskjan er bara svo magnþrungin og merkilegt fyrir­ bæri að það er ekki hægt að ná utan um hana í fyrirsögn og fjórum setn­ ingum. Mig langar að ala börnin mín upp svona. Þess vegna mátt þú oft sitja frammi lengi þegar fólk er í heim­ sókn,“ segir Þorleifur við Flóka sem kinkar kolli til staðfestingar. Þessi strákur á ekkert „breik“ ann­ að en að vera í listum, segir Þorleifur og hlær. Öll fjölskyldan starfar að list­ um og bæði móðir hans og faðir eru myndlistarmenn. Hann bætir svo snögg lega við. Og á hjólabrettum, það er aðal! Svipurinn á Flóka léttist töluvert við þetta og hann grípur um endann á hjólabrettinu. Átti ekki séns Þorleifur átti varla séns á öðru lífi. Þegar aðrir krakkar fóru heim eft­ ir skóla lá leið hans niður í leikhús. Þar varði hann tímanum og eign­ aðist minningar sem fylgja honum í starfi. „Það er stundum ógnvænlegt að hugsa til þess að ég leiddi varla hug­ ann að því að gera nokkuð annað en að starfa í leikhúsi. Það skilja all­ ir sem eru með leiklistarbakteríuna í blóðinu. Ég er ansi hræddur um það að sé maður einu sinni smitað­ ur af þeirri bakteríu, þá verði maður aldrei læknaður. Svona eins og mig er farið að gruna um þetta kvef sem ég er með,“ segir hann og hóstar. Leikhúsið er töfrastaður, einn af þeim síðustu í heiminum finnst mér. Aðferðir mínar í leikhúsinu má líklega rekja að einhverju leyti til æskunnar. Ég er meðvitaður um leikhúsið sem blekkingarleik, þang­ að sem við förum samt til að upplifa sannar tilfinningar. Ég á sterka minningu um að horfa á pabba deyja á sviðinu. Ég hágrét. Ég vissi samt auðvitað að dauði hans væri ekki raunveruleg­ ur en tilfinningalega upplifunin var sterk og raunveruleg. Þetta hefur fylgt mér. Það er nýlega sem ég átt­ aði mig á því.“ Eins og Smugusjómaður Þorleifur segist stundum vera eins og Smugusjómaður. Hann hefur átt velgengni að fagna utan landstein­ ana og verið á faraldsfæti. Á með­ an bíður fjölskyldan heima í Norð­ urmýrinni. „Þeir sem fara í listirnar og þekkja það ekki áður eru að díla við allt aðra hluti en ég í dag. Það er algjörlega eðlilegt fyrir mér að fjölskylduryþm­ inn sé skringilegur. Ég hef til að mynda þurft að dvelja langtímum frá heimilinu sem mér finnst leiðin­ legt. Stundum er ég svolítið eins og Smugusjómaður.“ segir Þorleifur. Svo kemur hann heim á milli. Þú ert nú búinn að vera heima í vetur,“ segir Flóki. „Já, það er rétt og mikið hefur það verið ljúft,“ segir Þorleifur með bros á vör. Kýldi skólastjórann í andlitið Leið Þorleifs Arnarssonar leikstjóra í leikhúsið lá úr sársauka sem hófst strax með niðurbroti á barnsárum. Hann var rekinn úr skóla aðeins 10 ára gamall þegar hann kýldi skóla­ stjórann beint í andlitið. „Ég byrjaði skólagönguna hjá Herdísi Þorvalds í skóla Ísaks Jóns­ sonar og það var yndislegt. Ég hitti hana einmitt á frumsýningu Engla alheimsins og það voru fagnaðar­ fundir. Svo fór ég í Austurbæjarskóla og það gekk ekki vel. Ég var þrjóskur Leið Þorleifs Arnar Arnarssonar leikstjóra í leikhúsið lá úr sársauka. Hann var hvers manns hugljúfi sem barn en var rekinn úr skóla aðeins 10 ára gamall þegar hann kýldi skólastjórann beint í andlitið. Á unglingsárunum deyfði hann sárs- aukann með víni og dópi og hann var aðeins tvítugur þegar hann sótti sér að- stoð við fíknivanda. Batinn er grundvöllurinn að allri hans listsköpun. Kristjana Guðbrandsdóttir ræddi við Þorleif um lífið og uppvöxtinn í leikhúsinu. Með í för var átta ára stjúpsonur hans, Flóki, og úr urðu hinar skemmtilegustu rökræður. Kristjana Guðbrandsdóttir kristjana@dv.is Viðtal Hætti að drekka og byrjaði að lifa „Ég á sterka minn- ingu um að horfa á pabba deyja á sviðinu. Ég hágrét. Góðir félagar Þorleifur vill gefa börnum sínum það góða atlæti sem hann sjálfur bjó að í æsku. Hann fékk að vaka fram á nætur ef hann vildi taka þátt í rökræðum fullorðna fólksins. Það fær hann Flóki líka, stjúpsonur Þorleifs. Myndir SiGtryGGur ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.