Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Síða 8
Hjörleifur flutti
inn 600 milljónir
8 Fréttir 2.–6. ágúst 2013 Helgarblað
F
élag í eigu eins nánasta sam-
starfsmanns fjárfestisins Ólafs
Ólafssonar til margra ára, Hjör-
leifur Jakobsson, hefur flutt
rúmlega 600 milljónir króna
hingað til lands í ár og fyrra í gegnum
fjárfestingarleið Seðlabanka Íslands.
Eignarhaldsfélag Hjörleifs heitir Feier
ehf. og notaði Hjörleifur það einnig til
fjárfestingar í fyrirtækinu Kælitækni
ehf., líkt og DV greindi frá á miðviku-
daginn, með þeim Bjarna Ármanns-
syni og Erlendi Hjaltasyni í fyrra. Þá á
Feier einnig tæplega 14 prósent hlut í
Hampiðjunni þar sem Hjörleifur var
framkvæmdastjóri á árum áður.
Flutningurinn á fjármagni til lands-
ins hefur farið fram í gegnum þrjú
skuldabréfaútboð Feier ehf. en það
síðasta fór fram nú í lok júlí. Þá gaf
Feier út skuldabréf fyrir tæplega 112
milljónir króna.
Rúmur hálfur milljarður í fyrra
Líkt og margoft hefur komið fram
í DV geta fjárfestar sem eiga pen-
inga erlendis nýtt sér fjárfestingarleið
Seðlabanka Íslands og komið fjár-
magni til landsins með afslætti með
því að kaupa skuldabréf sem íslensk
eignarhaldsfélög gefa út. Fjármagn-
ið erlendis frá er þá notað til að kaupa
skuldabréfin fyrir íslenskar krónur sem
Seðlabanki Íslands veitir 20 prósent af-
slátt af til að liðka til fyrir erlendri fjár-
festingu hér á landi. Í flestum tilfell-
um þar sem slík skuldabréfaútboð fara
fram til að koma peningum hingað til
lands er sami aðilinn, eða tengdir aðil-
ar, báðum megin við borðið í viðskipt-
unum enda er ekkert sem bannar slíkt.
Svo virðist vera raunin í tilfelli Feier.
Hin skuldabréfaútboðin tvö hjá
Feier fóru fram í apríl og nóvember í
fyrra. Það fyrsta var upp á rúmar 100
milljónir króna en það næsta var upp
á tæpar 400 milljónir króna. Líklegt
má telja að Feier hafi notað hluta af því
fjármagni sem félagið flutti til landsins
í fyrra til að kaupa áðurnefndan hlut
í Hampiðjunni af Bank Nordic, líkt
og Viðskiptablaðið greindi frá í fyrra.
Síðla árs 2012 var áætlað markaðsvirði
Hampiðjunnar rúmir fjórir milljarðar
króna þannig að tæplega fjórtán pró-
senta hlutur ætti að vera meira en 500
milljóna króna virði.
„Okkar mál“
Hjördís Ásberg, eiginkona Hjörleifs
sem skráð hefur verið fyrir tveimur
af skuldabréfaútboðunum, segir að-
spurð að innflutningurinn á fjár-
magninu tengist ekki Ólafi Ólafssyni.
Hún segir að peningarnir hafi verið
fluttir hingað til lands til að fjárfesta
í Hampiðjunni og Öryggismiðstöð
Íslands. Hún segir fjármunina vera
komna frá þeim Hjörleifi og að þau
hafi meðal annars tekið lán erlendis
og flutt peningana hingað til lands.
„Þetta er algjörlega okkar mál,“ segir
Hjördís og vísar til þess að þau standi
alfarið ein á bak við fjárfestingarnar.
Uppruni fjármagnsins
Athygli vekur að heimilisfang Feier
ehf. er það sama og heimilisfang
flutningafyrirtækisins Samskipa,
sem Ólafur Ólafsson er kenndur við:
Kjalarvogur 7 til 15. Hjörleifur Jak-
obsson er stjórnarformaður Sam-
skipa og situr í stjórnum fjölda fé-
laga sem Ólafur Ólafsson á, meðal
annars í fjárfestingarfélaginu Kjal-
ari. Þá er Hjörleifur skráður eigandi
eignarhaldsfélagsins Bingo sem er eig-
andi iðnfyrirtækisins Límtré Vírnet í
Borgarnesi, heimabæ Ólafs Ólafsonar.
