Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Blaðsíða 16
B aldur Guðlaugsson, fyrrver- andi ráðuneytisstjóri, og Ár- mann Þorvaldsson, fyrrver- andi forstjóri Kaupþings í London, sitja í stjórn fyrir- tækisins Leto ehf. sem rekur vefsíð- una Núið.is. Settist Baldur í stjórn félagsins þann 16. júlí síðastliðinn en Ármann hefur verið viðriðinn það síðan í fyrra. Fyrirtækið veitir eins konar áskriftarþjónustu og fær auglýsingatekjur frá ýmsum aðilum gegn því að senda tilboð, afslætti og glaðninga með tölvupósti. Ekki tengdur Leto lengur Samkvæmt skráningu Credit Info er Leto ehf. í eigu þeirra Emils Þórs Vigfússonar og Andrew Thomas Mitchell, manna sem gert hafa garðinn frægan með alþjóðlegri út- gáfu af Núinu, Skoost, sem þeir eiga ásamt fótboltamanninum Eiði Smára Guðjohnsen. Í samtali við DV segist Emil ekki lengur eiga hlut í Leto. „Ég er ekki tengdur Leto leng- ur og veit ekkert hvað er í gangi þar.“ Vildi hann sem minnst tjá sig um málið. Skemmst er að minnast þess að starfsemi þeirra félaga náði miklu flugi skömmu eftir hrun og var Skoost vinsælasta vefsíða á Ís- landi árið 2009, með tæplega þrjár milljónir heimsókna fyrstu vikuna í janúar samkvæmt vefmælingum Modernus. Um Skoost segir Emil að „ákveðin vinna sé í gangi en ekkert sem er fréttnæmt.“ Viðskiptafélagarnir í Fákafeni Leto ehf. var stofnað af þeim Emil Þór Vigfússyni og Kristófer Helga- syni, útvarpsmanni á Bylgjunni og umboðsaðila Taser-byssna á Íslandi, árið 2003. Fyrst hét það Heilsu- umboðið ehf. en árið 2006 fékk það sitt endan lega nafn og ganga Nús- ins hófst. Í fyrra var lögheimili þess fært að Fákafeni 11. Þar er Almenna bókafélagið með aðstöðu en eins og DV hefur áður greint frá er það einmitt í eigu Baldurs Guðlaugsson- ar og Ármanns Þorvaldssonar auk fræðimannsins Hannesar Hólm- steins Gissurarsonar og Kjartans Gunnarssonar, fyrrverandi fram- kvæmdastjóra Sjálfstæðisflokks- ins. Þá er Rannsóknarsetur um ný- sköpun og hagvöxt, hugveita sem berst fyrir markaðsfrelsi og frjáls- hyggju, einnig með aðsetur í sama húsi. Er Jónas Björn Sigurgeirsson starfsmaður hjá bókafélaginu, en jafnframt framkvæmdastjóri rann- sóknarsetursins og Leto ehf. Reynsluboltar Baldur Guðlaugsson og Ármann Þorvaldsson þarf vart að kynna. Sá fyrrnefndi gegndi ýmsum trúnaðar- störfum fyrir Sjálfstæðisflokkinn um árabil og var meðlimur Eimreiðar- hópsins fræga. Hann sat í stjórn Eimskipa, vann sem lögmaður hjá Landsvirkjun og gegndi starfi ráðu- neytisstjóra í fjármálaráðuneytinu fyrir hrun. Í aðdraganda hrunsins seldi hann bréf sín í Landsbankan- um og var síðar dæmdur fyrir inn- herjasvik. Ármann Þorvaldsson starfaði sem forstjóri Kaupþings í London á útrásar árunum. Eftir að bankarnir hrundu skrifaði hann bók þar sem hann lýsti upplifun sinni af efna- hagshamförunum. Störf hans voru til rannsóknar á sínum tíma en Ár- mann er nú laus allra mála og stutt er síðan DV fjallaði um viðskipti þeirra Kjartans Gunnarssonar og Örvars Kjærnested sem keyptu nærri 80 prósenta hlut í Tryggingamiðstöð- inni árið 2012. n 16 Fréttir 2.–6. ágúst 2013 Helgarblað „Þörf á róttækni“ n Sumarháskóli um samfélagsbreytingar R óttæki sumarháskólinn verð- ur haldinn í þriðja sinn dag- ana 14. til 20. ágúst í húsnæði ReykjavíkurAkademíunnar. „Tilgangurinn er að skapa vettvang fyrir umræðu og fræðslu um róttækar samfélagsbreytingar af hvers kyns tagi, hvort sem það varðar spurningar um hinsegin aktív isma og Gay Pride, orkumál Íslands, verka lýðs baráttu eða fræðslu um afleið ingar stríðs og ofbeldis í heiminum,“ segir Nanna Hlín Halldórsdóttir, einn af skipu- leggjendum skólans. Telur hún að Íslendingar þurfi á aukinni róttækni að halda. „Það er þörf á róttækni að því tagi sem stuðlar að raunverulegu jafnrétti fólks á sama tíma og hugað er sjálfbærni auðlinda jarðarinnar. Það er ekki þörf á róttækni sem elur á ójöfnuði og einstaklingshyggju; að sumir einstaklingar, vegna einhverra furðulegra mælikvarða á hæfni, eigi „rétt“ á ríkidæmi sem skaðar plánet- una og annað fólk,“ segir Nanna sem sjálf er í doktorsnámi í heimspeki við Háskóla Íslands. En mætir einhver í kennslustund- ir Róttæka sumarháskólans? Breyt- ir þessi starfsemi einhverju? „Svo sannarlega, þátttaka í Róttæka sum- arháskólanum hefur verið lífleg og góð. Ef ég á að tala út frá eigin skinni þá lærði ég afar mikið af Róttæka sumarháskólanum í fyrra.