Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Qupperneq 45
Fólk 29Helgarblað 2.–6. ágúst 2013
ertu bara í rútínuvinnu í mjög óeðli
legu umhverfi. Það hefur áhrif á fólk.
Þetta er náttúrulega ekki með nokkrum
hætti eðlilegt líf. Fólk sem er hérna of
lengi á það til að draga sig svolítið mikið
inn í sjálft sig. Því finnst ekki lengur taka
því að kynnast neinum af því að fólk er
alltaf að koma og fara. Þannig að það er
mjög mikið eitt með sjálfu sér. Og svo
fer það heim og lifir á sex vikna fresti.
Mér finnst fólk verða svolítið skrítið af
þessu.“
Þannig að þú munt ekki vera hérna
í sex til tíu ár?
„Nei“ segir Ingibjörg og hlær. „Ég
verð alla vega fram í nóvember og þá
eru komin tvö ár. Svo sé ég til hvað verð
ur eftir það. Það togast svolítið á í mér.
Annars vegar finnst mér spennandi að
vera hérna fram yfir forsetakosningarn
ar í apríl. Af því að þetta eru auðvitað
merkilegir tímar. En hins vegar – og
mörgum finnst skrítið þegar ég segi það
sem Íslendingur – finnst mér veturnir
hérna erfiðir. Af því að það er kalt hérna
og það snjóar og það er alvöru vetur en
það er svo mikil drulla. Heima, þá er
birta af snjó, tungli og stjörnum en hér
er einhvern veginn bara ryk og drulla
og svona grámygla.“
Þingkonur verða fyrir árásum
UN Women sinnir ýmsum verkefnum í
Afganistan, en stofnunin vinnur meðal
annars að því að byggja upp þekkingu
inni í stjórnkerfinu á því hvernig eigi
að vinna að jafnréttismálum. Þá styð
ur stofnunin meðal annars við bakið á
tíu kvennaathvörfum. Í tíð Ingibjargar
hefur meðal annars verið unnið að því
að hjálpa hagstofunni í Afganistan við
að safna upplýsingum sem eru kynja
aðgreinanlegar. „Þannig að það sé hægt
að skoða alla tölfræði út frá konum og
körlum. Slíkar upplýsingar voru hvergi
til staðar. Þannig að við erum að byggja
upp þá þekkingu líka.“
Ingibjörg segir UN Women líka
leggja mikla áherslu á að efla konur
pólitískt. „Við reynum að tryggja það
að konur eigi aðkomu að ákvarð
anatöku. Þar spila kosningar auðvit
að mjög stórt hlutverk en það eru for
seta og sveitastjórnarkosningar hérna
á næsta ári og þingkosningar árið 2015.
Við munum, í þeim kosningum, reyna
að tryggja að konur geti kosið en það
er langt í frá að þær geti það alltaf.“ Þá
skipti líka miklu máli að konur séu í
framboði og að kvenréttindi séu á dag
skrá í kosningabaráttunni.
„Við rekum meðal annars miðstöð
inni í þinginu til þess að styðja við bakið
á þingkonum í þeirra starfi. Þar kenn
um við þeim að skoða lög út frá þessu
kynjasjónarhorni og aðstoðum þær
eftir bestu getu.“
Ingibjörg segir að konur eigi oft
erfitt uppdráttar á afganska þinginu.
„Já, þær verða fyrir miklum árásum.
Það er ráðist á þær með svívirðingum í
þingsalnum og það setur þær í varnar
stöðu. Þær þurfa heilmikinn stuðning
og við þurfum að gera meira en við höf
um gert.“
Menning refsileysis
Hún segir stjórnmálaástandið í landinu
ekki auðvelda konum að koma nýjar
inn á þing. Menning refsileysis hafi
fengið að ríkja í landinu í þau þrjátíu ár
sem stríð hefur geisað.
„Það er eitt sem er svo sérkennilegt
hérna. Mannslífið skiptir svo litlu máli.
Maður er alltaf að heyra um einhvern
ágreining sem átti sér stað þar sem
menn drápu bara þann sem þeir voru
að deila við. Eins og það sé bara þægi
legasta útleiðin að losa sig við þennan
andskota af því að hann er eitthvað að
angra mann.“
Hún segir þetta tengjast því að fjöl
margir stríðsherranna frá tímum Muja
heedin borgarastríðsins gangi enn þá
um götur og sitji meðal annars á þingi.
„Allt eru þetta menn sem eru með
blóðugar hendur, sem frömdu fjöld
ann allan af stríðsglæpum sem ættu
heima fyrir alþjóðadómstólum. Þeir
ganga enn þá hér um og eru áhrifa
menn í samfélaginu. Sumir eru nán
ustu stuðningsmenn Karzai og aðr
ir eru náttúrulega eins og hverjir aðrir
málaliðar og fylgja þeim sem völdin
hafa hverju sinni. Þannig að ef þeim
leyfist þetta, hvers vegna skyldi þá ekki
hinum leyfast það líka? Af hverju skyldi
þá einhverjum öðrum vera refsað fyrir
nauðganir eða gripdeildir eða hvað það
nú er?“
Verkefninu að ljúka
Ingibjörg segir að skrifstofa eins og UN
Women þurfi réttar manneskjur á rétt
um tíma, og að nú líði henni svolítið
eins og hennar tíma hér sé að ljúka.
„Ég vann í því að koma skrifstofunni
hér í Afganistan af stað aftur eftir það
sem á undan hafði gengið.“ Hún telur
að sú reynsla sem hún hafði, meðal
annars úr kvennabaráttunni á Íslandi
og úr stjórnmálum, hafi verið henni
afar dýrmæt hér. „Ég held að það að ég
hafi pólitískan bakgrunn og pólitíska
reynslu hafi skipt miklu máli í þessu
umhverfi hér. Og þá einmitt þegar
kom að því að byggja upp orðspor UN
Women hér í Afganistan.“
En Ingibjörg segist ekki vera UN
manneskja: „Ég hef ekki fengið þjálf
un og reynslu í Sameinuðu þjóða kerf
inu. Einhver svoleiðis manneskja væri
miklu betri en ég til þess að rúlla þessu
batteríi áfram upp frá þessum tíma
punkti,“ segir Ingibjörg. „Við erum
Vaknaði við sprengingar í Kabúl
Ingibjörg Sólrún Ingibjörg
vinnur sex daga vikunnar en ver-
kefni hennar snúa að því að bæta
stöðu kvenna í Afganistan.
MyndIr: Jón BJarkI
„Ég hringdi í öryggis-
vörðinn okkar og
hann sagði bara: „Bönker!”