Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Blaðsíða 12
12 Fréttir 9.–11. ágúst 2013 Helgarblað A llt í kringum þetta er búið að vera mjög flóttakennt. Ég er búin að upplifa flótta frá læknum og það vill enginn tala almennilega við mig. Það er eins og þeir viti upp á sig sökina,“ segir Margrét Friðriks­ dóttir sem missti móður sína, Hildu Hafsteinsdóttur, í byrjun apríl á þessu ári. Hilda var 63 ára þegar hún lést. Þrátt fyrir að fjórir mánuðir séu liðnir frá andláti móður Margrétar og krufning hafi farið fram, liggur dánarorsökin enn ekki fyrir. Henni finnst seinagangurinn vanvirðing við aðstandendur. Þá er Margrét mjög ósátt við þá meðhöndlun sem móðir hennar fékk í heilbrigðiskerf­ inu. Hún telur að skortur á upplýs­ ingagjöf og samstarfi á milli lækna á mismunandi heilbrigðisstofnunum hafi orðið til þess að fársjúk móðir hennar fékk ekki viðeigandi læknis­ hjálp. Það hafi að lokum orðið henni að bana. Engar bráðabirgðaniðurstöður „Læknarnir sögðu mér að það tæki þrjá til fjóra mánuði að fá niður­ stöður úr krufningu, en þegar ég hringdi og spurðist fyrir núna, fjór­ um mánuðum síðar, þá fékk ég þær upplýsingar að þetta tæki að minnsta kosti hálft ár,“ segir Margrét. En bráðabirgðaniðurstöður krufn­ ingar liggja heldur ekki fyrir. Móðir Margrétar greindist með krabbamein í febrúar á þessu ári og var með meinvörp á stærð við epli í hálsinum. Að sögn Margrétar vilja læknarnir þó ekki meina að krabba­ meinið hafi dregið móður hennar til dauða. Sagði ekki frá veikindunum Það var tannlæknir sem fyrst kom auga á meinið í hálsi Hildu og sendi hana áfram til háls­, nef­ og eyrna­ sérfræðings. Í kjölfarið var hún greind með krabbamein, en sagði engum frá veikindum sínum. Ekki einu sinni dóttur sinni. Margrét vissi því í raun ekki hve alvarlega veik móðir hennar var fyrr en eftir að hún lést. Hún vissi þó að eitthvað var að hrjá hana og að hún hefði leitað til læknis vegna þykkildis í hálsinum. „Hún virðist hafa verið í einhverri afneitun og vildi greinilega halda þessu fyrir sjálfa sig. Hún sagði við mig að læknarnir vissu ekki hvað þetta væri, en þetta væri allavega ekki krabbamein. Og ég hugsaði aldrei út í að þetta gæti verið krabba­ mein.“ Tvisvar á dag í mælingu Margrét vissi að læknarnir vildu skera Hildu upp og fjarlægja þykk­ ildið en hún var með allt of háan blóðþrýsting sem þurfti að ná tökum á áður. „Efri mörkin hjá henni voru í 200,“ segir Margrét, en ekki er æski­ legt að efri mörk blóðþrýstings séu hærri 140 og neðri mörk 90. „Hún fékk lyfseðil fyrir blóðþrýstings­ lyfjum og þeir sögðu að hún þyrfti að koma tvisvar á dag upp á spítala í mælingu. Hún sem notaði bara strætó, var ekki á bíl.“ Hilda sagði engum frá því heldur og Margréti finnst mjög skrýtið að læknarnir hafi ekki spurt hvernig hún kæmist á milli staða og hvort það væri ekki einhver sem gæti hjálpað henni. Héldu að hún væri einstæðingur Lyfin virtust ekki hafa áhrif á Hildu og hún óskaði því eftir að vera sett á önnur lyf. Að sögn Margrétar, var hún þá orðin ansi veik. „Ég fór til hennar með vörur úr apótekinu og hún var mjög föl og veik að sjá. Þá sást bólgan á hálsinum mjög vel. Hún stóð út úr hálsinum á henni hægra megin og það blæddi heiftar­ lega innan frá.