Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Side 42
14 2.–6. ágúst 2013 Verslunarmannahelgin
Eitthvað fyrir alla um helgina
n Hátíðir í öllum landshornum n Fjölskyldustemning á hávegum höfð
Þ
að ættu allir að geta fundið
eitthvað að gera við sitt
hæfi um verslunarmanna
helgina, en fjölmargar há
tíðir fara fram í flestum
landshornum. Stærstu hátíðirnar
eru án efa Þjóðhátíð í Vestmanna
eyjum og Ein með öllu á Akureyri.
Þá hefur Mýrarboltinn á Ísafirði
einnig verið að sækja í sig veðrið
og þar verður örugglega margt um
manninn.
Unglingalandsmót UMFÍ sem í
ár verður haldið á Höfn í Hornafirði
verður eflaust líka fjölmennt líkt og
undanfarin ár.
Þeir sem leggja ekki í svona stór
ar hátíðir þurfa þó ekki að örvænta
því margar minni hátíðir eru einnig
í boði.
Vímulausar hátíðir
Að minnsta kosti tvær hátíðir eru
haldnar um helgina þar sem lögð
er áhersla á skemmtun án áfeng
is. Það eru Sæludagar í Vatnaskógi
og Edrúhátíð SÁÁ í Laugalandi. Á
báðum stöðum er boðið upp á fjöl
breytta dagskrá fyrir alla aldurshópa.
Dagskráin á Edrúhátíðinni er bæði
af andlegum og líkamalegum toga.
Þar er meðal annars boðið upp á 12
spora fundi, hugleiðslu, jóga, tón
leika og listasmiðjur. Á Sæludögum
er einnig af mörgu að taka. En mark
mið hátíðarinnar er að skapa heil
brigða og eftirsóknarverða hátíð sem
höfðar til allra aldurshópa.
Elsta hátíðin
Þjóðhátíð í Eyjum er sú hátíð sem á
sér hvað lengsta sögu, en hún er arf
ur frá árinu 1874. Reynt hefur verið
að halda í gamlar hefðir í kringum
hátíðina og margir sækja aftur og aft
ur í það sem þeir þekkja. Þjóðhátíð
verður sett á föstudag klukkan 14.30
og í kjölfarið verður nánast samfelld
dagskrá fram á mánudagsmorgun.
Hápunkturinn er án nokkurs vafa
brekkusöngurinn á sunnudags
kvöldinu og blysin sem tendruð eru
í kjölfarið. Eitt blys fyrir hverja Þjóð
hátíð sem haldin hefur verið.
Stemning á Norðurlandi
Hátíðin Ein með öllu á Akureyri var
sett á fimmtudag og mun standa
yfir alla helgina. Hápunkturinn er
lokatónleikar og flugeldasýning á
sunnudagskvöldinu.
Síldarævintýrið á Siglufirði hefur
verið að festa sig í sessi sem menn
ingarleg fjölskylduhátíð um versl
unarmannahelgina. En þar er
lögð mikil áhersla á að listamenn í
heimabyggð fái að láta ljós sitt skína.
Siglfirðingar eru búnir að vera að
hita upp fyrir hátíðina í heila viku
með Síldardögum, svo það má ætla
að mikið fjör verði sé í bænum.
Stuð í borginni
Miðbæjarrottur og latte lepjandi
lopatreflar sem geta ekki hugsað sér
að fara út á land geta fengið ýmis
legt fyrir sinn snúð í höfuðborginni.
Tónlistarhátíðin Innipúkinn fer
fram í tólfta skiptið nú um verslun
armannahelgina. Aðaldagskráin
verður á skemmtistaðnum Faktorý,
en þetta er næstsíðasta tónleika
helgi staðarins sem lokað verður um
miðjan ágúst. Tónlistarmenn sem
koma fram eru meðal annars Steed
Lord, Botnleðja og Valdimar.
Steinsnar frá Reykjavík
Fyrir þá sem vilja skreppa í fjöl
skyldustemningu skammt frá höfuð
borginni eru Færeyskir fjölskyldu
dagar á Stokkseyri skemmtilegur
valkostur. Þar verður boðið upp á
ýmsa afþreyingu alla helgina með
færeysku ívafi. Aðgangur er ókeypis
á fjölda atburða.
Ýmislegt verður einnig um að
vera á Flúðum en hápunktur helg
arinnar er án vafa traktorstorfæran
sem fer fram á laugardag klukkan
14.00. n solrun@dv.is
1 Ein með öllu
Akureyri
Vinir Akureyrar standa fyrir hátíðinni í
samvinnu við Akureyrarbæ. Lögð er
áhersla að skapa skemmtilega
fjölskyldustemningu í bænum þar sem
bæjarbúar og gestir gleðjast saman.
