Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Síða 44
44 Menning 14.–18. júní 2013 Helgarblað
Menningarhelgin
F
ormúlubókmenntir seljast
vel. Það er ekkert nýtt í for
múl unni og það á heldur
ekki að vera neitt nýtt. Það er
forsenda formúlunnar. For
múlan hans Brown er engin undan
tekning. Hún er bara því miður svo
lítið kjánaleg.
Táknfræðingur til bjargar
Táknfræðingurinn Robert Langdon
er einhvers konar akademískur Jack
Bauer (úr spennuþáttunum 24), sem
virðist hvorki borða né drekka, sef
ur örsjaldan og á mjög erfitt með að
mynda tilfinningaleg tengsl við aðr
ar persónur, nema þá helst að þær
persónur deili með honum áhuga á
endurreisnarlist og táknfræði.
Trekk í trekk stendur Langdon
frammi fyrir ráðgátu sem hann leys
ir í reynd mjög auðveldlega, en
um leið birtast vondu karlarnir og
Langdon neyðist til að flýja. Þá tek
ur við eltingarleikur þar til Langdon
stendur frammi fyrir nýrri ráðgátu
og þannig koll af kolli uns tákn
fræðingurinn kemur heiminum til
bjargar.
Minnislaus prófessor
Vítiseldur (e. Inferno) er fjórða bók
in um Langdon. Eins og fyrri bæk
ur Brown, þar sem Langdon kemur
við sögu, þá einkennist Vítiseldur af
stuttum og snaggaralegum köflum,
sem þeysa fléttunni áfram og eru
troðfullir af fróðleik úr listasögunni,
í bland við helstu framfarir morgun
dagsins á sviði vísindanna. Stund
um daðrar vísindafróðleikur Brown
reyndar við vísindaskáldskap, en
það truflar mann þó ekki. Það er
nefnilega margt ótrúverðugra í bók
um Brown en sjálfur vísindaskáld
skapurinn.
Í fyrsta lagi á maður sérlega bágt
með að trúa því að miðaldra há
skólakennarinn lendi enn einu sinni
í nokkurra daga rússíbanareið þar
sem sérfræðiþekking hans á táknum,
listfræði og sagnfræði bjargar deg
inum. Að sama skapi virðist Brown
það fyrirmunað að skrifa trúverð
ugar persónur. Flestar eru þær í raun
einhliða og óspennandi erkitýpur
sem gerir lesandanum nær ókleift að
finna til samkenndar með þeim.
En líkt og í fyrri bókum Brown, þá
gefst lítill tími til að velta fyrir sér trú
verðugleika fléttunnar. Atburðarásin
er hröð og hún heldur lesandanum
vissulega við efnið. Það er í raun ekki
fyrr en bókinni lýkur að það rennur
upp fyrir manni að formúlan hans
Brown er farin að þynnast.
Einföld formúla
Bækur Brown hafa selst eins og
heitar lummur frá því DaVinci lyk
illinn sló í gegn fyrir tíu árum og
hafa eflaust allmargir beðið nýjasta
eltingaleiks Langdon með eftir
væntingu. Afþreyingarbókmenntir
þurfa ekki endilega að vera trúverð
ugar eða frumlegar. Ef stjörnugjöf
in tæki mið af því hversu einsleitar
bækurnar hans Brown eru, þá fengi
Vítiseldur fimm stjörnur. En sú er
ekki raunin. n
Formúlan er
orðin þreytt
Dan Brown Varð heimsfrægur fyrir DaVinci
lykilinn.
Hann Um helgina ætla ég að leggja parket, síldar
beinamynstur. Það er mjög erfitt og krefjandi. Næst
um 1.000 stafir sem ég þarf að leggja niður og líma.
En útkoman er algjörlega þess virði. Síðan, þegar ég
verð þreyttur í hnjánum ætla ég mér að skoða sýn
ingu í Hafnarborg um Hellisgerði – sem er dulin gafl
araperla. Svo held ég að ég borði kjúklingavængi,
fari í sund á Selfossi og horfi á UFC 161. Ekki hægt að
vera bara menningarlegur yfir sumartímann.
