Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Page 26
grunur um stór-
felld skattsvik
26 Sport
PSG vill Bale
Gareth Bale, miðvallarleikmaður
enska úrvalsdeildarliðsins Totten-
ham, gæti verið á leið til franska
stórliðsins Paris Saint-Germain.
Félagið er sagt vera að undirbúa
risatilboð í leikmanninn, sem
hljóðar upp á 85 milljónir punda.
Fleiri lið hafa augastað á leik-
manninum sem var í sérflokki hjá
Tottenham á síðustu leiktíð og
skoraði hvorki fleiri né færri en 26
mörk. Real Madrid hefur einnig
áhuga á að klófesta Bale, ef fréttir
eru réttar.
Úrslitaleikur
hjá Patta
Patrekur Jóhannesson er á fínu
róli sem landsliðsþjálfari Austur-
ríkis í handknattleik. Lærisveinar
hans náðu þó ekki að landa sigri
í Bosníu á fimmtudag, þegar liðið
gerði jafntefli við heimamenn.
Serbar, sem lögðu Rússa á mið-
vikudag eru þess vegna komnir á
EM á næsta ári en þeir hafa sjö stig
fyrir lokaumferðina. Rússland og
Austurríki eru með sex stig hvor
þjóð, en liðin mætast í þýðingar-
miklum leik í næsta leik sem að
líkindum ræður úrslitum um hvor
þjóðin kemst á EM. Í þeim leik
dugir Rússum jafntefli.
Hafa ber í huga að þriðja sætið
í riðlinum gæti leitt af sér miða
á EM því sú þjóð í þriðja sæti
með besta árangurinn í öllum
riðlun um kemst einnig á mótið.
Umræddur riðill er sá jafnasti í
keppninni.
Jose Mourinho
kaupir Þjóð-
verja
Jose Mourinho er byrjaður að láta
til sína taka á leikmannamarkaðn-
um, en kappinn tók að nýju við
Chelsea fyrir um tveimur vikum.
Fyrsti leikmaðurinn sem Mourinho
kaupir er þýski landsliðsframherj-
inn Andre Schurrle, leikmaður
Bayern Leverkusen. Schurrle er 22
ára gamall og hefur viljað komast
frá þýska liðinu um hríð.
Leikmaðurinn skoraði 11 mörk
í 34 leikjum í þýsku deildinni á
nýlokinni leiktíð en hann hefur
gert sjö landsliðsmörk á ferlinum.
Kaupverðið er sagt 18 milljónir
punda.
Lokaleikur Ólafs Stefánssonar
n Snillingurinn kvaddur í mikilvægum landsleik í Laugardalshöll á sunnudag
Ó
lafur Stefánsson mun ljúka
glæsilegum landsliðsferli sín-
um nú á sunnudag, í leik gegn
Rúmenum. Mun það verða
330. leikur Ólafs með landsliðinu.
Um er að ræða mjög mikilvægan
leik, síðasta leikinn í riðlakeppni fyr-
ir Evrópukeppni í handbolta. Til að
Ísland verði örugglega efst í riðlinum
er nauðsynlegt að okkar menn sigri
leikinn. Ísland hefur þegar tryggt sér
sæti í lokakeppni EM á næsta ári með
því að vinna fyrstu fjóra leiki sína
í riðlinum, en Íslendingar töpuðu
gegn Slóvenum á miðvikudaginn.
Hvít-Rússar geta því hoppað upp fyr-
ir okkur ef þeir sigra Slóvena og Ís-
land tapar gegn Rúmenum. Við það
myndu Íslendingar falla í styrkleika.
Rúmenar eru á botni riðilsins og telja
veðbankar eins og William Hill yfir-
gnæfandi líkur á að Íslendingar sigri.
Hafa skal þó í huga Ísland leikur án
fjölmargra lykilmanna.
Ólafur hefur undanfarin ár ver-
ið talinn með allra bestu handbolta-
leikmönnum heims og á hann
heims met fyrir flest mörk skoruð fyr-
ir landslið. Hann hefur leikið með
landsliðinu allt frá árinu 1992 og var
fyrirliði landsliðsins þegar íslenska
liðið vann silfrið á Ólympíuleikun-
um í Kína árið 2008. Hann lék lengi á
Spáni, með Ciudad Real og vann þar
marga titla. Á árunum 2009 til 2011
lék hann með Rhein-Neckar Löwen
í efstu deild í Þýskalandi. Þaðan fór
hann til AG København sem vann
efstu deildina í Danmörku með hann
innanborðs. Hann var á dögunum
valinn besti hægriskytta meistara-
deildarinnar síðustu tveggja áratuga.
Eftir leikinn á sunnudaginn mun
Ólafur endanlega leggja skóna á
hilluna en hann hefur verið ráð-
inn þjálfari síns gamla félags, Vals.
