Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Blaðsíða 50
50 Lífsstíll 14.–18. júní 2013 Helgarblað
Harðkjarna
stelputíska
n Fjörleg sumarlína Stellu McCartney
S
umarið er skollið á með
fullum þunga í New York
og hvert tískuhúsið á eft
ir öðru kynnir sumarlín
ur sínar fyrir næsta ár með
veglegum kokkteilpartíum.
Sumarlínur tískuhúsanna inni
halda oft færri flíkur og eru oft fjör
legar. Það átti svo sannarlega við um
nýja sumarlínu Stellu McCartney
sem hélt heljarinnar veislu í borg
inni og gaf þar forsmekkinn að línu
sinni.
Partíið hélt hún í Greenwich
og þar voru allir sem máli skipta
í bransanum og þær stjörnur
sem styðja við bakið á henni,
Madonna, Anna Wintour, Camer
on Diaz, Julianne Moore, Naomi
Watts, Steven Tyler, Liv Tyler, Kate
Bosworth, Amy Poehler, Jessica
Seinfeld, Helena Christensen,
David Byrne, Tyson and Kimberly
Chandler, Glenda Bailey, Gucci
Westman og Jessica Stam.
Clueless mætir Scarface
Í línu sinni stillti hún fram snáka
mynstri, fínlegum blómamynstr
um, stelpulegum hjörtum og
kyssi legum vörum í anda níunda
áratugarins. Litirnir eru korngul
ir, rósableikir og eldrauðir. Lín
an í heild sinni gaf hughrif um
stelpuklíku í framhaldsskóla sem
er hörð í horn að taka en fjörug.
Clueless mætir Scarface.
Nær og fjær upprunanum
Sjálf segir Stella að lína hennar sé
hönnuð fyrir sterka en kvenlega
konu. Eins og áður miðar hún að
því að hanna úr náttúrulegum efn
um án þess að ganga á náttúruna,
og efni notuð í fötin eiga
að brotna auðveldlega
niður. Hún er eins og
margir vita mjög á móti
dýrafeldum hvers
konar og notar gervi
efni í allt slíkt skraut.
Í línu sinni gerir
hún einmitt í því að
ýkja snáksmynstr
ið í geómetrísk
munstur, rétt til að
minna á upprunann
um leið og hún fær
ir neytandann frá
hon um. n
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
Stelpulegt Fatnaður línunnar er stelpulegur en á sama tíma harðkjarna. Hér sitja fyrir-
sæturnar fyrir við tyggjóbleikan bíl í anda níunda áratugarins.
Partí Í New York borg er sum-
arið skollið á með fullum þun
ga
og Stella hélt stórt partí.
Snákamynstur
Kopartónum og
snákamynstrum er
parað við bleika og
fölgula tóna.
Fínlegt og gróft
Miklar andstæður
einkenna línu Stellu,
fínlegt á móti grófu.
Grimmt á móti ljúfu.
Gull- og silfur-
æði í haust
Fatnaður með málmáferð verður
heitur í haust og mörg stór tísku
hús lögðu áherslu á slíkar flíkur.
Svo virðist sem gull og silfur
æðið sé nú þegar hafið.
Acne tískuhúsið setti í sölu
peysu með silfraðri málmáferð
sem hefur bókstaflega verið rifin
úr verslunum og er uppseld alls
staðar.
Peysuna er bæði hægt að
nota hvers dags með svörtum
þröngum buxum, yfir kjól eða
við mynstraðar buxur, jafnvel
pastelliti.
Upplifun fegurð-
ar gefur ljómann
RoseMarie Swift veit eitt og
annað um fegurð og heilnæmi.
Bæði er hún virtur förðunar
fræðingur sem hefur oft yfir
umsjón með förðun á sýning
arpöllunum og sérfræðingur í
hráfæði. Hún farðar ekki ein
göngu fyrirsæturnar heldur gef
ur þeim ráð til að halda húð
inni ljómandi og hreinni.
„Ég kenni þeim að borða
reglulega hollan mat og halda
sönsum í annríkinu og ferða
lögum þeirra frá einum stað til
annars.“
RoseMarie gaf lesendum
Vogue nokkur ráð fyrir sumarið
og nokkur þeirra komu á óvart.
Hún mælir til dæmis með því
að svitna reglulega. „í því felst
mjög góð hreinsun og um að
gera að loka ekki húðinni með
of miklum farða. Best er að
nota mjúkan hyljara og nota
rauða eða bleika varaliti til að
lífga upp á útlitið.“
Þá mælir hún með því að
neyta mikið af dökkgrænu
grænmeti og gleyma ekki að
drekka mikið af vatni. Ef fram
boð er lítið af slíku grænmeti
mælir hún óhikað með fæðu
bótarefnum. „Og slökun og feg
urð. Það er það allra mikilvæg
asta, að vera á fallegum stað og
upplifa fegurð gefur ljómann.
Hann er ósvikinn.“