Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Síða 8
8 Fréttir 14.–18. júní 2013 Helgarblað Í slensk ferðaþjónusta er í sögu­ legri stórsókn. Aldrei nokkurn tímann hefur ferðamanna­ straumur til Íslands verið jafn mikill og aldrei hafa hótel og far­ fuglaheimili átt í meiri viðskiptum við ferðamenn. Þetta sést glöggt í skýrslum Hagstofunnar og Ferða­ mannastofu og hefur því jafnvel ver­ ið fleygt að hætta sé á bólumyndun í greininni. Á síðasta ári skilaði ferða­ þjónusta á Íslandi meiri gjaldeyr­ istekjum en áliðnaðurinn og sam­ kvæmt spám Seðlabankans má ætla að ferðaþjónustan fari einnig fram úr sjávar útveginum á þessu ári. Ferðaþjónustan nýtur góðs af lágu raungengi krónunnar og hefur hlut­ deild hennar í vergri landsfram­ leiðslu aukist hröðum skrefum. Nú nemur hún um 5 prósentum en til samanburðar má nefna að hjá öðr­ um Norðurlandaþjóðum er hlutfall­ ið helmingi lægra. Gistináttaskatti breytt Árið 2006 var virðisaukaskattur af gistingu lækkaður úr 14 prósent­ um í 7 prósent. Í fyrra viðraði ríkis­ stjórnin hugmyndir um að færa gistinætur yfir í efsta þrep virðis­ aukaskattsins og innheimta 25,5 prósenta skatt af gistingu. Eftir að þáverandi stjórnarandstaða og aðilar ferðaþjónustunnar brugð­ ust hart við þeim áformum var sú ákvörðun tekin að fara milliveginn og færa frekar gistináttaskattinn yfir í miðþrepið. Að öllu óbreyttu ætti hækkunin að koma til fram­ kvæmda í haust og er talið að með henni mætti afla ríkissjóði hálfum milljarði á þessu ári og einum og hálfum milljarði árið 2014. Fyrsta mál stjórnarinnar Eitt helsta forgangsmál ríkisstjórn­ arinnar á sumarþingi er að koma í veg fyrir að þessi hækkun taki gildi og laut fyrsta stjórnarfrumvarp sumarþingsins að því. Á þinginu hafa hörð skoðanaskipti um mál­ ið átt sér stað undanfarna daga og þung orð verið látin falla. Gagn­ rýnir stjórnar andstaðan frumvarp­ ið meðal annars á þeim forsendum að engin áætlun liggi fyrir um aðr­ ar leiðir til að afla ríkissjóði þeirra tekna sem stefnt var að með skatta­ hækkuninni. „Það er eðlileg krafa að forsætisráðherra komi með nýja áætlun í ríkisfjármálum og segi okk­ ur hvernig hann ætlar að ná fram jöfnuði í ríkisfjármálum,“ sagði Árni Páll Árnason, formaður Samfylk­ ingarinnar, í umræðum um mál­ ið og fullyrti að ekki væru ríkari ástæður fyrir þessum skattbreyting­ um ríkisstjórnarinnar en nokkrum öðrum. Benti Oddný G. Harðar­ dóttir, þingmaður sama flokks, á að þjónusta sem er í neðsta þrepi virðisaukaskattsins er þar iðulega af sérstakri ástæðu. „Ástæða var talin til að ívilna sérstaklega til að hjálpa ferðaþjónustuaðilum, hótel­ og gistiþjónustuaðilum, á meðan greinin var að vaxa. Það finnst mér mjög skynsamlegt. En greinin hefur slitið barnsskónum,“ sagði hún. „Jákvæð skilaboð“ til atvinnulífsins Bjarni Benediktsson, fjármála­ og efnahagsráðherra, lýsti því hins vegar yfir í sömu umræðu að um­ ræddar skattbreytingar þjónuðu meðal annars þeim tilgangi að senda atvinnulífinu jákvæð skila­ boð. Með því að koma í veg fyrir hækkunina mætti greiða fyrir fjár­ festingu og losa um fjárfestingar­ tækifæri í ferðaþjónustunni. Velti hann því fyrir sér hvort ef til vill væri orsakasamhengi milli góðs gengis ferðaþjónustunnar og lágrar skatt­ lagningar undanfarin ár. Í skýrslu Hagfræðistofnunar um virðisaukaskatt á ferðaþjónustu sem gefin var út í fyrra kemur fram að verð á gistingu hafi lítið lækkað eft­ ir að gistináttaskatturinn var lækk­ aður á sínum tíma. „Vegna þess að gistihús virðast að mestu leyti hafa haldið eftir virðisaukaskattslækkun­ inni má með nokkrum sanni líta á lækkunina sem niðurgreiðslur eða styrk til atvinnugreinarinnar,“ segir í skýrslunni. n Jóhann Páll Jóhannsson blaðamaður skrifar johannpall@dv.is Ferðaþjónustan í sögulegri sókn n Fyrsta frumvarp ríkisstjórnarinnar afstýrir hækkun gistináttaskatts „Má með nokkrum sanni líta á lækkunina sem niðurgreiðslur eða styrk til atvinnugreinarinnar Gistinætur 595 1142 850 2880 n Íslendingar n Útlendingar 2000 2012 2006 738 1719 Flutningsmaður Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, talar fyrir stjórnarfrumvarpi þess efnis að hækkun fyrrverandi ríkisstjórnar á gistináttaskattin- um verði dregin til baka. Mótfallinn breytingunni Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, gagnrýnir harðlega áform ríkisstjórnarinnar. Sjónvarpað frá útför Hemma „Við fjölskylda Hemma og vinir vilj­ um byrja á því að þakka þann auð­ sýnda hlýhug og stuðning sem við höfum fundið fyrir síðustu daga,“ segir í yfirlýsingu frá fjölskyldu og vinum Hermanns Gunnarssonar, sem lést eins og kunnugt er fyr­ ir rúmri viku, eftir að hafa fengið hjartaáfall. Í ljósi þess að Hemmi átti stað í hjörtum margra hafa aðstandend­ ur ákveðið að deila með þjóðinni hver næstu skref verða. Þau segja að ferlið, þegar andlát ber að garði svo fjarri heimahögum, sé nokkuð flókið. Áætlað sé að útför verði í lok júní í Hallgrímskirkju. Séra Pálmi Matthías son muni jarðsyngja. „Fyrirséð er að engin kirkja mun rúma allan þann fjölda sem athöfn­ ina myndi vilja sækja og munum við því reyna að setja upp skjá og hljóð­ kerfi fyrir utan Hallgrímskirkju þar sem hægt verður að fylgjast með því sem fram fer í kirkjunni.“ Fram kemur einnig að sjónvarps­ upptökuvélar frá Ríkisútvarpinu muni verða leyfðar í kirkjunni og að jarðarförin verði send út í sérstakri útsendingu eftir fréttir á útfarardegi. „Að kvöldi útfarardags verður Ríkis­ útvarpið með sérstakan minningar­ þátt um mannvininn Hermann Gunnarsson.“ Undir yfirlýsinguna skrifa börn Hermanns Gunnarssonar. Illugi vígir leikskóla Illugi Gunnarsson, mennta­ og menningarmálaráðherra vígði leikskólann Ársól í Reykjavík á fimmtudaginn. Illugi hélt ræðu við tilefnið. Leikskólinn sem er ætlað­ ur börnum á aldrinum 9 mánaða til 3ja ára á að vera heilsuskóli með áherslu á næringu, hreyfingu og listsköpun. Leikskólinn er í eigu Skóla ehf. sem er dótturfyrir­ tæki Íslenskra aðalverktaka ehf. Fyrirtækið rekur fimm leikskóla sem leggja áherslu á heilsuefl­ andi skólastarf. Hugmyndafræði fyrir tækisins er að ef börn fái holla næringu og mikla hreyfingu veki það þörf á listsköpun.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.