“ Bendir Nanna á að þá hafi til að mynda öfl- ugar málstofur um femínisma verið á dagskrá sem eflaust hafi átt sinn þátt í þeirri vitundarvakningu sem hef- ur átt sér stað um jafnréttismál á Ís- landi. Spurð að því hvort aðstandendur sumar háskólans vilji kollvarpa því efnahagskerfi sem flestar þjóðir heimsins búa við segir Nanna að hópurinn sé gagnrýninn á kapítalískt hagkerfi. „Ef ég á að svara út frá sjálfri mér þá virðist mér sem að jafnrétti sé hreinlega ómögulegt innan um kap- ítalísk efnahagstengsl þar sem sumir einstaklingar geta hlotið nánast tak- markalausan arð af vinnu annarra. Auk þess erum við að líta fjölmargar hrópandi staðreyndir sem sýna að þetta kerfi sé hreinlega að gera plánet- una óbyggilega.“ Óhætt er að fullyrða að margir þeirra sem flytja fyrirlestra á námskeiðinu geti tekið undir með Nönnu, en þeirra á meðal eru Sólveig Anna Jónsdóttir, Viðar Þorsteinsson og Þorvaldur Þorvaldsson. Þá munu erlendir fræðimenn og aðgerðasinnar halda námskeið auk þess sem boðið verður upp á svokallaðar aðgerðastof- ur sem er ætlað að leiða til aðgerða að Sumarháskólanum loknum. n Jóhann Páll Jóhannsson blaðamaður skrifar johannpall@dv.is „Ég er ekki tengdur Leto lengur og veit ekkert hvað er í gangi þar Baldur og Ármann á bak við Núið.is n Breytingar í stjórn Leto ehf. n Tilboð og afsláttur gegnum fjöldapóst Baldur Guðlaugsson Fyrrverandi ráðu- neytisstjóri fjármálaráðuneytisins. Ármann Þorvaldsson Fyrrverandi for- stjóri Kaupþings í London. Ingvar nýr formaður Ingvar Smári Birgisson var kjörinn nýr formaður Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykja- vík, en kjörið fór fram á aðalfundi Heimdallar á miðvikudagskvöld. Fráfarandi formaður, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir laganemi, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Ingv- ar Smári hlaut 302 atkvæði, eða 52,4 prósent atkvæða. Jórunn Pála hlaut 274 atkvæði, eða 47,6 pró- sent atkvæða. Auð og ógild at- kvæði voru engin. Alls greiddu 576 atkvæði á fundinum. Rík þörf fyrir Leigjendaaðstoð Fyrstu sex mánuði ársins bárust Leigjendaaðstoðinni 736 erindi. Það er svipaður fjöldi og í fyrra, en erindi sem bárust árið 2012 voru alls 1.431 talsins. Neytendasam- tökin reka Leigjendaaðstoðina samkvæmt þjónustusamningi við velferðarráðuneytið. Núgildandi samningur rennur út í lok þessa árs en vonir standa til að hann verði framlengdur enda ljóst að rík þörf er fyrir þjónustuna, að því er fram kemur á vef Neytendasam- takanna. Í samantekt um fyrstu sex mánuði ársins hjá Leigjenda- aðstoðinni kemur fram að lang- flest, eða 600, erindi hafi borist símleiðis. Flestir þeirra sem leita þangað spyrja um leigusamninga sem eru margþættir. „Sem fyrr er mest spurt um atriði sem varða ástand og viðhald eignar, hver eigi að sinna hverju, hvernig best er að kvarta við leigusala og hvaða úr- ræði standi til boða í kjölfar kvört- unar. Þar á eftir koma svo erindi sem snúa að uppsögn samnings, hvaða reglur gildi um uppsagn- ir, hvenær uppsögn þurfi að ber- ast, hvenær hún taki gildi, o.s.frv … þó Leigjendaaðstoðinni sé að- eins ætlað að aðstoða leigjendur er þó nokkuð um að erindi berist frá leigusölum. Í þeim tilvikum er leigusölum veittar almennar upp- lýsingar enda er það einnig í þágu leigjenda að leigusalar séu með- vitaðir um lög og reglur.“ Fyrir utan það að svara erind- um leigjenda heldur Leigjenda- aðstoðin úti sérstakri heimasíðu, leigjendur.is, en þar má finna viðamikinn fróðleik um flest það sem snýr að leigusamningum. Vilja samfélagsbreytingar Í Sumarhá- skólanum verða meðal annars skipulagðar róttækar aðgerðir. Mynd SiGtRyGGuR ARi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.