Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Qupperneq 40

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Qupperneq 40
12 2.–6. ágúst 2013 Verslunarmannahelgin Notalegheit og náttúrufegurð n Trékyllisvík er valkostur fyrir þá sem langar ekki á útihátíð S umir elska útihátíðir, aðrir elska ekki útihátíðir. Svona er hægt að skipta Íslendingum í hópa eftir viðhorfi þeirra til útihá- tíða. Hvað sem því líður hlýtur öllum Íslendingum að vera hollt að skreppa í ferðalög eitthvert út á land endr- um og eins. Þannig má láta amstur hvunndagsins lönd og leið og kom- ast í samband við náttúruna eða öðl- ast innri ró. Ef þú elskar ekki útihátíðir en vilt samt skilja við skarkala borgarlífsins getur verið að Trékyllisvík á Strönd- um sé einmitt staðurinn sem þú ættir að heimsækja um helgina. Trékyllis- vík er byggðarkjarni í Árneshreppi sem er fámennasta sveitarfélag lands- ins með um 60 íbúa. „Fólki finnst alltaf gaman að sjá selina hérna í fjörunni og upplifa lífið með fuglunum. Og ef þú ert göngumanneskja eru alveg svaka- lega fallegar gönguleiðir í allar átt- ir og magnað útsýni af öllum fjöll- unum hérna,“ segir Jóhanna Ósk Kristjánsdóttir, bóndakona í Árnesi II. „Síðan er sundlaugin okkar al- gjörlega einstök, það er mikil upp- lifun að fara þangað,“ segir Jóhanna um Krossneslaug. Laugin er í fjöru- borðinu á Krossnesi og rennur í hana vatn úr heitum hverum í ná- grenninu. Farsímasamband er lítið á svæð- inu en það er þó gott við sundlaugina á Krossnesi. Á svæðinu er hvorki hraðbanki né áfengisverslun en í Norðurfirði, sem er afar skammt frá Trékyllisvík, er Kaupfélag Steingríms- fjarðar með útibú. Þeir sem vilja ralla ættu einnig að finna eitthvað við sitt hæfi á Tré- kyllisvík um verslunarmannahelgina. „Það er náttúrulega hið hefðbundna, árlega ball hérna í Víkinni á laugar- dagskvöldið. Stuðhljómsveitin Blek og byttur mætir eins og venjulega og tryllir lýðinn,“ segir Jóhanna. „Það er alltaf alveg troðfullt á ballinu og þetta er hápunkturinn á hverju sumri hérna.“ Daginn fyrir ballið er síðan upphitun á Kaffi Norðurfirði venju samkvæmt og nefnist viðburðurinn Skrall fyrir ball. Þá hefur Ungmennafélagið Leifur heppni ákveðið að standa fyrir „litlu og krúttlegu Mýrarboltamóti“ sem verður með sama sniði og mótið á Ísa- firði. n olafurk@dv.is Hátíð fyrir þá sem vilja vera heima n Innipúkinn verður inni- og útihátíð n Hátíðin haldin á Faktorý I nnipúkinn verður haldinn í tólfta sinn í ár og í fyrsta og eina sinn á Faktorý, en sem kunn- ugt er stendur til að loka staðn- um í ágúst. „Hann verður með svolítið óvenjulegu sniði í ár,“ segir Diljá Ámundadóttir, en hún og Stein- þór Helgi Arnsteinsson fara með skipulag hátíðarinnar. „Þetta er há- tíð fyrir þá sem vilja bara vera heima og samt gera eitthvað skemmtilegt þessa miklu ferðamannahelgi,“ segir Diljá í samtali við DV. Innipúkinn var fyrst haldinn árið 2002 og hafa margar af fremstu hljómsveitum og tónlistarmönnum komið fram á henni í gegnum tíðina. Notalegt í Hjartagarðinum „Okkur fannst tilvalið að nota þann frábæra tónleikastað til að halda hátíðina,“ segir hún um Faktorý og bendir á að veðurspáin lofi afar góðu í Reykjavík. Segja má að Innipúkinn verði að þessu sinni inni- og útihátíð þar sem hátíðin verður að hluta til í Hjartagarðinum í Reykjavík. Hægt er að opna út frá Faktorý og yfir í garðinn og verður hluti dagskrár- innar þar. „Þar verðum við með hús- gögn og teppi og þannig svo að þeir geti fengið smá „útihátíðarstemn- ingu“ sem vilja blanda þessu að- eins,“ segir Diljá. Endurvekja Rykkrokk Dagskrá