Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.2013, Síða 60
44 Lífsstíll 2.–6. ágúst 2013 Helgarblað
Fjallarefir þjálfaðir í göngu
n Frábært byrjendanámskeið í útivist
L
Laugardaginn 7. september
hefst námskeiðið Fjallarefir
en það er tæplega þriggja
mánaða útivistarnámskeið á
vegum ferðafélagsins Útivistar. Á
námskeiðinu, sem lýkur laugar-
daginn 30. nóvember, er lögð
áhersla á að þjálfa fólk upp í að
verða vanir göngugarpar og felur
það meðal annars í sér göngudag-
skrá, þrekþjálfun og námskeið í
fjallamennsku. Fjallarefir er til-
valið fyrir byrjendur í útivist sem
hafa áhuga á að auka þekkingu
sína, byggja upp gönguþrek og út-
hald, fræðast um hagnýta hluti
sem tengjast göngu- og fjallaferð-
um sem og að kynnast fjölbreyttum
gönguleiðum í náttúru Íslands.
Námskeiðið kostar 25 þúsund
krónur og eru þrekgöngutímar alla
þriðjudaga auk þess sem tvo laugar-
daga í mánuði er farið í gönguferð.
Erfiðleikastig gangnanna eykst eft-
ir því sem líður á námskeiðið og er
fræðsla um klæðnað, næringu, út-
búnað og annað sem tengist útivist
veitt samhliða tímum sem reyna á
líkamlegt erfiði. Þetta er því frábær
leið til að kynnast fegurð íslenskr-
ar náttúru í góðum félagsskap og
öðlast auk þess þá reynslu og þekk-
ingu sem þarf til að geta stundað
fjallgöngur og aðra útivist af kappi.
Fararstjórar eru Linda
Undengård, Andri Lefever, Baldur
Þorsteinsson, Björg Guðbrands-
dóttir, Ása Ögmundsdóttir, Sverrir
Andrésson og Vala Friðriksdóttir.
Skráning og frekari upplýsingar
má finna á vefsíðu Útivistar, uti-
vist.is. n
Bestu heitu laugar landsins
Óviðjafnanlegt að baða sig í guðsgrænni náttúru.
H
eitar laugar eru víða um landið
og getur verið mikið ævintýri að
baða sig undir berum himni í
náttúrulegri laug. DV tók saman
lista yfir nokkrar af bestu heitu
laugum landsins en ítarlegt yfirlit um
laugarnar má nálgast í bókinni Heitar
laugar á Íslandi eftir Jón G. Snæland og
Þóru Sigurbjörnsdóttur auk þess sem
myndir og gagnvirkt kort má nálgast á
vefnum attavitinn.is.
simonb@dv.is
Hellulaug
Laugin er um hálfan kílómetra
frá þjónustumiðstöðinni í
Flókalundi. Hún er staðsett í
fjöruborðinu. Engin búningsað-
staða en hægt að leggja frá sér
föt við steinklöpp. Gistiaðstaða á
tjaldsvæðinu í Flókalundi er skammt frá.
Grettislaug
Grettislaug er við Reykjaströnd í Skagafirði.
Ekið er út fyrir Sauðárkrók og beygt inn á
veg 748. Önnur stærri laug er svo skammt
frá, aðeins nær sjávarmálinu. Aðstaða fyrir
ferðamenn og tjaldstæði er á svæðinu og
hreinlætisaðstaða skammt frá lauginni.
Bláa lónið
Bláa lónið er ein fræg-
asta heita laug heims.
Þótt nýja lónið sé
manngert þá nýtur lónið
mikilla vinsælda hjá ferða-
mönnum – þær vinsældir
hafa reyndar gert lónið óvinsælla hjá
Íslendingum enda dýrt að baða sig í
Bláa lóninu.
Hrunalaug
Hrunalaug er að finna
nokkra kílómetra frá
Flúðum. Laugarnar
eru í raun tvær.
Önnur er grjóthlaðin
og stendur við gamalt
lítið steinsteypt hús sem nú er nýtt sem
búningsklefi af flestum sem heimsækja
laugina. Baðaðstæður skemmtilegar en
frumstæðar.
Kvika
Laugin Kvika á kannski
ekki heima á þessum lista
því hún er ekki náttúrulaug
heldur listaverk eftir myndlistar-
konuna Ólöfu Nordal. Kvika er vinsæll
baðstaður á Seltjarnarnesinu rétt hjá
Gróttu og gott að fá sér fótabað eftir
skokkið eða göngutúrinn.
Landmannalaugar
Landmannalaugar eru mest sóttu
náttúrulaugar landsins. Til að
komast í Landmannalaugar þarf
annaðhvort að ferðast með rútu eða vera
á stórum jeppa. Rétt hjá laugunum er tjaldsvæðið, skálar,
hreinlætis- og grillaðstaða. Hætta getur verið á sníkjudýr-
um í laugunum vegna fuglalífs á svæðinu.
Gengið á Ok
Mánudaginn 5. ágúst stendur
ferðafélagið Útivist fyrir göngu
á Ok. Fjallið, sem er í Kaldadal,
vestur af Langjökli, er 1.198 metra
há dyngja og ein sú stærsta sinn-
ar tegundar hér á landi. Á toppi
dyngjunnar var samnefndur jök-
ull sem nú er með öllu horfinn úr
gígnum.
Brottför er klukkan 8 frá BSÍ
en gengið er frá Langahrygg og til
vesturs að Auðsstöðum. Gengn-
ir eru 20 til 22 kílómetrar og tekur
gangan um 8 til 9 klukkustundir.
Nánari upplýsingar má finna á
vefsíðu Útivistar, utivist.is.
Fjölskyldu-
ferð í Bása
Helgina 9.–11. ágúst verður farin
fjölskylduferð í Bása, Goðalandi.
Boðið verður upp á dagskrá fyrir
alla fjölskylduna og því er tilvalið
að taka börnin með í skemmti-
lega ævintýraferð í fallegri nátt-
úru. Ferðin kostar 22.500 krón-
ur en frítt er fyrir börn 12 ára og
yngri auk þess sem unglingar á
aldrinum 13 til 16 ára greiða hálft
gjald. Innifalið í verði eru rútur,
gisting í skála á svæðinu, farar-
stjórn, grillaðar pylsur og djús.
Lagt verður af stað klukkan 17 á
föstudeginum en fararstjórar eru
þau Pétur Þorsteinsson og Jó-
hanna Benediktsdóttir. Góður undirbúningur Fjallarefir er góður undirbúningur fyrir byrjendur í útivist.
Útivist og börn
Það er hverju barni mikilvægt að
hreyfa sig reglulega og eiga góð-
ar stundir með fjölskyldunni.
Bókin „Útivist og afþreying fyr-
ir börn – Reykjavík og nágrenni“
var gefin út í nóvember 2012. Hún
er í handhægu broti þannig að
hægt er að hafa hana aðgengi-
lega á sér eða í hanskahólfi bif-
reiðar. Fallegar myndir prýða
bókina sem börn hafa gaman af
að skoða og taka þátt í að velja
staði til að heimsækja. Í bókinni
eru fjöldi hugmynda að útivist og
afþreyingu innanhúss, jólastemn-
ingu, leikjum, nesti, veitingastöð-
um og námskeiðum. Auk þess er
kafli með blómum til að kenna
börnum að þekkja helstu tegundir
og leiðarkort eru aftast í henni.
Í tengslum við bókina er til
vefsíða sem auðveldar foreldrum
leitina að skemmtilegri útivist. Á
fyrirborn.is er að finna fjölda hug-
mynda.