Á vefsíðunni takkoli.is sem Hand-
knattleikssamband Íslands stend-
ur fyrir, má þakka Ólafi fyrir framlag
sitt og hafa um 25 þúsund manns
þegar sent honum kveðju. n
hjalmar@dv.is
A
rgentínski knattspyrnu-
maðurinn Lionel Messi og
faðir hans, Jorge Horacio,
eru grunaðir um stórfelld
skattsvik. Málið er nú rann-
sakað en talið er að þeir hafi skilað
inn röngu skattaframtali á árunum
2006–2009 og sparað sér rúmlega 4
milljónir evra í skatt, en það gera um
643,7 milljónir íslenskra króna. Verði
þeir fundnir sekir þarf Messi, sem af
mörgum er talinn besti knattspyrnu-
maður heims, að leggja skóna á hill-
una – að minnsta kosti í nokkur ár.
Ferillinn á enda?
Miðvikudaginn sl. var lögð kvörtun
fyrir dómara í dómshúsinu í Gava,
ríkulegu hverfi í Barcelona þar sem
Messi býr, og var hún undirrituð
af saksóknaranum Raquel Amado.
Dómarar verða að samþykkja
kvörtunina áður en hægt verður að
ákæra en verði feðgarnir fundir sek-
ir gætu þeir átt allt að sex ára fang-
elsisdóm yfir höfði sér og þar að auki
þurft að greiða háa fjársekt.
Feðgarnir eru sakaðir um að hafa
notað fyrirtæki utan við Spán, svo
sem í Úrúgvæ, Belize, Bretlandi og
Sviss, til að selja notkun á ímynd
Messi, sem sjálfur býr og spilar á
Spáni. Þannig hafi þeir sparað sér
nokkrar milljónir evra í skatt enda
hafi tekjur af auglýsingasölunni ver-
ið gaumgæfilega huldar spænskum
skattayfirvöldum.
Segist saklaus
Messi brást við strax á miðvikudag
með því að setja yfirlýsingu á Face-
book-síðu sína. Þar segir að þeir
feðgar hafi fyrst heyrt af ásökunum
spænskra skattayfirvalda í gegnum
fjölmiðla og að þeir séu afar hissa
enda hafi þeir aldrei framið lögbrot.
Þeir hafi ávallt uppfyllt skattaskyld-
ur sínar eftir ráðum skattaráðgjafa
sem muni sjá um að skýra mál-
ið fyrir þeirra hönd. Forsvarsmenn
FC Barcelona hafa ekki tjáð sig um
málið.
Messi, sem er 25 ára gamall, hóf
að spila með FC Barcelona árið
2000, þegar hann var aðeins 13 ára.
Hann er fyrirliði argentínska lands-
liðsins og hefur spilað 81 leik með
aðalliðinu en var áður í U20 og
U23 ára landsliðunum. Þessi mikli
markaskorari hefur náð þeim eins-
taka árangri að hljóta Gullknött-
inn, eða Ballon d‘Or, fjögur ár í röð
árin 2009–2012 auk þess sem hann
var valinn besti leikmaður heims
árið 2009 og besti leikmaður Evrópu
árið 2011. Á síðasta tímabili skoraði
Messi 91 mark á einu ári og sló þar
með 40 ára gamalt heimsmet Þjóð-
verjans Gert Müller, en þar að auki
er hann yngsti leikmaður sögunnar
til að skora 200 mörk í spænsku úr-
valsdeildinni.
Smápeningar miðað við tekjur
Messi er, líkt og áður sagði, af mörg-
um talinn besti knattspyrnumað-
ur heims og jafnvel sögunnar auk
þess sem hann er einn tekjuhæsti
íþróttamaður í heimi. Samkvæmt
bandaríska viðskipta- og fjármála-
tímaritinu Forbes þénar Messi yfir 15
milljónir evra á ári, eða 2,4 milljarða
íslenskra króna, ef einungis er reikn-
að með launum og verðlaunafé. Séu
tekjur af auglýsingum og fyrirtækja-
styrkir reiknaðir með áætlar Forbes
að tekjur leikmannsins nái yfir 31
milljón evra á ári, eða um 5 milljarða
íslenskra króna. Því mætti ætla að 4
milljónir evra, eða 643,7 milljónir
króna, skipti framherjann ekki ýkja
miklu máli enda smápeningar mið-
að við árlegar tekjur. n
n Messi talinn skulda
yfir 643,7 milljónir króna
14.–18. júní 2013 Helgarblað
Hörn Heiðarsdóttir
blaðamaður skrifar horn@dv.is
Bestur Messi hlaut Gullknöttinn fjögur ár í röð.
Ferillinn senn á enda?
Sé eitthvað hæft í ásökun-
um á hendur Lionel Messi
gæti hann átt yfir höfði sér
nokkurra ára fangelsisvist.
Síðasti séns að
sjá Óla Óla verð-
ur sárt saknað úr
handboltanum.