Þessi umsvif Hjörleifs Jakobssonar í
atvinnulífinu eftir hrun eru nokkuð
athyglisverð þar sem hann hefur verið
samverkamaður Ólafs Ólafssonar til
margra ára en ekki komið fram sem
sjálfstæður fjárfestir í verðmætum
fyrirtækjum eins og Hampiðjunni og
Límtré Vírnet. Þá vekja þær fjárhæð-
ir sem Feier hefur komið til lands-
ins mikla athygli – nærri rúmlega 600
milljónir króna – en ekki hefur verið
vitað til þess hingað til að Hjörleifur
ætti slíka fjármuni. Í viðtali við Við-
skiptablaðið í fyrra sagði Hjörleifur
hins vegar að hann einbeitti sér að
eigin fjárfestingum þessi árin.
Ólafur nýtti sér
fjárfestingarleiðina
Þrátt fyrir að ekki hafi verið vitað til
þess að Hjörleifur ætti slíka fjármuni
þá hefur legið fyrir til margra ára að
Ólafur Ólafsson er mjög efnaður. Ólaf-
ur tók nokkra milljarða króna í arð
út úr íslenska efnahagskerfinu á ár-
ununum fyrir hrunið, meðal annars
vegna hlutabréfa sinna í Kaupþingi.
Ólafur er búsettur í Sviss líkt og Hjör-
leifur. DV greindi frá því á miðviku-
daginn að félag í eigu Ólafs, Kimi,
hefði flutt 40 milljónir króna til lands-
ins í síðasta mánuði til að fjármagna
viðbyggingu við Landnámssetur Ís-
lands í Borgarnesi. Ólafur hefur því
verið að nota fjárfestingarleið Seðla-
banka Íslands til að koma fjármun-
um sínum hingað til Íslands með
afslætti til stunda fjárfestingar. n
n Hægri hönd Ólafs orðinn stórtækur í fjárfestingum á Íslandi
Ingi Freyr Vilhjálmsson
ritstjórnarfulltrúi skrifar ingi@dv.is
„Þetta er
algjörlega
okkar mál
600 milljónir Hjörleifur hefur notað fjár-
munina til að kaupa hutabréf í Hampiðjunni
og Öryggismiðstöðinni að sögn eiginkonu
hans.
Hægri höndin Náin samverkamaður Ólafs Ólafssonar fjárfestis hefur flutt 600 milljónir
hingað til lands síðan í fyrra.
Hópkaup
fíkniefnasala
Fíkniefnasalar hérlendis taka sig
stundum saman um sérstök inn-
kaup á efnum samkvæmt upp-
lýsingum lögreglu sem birtast í
nýrri skýrslu greiningardeildar
lögreglunnar á skipulagðri glæp-
astarfsemi. Þeir aðilar taka þátt í
nokkurs konar uppboðsmarkaði
erlendis og sameinast um kaup
á efnum og flutningi hingað til
lands. Tekið er fram í skýrslunni
að þetta sé alls ekki algilt fyrirbæri
en nógu oft gert til að lögregla hafi
vitneskju um og oftast tekst slíkt
samstarf með litlum fyrirvara.
Þess utan eiga fíkniefnasalar hér-
lendis lítið sem ekkert samstarf sín
á milli. Fram kemur einnig í sömu
skýrslu að meðan til verði eftir-
spurn eftir fíkniefnum hérlendis
verði ávallt til menn sem útvega
eða framleiða efnin og þar kemur
alltaf maður í manns stað.
Mynd SigtRyggUR ARi
Lífeyrissjóðir á
leigumarkaðinn
Stofna þarf hér sem allra fyrst
sérstök leigufélög sem yrðu fjár-
mögnuð með lánum frá lífeyris-
sjóðum landsins að mati Vilhjálms
Birgissonar, formanns Verkalýðs-
félags Akraness. Þau félög hefðu
ekki hagnaðarvon að leiðarljósi
heldur það að tryggja öruggan bú-
seturétt fyrir leigjendur. Með slíku
fyrirkomulagi væri hægt að slá
tvær flugur í einu höggi. Annars
vegar að koma skikki á leigumark-
aðinn hér á landi sem þykir bæði
afar óöruggur kostur og dýr. Ekki
síður myndi slíkur leikur bæta
ásýnd lífeyrissjóðanna til muna að
mati Vilhjálms og vísar hann þar
til gríðarlegra fjárfestinga og lána
sjóðanna til viðskiptalífsins á ár-
unum fyrir efnahagshrunið 2008.