Innipúkans er fjölbreytt að þessu sinni, en meðal annars má nefna að Botnleðja, Valdimar, Steed Lord, Geiri Sæm og Agent Fresco koma fram. Á laugardagskvöld verður Rykkrokk-hátíðin endurvakin í Fellagörðum. Rykkrokk var síðast haldið 1995. Frítt er inn á Rykkrokk og allir innipúkar eru hvattir til að koma upp í Fellagarða. Allar hljóm- sveitirnar sem spila þar hafa sérstaka tengingu við Breiðholtið en þar koma meðal annars fram Grísalappalísa, Samaris og Prins Póló. Innipúkinn hefst svo í hádeginu á föstudag með Dancebeat-hópnum. Miða á Inni- púkann má finna á midi.is. Minnipúki Á laugardeginum verður svo flóa- markaður í portinu fyrir framan Faktorý. „Það verður bæði fólk að hreinsa úr geymslunum en líka kaffi og límonaði,“ segir Diljá. Á sunnu- dag verður Minnipúkinn, sem er fjöl- skylduvæn hátíð. Hún verður haldin á Kex Hostel, en eiginlegri tónleika- hátíð verður þá lokið. „Við ætlum að slá upp fjölskylduballi og grillveislu í Vitagarði við Kex og bendum allri fjölskyldunni á að mæta,“ segir Diljá en aðgangur er ókeypis. Ef veðrið lætur til sín taka með rigningu eða óveðri verður Minnipúkinn fluttur inn á Kex. n astasigrun@dv.is Allt í bland Breiðholtið skipar sérstakan sess á Innipúkanum á Rykkrokki, en á Faktorý spilar til dæmis Botnleðja. 12 ára Þetta er í tólfta sinn sem Innipúkinn er haldinn. Besta veðrið fyrir sunnan „Það er alveg ljóst að þeir verða heppnastir á Suður- og Vesturlandi með veðrið alla helgina,“ segir Sig- urður Þ. Ragnarsson veðurfrétta- maður. „Það er ekki að sjá annað en að það verði sól og blíða,“ bæt- ir hann við. Ef það verður algjört logn má þó búast við einhverjum þokuslæðingi á mánudaginn. Gestir á Þjóðhátíð geta ekki annað en verið sáttir því þar gæti hitinn náð 14 til 15 stigum, en að sögn Sigurðar verður hitinn nú ekki mikið hærri á því svæði. „Inn til landsins erum við að sjá hita sem gæti farið upp í 18 stig.“ Sigurður bendir nátthröfnum á að í svona bjartvirði gæti þó orðið svalt að næturlagi. „Það er betra að hafa í farangrinum eitthvað til að skella sér í svo maður verði bráð- myndarlegur að næturlagi. Það er ekkert gaman að kúra skjálfandi, þá líst engum á mann.“ Þeir á Norður- og Austurlandi verða hins vegar ekki alveg jafn heppnir með veðrið, en búast má við að það verði bæði svalt í veðri á því svæði og vindasamt allra aust- ast. Þá er líka úrkoma í kortunum. „Hátíðin Ein með öllu á Akureyri verður líklega ein með öllu,“ segir Sigurður hlæjandi. Og á þá við veðurfarslega séð. „Þeir fá þó lík- lega ekki mikið af sól á því svæði og það verður kalt á fjöllum.“ Undrin í Trékyllisvík Sagt er að galdraöld hafi hafist á Íslandi í Trékyllisvík árið 1654. Þá voru þrír menn brenndir þar á báli fyrir galdra innst inni í klettagjá sem liggur upp frá sjónum í Trékyllisvík og er kölluð Kista. Fossaganga Ferðafélagsins Ferðafélag Íslands stendur fyrir svokakallaðri Fossagöngu um verslunarmannahelgina, 3. til 5. ágúst. Í göngunni verða skoðað- ar náttúruperlur í Þjórsárdal og í óbyggðum á Gnúpverjaafrétti, stórfossar í Þjórsá og þverám hennar. Um er að ræða einstak- lega fagurt svæði sem fáum er kunnugt. Gangan er merkt með erfið- leikamerkinu tveir skór á heima- síðu Ferðafélagsins og ætti því að henta þeim sem lítillega eru vanir fjallgöngu. Fararstjórar eru Björg Eva Er- lendsdóttir og Sigþrúður Jóns- dóttir. Brottför er frá skrifstofu FÍ í Mörkinni 6, klukkan 8.00. Þátttökugjald í Fossagöngu er 34 þúsund krónur. Innifalið í því eru tvær kvöldmáltíðir, akstur og fararstjórn.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.