Fastir dagskrárliðir eru meðal annars
Fimmtudagsfílingur, Kirkjutröppuhlaup-
ið og góðgerðauppboð á möffinskökum.
2 Færeyskir
dagar á Stokkseyri
Hátíðin verður haldin dagana 1.–5.
ágúst. Eins og nafnið gefur til kynna
svífur andi Færeyja yfir vötnum og verð-
ur meðal annars boðið upp á færeyska
tónlist, sagðar sögur frá Færeyjum og
smökkun á skerpukjöti. Ókeypis er á
fjölda viðburða.
3 Edrúhátíð SÁÁ
í Laugalandi
Vímulaus hátíð SÁÁ fer nú fram í annað
skiptið. Dagskráin er af líkamlegum
og andlegum toga en á svæðinu fara
meðal annars fram 12 spora fundir og
hugleiðsla. Þá verður einnig boðið upp á
dans og tónleika.
4 Fjölskylduhelgi
á Úlfljótsvatni
Fjölskyldumiðuð dagskrá er í boði á
Úlfljótsvatni um helgina. Meðal annars
er boðið upp á báta, klifurturn og
vatnasafarí. Sérstaklega er tekið fram
að kyrrð eigi að vera komin á tjaldsvæð-
ið um miðnætti og ölvun er ekki leyfileg.
5 Innipúkinn
Reykjavík
Boðið verður upp á veglega tónlistar-
veislu á Innipúkanum sem haldinn er
í tólfta skipti. Tónleikahald fer fram á
föstudags- og laugardagskvöld. Ýmis-
legt annað verður til gamans gert, líkt
og vatnsbyssustríð í Hjartagarðinum.
6 Mýrarboltinn
Ísafirði
Hörð keppni fer fram í Mýrarbolta á
Ísafirði. Vinahópar taka sig gjarnan
saman og mynda lið, en einstaklingar
geta einnig tekið þátt með svokölluðum
skrapliðum. 18 ára aldurstakmark er í
Mýrarboltann. Fyrir partíþyrsta er svo
boðið upp á böll á kvöldin.
7 Neistaflug
Neskaupstað
Á Neistaflugi er lögð áhersla á að
fjölskyldan skemmti sér saman. Hátíðin
er haldin í 21. skipti í ár og er í stanslausri
þróun. Fjölbreytt skemmtun er í boði
fyrir alla fjölskylduna.
8 Sæludagar í
Vatnaskógi
Skógarmenn KFUM ásamt KFUM og
KFUK á Íslandi standa fyrir fjölskyldu-
hátíðinni Sæludögum. Um er að ræða
áhugaverðan kost fyrir þá sem kjósa að
skemmta sér án vímuefna.
9 Síldarævintýri
á Siglufirði
Siglfirðingar bjóða upp á Síldarævintýri
um verslunarmannahelgina. Þar er
lögð sérstök áhersla á að listamenn í
heimabyggð fái að njóta sín. Bærinn fær
þó einnig til liðs við sig utanbæjarlista-
menn sem leggja sitt af mörkum til að
halda uppi stemningu.
10 Þjóðhátíð í
Vestmannaeyjum
Þjóðhátíð í Eyjum er nú haldin í 139.
skipti og hefur fest sig í sessi sem elsta
útihátíð landsins. Fjölbreyttur hópur
sækir Eyjamenn heim um helgina og
nýtur fjölbreyttrar dagskrár sem boðið
er upp á.
12 Traktors-
torfæra Flúðum
Dagskrá verður alla helgina á Flúðum og
þær gleðifréttir hafa borist að traktors-
torfæran verði á sínum stað.
13 Kotmót í
Fljótshlíð
Kotmót Hvítasunnusafnaðarins verður
haldið í Kirkjulækjarkoti í Fljótshlíð um
helgina. Um er að ræða kristilega hátíð þar
sem lögð verður áhersla á bænir, lofgjörð og
haldnar verða samkomur. Ýmislegt fleira
verður í boði, eins og varðeldur og tónleikar.
11 Unglingalandsmót UMFÍ
á Hornafirði
Unglingalandsmótið er haldið í annað sinn á Hornafirði í glæsilegum íþróttamannvirkj-
um á staðnum. Á daginn er keppt í hinum ýmsu íþróttagreinum en á kvöldin er boðið upp
á kvöldvökur og ýmis skemmtiatriði.
32
10
4
12
13
11
8
9
7
6
13
1
5