Dagblaðið Vísir - DV - 14.06.2013, Síða 62
N
ú? Þú segir mér fréttir, seg-
ir Gestur, hlær létt og bæt-
ir við: „Já, ég hef ekki heyrt
þetta áður.“ Svona brást
Gestur Valur Svansson við,
þegar blaðamaður kvaðst hafa ör-
uggar heimildir fyrir því að samning-
ur hans við framleiðslufyrirtæki Adam
Sandler, Happy Madison, væri ekki til
nema í hugarfylgsni hans sjálfs. „Ég
er búinn að skila af mér fyrsta upp-
kastinu og er núna bara að bíða eftir
„feedback-i“ frá þeim,“ sagði Gestur
jafnframt – furðu lostinn á fyrirspurn-
inni – og átti þar við nefnt framleiðslu-
fyrirtæki.
Spurður, hvort Happy Madison
myndi staðfesta frásögn hans, ef til
þeirra væri leitað sagði Gestur: „Þú
getur prófað.“
Hrunin spilaborg
Það er nákvæmlega það sem blaða-
maður gerði – og spilaborgin hrundi.
„We are not working with him,“ sagði
Heather Parry, kvikmyndaframleið-
andi hjá Happy Madison, spurð
út í samstarfið við Gest Val. Svar-
ið er í samræmi við frásagnir margra
heimildamanna um að ævintýraleg
saga Gests um væntanlegan frama
í Hollywood, væri uppspuni nánast
frá rótum. „Nánast“, vegna þess að
Gestur hafði að vísu fengið fund með
Sandler, en nær hafði hann ekki kom-
ist. Enginn framhaldsfundur, engir
samningar, ekkert samstarf. Það eina
markverða sem fundurinn skildi eft-
ir sig var minning Sandler um „ein-
hvern skrítinn Íslending“, að sögn
heimildamanna.
Seldi lygina
Í janúar síðastliðnum flutti Frétta-
blaðið fréttir af því að Gestur hafi selt
„sína fyrstu bíómynd í fullri lengd til
Hollywood“. „Það má segja að ég byrji
á toppnum enda er þetta draumur
að rætast,“ sagði Gestur í samtali við
Fréttablaðið, sem gleypti við sögunni.
Í fréttinni kom fram að myndin bæri
vinnuheitið „The Last Orgasm“ og
að Adam Sandler hafi verið „yfir sig
hrifinn“ af handriti Gests. Auk þess
kvaðst Gestur vera með vinnuað-
stöðu hjá danska grínistanum Casper
Christiansen í Kaupmannahöfn. Það
reyndist heldur ekki rétt. Í nýlegu við-
tali við Vísi sagði Casper: „Hann hef-
ur aldrei unnið hjá mér og hann er
ekki með vinnuaðstöðu hjá mér,“ og
bætti við að hann hefði aldrei séð téð
handrit.
Gestur hélt áfram að spinna lyga-
vef sinn á upplýsingaveitunni spyr.is.
Þar svaraði hann spurningum áhuga-
samra og sagði meðal annars að Happy
Madison hefði „tryggt sér réttindi til
að kaupa fyrstu þrjú handritin sem ég
mun skrifa fyrir Hollywood-markað“. Á
síðunni sagðist Gestur jafnframt vera
kominn með tærnar inn fyrir þröskuld
Hollywood.
Bregst illa við gagnrýni
Gestur er reyndar ekki óvanur hand-
ritshöfundur. Hann skrifaði, leikstýrði
og framleiddi sjónvarpsþættina Tríó
á sínum tíma, sem hlutu einróma last
gagnrýnenda. Þættirnir voru sýndir á
Ríkissjónvarpinu sumarið 2011. Gagn-
rýnandi Morgunblaðsins sagði meðal
annars um gæði þeirra: „Ég get stað-
fest að allt það niðurrif sem hefur átt
sér stað á vefnum og á götuhornum á
rétt á sér og því miður nær þátturinn
ekki einu sinni að fara hring inn. Hann
er með öllu ófyndinn, myndatakan er
viðvaningsleg og svo má lengi telja.
