Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Blaðsíða 20
20 Fréttir 14.–18. júní 2013 Helgarblað
„Gera grín að Alþingi“
n Stjórnarandstaðan sakar ríkisstjórnina um vanefndir
V
ar það þá þannig að Fram
sóknarflokkurinn hafði
ekkert plan?“ spurði Össur
Skarphéðinsson í umræð
um á Alþingi í vikunni, en
stjórnarandstaðan hefur farið mik
inn á þinginu undanfarna daga og
sakað stjórnarflokkana um svik við
kjósendur. Sigmundur Davíð Gunn
laugsson, forsætisráðherra Íslands,
hefur lagt fram þingsályktunartillögu
þess efnis að ríkisstjórnin skipi sér
fræðingahópa og nefndir til að út
færa mismunandi leiðir til að taka
á skuldavanda heimilanna. „Um
almennar aðgerðir verði að ræða
með áherslu á jafnræði en þó með
möguleikum á að beita fjárhæðatak
mörkunum og setja önnur skilyrði
til að tryggja jafnræði í framkvæmd
og skilvirkni úrræða,“ segir í þings
ályktunartillögunni. Lagt er til að
gerð verði aðgerðaáætlun í tíu liðum.
Ögmundur Jónasson var harðorð
ur í garð þingsályktunartillögu Sig
mundar Davíðs. „Menn héldu sumir
að það væri verið að gera grín að Al
þingi eða þjóðinni þegar hæstvirtur
forsætisráðherra boðaði þetta,“ sagði
hann og hæddist að því að „ríkis
stjórnin ætlaði að fara þess á leit við
Alþingi að það samþykkti tillögu þess
efnis að ríkisstjórnin færi að kosn
ingaloforðum sínum.“
Stjórnarliðar hafa réttlætt þings
ályktunartillöguna á þann veg að
ríkis stjórnin þurfi tíma til að geta efnt
kosningaloforðin með löglegum og
skynsamlegum hætti. Til að mynda
hefur Vigdís Hauksdóttir, formað
ur fjárlaganefndar, mælst til þess að
ríkis stjórnin fái tíma fram á haust til
að leggja fram frumvörp sem standist
stjórnarskrá um lausn á skulda
vanda heimilanna. Þeir Sigmundur
og Bjarni Benediktsson, fjármála og
efnahagsráðherra, boðuðu til blaða
mannafundar á miðvikudaginn og
kynntu stöðu ríkissjóðs, sem þeir
segja verri en gert var ráð fyrir. Að
spurður hvort skuldaniðurfellingar
myndu ekki auka enn á vandann í
ríkisfjármálum sagði Sigmundur að
aldrei hefði staðið til að ríkið greiddi
fyrir aðgerðirnar. n
Hiti á þinginu Stjórnarliðum er legið
á hálsi fyrir að hafa lofað upp í ermina á
sér fyrir kosningar. Stjórnarandstaðan
hefur látið þung orð falla um þingsálykt
unartillögu Sigmundar um aðgerðir vegna
skuldavanda heimilanna.
Ríkið sýknað
Hæstiréttur sýknaði íslenska rík
ið og Tryggingastofnun ríkisins
á fimmtudag af öllum kröfum
einstaklings vegna meintar ólög
mætar skerðingar á greiðslum úr
almannatryggingakerfinu.
Dómurinn staðfestir niður
stöðu héraðsdóms um að réttur
fólks til greiðslna byggist á því
hve lengi fólk hefur haft búsetu
hér á landi. Var ekki fallist á það
að reglurnar fælu í sér ólögmæta
mismunun. Niðurstaðan stað
festir að réttur til greiðslna ráðist
af búsetutíma og gildi þar einu
hvort viðkomandi hafi íslenskt
eða erlent ríkisfang.
L
ögreglumaðurinn Stefán Freyr
Thordersen, sem starfar hjá lög
regluembættinu á Suðurnesj
um, skallaði mann á tvítugsaldri
með slíku afli að fórnarlamb
ið nefbrotnaði. Þetta herma öruggar
heimildir DV. Árásin átti sér stað fyr
ir utan söluturninn Ungó í Keflavík
aðfaranótt sunnudags og var að
sögn sjónarvotta framin af tilefnis
lausu. Skúli Jónsson, aðstoðaryfir
lögregluþjónn lögregluembættisins á
Suðurnesjum staðfestir að árásin hafi
átt sér stað. „Ég get staðfest það að lög
reglumaður hjá okkur er grunaður í
þessu máli,“ segir Skúli. Stefáni hefur
verið vikið frá störfum. „Náttúrulega
bara tímabundið, á meðan málið er
til rannsóknar,“ segir Skúli og bætir við
aðspurður að hann sé á fullum laun
um á meðan.
