Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Blaðsíða 18
18 Fréttir 2.–6. ágúst 2013 Helgarblað
„Gríðarlega mikilvægur markaðsgluggi“
n Fríður hópur til Berlínar um helgina til að taka þátt í HM íslenska hestsins
Þ
essi mót eru afar mikilvæg til
kynningar og sem markaðs-
gluggi fyrir íslenska hestinn
og það er búist við 30 þúsund
áhorfendum,“ segir Sindri Sigurgeirs-
son, formaður Bændasamtaka Ís-
lands, sem er einn þeirra sem halda
til Þýskalands um helgina til að vera
viðstaddir setningu heimsmeistara-
móts íslenska hestsins sem að þessu
sinni er haldið í höfuðborginni Berlín
og hefst á sunnudaginn kemur.
Mótið stendur í heila viku en fyrir
utan fríðan hóp keppenda og hesta
sem héðan fara til keppni mæta til
setningarinnar forseti Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, og eiginkona hans,
Dorrit Moussiaeff. Þangað fer einnig
Sigurður Ingi Jóhannsson landbún-
aðarráðherra auk fleira fólks úr ráðu-
neyti hans auk hóps starfsmanna
Bændasamtakanna sem heldur
utan um upprunaættbók íslenskra
hesta undir nafninu World Fengur.
Landslið Íslands er svo skipað alls
21 knapa en keppt er í þremur flokk-
um á mótinu af hálfu Íslendinga; full-
orðinsflokki, unglingaflokki og sérs-
tökum flokki kynbótahrossa.
Að mótinu loknu verða öll keppn-
ishrossin seld enda óheimilt að koma
með þau aftur til landsins. Spurður
út í þá gagnrýni að heimsmeistara-
keppnin sé í raun aðeins sölusýn-
ing þegar upp er staðið vegna þess,
segir Sindri ljóst að keppnin úti sé
vissulega mikilvægur markaðsgluggi
fyrir íslenska hestinn og hrossa-
rækt í landinu. „Gríðarlega mikil-
vægur markaðsgluggi. Þessi mót eru
mjög vel sótt og verða sífellt vinsælli
með árunum og það sýnir sig bæði
þarna úti og ekki síður á stærri hesta-
mannamótum eins og á landsmótum
hér innanlands að áhugi útlendinga
er mikill. Þarna úti er von á 30 þús-
und manns til að horfa á hest sem er
tengdur þessu landi og það skiptir
gríðarlega miklu máli, ekki bara fyrir
landbúnaðinn heldur ekki síður fyrir
ímynd landsins.“
Sindri segir fulla ástæðu fyrir
Bændasamtökin að sækja slíkt mót
enda sjái samtökin meira og minna
um allt ræktunarstarf í greininni og
sjái um alla kynbótadóma svo dæmi
séu tekin. „Það er fyllsta ástæða til að
formaður íslensku Bændasamtak-
anna sæki slíkt mót finnst mér. Ég á
fullt erindi og er ekki að fara að flækj-
ast þarna til að drekka bjór.“
Sjálfur er formaðurinn ekki alveg
afhuga því að taka einn daginn sjálf-
ur þátt í mótinu en hann og fjölskylda
hans eiga hesta og hafa átt lengi.
„Vonandi verður það bara einhvern
tíma síðar. Það verður bara að koma
í ljós.“ n
Þ
að magnast þessi mikla þörf
fyrir að þessu ljúki,“ segir
Erla Bolladóttir, einn sak-
borninga í Guðmundar- og
Geirfinnsmálinu. Hún hef-
ur nú svarað bréfi ríkissaksóknara
um afstöðu sína til upptöku málsins.
En sú afstaða hefur í raun alltaf leg-
ið fyrir og mun Erla berjast fyrir því
að mannorð hennar verði hreinsað.
Þó það verði erfitt fyrir hana að rifja
málið upp einu sinni enn. „Þetta rót
hefur alltaf svo mikið myrkur í för
með sér, í tengslum við minningar og
ljótleikann í málinu,“ útskýrir hún.
„Ég verð þeim degi fegnust þegar
ég þarf ekki að heimsækja þetta mál
aftur. Og hætti að vera í þessum að-
stæðum að þurfa að rifja þetta upp
og vera ranglætis megin.“
Sat í varðhaldi í 239 daga
Erla sat í gæsluvarðhaldi í 239 daga
vegna rannsóknar á Guðmundar-
og Geirfinnsmálinu og var svo
dæmd til þriggja ára fangelsisvistar
fyrir aðild sína. Í skýrslu starfshóps
innanríkisráðuneytisins um Guð-
mundar- og Geirfinnsmálið sem
kom út í mars síðastliðnum kem-
ur fram að það sé hafið yfir allan
skynsamlegan vafa að framburð-
ur hennar hafi verið óáreiðanlegur.
Enda játningarnar þvingaðar fram
með miklu harðræði. Skýrsluhöf-
undar töldu veigamiklar ástæður
fyrir því að málið yrði tekið upp að
nýju.
Vonar að málið verði klárað
Svar Erlu við bréfi ríkissaksóknara
er afdráttarlaust og fyrir liggur
einnig afstaða ættingja Sævars Mar-
inós Ciesielski og Tryggva Rúnars
Leifssonar, en þeir eru báðir látnir.
Ættingjar þeirra hafa falið lögmanni
að gæta hagsmuna þeirra komi til
þess að málið verði tekið upp. Af-
staða Kristjáns Viðars Viðarssonar,
Guðjóns Skarphéðinssonar og Al-
berts Klahn Skaftasonar liggur hins
vegar ekki fyrir.
