Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Qupperneq 8
Þ
að gefur auga leið að maður
sem hegðar sér með þess-
um hætti er ekki velkom-
inn aftur,“ segir Guðjón
Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, um fasteignasal-
ann sem handtekinn var í síðustu
viku vegna dólgsláta í flugvél sem
var á leið til Seattle. Eins og greint
hefur verið frá þurfti að snúa flug-
vélinni við skömmu eftir flugtak til
að unnt væri að fjarlægja manninn.
Olli þetta farþegum klukkutíma töf
og hleypur tjón Icelandair á millj-
ónum króna. Gerir Guðjón ráð fyrir
því að flugdólginum verði stefnt
en málið er til rannsóknar hjá lög-
reglunni á Suðurnesjum sem lítur
það mjög alvarlegum augum. Sam-
kvæmt heimildum DV hefur mað-
urinn áður verið handtekinn vegna
ósæmilegrar hegðunar í flugi.
Fékk æðiskast
Farþegar sem sátu nálægt fast-
eignasalanum lýsa framgöngu hans
á skrautlegan hátt. „Þegar ég sá fyrst
til hans var hann að veifa gullkorti
framan í flugfreyju og heimta að vera
færður yfir í Saga Class-rýmið,“ segir
einn þeirra og bætir því við að þegar
flugfreyjan hafi neitað að verða við
óskum mannsins hafi hann sagst
vera fasteignasali í Los Angel-
es og fljúga reglulega á Saga
Class. „Hann virkaði mjög
rólegur í upphafi flugs. Það
fannst reyndar áfengi á bak við
sætið hans áður en farið var að bjóða
upp á slíkt, en það var lítið mál gert
úr því.“
Um 20 mínútum eftir flugtak
færðist fjör í leikinn. „Hann fór að
berja í glugga og veitast að farþegan-
um sem var við hliðina á honum. Þá
reyndi flugþjónninn að róa mann-
inn sem sló bara til hans sem óður
væri. Í æðiskasti sínu reyndi hann
að opna flugvélahurðina,“ segir einn
af viðmælendum DV sem ekki vildi
láta nafns síns getið. Á þessum tíma-
punkti var flugdólgurinn yfirbug-
aður og ákveðið að snúið yrði við.
Hann var reyrður niður við sætið og
hendur hans límdar við stólarmana
þangað til flugvélin lenti og lög-
reglan handsamaði hann við fögnuð
og lófaklapp farþega.
„Öskraði að vélin
væri að hrapa“
Umræddur flugdólgur er ekki fyrsti
flugdólgurinn sem fangar athygli
landsmanna. Það vakti heimsathygli
þegar annar syndaselur var límdur
fastur niður í sæti vélar á leið til
New York frá Keflavík. Birtist mynd
af atvikinu á Facebook þar sem ljós-
myndarinn fullyrti að maðurinn
hefði drukkið heila flösku af sterku
víni í fluginu. „Hann
reyndi að grípa í kon-
urnar sem sátu við hlið hans og öskr-
aði að vélin væri að hrapa. Að lokum
tók hann sætisfélaga sinn hálstaki
sem varð til þess að hópur fólks yfir-
bugaði hann,“ skrifaði hann en flug-
dólgurinn var bundinn í fjóra tíma
eða þar til vélin lenti á JFK-flugvell-
inum þar sem hann var handtekinn.
Ekki er óalgengt að menn gangi
berserksgang í flugi. „Þetta gerist að
meðaltali svona einu sinni á ári,“ seg-
ir Guðjón Arngrímsson. Engar regl-
ur gilda um flugdólga að hans sögn
heldur er hvert tilvik metið fyrir sig.
„Það gefur auga leið að þessu fylgir
mikill kostnaður og veruleg truflun
fyrir farþega. Á því er enginn vafi.“ n
Flugdólgar valda
miklu fjártjóni
8 Fréttir 9.–11. ágúst 2013 Helgarblað
Grænt ljós á Grænlendinga
n Mega landa makríl á Íslandi
Í
frétt sem birtist á vef atvinnuvega-
ráðuneytisins á mánudag er greint
frá því að grænlenskum skipum sem
stunda veiðar í grænlenskri lög-
sögu sé nú heimilt að landa á Íslandi.
Löndin gerðu samkomulag sín á milli
um veiðar og löndun á makríl í apríl á
þessu ári en íslensk skip hafa nú þegar
veitt þann 12.000 tonna kvóta sem Ís-
land átti í grænlenskri lögsögu.
Í frétt ráðuneytisins segir meðal
annars: „Í ljósi þess að landfræði-
legar aðstæður og hafnleysi við Aust-
ur-Grænland gera Grænlending-
um þessar veiðar sérstaklega erfiðar
án aðgengi að þjónustu í íslenskum
höfnum, hefur sjávarútvegsráðherra
ákveðið að nýta heimild í lögum til
þess að rýmka þessar reglur á þann
hátt að grænlenskum skipum verði
heimilt að landa makríl hér á landi.
Er þetta gert undir fyrrnefndu tví-
hliða samkomulagi á milli Íslands og
Grænlands en verður endurskoðað
fyrir makrílvertíð næsta árs.“
Makríldeilan á milli Íslendinga og
Færeyinga annars vegar og Evrópu-
sambandsins og Noregs hins vegar
stendur nú sem hæst. Evrópusam-
bandið hefur hótað að beita Ísland og
Færeyjar viðskiptaþvingunum vegna
makrílveiða og sakar löndin um of-
veiði og ósjálfbærar veiðar. Sam-
bandið hefur þegar beitt þvingunum
vegna síldarveiða Færeyinga.