Eftir að hafa horft, þá var maður eig-
inlega orðlaus, skilningsvana gagn-
vart því hvað væri verið að reyna að
gera þarna.“ Gestur brást við gagnrýni
á þáttinn með blogg færslu, sem vakti
mikla athygli. Í færslunni bar hann
blak af sköpunarverki sínu og gagn-
rýndi gagnrýnendur sína harkalega,
auk þess sem hann kallaði starfs-
mann Kvikmyndamiðstöðvar Íslands
„þurrkuntu“.
Hlunnfarinn knattspyrnukappi
Meðal þeirra sem komu að fram-
leiðslu þáttanna var knattspyrnukapp-
inn Arnar Gunnlaugsson. „Þetta voru
ömurlegir þættir,“ segir Arnar Gunn-
laugsson, aðspurður um þættina.
Heimildir DV herma að Arnar Gunn-
laugsson hafi styrkt Gest nokkuð ríku-
lega eftir Tríó-ævintýrið. Þetta stað-
festi Gestur sjálfur í samtali við DV.
Aðspurður hvort Arnar hafi styrkt
hann vegna Sandler-ævintýrsins sagði
Gestur: „Ekki þetta verkefni sem slíkt;
hann styrkti mig aðeins til að byrja
með. Hann styrkti mig með flugmiða
og öðru slíku.“ Arnar var ekki eini
athafnamaðurinn sem féll fyrir lyga-
sögu Gests, en hann ku hafa sagt við
mennina að hann myndi endurgreiða
þeim um leið og fjármagn bærist að
utan. Mennirnir íhuga nú að leita rétt-
ar síns fyrir dómstólum.
Hugmyndasmiðurinn Gestur
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem sögu-
skýring Gests rímar ekki við raun-
veruleikann, eins og hann horfir við
öðru fólki. Gestur hefur alla tíð haldið
því fram að hann sé raunveruleg-
ur hugmyndasmiður Vakta-seríunn-
ar. Þessu vísar Ragnar Bragason, leik-
stjóri og handritshöfundur seríunnar,
staðfastlega á bug. „Þetta er leiðinlegt
mál. Það er satt og rétt hjá honum að
upphaflega hafði hann samband við
mig, með þá hugmynd að gera grín
á bensínstöð og það verður ekki tek-
ið frá honum. Hins vegar er handrit
þáttanna að engu leyti byggt á hans
hugmyndum um atriði, persónur eða
„konsept“ þáttanna, ekki eitt einasta
atriði, og því finnst mér með ólíkum
að hann sé að eigna sér þetta,“ sagði
Ragnar í samtali við DV árið 2007, eft-
ir að Gestur hafði haldið hinu gagn-
stæða fram í fjölmiðlum.
„Út í hött“
Ekkert bendir til annars en að Gestur
muni halda ótrauður áfram í leit sinni
að frægð og frama. „Stundum verð-
ur maður bara að ljúga sig á toppinn,“
sagði Gestur við heimildarmann, sem
vill ekki láta nafns síns getið og eins
og áður segir lét Gestur engan bilbug
á sér finna þegar blaðamaður sagð-
ist vita að sagan væri byggð á sandi.
„Þetta er bara út í hött,“ sagði Gestur
kokhraustur og hefur ekki látið ná í sig
síðan. n
62 Fólk 14.–18. júní 2013 Helgarblað
Saga Sandler-
svindlarans
n Næturvaktin, Tríó, hlunnfarinn knattspyrnumaður og Adam Sandler
Reyndur Gestur skrifaði handrit Tríó-
þáttanna og heldur því fram að hann sé
hugmyndasmiður Vakta-seríunnar
Enginn Sandler-
samningur Það eina
sem Gestur seldi var ævin-
týraleg lygasaga. Kaup-
endur voru fjölmiðlar.
Baldur Eiríksson
blaðamaður skrifar baldure@dv.is
Hlunnfarinn
Knattspyrnukapp-
inn lenti í blekk-
ingarvef Gests.
„Ég er búinn að
skila af mér fyrsta
uppkastinu og er núna
bara að bíða eftir „feed-
back-i“ frá þeim.