“ Þegar Margrét horfir til baka, með þá vitneskju sem hún hefur nú um veikindi móður sinnar, skilur hún ekki af hverju hún var ekki lögð inn á spítalann. Sérstaklega fyrst hún þurfti að vera undir stöð­ ugu eftirliti vegna blóðþrýstingsins. „Auðvitað hefðu þeir átt að halda konunni á spítalanum, hún var orðin það veik. Og ég var aldrei látin vita, sem nánasti aðstandandi.“ Margrét spurði út í það á spítal­ anum, eftir að móðir hennar lést, af hverju hún hefði ekki verið látin vita af veikindunum þar sem hún var skráð nánasti aðstandandi hennar. „Skýringin var að þeir hefðu frétt að hún ætti engan að. Hún væri bara einstæðingur og þeir könnuðu það ekkert frekar.“ Fékk svefnlyf hjá heimilislækni Þetta var um síðustu páska, en eftir páska leitaði Hilda til heimilislæknis síns. Þá átti hún í erfiðleikum með svefn og vildi fá svefnlyf. Að sögn Margrétar virðist heimilislæknirinn ekki hafa gefið veikindum hennar gaum. Hilda sagðist vera í einhverjum rannsóknum á spítal­ anum en læknirinn virðist ekki hafa kannað það neitt frekar. Bara látið hana hafa lyfseðil fyrir svefnlyfjum. „Þegar ég spurði hann út í málið þá sagðist hann bara hafa haldið að hún væri í rannsóknum.“ Margrét segir að læknirinn hafi viðurkennt að Hilda hafi verið veikluleg að sjá. „En hann tékkaði ekkert bet­ ur á henni. Sagði að hún hefði bara komið að biðja um svefnlyf.“ Hilda lést um nóttina. Margrét telur líklegt að móðir hennar hafi verið með einhverja sýkingu út frá meinvarpinu í hálsin­ um. Enda hafi blætt úr hálsinum á henni og hún virtist vera með hita. „Hún sagði við mig að þetta hlyti að hafa sprungið því það kom blóð út úr henni og hún kvartaði undan vondu bragði. Hún reyndi allt til að hjálpa sjálfri sér konan.“ Engin samvinna á milli stofnana „Þetta lítur þannig út í mínum aug­ um að heilbrigðisstofnanir á Íslandi séu ekki að vinna saman. Þetta er mjög stórt vandamál. Heilsugæslan, Læknavaktin og spítalinn eru ekki að vinna saman. Það fyllir mann miklu óöryggi að hugsa til þess. Mér finnst lágmark að þessar fáu heilbrigðis­ stofnanir á Íslandi vinni saman. Þetta er til háborinnar skammar,“ segir Margrét og er mikið niðri fyrir. Hún segir heimilislækninn til að mynda ekki hafa vitað að móðir hennar væri með krabbamein. „Þetta leyndi sér samt ekki neitt,“ segir Margrét og bætir við að það hafi heyrst á rödd hennar að það var eitthvað sem þrýsti á hálsinn. Margrét telur að móðir hennar væri á lífi í dag hefði hún verið lögð inn á spítala og verið undir stöðugu eftirliti þar. „Það er spurning hvort hún kannski hafi bara ofkeyrt sig. Hún var ekki í neinu ástandi til að ferðast tvisvar á dag upp á spítala með strætó í blóðþrýstingsmælingu. Ef þeir hefðu fundið rúm fyrir hana uppi á spítala, þá væri hún hérna í dag,“ segir Mar­ grét sannfærð. „63 ára er enginn ald­ ur til að deyja. Það er mikið langlífi í minni fjölskyldu og mamma hélt hún yrði 100 ára,“ bætir hún við. En móðir Hildu lifir dóttur sína. Vita ekki hvenær hún lést Margrét fann móður sína látna í rúmi sínu þann 4. apríl síðastliðinn, en læknar gátu ekki staðfest að hún hefði látist þann dag. Báru þeir með­ al annars fyrir sig hátt hitastig í íbúð­ inni, sem villti um fyrir þeim. Sjálf telur Margrét að móðir hennar hafi jafnvel látist þremur dögum fyrr. „Ég var búin að reyna að ná í hana í þrjá daga og var auðvitað farin að hafa miklar áhyggjur af henni. Ég var vön að tala við hana allavega einu sinni á dag.