Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Side 51
Helvíti á jörðu
35Helgarblað 2.–6. ágúst 2013
morð játaði Svíinn Sture Bergwall á sig. Bergwall, sem er 63 ára, hét áður Thomas Quick og var talinn versti
raðmorðingi Norðurlandanna. Hann játaði á sig morðin á árunum 1976 til 1988 og var dæmdur til lífstíðarvistar á réttar-
geðdeild árið 2000 fyrir þau. Dómarnir byggðust á játningum hans en hann dró þær til baka í desember 2008 og í apríl í
fyrra var ákveðið að taka mál hans upp á nýjan leik. Frá þeim tíma hefur hann verið sýknaður af morðunum átta. Bergwall
játaði á sínum tíma að hafa framið morðin átta auk rúmlega tuttugu annarra morða í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi.8
n Roch „Moïse“ Thériault hafði sannfæringarkraft n Stofnaði sértrúarsöfnuð
R
och „Moïse“ Thériault
fæddist 16. maí 1947 í Sagu-
enay-dal í Quebec-fylki í
Kanada. Hann var talinn
all gáfaður en hætti í skóla
í 7. bekk og hóf að stúdera Gamla
testamentið af miklum móð. Taldi
Roch að heimsendir væri í nánd og
yrði tilkominn vegna baráttu góðs
og ills.
Roch gerðist sjálfskipaður spá-
maður og blandaði heilbrigðum
lífs stíl inn í trúna; lífsstíl heilbrigðs
matar æðis án neyslu tóbaks. Inn-
an skamms gerði hann sér grein
fyrir áhrifamætti sínum og honum
tókst að telja hóp fólks á að hætta í
vinnunni og yfirgefa heimili sín og
flytja til hans.
Hann setti á laggirnar Ant Hill
Kids í Quebec árið 1977 og var mark-
miðið að skapa samfélag þar sem
fólk gæti hlýtt á ræður hans og lifað
í einingu, við jafnræði og laust við
syndir.
Allt er breytingum háð
Frá 1977 til 1989 hafði Roch umsjón
með allt að 12 fullorðnum og 22 börn-
um. Hann átti 26 börn þegar hann
lést, fjögur voru getin þegar „eigin-
konur“ hans heimsóttu hann í fang-
elsi. Allar níu konur safnaðarins voru
lagskonur hans og talið er að hann
hafi verið faðir nánast allra barna
safnaðarins, en það er önnur saga.
Áður en langt um leið bannaði
Roch flokknum að hafa samband
við fjölskyldur sínar eða önnur trú-
félög – þau voru andvíg gildum safn-
aðarins.
Hann lét af ræðuhöldum og
stjórn unaraðferðir hans breytt ust
samfara aukinni áfengisneyslu. Með-
limum var bannað að tala við hver
annan nema Roch væri viðstaddur
og kynmök voru bönnuð nema með
hans samþykki.
Roch lét í ljósi ótta vegna yfir vof-
andi heimsenda, hann fullyrti að
Guð hefði varað hann við – heims-
endi yrði í febrúar 1979.
Árið 1978, vegna yfirvofandi
heims enda, flutti Roch með söfnuð
sinn til Eilífðarfjalls – eins og Roch
kallaði það – í Saint Jogues í Quebec.
Þar fullyrti hann að söfnuðurinn
yrði hólpinn.
Vinnumaurar
Við Eilífðarfjall lét hann söfnuðinn
reisa bæ en slakaði sjálfur á meðan
á því stóð. Hann líkti hjörð sinni við
maura og nefndi Ant Hill Kids.
Febrúar 1979 kom og fór og fólk-
ið fór að efast um vísdómsorð Roch.
Hann greip til varna og sagði að tími
á jörðu og í heimi Guðs væru ekki
samliggjandi og því hefði heims-
enda tíminn misreiknast.
Roch Thériault vildi stækka söfn-
uðinn og jafnframt viðhalda tiltrú
hans. Því greip hann til þess ráðs
að kvænast öllum konum safnaðar-
ins og gerði þær barnshafandi og á
9. áratug síðustu aldar taldi söfnuð-
urinn nærri 40 manns og gengu allir
í eins kuflum til að undirstrika heil-
indi sín gagnvart Roch. Árið 1984
færði söfnuðurinn sig um set og
settist að í Burnt River í Ontario.
