Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Side 25

Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Side 25
Fréttir 25Helgarblað 14.–18. júní 2013 Berjast fyrir Bróður sinn N ú eru rúm tvö ár liðin frá því átökin í Sýrlandi hófust. Á þeim tíma hafa fleiri en 93 þúsund manns látist, þar af að minnsta kosti 6.500 börn, samkvæmt mann­ réttindaskrifstofu Sameinuðu Þjóð­ anna. Þessar tölur eru þó varlega áætlaðar og mögulegt að raunveru­ legur fjöldi látinna sé mun meiri. Um 1,6 milljónir Sýrlendinga hafa flúið land frá því að uppreisn­ in hófst. Þar að auki eru nærri 4,3 milljónir á vergangi í heimalandinu. Flóttamannastofnun Sam ein uðu þjóðanna ræðir nú möguleikann á því að stjórnvöld í Þýskalandi taki við um 10.000 Sýrlendingum sem flúðu og búa nú við afar við­ kvæmar aðstæður. Eins er rætt við fleiri Evrópuríki um móttöku flótta­ manna. Talið er að frá því í júlí í fyrra hafi að jafnaði um fimm þúsund manns látið lífið í landinu í hverj­ um mánuði. Þá eru dæmi um að heilu fjöl­ skyldurnar séu teknar af lífi og að börn séu hneppt í varðhald, pyntuð eða drepin. Þúsundir barna og ung­ menna í Sýrlandi eru einnig neydd til þess að bera vopn og berjast með stjórnar hernum og uppreisnar­ sveitum. Þau eru jafnvel neydd í sjálfs vígssprengjuárásir. Hvergi búa börn við jafn slæm skilyrði um þessar mundir og í Sýr landi, þar sem fjórar milljónir barna eru í bráðri hættu og brýnni neyð. n n Fimm þúsund látast í hverjum mánuði n Fjöldi barna neyddur í bardaga Sefur í skjóli Meðlimur uppreisnarhópsins Píslavættir All-Abbas sefur í skjóli í Aleppo. Hópurinn samanstendur meðal annars af fimm bræðrum sem starfa undir merkjum Frelsishers Sýrlands en hópurinn var stofnaður í minningu bróður þeirra sem lést í bardaga. Áður en stríðið hófst vann einn bróðirinn við innanhúshönnun, annar á veitingastað og þrír þeirra voru enn í skóla. Bróðirinn lést í bardaga Meðlimur uppreisnarhópsins Píslavættir All-Abbas heldur á farsíma og sýnir mynd af bróður sínum, Abbas Sheik Yasine, en hann lést í átökunum. Í kjölfarið ákváðu bræður hans að berjast með uppreisnarmönnum. Myndir reuters Bíða læknis Sýrlenskir flóttamenn bíða eftir læknisaðstoð í Al Zaatri-flótta- mannabúðunum í Jórdaníu. Æ erfiðara verður að komast yfir landamærin. Óttast er að landflótta Sýrlendingar verði allt að 3,5 milljónir í árslok en flestir vilja snúa aftur til síns heima þegar átökunum linnir. Bardagamenn hvílast Meðlimir Frelsishers Sýrlands snæða mat og hvílast skjóli í grennd við Kindi-spítal- ann í Aleppo en þeir hafa barist við stjórnarherinn um yfirráð á spítalanum. Innikróuð Í Qusair héraði hafa stjórnarherinn og liðsmenn Hisbollah-samtakanna barist gegn uppreisnarmönnum. Um 30 þúsund manns bjuggu í bænum sem liggur við landamærin og nú eru þúsundir innikróaðar. Ganga yfir rústirnar Börn ganga yfir rústir götunnar og rífa niður vegg spjöld í Ragga-héraðinu í austurhluta Sýrlands. Hundruð þúsund barna hafa flúið yfir landamærin og dvelja nú í flóttamanna- búðum þar sem reynt er að aðstoða þau við að verða börn á ný. Börn í neyð Drengur drekkur vatn úr sprunginni vatnslögn í Karm al-Jabal-hverf- inu í Aleppo. Hjálparstofnanir telja að fjórar milljónir barna þurfi á neyðaraðstoð að halda vegna vannæringar, sjúkdóma og sálrænna áfalla. Í skólanum Í rafmagnsleysinu í al-Sha‘ar-hverfinu í Aleppo ber nemandi höfuðljós til þess að sjá á kennaratöfluna í einni af síðustu kennslustundum annarinnar. Aðeins lítill hluti barna sækir enn skóla. Kennari í Aleppo hvetur nemendur sína til þess að tjá sig með myndum, sem flestar eru af sprengjum og skriðdrekum, byssum og blóðugu fólki, brennandi húsum og grátandi börnum. Sum börnin teikna jafnvel fólk án höfuðs, fóta eða handa. Líf þeirra snýst um stríðið og líðanin er eftir því, börnin glíma við kvíða og áfallastreituröskun. Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.