“ Margrét lét lögregluna að lok­ um brjótast inn til móður sinnar og í póstkassanum blöstu við dagblöð síðustu daga, óhreyfð. „Mamma fór í póstkassann á hverjum degi. Hún elskaði að lesa blöðin og þetta var hennar dægrastytting,“ segir Margrét, en ósnert blöðin eru vís­ bending um að móðir hennar hafi látist þremur dögum áður en hún fannst. Margrét segir að ef hún hefði vitað hve alvarleg veikindi móður hennar voru þá hefði hún setið yfir henni dag og nótt. „Mamma mín var að burðast með mjög erfið veikindi án þess að ég hefði hugmynd um það.“ Læknar vissu ekki af andlátinu Þann 9. apríl, eða fimm dögum eftir að Hilda lést, var svo hringt í Margréti af spítalanum. „Þá vissu þeir ekki að hún væri látin,“ segir Margrét og á þar við læknana á sömu deild og blóðþrýstingur móður hennar hafði verið mældur tvisvar á dag vikurnar áður. „Þá ætlaði hann loksins að fara að segja mér frá veikindunum hennar. Ég sagði honum að hann væri nokkrum dögum of seinn, því mamma væri dáin. Hann var mjög hissa á því.“ Margrét segist engu að síður hafa verið búin að hringja upp á umrædda deild og láta vita af and­ látinu. Hún segir þetta vísbendingu um að samstarfi lækna á milli stofnana sé ekki bara ábótavant, heldur einnig inni á sömu heilbrigðisstofnun, eins og virðist hafa gerst í tilfelli móður hennar. „Þetta er rosaleg sorgleg saga og þetta er skelfilegt fyrir móður mína og aðstandendur. Hún gerði allt til að leita sér hjálpar en þetta er niðurstaðan. Fólk verður að geta treyst á heilbrigðiskerfið,“ segir Mar­ grét sem vonast til að sorgarsaga móður sinnar verði til þess að vand­ að verði betur til verka í framtíðinni við meðhöndlun sjúklinga. „Það er verið að tala um að byggja nýjan spít­ ala fyrir einhverja milljarða. En mér finnst lágmark að byrja á grunninum og láta þetta virka. Maður heyrir allt of oft af læknamistökum, því mið­ ur. Að sjálfsögðu eru góðir læknar á Íslandi en maður finnur fyrir því að ástandið hefur versnað til muna eftir hrun.“ Margrét bendir á að læknar og heilbrigðisstarfsfólk flykkist úr landi og gerir sér grein fyrir því að álag­ ið á þeim sem eftir eru sé mikið. „En ástæðan er sú að það er búið að leyfa endalausan niðurskurð í heilbrigðis­ kerfinu. Ég held að forgangsröðunin sé mjög röng hér á landi,“ segir Mar­ grét að lokum. n „63 ára er enginn aldur til að deyja“ n Segir skort á upplýsingum hafa dregið móður sína til dauða n Dánarorsök ekki vituð Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Leiði Hildu Móðir Margrétar var 63 ára þegar hún lést. Margrét telur að hún væri á lífi í dag ef hún hefði fengið rétta meðhöndlun hjá læknum. Myndir: KriSTinn MagnúSSon „Auðvitað hefðu þeir átt að halda konunni á spítalanum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.