Á sama tíma heldur haffræðingur
norsku hafrannsóknastofnunarinnar,
Jens Christian Holst, því enn og aftur
fram að makrílstofninn í Noregshafi,
milli Íslands og Noregs, sér orðinn
hættulega stór. Fiskifréttir greina frá
þessu en þar er vísað í viðtal við Holst
á vefsíðu ABC-Nyheter frá 1. ágúst.
„Ofveiði felur í sér alvarlega ógn.
Hitt að veiða of lítið er enn verra, þá
er vegið að stofninum neðar í fæðu-
keðjunni og við verðum að rækta upp
stofna á öllum stigum allt frá grunni,“
segir Holst við NRK, norska ríkis-
útvarpið.
Holst telur að markílstofninn sé
allt að þrisvar til fjórum sinnum stærri
en alþjóðlegar rannsóknarstofnanir
telja. Holst telur þetta meðal annars
hafa gríðarlega slæm áhrif á síldar-
stofninn þar sem svo stór makrílstofn
ógni fæðukeðjunni í Noregshafi. n
asgeir@dv.is
n Áfengisneysla í flugi skapar vandræði n Einn flugdólgur á ári
Jóhann Páll Jóhannsson
blaðamaður skrifar johannpall@dv.is
Flugdólgur
Þessi fangaði
athygli lands-
manna fyrr á
árinu.
„Hann fór að berja
í glugga og veit-
ast að farþeganum sem
var við hliðina á honum.
Þá reyndi flugþjónninn að
róa manninn sem sló bara
til hans sem óður væri.
Makríll Á sama tíma og Ísland deilir við ESB og Noreg telur norskur haffræðingur að makríl-
stofninn sé þrisvar til fjórum sinnum stærri en alþjóðlegar rannsóknastofnanir segja.
Snúið við Flugvél Icelandair var
snúið við vegna stjórnlauss flugdólgs
sem gerði farþegum lífið leitt.
Hlaupa
fyrir Rauða
krossinn
Söfnun áheita í tengslum við
Reykjavíkurmaraþon Íslands-
banka sem fer fram 24. ágúst er
nú í fullum gangi og hvetur Rauði
krossinn velunnara sína til að skrá
sig og hlaupa til styrktar félaginu.
Þá má líka styrkja Rauða krossinn
með því að heita á fólk sem hleyp-
ur til styrktar félaginu.
Í tilkynningu frá samtökun-
um kemur fram að meðal þeirra
sé Kolbrún Elíasdóttir og fjöl-
skylda sem ætla að taka þátt í
hlaupinu og styrkja Rauða kross-
inn. Kolbrún byrjaði að hlaupa
fyrir nokkrum árum eftir veikindi
og í kjölfarið hafa maður henn-
ar og börn einnig ánetjast hlaup-
inu. Á síðustu árum hafa Kolbrún,
systkini hennar, börn og makar
gert sér glaðan dag úr Reykja-
víkurmaraþoninu með því að hitt-
ast og hlaupa saman.
Kolbrún er starfsmaður Rauða
krossins og þekkir vel til starfa
félagsins. „Rauði krossinn er til
staðar þegar hamfarir ógna lífi
og heilsu einstaklinga hér á landi
og um allan heim. Fórnfúst starf
meira en þrjú þúsund sjálfboða-
liða er aðalstyrkur Rauða krossins
á Íslandi. Um 10.000 manns nota
reglulega þá þjónustu sem Rauði
krossinn býður upp á í verkefnum
deilda, en ætla má að um helm-
ingi fleiri njóti góðs af starfi Rauða
krossins hér á landi óbeint,“ segir í
tilkynningu Rauða krossins.
Lífeyrir verði
leiðréttur strax
Kjaranefnd Félags eldri borgara í
Reykjavík telur að ríkisstjórninni
beri skylda til þess að leiðrétta
strax lífeyri aldraðra vegna
kjaraskerðingar og kjaragliðnun-
ar síðastliðin fjögur ár. Þetta kem-
ur fram í ályktun sem kjaranefnd
Félags eldri borgara í Reykjavík
samþykkti á fimmtudag. „Á þessu
tímabili hækkuðu lægstu laun
mikið meira en lífeyrir aldraðra
enda þótt kveðið sé á um það í
lögum, að lífeyrir eigi að breytast
í samræmi við hækkanir launa og
verðlags.
Hækka þarf lífeyri aldraðra
um 20% til leiðréttingar vegna
kjaraskerðingar og kjaragliðnun-
ar á tímabilinu 2009–2013. Sam-
þykkt var á landsfundum beggja
stjórnarflokkanna fyrir kosningar
að gera þessa leiðréttingu á líf-
eyri. Einnig lýstu frambjóðendur
stjórnarflokkanna því yfir í kosn-
ingabaráttunni, að þessa leið-
réttingu ætti að framkvæma strax
eftir kosningar. Það er því komið
að því að efna þetta kosningalof-
orð. Það verður að gerast strax.
Aldraðir geta ekki beðið,“ segir í
ályktun félagsins.