Hún Ég ætla að sjá Engla alheimsins, sem ég komst ekki á um
síðustu helgi vegna veikinda og síðan langar mig óskaplega til
að vera þjóðmenningarleg og láta aka mér vestur á Hrafnseyri
við Arnarfjörð í þjóðhátíðarkaffi á mánudaginn. Það gerði ég í
fyrra og skoðaði í leiðinni safnið um Jón Sigurðsson. Vona að
ég hitti Sigmund Davíð á Hrafnseyri og Illuga. Kannski ég noti
tækifærið og gangi í annan hvorn flokkinn þeirra, þá kemst ég
kannski í útvarpsráð. Er þetta ekki þversnið af öllu menningar
legu sem ein kona getur komist yfir á einni helgi, ha?
Hlín Agnarsdóttir
rithöfundur
Halldór
Halldórsson
listfræðingur
DY
NA
M
O
RE
YK
JA
VÍ
K„Minnir á metsölubókina um
gamla manninn sem hvarf út
um gluggann.”
– Arbetarbladet
★★★★★
„Ég varð pirruð, ég skemmti
mér konunglega og ég hágrét.
… Bók sem er fyrir alla.“
– Kvällsposten
Hjartnæm, sár o
g
sprenghlægileg
!
„SJARMA
SPRENGJA
SUMARSINS“
– Aftenposten
G
unnar Eyjólfsson hlaut
heiðurs verðlaun Leik listar
sam bands Íslands árið 2013
fyrir ævistarf sitt í þágu sviðs
listar á Íslandi. Verðlaunin voru af
hent á Grímunni í Þjóðleikhús inu á
miðvikudagskvöld.
Risið úr sætum
Áður en Gunnar tók við verðlaunun
um flutti hann brot úr leikritinu
Pétur Gautur eftir Henrik Ibsen og
mátti heyra saumnál detta í saln
um. Áður höfðu þrír leikarar, sem
allir hafa glímt við titilhlutverkið í
Pétri Gaut, flutt brot úr verkinu. En
það var Gunnar sem átti salinn og
áhorfendur risu oftar en einu sinni
úr sætum sínum og heiðruðu hann.
Gunnar lék sitt fyrsta hlutverk á
sviði árið 1945 í uppsetningu Leik
félags Reykjavíkur á Kaupmannin
um í Feneyjum. Hann hefur leikið
á annað hundrað hlutverk á 68 ára
ferli.
Takk fyrir
„Það leitar til hjarta og huga á þessari
stundu, í þessu húsi, hvað ég er þakk
látur fyrir það fólk sem ég kynntist
hér, vann með og lærði svo ótrúlega
mikið af,“ sagði Gunnar í ræðu sinni
en hann lék lengstan hluta ferilsins í
Þjóðleikhúsinu.
„Ég þakka ykkur fyrir þetta kvöld
og að fá að finna hvað kærleikur ykk
ar er mikill til mín. Takk fyrir.“
Sýning ársins
Það var leikritið Macbeth sem
hlaut verðlaun sem sýning ársins
á Grímunni. Englar alheimsins var
valið leikrit ársins og hlaut einnig
verðlaun fyrir sviðsmynd og bún
inga. Og Ragnar Bragason fékk verð
laun sem leikstjóri ársins fyrir leik
ritið Gullregn.
Kristbjörg Kjeld var valin leikkona
ársins fyrir leik sinn í verkinu Karma
fyrir fugla og Ólafur Darri Ólafsson
fyrir túlkun sína á Lenny í Músum og
mönnum. n
Gunnar Eyjólfsson heiðraður á Grímunni
n Macbeth sýning ársins og Englar alheimsins leikrit ársins Gunnar Eyjólfsson
Hlaut heiðursverðlaun
Leiklistarsambands
Íslands.
Inferno
Höfundur: Dan Brown.
480 bls.
Bókarýni
Hlynur Páll Pálsson
skrifar