Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Side 13
Fréttir 13Helgarblað 9.–11. ágúst 2013
Þ
að er margt sem hefur kom-
ið okkur mikið á óvart. Við
gerðum ráð fyrir vanþróun,
vanþekkingu og spillingu en
aldrei hafði okkur órað fyrir
þeim veruleika sem sem blasti við okk-
ur,“ segir Tinna Rut Isebarn sem stödd
er í fátækraþorpi rétt fyrir utan höfuð-
borg Úganda þar sem hún starfar sem
sjálfboðaliði. Með henni í för er vin-
kona hennar, Svava Gunnarsdóttir,
en þær eru þar á vegum samtakanna
Mentor Volunteers Uganda - Centre
for Child Advocacy and life planning
sem meðal annars reka munaðarleys-
ingjahæli og þrjá skóla í Úganda. Þær
Svava og Tinna kenna börnum í ein-
um þessara skóla. Í skólanum er 271
barn þar af 200 munaðarlaus.
Blekktar af svikahrappi
„Við komum hér þó fyrst og fremst
vegna þess að okkur báðar hefur alltaf
dreymt um að fara í hjálparstarf. Við
eigum það sameiginlegt að þykja annt
um málefni barna og vildum beita
okkur í þeim,“ segir Tinna. Ferðin gekk
þó ekki áfallalaust fyrir sig í fyrstu.
Þær lentu nefnilega í svikahrappi sem
þóttist vera annar en hann var. Mað-
urinn sem tók á móti þeim og sagð-
ist vera á vegum samtakanna reyndist
vera að blekkja þær. Þegar ekkert
spurðist til þeirra eftir að þær komu
út leituðu Aisec-samtökin að þeim í
talsverðan tíma. „Tengiliður okkar í
Úganda reyndist vera glæpamaður,
eins og margir hérna. Hann hafði af
okkur peninga og laug að okkur allan
tímann, hann tengdi okkur aldrei inn í
samtökin og því vissi enginn hér úti af
okkur. Upplifun okkar hér var því önn-
ur en ætla mátti. Nú er hann í fang-
elsi,“ segir Tinna og vill ekki ræða mál-
ið frekar að sinni. Hún segir þær vera
að leita réttar síns vegna þessa og mál-
ið sé á viðkvæmu stigi. Þær komust þó
á réttan stað á endanum og búa nú
með öðrum sjálfboðaliðum víða að úr
heiminum skammt frá skólanum sem
þær kenna við.
Mikil eymd og fátækt
Tinna segir margt hafa komið þeim
stöllum á óvart ytra. Eymdin og fátækt-
in sé meiri en þær hefðu nokkurn tím-
ann getað ímyndað sér. „Við vissum að
hér væri mikil eymd og því komum við
hingað en manni bregður þó mjög oft
því menningin er svo ólík,“ segir hún.
„Aðstæður barnanna eru mjög bág-
bornar, það er ekki alltaf til matur fyrir
þau og oft fá þau einungis eina máltíð
á dag. Þau sofa í kojum, stundum 3–4
börn í einu rúmi og mörg sofa á gólf-
inu. Kennslugögnin eru heldur ekki
upp á marga fiska,“ segir hún en tekur
fram að ekki skorti áhugann hjá börn-
unum á að læra. Börnin mega líka
þola talsvert harðræði sem er ólíkt því
sem þær hafa vanist. „Við erum mjög
reiðar yfir þeim vanþróuðu uppeldis-
aðferðum sem hér eru notaðar. Þá sér-
staklega að börn séu barin til hlýðni
eða vegna mistaka,“ segir Tinna.
Safna fyrir moskítónetum
Ferðin hefur haft mikil áhrif á þær
Tinnu og Svövu. Eftir að hafa upplifað
við hversu erfiðar aðstæður börnin
búa ákváðu þær að hefja söfnun til
þess að geta skilið eitthvað eftir sig
fyrir börnin þegar þær fara. „Um 100
af þeim börnum sem hér búa hafa á
þessu ári þjáðst af malaríu. Kostnaður
vegna læknismeðferðar er gríðarlegur
og veldur því að oft er ekki til pening-
ur fyrir mat handa börnunum,“ segir
Svava. „Áður en við yfirgefum börn-
in viljum við leggja samtökunum lið
og draga úr meðferðarkostnaðinum
með því að fyrirbyggja malaríusmit.
Moskítóflugur bera malaríu á milli
manna og því viljum við kaupa
moskítónet fyrir öll börnin, hengja
þau fyrir ofan rúm þeirra og brýna fyr-
ir þeim mikilvægi þess að þau verði
notuð í hvívetna. Um þriðjungur barn-
anna er fæddur með HIV/aids og af
þeim sökum getur malaría leitt þau til
dauða,“ segir hún. Stöllurnar hafa því
sett upp síðu á Facebook þar sem þær
hvetja vini, ættingja og hverja þá sem
vilja leggja þeim lið að gefa í söfnun-
ina en eitt net kostar um 500 krónur.