Laminn í votta viðurvist
Atvik málsins voru nánar tiltekið með
þeim hætti, að sögn sjónarvotta, að
brotaþoli sat að snæðingi í nefnd
um söluturni, ásamt kærustu sinni
og vini, þegar tveir menn sem brota
þoli kannaðist við gengu inn. Öll voru
þau tiltölulega drukkin, að vini fórnar
lambsins undanskildum, og höfðu
verið að skemmta sér á Keflavík Music
Festival. Klukkan var komin vel yfir
miðnætti. Mennirnir, sem eru um
tvítugt, gáfu sig á tal við þremenn
ingana. Upphófust þá snörp og hvöss
orðaskipti milli brotaþola og annars
aðkomumannsins sem endaði með
því að sá fyrrnefndi ýtti hinum síðar
nefnda með flötum lófa. Maðurinn
brást ókvæða við, tók upp símann og
hringdi í félaga sína og tjáði þeim að
hann hafi verið kýldur. Eftir það gengu
þau öll út en rifrildið hélt áfram. Stuttu
síðar kom vinur aðkomumannanna
og öskraði á brotaþola „þú kýlir ekki
vin minn!“, réðst á hann og lúskraði á
honum ásamt mönnunum tveimur, í
votta viðurvist.
Skallaður
Lögreglan mætti fljótlega á staðinn
til að stöðva árásina og hlupu þá tveir
árásarmannanna á brott. Þegar lög
reglan var búinn að taka skýrslu af
málsaðilum á staðnum og brotaþoli,
vinur hans og kærasta voru að labba
að bílnum sínum kom Stefán Freyr
Tordersen, sem var á frívakt, rauk að
brotaþola og skallaði hann af fullu afli
með þeim afleiðingum að hann nef
brotnaði. Þetta gerði hann nánast fyr
ir framan lögreglumennina, kollega
sína, sem voru komnir á vettvang.
Stefán var í kjölfarið tekinn höndum.
Óljóst er, hvað vakti fyrir Stefáni, en
hann er vinur árásarmannanna. Þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir náðist ekki í
Stefán við vinnslu fréttarinnar.
Einsdæmi
Stefán er sumarafleysingamaður hjá
lögreglunni og hóf störf þann 1. júní
síðastliðinn. „Hann bara uppfyllti öll
skilyrði,“ segir Skúli aðspurður hvers
vegna lögregluembættið hafi ákveðið
að ráða Stefán til starfa og bætir við:
„Við erum með inntökupróf og þess
háttar; menn eru skoðaðir.“
Skúli minnist þess ekki að svona
atvik hafi komið upp áður. Hann vildi
ekki tjá sig um málið að öðru leyti en
tók fram að lögreglan á Suðurnesj
um væri vanhæf til að rannsaka mál
ið. „Málið er að fara héðan til ríkissak
sóknara. Við náttúrlega getum ekki
rannsakað þetta mál, eins og gefur að
skilja. Ríkissaksóknari úthlutar því svo
til annars embættis,“ segir Skúli.
Brotaþoli var ennþá að jafna sig
þegar blaðamaður náði tali af honum,
en vildi alls ekki tjá sig um málið. n
Lögreglumaður
skallaði mann
n Fórnarlambið nefbrotið n Stefáni vikið tímabundið frá störfum
Baldur Eiríksson
blaðamaður skrifar baldure@dv.is
Stefán Freyr Thordersen Lögreglu
maðurinn skallaði mann með þeim afleið
ingum að hann nefbrotnaði.
520 milljóna
tjón vegna kals
Kostnaður vegna kaltjóns
og harðinda í vetur nemur að
lágmarki um 520 milljónum
króna. Þetta sagði Sigurður Ingi
Jóhanns son, sjávarútvegs, land
búnaðar og umhverfisráðherra,
í kvöldfréttum Sjónvarpsins á
fimmtudag. Hann sagði óhugs
andi að bæta allt þetta tjón enda
þurfi aðstoð ríkisins að taka mið
af stöðu ríkissjóðs. Sagði hann
enga fjármuni vera til að bæta
tjónið að fullu og landbúskap
ur væri þannig að stundum áraði
vel og stundum illa.
„Ríkissjóður mun koma að
þessum málum en ég bið þing
heim að gera sér ljóst að þær
aðgerðir allar verða að taka mið
af þeirr stöðu ríkissjóðs sem við
stöndum nú frammi fyrir auk
þess sem aðgerðirnar verða að
nýtast sem allra best í framhald
inu og fela í sér sem mestan
heildar ávinning,“ sagði Sigurður
Ingi meðal annars um málið á Al
þingi á fimmtudag.