Erla hefur trú á því að embætti
ríkissaksóknara taki ákvörðun um
að málið verði endurupptekið. „Það
er greinilega ekki útilokað og mér
finnst saksóknari sýna ákveðinn
vilja með því að vera að athuga
þetta. Ég vona bara að það verði
hægt að klára þetta þannig. Það
væri langbest fyrir alla.“
Hefur trú á ríkissaksóknara
Erlu myndi þykja vænt um að
sjá embætti ríkissaksóknara taka
ákvörðun um endurupptöku máls-
ins. „Það yrði ákveðin heilun ef sak-
sóknari sækir um þetta. Þá er greini-
lega komið fólk í þessi embætti sem
sér ástæðu til að taka ábyrgð á því
sem úrskeiðis hefur farið. Ég hef trú
á henni Sigríði, og held að henni sé
alvara,“ segir Erla og á þar við Sigríði
Friðjónsdóttur ríkissaksóknara.
Ef það fer hins vegar svo að sak-
sóknari ákveði að málið verið ekki
endurupptekið af hálfu embætt-
isins, þá ætlar Erla að halda áfram
með það sjálf. En væntanlega óska
eftir því að málskostnaður yrði
greiddur af ríkinu. „Það er ofboðs-
lega sár tilhugsun að ég þurfi að
fara að arka einhvern bónarveg fyr-
ir réttlætinu eftir 38 ár. Ef það kem-
ur til þess að ég þurfi að gera það,
þá harma ég það, en geri það samt.
Það verður bara að gera fleira en
gott þykir.“
Erfitt að bíða eftir nýrri úttekt
Fram kom í fréttum RÚV á miðviku-
dagskvöld að samkvæmt bréfi frá
vararíkissaksóknara ráðist það ekki
eingöngu af afstöðu sakborninga
hvort málið verði tekið upp. En svör
þeirra verða verða höfð til hliðsjón-
ar. Í bréfinu segir jafnframt að ríkis-
saksóknari verði sjálfur að rannsaka
gögn málsins og geti ekki einvörð-
ungu byggt á vinnu starfshóps inn-
anríkisráðherra. Skýrsla starfshóps-
ins muni þó koma að notum við
vinnu ríkissaksóknara.
Að sögn Erlu gæti orðið erfitt að
bíða að bíða eftir einni úttektinni
enn. „En ef þess þarf þá vona ég að
þetta sé síðasti spretturinn,“ segir
Erla að lokum. n
n Erla hefur trú á að ríkissaksóknari taki upp Guðmundar- og Geirfinnsmálið
„Vona að þetta sé
síðasti spretturinn“
Gefst ekki upp Erla vonar
að nú styttist í að mannorð
hennar verði hreinsað.
Mynd: SiGtryGGur Ari
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Sumir fljúga
án þess að
hafa leyfi
Samgöngustofa mun sinna hefð-
bundnu eftirliti með loftflutning-
um um verslunarmannahelgina
líkt og áður. Samkvæmt tilkynn-
ingu frá Samgöngustofu eru þau
mál þó yfirleitt til fyrirmyndar hjá
flugrekstraraðilum og flugmönn-
um. Í tilkynningunni kemur fram
að á undanförnum árum hafi ver-
ið einstaka dæmi um að einka-
flugmenn sem ekki hafi flugrekstr-
arleyfi hafi flogið með farþega
gegn greiðslu. Til að stunda slíka
starfsemi þarf hins vegar flug-
rekstrarleyfi í ljósi þess að ítarlegri
öryggiskröfur gilda um slíka fólks-
flutninga en í einkaflugi.
Við eftirlit er áhersla lögð á
að flugmenn tryggi að loftför séu
starfrækt eðlilega. Markmiðið er
að flug gangi snurðulaust fyrir sig
og að fyllsta öryggis sé gætt.
Nýr framkvæmda
stjóri borgar
stjórnarflokksins
Magnús Sigurbjörnsson hefur ver-
ið ráðinn framkvæmdastjóri borg-
arstjórnarflokks Sjálfstæðisflokks-
ins. Tekur hann við af Þóreyju
Vilhjálmsdóttur sem nú er að-
stoðarmaður innanríkisráðherra.
Magnús er 26 ára Reykvíking-
ur. Hann lauk stúdentsprófi frá
Verzlunarskóla Íslands og er með
B.Sc.-gráðu í tölvunarfræði frá
Háskólanum í Reykjavík. Undan-
farið ár hefur Magnús starfað hjá
Sjálfstæðisflokknum með sérstaka
áherslu á vefstjórnun og sam-
félagsmiðla auk þess sem hann
hefur verið framkvæmdastjóri
austurríska tölfræðifyrirtækisins
RunningBall hér á Íslandi frá ár-
inu 2007.
Magnús hefur verið virkur í fé-
lagsmálum og var meðal annars
formaður Félags tölvunarfræði-
nema í Háskólanum í Reykjavík.
Fíkniefni um
borð í Herjólfi
Við eftirlit lögreglu um borði
í Herjólfi sem var að koma frá
Landeyjahöfn til Vestmanneyja á
miðvikudagskvöld fundust ætl-
uð fíkniefni í farangri manns
um tvítugt. Um var að ræða
maríjúana, alls um 25 grömm,
sem maðurinn viðurkenndi að
eiga og kvaðst ætla til einkanota.
Maðurinn var frjáls ferða sinna að
skýrslutöku lokinni og telst málið
að mestu upplýst. Maðurinn hefur
ekki áður komið við sögu lögreglu
vegna fíkniefnamisferlis.
HM íslenska hestsins Sindri Sigurgeirs-
son, formaður Bændasamtaka Íslands, er
einn þeirra sem halda til Þýskalands.