Dagblaðið Vísir - DV - 09.08.2013, Side 18
18 Fréttir 9.–11. ágúst 2013 Helgarblað
F
yrrverandi leigumorðingi
Rosalio Reta, 24 ára, hóf að
drepa fólk 13 ára gamall. Vin-
ur hans Gabriel Cardona, 26
ára, var litlu eldri eða 16 ára
en þeir voru partur af unglingateymi
leigumorðingja sem störfuðu fyrir
mexíkóska eiturlyfjahringinn Los Zet-
as. Reta og Cardona ólust upp í banda-
ríska landamærabænum Laredo í
Texas en þeir sitja nú í fangelsi í Banda-
ríkjunum og hafa sagt CNN sögu sína.
Þeir afplána báðir lífstíðardóma fyrir
morð.
Cardona segist ekki hafa tölu á
fórnarlömbum sínum en hann, Reta
og fleiri fengu þúsundir dala, bíla og
eiturlyf fyrir vinnu sína. Þeir störfuðu
fyrir Miguel Angel Trevino, leiðtoga
Zetas-gengisins, sem er frægur fyrir
hrottaskap sinn og miskunnarleysi.
Hann var handtekinn í Mexíkó fyrir
skömmu.
Fólki misþyrmt og afhausað
„Ég vissi að líf mitt hefði breyst að ei-
lífu,“ sagði Reta um augnablikið þegar
hann myrti mann í Mexíkó aðeins 13
ára. Þar sem Reta og Cardona áttu
fjölskyldu beggja vegna landamær-
anna gátu þeir ferðast yfir landamær-
in að vild. Þrettán ára fór Reta ásamt
tveimur vinum sínum á sveitasetur í
Mexíkó nærri landamærunum. Setrið
var í eigu eiturlyfjahringsins Los Zetas.
Reta og vinir hans tveir voru forvitnir
og höfðu fiktað við eiturlyf en þá óraði
ekki fyrir því sem beið þeirra á sveita-
setrinu. Þar sá Reta hluti sem áttu eftir
að brennast í sál hans alla ævi.
„Það var verið að pynta menn til að
fá frá þeim upplýsingar. Ég trúði ekki
því sem ég sá. Það var verið að pynta,
drepa og afhausa fólk. Maður trúði
ekki eigin augum.“ Reta vissi ekki hver
Trevino var en hann sá strax að hann
réð ferðinni og menn óttuðust hann.
Trevino leit á Reta og skipaði hon-
um að skjóta mann sem lá bundinn
á jörðinni. Reta þurfti því þrettán ára,
að eigin sögn, að velja á milli þess að
drepa eða vera drepinn. Hann skaut
manninn margsinnis. „Það er dagur
sem ég mun aldrei gleyma. Eftir þetta,
átt ég ekkert líf.“
Cardona hóf glæpaferil sinn sem
unglingur á því að stela bílum og
smygla þeim yfir landamærin. Innan
skamms var hann farinn að smygla
eiturlyfjum og vopnum. Sextán ára var
hann orðinn leigumorðingi.
Eyddi milljón á viku
„Á landamærunum eru margir sem
dragast inn í þennan lífsstíl gengj-
anna,“ segir Reta sem ólst upp aðeins
nokkrum húsaröðum frá landamær-
unum. Eftir að hann, Cardona og fleiri
fóru að vinna sem leigumorðingjar
fyrir Los Zetas fengu þeir greidda fleiri
þúsund dali á viku bara fyrir að vera
til taks. Þeir voru jafnvel að fá á bilinu
5.000 til 10.000 dali fyrir hvert morð –
um hálfa milljón og upp í rúmlega eina
milljón króna. Upphæðin hækkaði svo
eftir því sem skotmörkin voru „stærri“.
Reta og Cardona segjast ekki gera sér
grein fyrir því hversu mikið þeir fengu
borgað en Cardona áætlar að hann
hafi eytt rúmlega milljón króna á viku
á þessum tíma.
Fyrir unglingsstráka voru þetta
miklir peningar en þeir biðu við sím-
ann eftir skipunum. Báðir segja Reta
og Cardona að þeir hafi notið pening-
anna og þess valds sem fylgdi starfinu.
Þeim hafi þó ekki líkað við morðin.
Þrátt fyrir það eru til upptökur af Reta
frá því að hann var handtekinn þar
sem hann státar sig af því að hafa myrt
mann. Drengirnir aðhylltust því aug-
ljóslega það vægðarlausa hugarfar
sem tíðkast innan eiturlyfjagengja í
Mexíkó.
Í fangelsi fyrir lífstíð
Leigumorðingjar á vegum eiturlyfja-
hringjanna endast ekki lengi í þeim
geira. Þeir enda annaðhvort í fang-
elsi eða eru drepnir. Reta og Car-
dona myrtu fólk í þrjú ár áður en þeir
enduðu í fanglesi 16 og 19 ára gaml-
ir. Þegar Cardona var handtekinn ját-
aði hann að hafa drepið sjö menn auk
þess sem hann var dæmdur fyrir önn-
ur brot. Hann hlaut 80 ára fangelsis-
dóm.