Harkalegar refsingar
Safnaðarmeðlimir öfluðu tekna
með því að selja brauðmeti og sitt-
hvað fleira bakað en þeim sem Roch
taldi ekki hafa safnað nægu var refs-
að harkalega. Hann fylgdist vel með
flokknum og hver sá sem virtist ætla
að víkja af „veginum“ fékk að finna
fyrir refsivendi Roch sem ávallt
sagðist framfylgja skipunum Guðs.
Meðlimum var refsað fyrir hinar
ýmsu sakir – þeir voru húðstrýktir
með leðurbelti, barðir með hamri,
hengdir niður úr loftbitum, hár-
reyttir og jafnvel skitið á þá.
Sumir voru neyddir til að brjóta
eigin bein með sleggju, sitja á heit-
um eldunarhellum, éta dauðar mýs,
skjóta hver annan í öxlina eða neyta
saurs. Stundum krafðist Roch þess
að einn meðlimur klippti tá af öðr-
um. Börnum var ekki hlíft; þau voru
kynferðislega misnotuð, haldið yfir
logum og bundin við tré og grýtt.
Hreinsun safnaðarmeðlima var
Roch hugleikin og framkvæmdi
hann hana meðal annars með húð-
strýkingum.
Banvænar aðgerðir
Thériault fullyrti að hann væri helg-
ur maður og hikaði ekki við að fram-
kvæma aðgerðir á veikum meðlim-
um. Þegar kona að nafni Boilard
kvartaði vegna iðraverkja lét hann
hana leggjast nakta á borð.
Skar Roch síðan á kvið hennar og
rótaði þar. Síðan lét hann aðra konu
rippa hana saman með nál og þræði
og enn aðra konu reka slöngu í kok
Boilard og blása duglega í. Merkilegt
nokk lifði Boilard aðgerðina ekki af
en andaðist daginn eftir. Roch lét
ekki staðar numið heldur bætti um
betur og sagðist geta reist fólk upp
frá dauðum. Hann opnaði höfuð-
kúpu Boilard með sög og skipaði
karlmanni einum að fá sáðlát í opið
– það bar ekki árangur.
Einnig varð Roch valdur að
dauða ungbarns sem hann hafði
skilið eftir úti þegar stórhríð geisaði.
Hörmungar Gabrielle
Gabrielle Lavallée sætti miklu harð-
ræði til ársins 1989. Hún hafði ver-
ið brennd með lóðbolta, sprautu-
nál verið brotin inni í baki hennar
og átta tennur dregnar úr henni án
ástæðu. Árið 1989 stakk Gabrielle
af, en römm virðist sú taug hafa
verið sem Roch hafði ofið milli sín
og safnaðarmeðlima því Gabrielle
snéri aftur.
Thériault refsaði henni með því
að klippa af henni einn fingur og
festa handlegg hennar við borð-
planka og fjarlægja annan hand-
legginn.
Ýmislegt fleira lét Gabrielle yfir
sig ganga en þegar Roch fjarlægði
hluta annars brjósts hennar og
barði hana sundur og saman í and-
litið með barefli þá lagði hún á flótta
öðru sinni.
Hafði hún samband við lögregl-
una, Thériault var handtekinn og
söfnuðurinn leystur upp.
Dómur og dauði
Roch Thériault fékk lífstíðardóm
fyrir morð og má í reynd segja að
hann hafi afplánað hann að fullu.
Reyndar bar dauða hans ekki að
með eðlilegum hætti því 26. febrú-
ar, árið 2011, fannst hann dauður í
klefa sínum í Dorchester-fangelsinu
í New Brunswick, 63 ára að aldri.
Sagan segir að klefanautur hans,
Matthew Gerrard MacDonald, hafi
hjálpað honum yfir móðuna miklu
og hafi verið sakfelldur og dæmd-
ur fyrir vikið. Matthew stakk Roch
í hálsinn með heimagerðum hníf
og gekk síðan að varðstöðinni, rétti
vörðunum hnífinn og sagði: „Hér
er hnífurinn, ég risti hann upp.“ n
„Sumir voru neydd-
ir til að brjóta eig-
in bein með sleggju, sitja
á heitum eldunarhellum,
éta dauðar mýs, skjóta
hver annan í öxlina eða
neyta saurs.
Roch
Thériault
Sagðist vera
helgur maður.