Þær fara svo á laugardaginn og kaupa
netin og vonast til þess að geta keypt
sem flest. Þeim sem vilja leggja þeim
lið er bent á að hægt er að leggja inn
á reikning 113-26-9909 – kt: 190988-
2369. Þær vonast til þess að geta safn-
að fyrir moskítónetum fyrir öll börn-
in sem eru um 270. Safni þær umfram
það munu þær nýta peninginn til þess
að kaupa stílabækur og skriffæri fyrir
börnin. „Sum börnin eiga ekki skrif-
færi og það er mikill skortur á stílabók-
um hér,“ segir Tinna. n
Mikil eymd og fátækt
n Vinkonur safna fyrir munaðarlaus börn í Úganda n Blekktar af svikahrappi
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Kennslustund Fyrsta kennslustund
Svövu og Tinnu gekk vel. Það skyggði þó á
að í næstu stofu heyrðu þær að verið var að
berja barn til hlýðni.
Moskítónet Hér má sjá moskítónet eins og þær stöllur ætla að kaupa fyrir börnin. Þær
vonast til þess að geta keypt fyrir öll börnin í skólanum.
Með nemendunum
Svava og Tinna með
nemendum sínum.
Ljós í ólagi
Það hefur vakið athygli lögreglu
undanfarið að ljósabúnaði margra
ökutækja er enn ábótavant. Margir
hafa verið stöðvaðir vegna þessa
en ýmist vantaði ljós að framan eða
aftan en ökumönnunum var góð-
fúslega bent á að skipta um perur,
öryggi eða annað það sem bilað
var. Síðdegis á mánudag, þegar
lögreglan var við eftirlit á Suður-
landsvegi, voru til að mynda stöðv-
uð tæplega 70 ökutæki vegna þessa.
Ökumenn eru hvattir til að
ganga úr skugga um að ljósin séu í
lagi enda er hér um mjög mikilvægt
öryggisatriði að ræða.
Andstæðingur
sam kyn hneigðra
á leið til landsins
„Það yrðu mikil mistök ef okkar
þjóð færi þá leið,“ sagði bandaríski
predikarinn Franklin Graham um
lögleiðingu hjónabands samkyn-
hneigðra í Bandaríkjunum í viðtali
við Piers Morgan 28. mars síðast-
liðinn. Franklin þessi hefur lengi
lýst andstöðu sinni á hjónabönd-
um samkynhneigðra en hann er
væntanlegur til Íslands í september
þar sem hann mun flytja boðskap
vonar á Hátíð vonar sem verður
haldin í Laugardalshöll 28. og 29.
september í Reykjavík.
Hátíðin er auglýst á vef Þjóð-
kirkjunnar þar sem kemur fram
að rúmlega fjögur hundruð sjálf-
boðaliðar, samtök, sóknir og kirkj-
ur hafi sameinast í undirbúningi
fyrir Hátíð vonar.
„Guð er sá sem skilgreindi
hjónabandið, ekki yfirvöld, og
hjónabandið er á milli eins karls
og einnar konu. Að ætla sér að
reyna að endurskilgreina það sem
guð boðaði og blessaði væru mik-
il mistök fyrir ríkisstjórn okkar og
mikil mistök fyrir þessa þjóð,“ sagði
Graham við Piers Morgan.
Graham þessi er afar umdeild-
ur fyrir skoðanir sínar en er sem
fyrr segir væntanlegur á Hátíð von-
ar á Íslandi.
Hann er forsvarsmaður sjálf-
boðaliða- og kristniboðssamtaka
Billy Graham en Billy var faðir
Franklins og stundaði kristniboð í
60 ár. Hátíðin er haldin í samstarfi
við samtök Billy Grahams og verður
aðangur að henni ókeypis.
Í bloggpistli sem Franklin birti
27. desember síðastliðinn lýsti
hann áhyggjum sínum af því að
að samkynhneigð pör væru að fá
hjónabönd sín staðfest af yfir-
völdum. Hann hafði einnig miklar
áhyggjur af siðferðislegri hnignun
í sjónvarpi og minntist í því sam-
hengi á tilgangslaust ofbeldi og
sjónvarpsefni sem væri vinveitt
hegðun homma og lesbía. „Þetta
eru dimmir dagar en það er von,“
ritaði Franklin Graham sem sagði
undirstöður bandarísku þjóðarinn-
ar að hruni komnar en trúir því að
guð muni færa þjóðina á rétta braut.
„Von mín er sú að drottinn muni
á ný fara yfir land okkar og við von-
umst til þess að nýr neisti von-
ar muni fara um þá tugi þúsunda
heimila sem munu ná guðspjalli
okkar í gegnum My Hope með
Billy Graham. Þetta verður mikil
útbreiðsla á meðal okkar þjóðar,
sú mesta sem við höfum lagst í og
þess vegna þurfum við á bænum
ykkar og fjárstuðningi að halda,“
skrifaði Franklin Graham.