Reta var farinn að óttast að óvinir
úr öðrum gengjum væru á höttunum
eftir honum til að ná fram hefndum.
Reta hafði því samband við fíkniefna-
lögregluna í Bandaríkjunum og gaf sig
fram. Reta játaði að hafa myrt tvo og
fékk tvo dóma, annan 30 ára og hinn
40 ára.
„Í dag sé ég eftir öllu sem ég hef
gert. Ég þoldi þetta ekki lengur. Þetta
var mjög erfitt. Ég var ekki að lifa mínu
eigin lífi,“ sagði Reta. Cardona iðrast
ekki jafn mikið og félagi hans. Hann
hugsar ekki mikið um ofbeldisverk for-
tíðarinnar. „Ég er góð persóna. Þetta
gerðist bara,“ segir Cardona og bætir
við: „Ég hélt alltaf að það sem dræpi
mig yrði byssukúla í höfuðið. Ég hélt
aldrei að ég myndi deyja í fangelsi.“
Mesti hrotti Mexíkó
Eiturlyfjabaróninn Miguel Ang-
el Trevino sem réð drengina til þess
að myrða keppinauta sína og sak-
laust fólk er þekktur undir nafninu
Z-40 af meðlimum Zetas og öðrum
gengjum. Hann er sem fyrr sagði einn
vægðarlausasti yfirmaður eiturlyfja-
hrings í Mexíkó en stríð yfirvalda gegn
eiturlyfja gengjum hefur verið gríðar-
lega blóðugt. Ofbeldi og morð sem
fylgt hafa því stríði hafa einkennst af
hrottaskap og vægðarleysi. Mexíkósku
gengin hafa verið óhrædd við að ráða
af dögum lögreglumenn, stjórnmála-
menn sem og almenning í stórum
stíl. Trevino hefur verið ákærður fyrir
skipulagða glæpastarfsemi, morð,
pyntingar og peningaþvætti.
Trevino vann sig upp metorðastig-
ann innan Zetas sem mikill harðhaus.
Hann þjónaði fyrri herrum með því
að ferðast á milli héraða og landa og
myrða samkeppnisaðila – „þurrka út“
heilu gengin.
Eftir að hann fór til Gvatemala
og stöðvaði samkeppnisaðilann í
eiturlyfja sölu fyrir Heriberto Lazcano
Lazcano var hann skipaður æðsti
stjórnandi Los Zetas árið 2008. Síð-
an þá hefur Trevino verið einn helsti
áhrifamaðurinn í ofbeldisöldu sem
riðið hefur yfir Mexíkó. Hann er
talinn tengjast morðum á 72 innflytj-
endum árið 2010 og San Fernando-
fjöldamorðinu árið 2011 þar sem 193
létu lífið.
Trevino hefur verið kallaður „Hinn
nýi Júdas“ af öðrum hátt settum með-
limum Zetas en auk þess að berjast
gegn öðrum gengjum hefur lengi geis-
að hörð valdabarátta innan Los Zetas
og hafa fjölmargir hátt settir meðlimir
verið myrtir eða handteknir á undan-
förnum árum.
Þegar mexíkóskar sérsveitir höfðu
hendur í hári Trevino þann 15. júlí
höfðu bæði þarlend stjórnvöld sem
og bandarísk sett himinhá peninga-
verðlaun til höfuðs honum. Talið er
að yngri bróðir hans, Omar Trevino
Morales, taki við sem yfirmaður Los
Zetas.
Reta lýsir Trevino sem „venjuleg-
um náunga“ dagsdaglega, en þegar
kom að „vinnunni“ hafi hann verið
vægðarlaus. Hann hafi jafnan sent
skilaboð til annara gengja með því að
afhausa menn. Reta segir vald Trevino
hafa verið „algjört“. „Í byssubardaga, í
öllum átökum var hann fyrstur til þess
að stíga út úr bílnum og leiða sitt fólk.
Hann biður fólk ekki um að gera eitt-
hvað sem hann er ekki tilbúinn að gera
sjálfur. Það er ástæðan fyrir því að svo
margir fylgdu honum.“ n
Framdi fyrsta
morðið 13 ára
n Bandarískir unglingaleigumorðingjar drápu fyrir eiturlyfjabarón í Mexíkó
Ásgeir Jónsson
blaðamaður skrifar asgeir@dv.is
„Ég er
mjög góð
persóna. Þetta
gerðist bara.
Rosalio
Reta, 24
ára Myrti
fyrst mann
þrettán ára.
Miguel Angel Trevino Einn harðsnúnasti
eiturlyfjabarón Mexíkó fyrr og síðar.
Cabriel Cardona, 26 ára Myrti fyrst
mann sextán ára.
Stjörnur Unglingamorðingjarnir eru goð í
augum sumra en hér má sjá mynd af þeim á
sitjanda ungrar konu.
193 látnir Trevino
er talinn tengjast
fjöldamorðinu í San
Fernando árið 2011 þar
sem 193 voru drepnir.