Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Blaðsíða 20
20 Fréttir 2.–6. ágúst 2013 Helgarblað Mikið verk óunnið n 512 mál komið á borð sérstaks saksóknara n Hátt sakfellingarhlutfall F imm hundruð og tólf mál hafa komið inn á borð sér­ staks saksóknara síðan emb­ ættinu var komið á fót þann 31. mars árið 2009. Markmið embættisins var ákvarðað með lög­ um um sérstakan saksóknara, sem tóku gildi þann 11. desember 2008. Í 1. gr. laganna segir að embættið skuli rannsaka grun um refsiverða hátt­ semi sem tengst hefur starfsemi fjár­ málafyrirtækja og þeirra sem átt hafa hluti í þeim fyrirtækjum eða farið með atkvæðisrétt í þeim, sömuleiðis grun um refsiverða háttsemi stjórn­ enda, ráðgjafa og starfsmanna fjár­ málafyrirtækja og þeirra annarra sem komið hafa að starfsemi fyrir­ tækjanna. Árangur Miklar væntingar voru gerðar til embættisins. Nú, rúmlega fjór­ um árum síðar, liggur árangurinn að hluta til fyrir. Embættið hefur sent alls 121 mál í ákærumeðferð, og ákæra hefur verið gefin út í 96 málum. „Ef við tökum hrunmálin út fyrir sviga þá eru ákærurnar alls 13. Einstaklingarnir sem hafa verið ákærðir í þessum málum eru 45 tals­ ins. Þarna eru allir helstu stjórnend­ ur þessara þriggja stærstu banka og Byrs líka. Þannig að það er komin nokkuð góð dekkun á þetta,“ segir Ólafur Þór Hauksson, sérstakur sak­ sóknari. Lista yfir hrunmálin, eins og þau mál eru skilgreind af emb­ ættinu, má sjá hér með frétt. Inntur svara við því hversu margar ákærur hafi endað með sakfellingu segir Ólafur: „Ætli það hafi ekki verið um 95 prósenta sakfellingarhlutfall. En öll hin svokölluðu hrunmál, sem við höfum ákært í, hafa endað með sak­ fellingu. En það er erfitt að tala um eiginleg málalok fyrr en að hæsta­ réttardómur er fallinn.“ Enn er töluverður fjöldi mála í rannsókn, eða 134 mál. 75 þessara mála eru umfangsmikil, að mati embættisins, og 59 umfangsminni. „Slatti af þessum málum sem eru í rannsókn eru býsna vel á veg kom­ in. Þannig að það mun fjölga nokk­ uð vel í þessum málum sem eru á ákærustigi,“ segir Ólafur. Þá eru margar kærur óyfirfarnar. 31 mál bíða rannsóknar og 20 mál eru í svokallaðri sakarefnisgrein­ ingu. Það þýðir að málin eru kom­ in í meðferð saksóknarfulltrúa sem vinnur að sakargreiningu málsins. „Þeim hefur reyndar fækkað aðeins. Af þeim 31 eru 8 komin inn í rann­ sókn,“ segir Ólafur en frétt þessi byggir á tölfræðiminnisblaði um verkefnastöðu sérstaks saksóknara, eins og hún var 3. júní 2013. Loks hefur 206 málum verið lok­ ið án ákærumeðferða. Af þeim mál­ um hefur 59 málum verið vísað frá, rannsókn hætti í 71 máli, 13 mál hafa verið sameinuð öðrum, 42 mál hafa verið send öðru embætti til með­ ferðar og 21 mál fellur undir flokkinn „verkefni lokið“. Undir síðast nefnda flokkinn falla mál sem varða rann­ sóknaraðstoð sérstaks saksóknara við önnur embætti eða stofnanir og einnig meðferð réttarbeiðna sem berast frá erlendum rannsóknar­ aðilum. Erfitt að meta árangur Ólafur bendir á að erfitt sé að leggja mat á árangur embættisins á þessu stigi, þar eð mörg mál eru enn óút­ kljáð. Aðspurður hvort meðferð þeirra gangi of hægt fyrir sig segir Ólafur: „Menn eru að tefja og þæfa málin alveg. Vegna þess að málin eru umfangsmikil þá fá dómstólarn­ ir mjög langar greinargerðir frá verj­ endunum. Hæstiréttur hefur staðfest rétt þeirra til að gera það, þannig að það er voðalega lítið við því að segja. Af þessu leiðir að málsmeðferðin í héraði tekur mjög langan tíma.“ Ólafur er þó stoltur af því verki sem unnið hefur verið, en ítrekar að ekki megi slá slöku við. „Ég held að ef þessi tölfræði er skoðuð, þá megi alveg segja að okkur miði ágætlega. En það þarf að halda vel á málum til þess að sett markmið náist. Það er það sem við einblínum nú á að gera,“ segir Ólafur sem vonast til að öllum málum verði lokið í lok árs 2014. „Markmiðið er að ljúka öllu þessu vinnumagni fyrir árslok 2014. Það var það markmið sem sett var í maí 2010.“ Óbeysinn lagagrundvöllur Ein mikilvægasta meginregla ís­ lensks réttar, og hornsteinn réttar­ ríkisins, er að lög séu framvirk en ekki afturvirk. Almennu hegn­ ingarlögin eru að stofni til frá ár­ inu 1940 og ljóst var frá upphafi að íslenskt regluverk myndi reynast óbeysið gagnvart flókinni viðskipta­ starfsemi uppgangsáranna. Í sam­ ræmi við nefnda meginreglu þurfti sérstakur saksóknari að notast við þær réttarheimildir sem í gildi voru þegar meint brot voru framin. Hon­ um varð fljótt ljóst að þær myndu ekki ná yfir alla þá siðferðilega ámælisverðu háttsemi sem fram­ in var á þeim tíma. „Það er spurn­ ing að hversu miklu marki þau [al­ mennu hegningarlögin, innsk. blm.] geta gripið á háttsemi sem er í gangi í nútímasamfélagi 21. aldarinnar. Það er stundum svolítið snúið að finna út úr því hvort um brot sé að ræða. Og í einhverjum tilvikum hefur það gerst að lagaheimild hefur ekki þótt fullnægjandi þó að háttsemin hafi verið ósiðleg. En við söfnum í sarp­ inn, þessari síðast nefndu reynslu líka. Og þegar um hægist byrja menn kannski að fara yfir þetta; að hversu miklu leyti er hægt að draga lærdóm af reynslunni og notfæra sér þann lærdóm til að þétta lagagrundvöll­ inn.“ Engin eftirsjá Þegar embætti sérstaks saksóknara var upphaflega auglýst, síðla árs 2008, sótti enginn um starfið. Á end­ anum fór það þannig að þáverandi dómsmálaráðherra, Björn Bjarna­ son, skipaði lítt þekktan sýslumann á Akranesi í embættið þann 13. jan­ úar 2009. Ólafur vissi að verkefnið yrði krefjandi, en kveðst ekki hafa getað gert sér í hugarlund hversu umfangsmikið og erfitt þá átti eftir að verða. Þrátt fyrir það segist hann ekki sjá eftir að hafa tekið starfið að sér. „Ég held að það sé ekki al­ veg rétt að nota orðið eftirsjá, en ég get þó sagt það að það hafi ekki ver­ ið fyrirséð hvað þetta var í raun og veru mikið og stórt og gríðarlegt að umfangi. Að sama skapi er ég mjög ákveðinn í því að eftir allan þennan tíma og alla þessa vinnu verði þetta allt saman leitt til lykta.“ En erfiðleikarnir felast ekki einungis í því að komast til botns í málum sem varða flóknar við­ skiptafléttur, heldur einnig í því að þurfa að kljást við allra hæfustu lög­ menn landsins í réttarsalnum. Sem eðlilegt er beita þeir öllum laganna brögðum til að fá umbjóðendur sína sýknaða, en þeir hafa stundum ver­ ið sakaðir um óbilgjarna framgöngu. „Ég held að það hafi verið fyrirséð. Auðvitað reyna þeir að vinna eins vel og þeir geta í þágu sinna skjól­ stæðinga og það felur í sér að beita sér til hins ítrasta. Á meðan að það er innan ramma laganna er ekkert hægt að segja við því,“ segir Ólafur en bendir jafnframt á að fjölmörg mál bíði enn umfjöllunar dómstóla. „Þessi slagur er mikið til eftir líka. Þeir eru náttúrulega færir og klár­ ir verjendur sem verja sína skjól­ stæðinga með kjafti og klóm; þannig er okkar starfsumhverfi. Á móti þurf­ um við að vera nógu öflugir líka. Við erum með hæft og harðsnúið lið, og ég held að við höfum allt sem þarf til þess að knýja fram réttlætið.“ Tekur allan tímann Á þessum rúmlega fjórum árum sem Ólafur hefur gegnt embætti sérstaks saksóknara, hefur hann lítið getað sinnt fjölskyldu sinni og hugðar­ efnum. Skrifstofan hefur orðið hans heimili, og mikil yfirvinna regla frekar en undantekning. „Þetta hef­ ur vissulega bæði komið niður á fjölskyldulífi og áhugamálum; og í raun öllu. Maður er bara þetta, og ekkert annað. Þetta tekur upp allan minn tíma,“ segir Ólafur sem hefur þó aldrei gengið svo langt að sofa á skrifstofunni. „Nei, ég hef reynt að halda í heiðri þá reglu að sofa hjá konunni minni.“ n Baldur Eiríksson blaðamaður skrifar baldure@dv.is Hrun-málin n Exeter-málið n Mál Baldurs Guðlaugssonar n Vafningsmálið n Innherjasvik í Glitni n Innherjasvik í Landsbankanum n Fjárdráttur Hauks Þórs Haraldssonar n Fjárdráttur í einkab.þjónustu Kaupþings n Markaðsmisnotkun í Al-Thani málinu n Markaðsmisnotkun Landsbankans n Mál eignastýringar Glitnis n Umboðssvik í Aurum máli n Ólögmæt hlutafjárhækkun Exista n Mál Wernersbræðra í Milestone „Ég held að ef þessi tölfræði er skoðuð, þá megi alveg segja að okkur miði ágætlega. Fjögur erfið ár Ólafur er ánægður með árangur embættisins, en segir langa vinnu- daga hafa komið niður á fjölskyldulífinu og áhugamálunum. Mynd Mynd RÓbERT REynisson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.